Fréttablaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 19
FÖSTUPAGUR 22. júní 2001 FRETTABLAÐIÐ 19 Kaffi Ozio: Þelóníus j azzar tónleikar Hljómsveitin Þelóníus er augljóslega skýrð í höfuðið á meist- aranum Thelonius Monk, en hún er skipuð fimm ungum jazztónlistar- mönnum, þeim Steinari Sigurðarsyni saxófónleikara, Hannesi Helgasyni píanóleikara, Ragnari Emilssyni gít- arleikara, Sveini Áka Sveinsyni basssaleikara og Þorvaldi Þór Þor- valdssyni trommuleikara. Hljóm- sveitin hefur verið starfrækt í níu mánuði og piltarnir eru allir nemar í tónlistarskóla FÍH nema einn sem er útskrifaður. Nú á sunnudagskvöldið verða þeir með tónleika á kaffi OZIO í Lækjar- götu þar sem þeir ætla að flytja lög eftir þá Thelonious Monk og Joe Henderson og eiga allir örugglega eftir að finna eitthvað við sitt hæfi. Tónleikarnir hefjast klukkan hálftíu, en aðgangseyrir er 600 krónur og fylgir söngvatn með hverjum seldum miða. ■ GÍTARLEIKARINN Ragnar Emilsson er einn hinna ungu jazz- ara sem ætla að flytja verk eftir Thelonius Monk og fleiri. ■HjÉC ERRÓ í HAFNARHÚSINU hvorki tölvu né handsíma," segir listamaðurinn. popp-barokk. Ég hef alltaf verið svo hrifinn af barokkinu og verð æ hrifnari af því eftir því sem ég eld- ist. Mér finnst þessi stíll passa nokkuð vel við nútímann, en það má rekja hann langt til baka. Til dæmis finnst mér að stíllinn á teikningum í gömlum handritum sé mjög líkur þessum poppstO með línum og flöt- um.“ ■ i -—-------------—— ------—-— Sýningin er opin frá kl. 11 til 16 mánu- daga til laugardaga til 25. ágúst MYNPLIST_____________________________ Sýning á verkum kalifornísku listakon- unnar Karenar Kersten, sem hún kallar Alls staðar, stendur yfir á Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 14. Gunnar Gunnarsson sýnir 27 málverk frá árunum 1994-2001 í Veisiugallerínu og f Listacafé f Listhúsinu í Laugardal. Sýningin er opin alla daga frá kl 9-19 og sunnudaga kl. 12-17. Sýning á verkum þýska listamnansins Andreas Green stendur yfir í Hafnar- borg. Hann er fæddur 1954 og hefur starfað við Ijósmyndun, grafík og mál- verk og sýnt verk sín víða m.a. í Kassel á Dookumenta. Árið 1991 stofnaði hann Kunstlerhaus-Cuxhaven. Sýningin er opin alla daga nema þeiðjudaga kl. 11- 17 og henni lýkur 2. júlí. Þýski myndlistarmaðurinn Werner Möll- er sýnir málverk í Hafnarborg. Á sýning- unni verður Werner með 30 lítil akrýl- málverk og eitt stórt textílverk. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og hennir lýkur 2. júlí. Nú stendur yfir í Kaffistofu Hafnar- borgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, sýning á grafíkverkum Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur. Sýningin samanstendur af skissum og skyssum sem rispaðar eru á kopar-, plast- eða tréplötur með beittum verk- færum. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá klukkan 11 til 17 og hún stendur til 2. júlí. Margrét Magnúsdóttir sýnir í Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg 5. Sýningin samanstendur af málverkum og þrívíð- um hlutum. Sýningin stendur til 23. júní og er opin á verslunartíma. Sýningin List frá liðinni öld stendur yfir í Listasafni ASÍ. Á sýningunni eru sýnd öndvergisverk úr eigu Listasafsnins. Litið er til fyrri hlutar síðustu aldar og sjónum beint annars vegar að yngri verkum frumherjanna. Sýningin stendur til 12. ágúst. Sumarsýning Listasafns Sigurjóns Ólafssonar ber yfirskriftina Hefð og ný- sköpun. Þar má sjá úrval verka eftir Sig- urjón frá þrjátíu ára tímabili, 1930-60. Safnið er opið alla daga milli klukkan 14 og 17, nema mánudaga. Arnar Herbertsson heldur sýningu á verkum sínum í Listasal Man við Skóla- vörðustig 14. Sýningin stendur til 20. júní og er opin á virkum dögum kl. 10- 18 og um helgar kl. 14-18. Sýningin Norrænir hlutir opnaði um belgina í Norræna húsinu. Á sýningunni eru verk listamanna frá Danmörku, Finn- landi, Islandi og Noregi. Sýningin er lið- ur í átaki sem nefnist Hin nýju Norður- iönd. Sýningin er opin daglega frá kl. 12 til 17, nema mánudaga. Sumarsýning Listasafns íslands nefnist Andspænis náttúrunni. Á henni eru eingöngu verk eftir (sendinga í eigu safnsins og fjallar hún um náttúruna sem viðfangsefni íslenskra listamanna á 20. öld. Verkin á sýningunni eru eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinn- ar á nýliðinni öld, frá Þórarni B. Þorláks- syni til Ólafs Elíassonar. Opið frá kl. 11 til 17 alla daga nema mánudaga. Aðgang- ur er ókeypis á miðvikudögum. Sýningin stendur til 2. september. Svipir lands og sagna nefnist sýning á verkum Ásmundar Sveinssonar sem opnuð var um helgina í Listasafni Reykjavíkur Ásmundarsafni. Á sýning- unni eru verk sem spanna allan feril listamannsins og sýna þá þróun sem varð á list hans í gegnum tiðina. Safnið er opið daglega 10-16 og stendur sýn- ingin til 10. febrúar á næsta ári. Norðmaðurinn Gisle Nataas hefur opn- að sýningu á Mokka-kaffi við Skóla- vörðustíg. Sýninguna nefnir listamaður- inn Eitt andartak og þrjár samræður og fjallar hún um hreyfingu og rými. Ljós og skugga. Sambandið á milli mynda og samræðna og þau áhrif sem hlutirnir hafa á rýmið. ■ Afhending úr sjóði: Einhver á von á glaðningi mynplist Við opnun yfirlitssýningar á verkum Errós klukkan átta annað kvöld fer fram afhending úr Lista- sjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur, móðursystur Erró, til framúrskar- andi listkvenna á sviði myndlistar og er þetta í fjórða sinn sem veitt er úr sjóðnum. Veitt er árlega úr sjóðnum, sem Erró stofnaði ti! minningar um frænku sína og er honum ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna. Jafnframt leikur jasstríóið Flís við opnunina. Sýningin er í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. ■ Kammertónlist: íslensk tónverk á Jónsmessu tónleikar Fjórir BRYNDÍS HALLA Verður í góðum félagskap í Ými á sunnudag. tónlistarmenn, þau Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanó- leikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Sig- urður Ingvi Snorrason klar- inettuleikari, verða með tónleika í Ými, tónlistarhúsi Karlakórs Reykja- víkur við Skógar- hlíð, á sunnudaginn kemur klukkan fjögur síðdegis. Á efnisskránni eru fimm íslensk tónverk eftir jafnmörg tónskáld: „Ristur" fyrir klarínettu og píanó eft- ir Jón Nordal, „Þrjú næturljóð" fyrir fiðlu, klarinettu, selló og píanó eftir Pál Pampichler Pálsson, „Plutöt blanche qu¥azurée“ eða „Fremur hvítt en himinblátt" fyrir klarínettu, selló og píanó eftir Atla Heimi Sveinsson, „Sónatína'1 fyrir klar- ínettu og píanó eftir Áskel Másson og „Áfangar" fyrir fiðlu, klarínettu og píanó eftir Leif Þórarinsson. ■ Könnunarferð á Jónsmessu: Hulduheimíir Hafnarfjarðar dultrú Boðið verður upp á Jónsmessuferð um hul- iðsheima Hafnarfjarðar með Erlu Stefánsdóttur sjáanda annað kvöld klukkan tíu. Ferðin tek- ur rúmlega tvo tíma og er farið með rútu á þá staði sem mestan kraft- inn gefa og sumarsól- stöðum fagnað. Lagt er af stað frá Upplýsinga- miðstöð Hafnarfjarðar, Vesturgötu 8. Nauðsyn- legt er að bóka sig í ferð- ina, sem kostar 1.800 kr. Jónsmessunótt er í miklu eftirlæti hjá Erlu Stefánsdóttur enda er VINKONA ÁLFANNA Erla Stefánsdóttir ætlar að sýna fólki í heimana tvo í Hafnarfirði. hún ein þeirra fjögurra nátta í íslenskri þjóðtrú sem taldar eru magn- aðastar og þá geta alls kyns dularfullir hlutir gerst í samskiptum manna og álfa. Jóns- messunóttin er sú eina að sumri til. Hinar næturn- ar eru allar í skammdeg- inu jólanótt, nýársnótt og þrettándanótt. Erla ætlar að kenna þeim sem vilja að hlusta á náttúruna og finna jafnvægi landsins. Heilsað verður upp á vatnadísir og gerðar orkuæfingar með hjálp trjávera. ■ Louise Bourgeois: Risakönguló í New York myndlist Þessir stóru svörtu fætur tilheyra tíu metra hárri könguló, sem raunar er höggmynd eftir frönsku listakonuna Louise Bourgeois. Lista- konan er raunar komin til ára sinna, því hún er fædd árið 1911 í París en hefur búið lengst af í New York. Köngulóin stóra er einmitt staðsett í New York innan um Rockefeller há- hýsin sem sjá má umkringja kvikind- ið. Þessari stóru könguló fylgja tvær smærri og verða þær til sýnis á þess- um stað til hausts þannig að þeir sem leggja leið sína þangað í sumar ættu endilega að kíkja á gripinn. ■ Sími 567 8730 GSM 82-1 484 > m 1 2. - SUUT5L tef 1 cr>ratTL\3.ö-uxn c3. j úphreinsun m ö s s u. n. sILþmLf OPIÐ ALLA VIRKA DAGA 8 www. teflon.is • Krókhálsi 5 • To Þú þarft ekki einu sinni skæri til að stytta þær Trekker Convertible buxur 1 V . \ A V Þú bara rennir skálmunum af og á allt eftir þörfum. Omni-Dry létt og fljótþornandi efni. ■ ^Columbia V Sporlswear Company* NANOQ*

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.