Fréttablaðið - 22.06.2001, Síða 22

Fréttablaðið - 22.06.2001, Síða 22
22 FRÉTTABLAÐIÐ 22. júní 2001 FÖSTUPAGUR J afningj afræðslan: Vímulaus möguleiki ferðir Einn þeirra ótalmörgu „vímulausu" möguleika sem ungu fólki stendur 'til boða um þessar mundir eru útivistarferðir jafn- ingjafræðslu Hins Hússins. Heiðar Örn Stefánsson umsjónarmaður Flakk-ferða segir þennan kost afar vinsælan, en ferðirnar eru í sam- vinnu við Námuna, Útilíf og Sprite, auk þess sem Samvinnuferðir- Landsýn koma að utanlandsferð- um. Sem dæmi um valmöguleika innanlands má nefna svifflug, kajak-róður, flúðaflan, vélsleða- ferðir o.fl. ■ Forseti Mexíkó: Keypti húsbúnað fyrir 40 milljónir mexIkóborc. ap. Vicente Fox, forseti Mexíkó, hefur opinberað að hann sé mikil eyðslukló og að í forsetabústað sínum í Los Pinos sé að finna rándýran húsbúnað á borð við 40 þúsund króna handklæði og fjarstýrð gluggatjöld. Mál þetta hófst þegar mexíkóskt dag- blað birti lista yfir þann búnað sem for- setinn hafði keypti í hús sitt frá því hann tók við forsetaembættinu í des- ember á síðasta ári, en listann var að finna á heimasíðu mexíkósku ríkis- stjórnarinnar. Var búnaðurinn alls um 40 milljóna króna virði. Á listanum eru m.a. þrjú sérsaumuð handklæði fyrir 40 þúsund krónur hvert, gluggatjöld sem kostuðu tæpar tvær milljónir króna og 100 þúsund króna lök. Fox hefur varið kaup sín á rándýrum hús- búnaðinum og sagt að útgáfa listans sé til merkis um að nú geti almenningur loks fengið að sjá eyðslu stjórnvalda svart á hvítu. Diaz sýndi fréttamönn- um meira að segja dýrasta handklæðið sem hann átti; gríðarstórt egypskt bað- handklæði úr bómull sem keypt var af bandarískum aðilum. Venjulega kostar slíkt handklæði um 6 þúsund krónur, sem jafnast á við vikulaun meðaljóns í Mexíkó, en Diaz keypti það hins vegar á sjöfalt hærra verði og hefur það háa verð sem hann hefur borgað fyrir meirihluta húsbúnaðarins vakið mikla undran á meðal þariendra fyrirtækja sem selja slíkan búnað. Mexíkóbúar eru um 100 milljónir talsins og lifa um 40% þeirra í mikilli fátækt. Máhð hefur vakið mikla reiði í Mexíkó, enda ekki skrítið þar sem lægstu laun nema aðeins um 15 þúsund krónum á mánuði. Mexíkó er löngu þekkt fyrir mikla eyðslu forseta sinna. Gustavo Diaz Or- daz, fyrrverandi forseti, keypti sér t.d. go-kart kappakstursbraut, kvikmynda- sal og keilusal á meðan hann var i emb- ætti á árunum 1964-70. ■ VERÐMIÐINN SKOÐAÐUR Clara Diaz, yfirmaður einnar stærstu og dýrustu verslunarmiðstöðvar Mexíkó, skoð- ar verðmiða á handklæði. Verð húsbúnað- arins sem forsetinn keypti hefur vakið mikla undran, en ekki hefur enn verið fundið út hvaðan búnaðurinn var keyptur. 1FRÉTTIR AFFÓLkTI Réttindastofa Eddu - miðlunar og útgáfu hefur samið um útgáfu á bók Guðrúnar Helgadóttur og Brians Pilkingtons, Ástar- sögu úr fjöllunum, á Ítalíu. Það er Fabbri Editori sem gefur bókina út þar í Iandi á næsta ári, eitt dótturforlaga út- gáfurisans RCS Libri. Meðal sí- gildra höfunda Fabbri eru Antoine de Saint-Exupéry, Mark Twain, Lewis Carroll, Jack London og Roald Dahl. Ástarsaga úr fjöllunum er ein vinsælasta barnabók síðari ára á íslandi. Hún kom fyrst út hér á landi árið 1981 og hefur síðan verið gefin út í Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum, Bandaríkjunum og Japan. I^Frjálsri verslun er sagt frá því að fyrirhugaðar barneignir séu við- kvæmt umræðuefni sem stjórnendur forðist flestir að ræöa í ráðningavið- tölum. Þeir hljóti þó að velta fyrir sér hversu lengi nýráðnir starfsmenn haldist í vinnu þar til kemur að barnsburðarleyfi og jafnvel hvort borgi sig að þjálfa upp starfsmann ef hann hverfur svo á braut innan nokk- urra missera. Guð- rún Helga Sigurðar- dóttir spyr m.a. Ólaf Jón Ingólfsson, starfsmannastjóra hjá Sjóvá-Almenn- um um þetta viðkvæma mál og hann svarar: „Ég þekki ékki dæmi þess að konur séu spurðar um barneignir í ráðningarviðtölum og veit ekki til þess að það sé mikið gert. í eina skiptið sem ég hef rætt þessa hluti við kvenmann var þegar ég fyrirhug- aði að senda konu í þjálfunarbúðir í Ameríku vegna verkefnis sem átti að standa yfir í meira en eitt ár. Viðkom- andi var á góðum aldri, barnlaus og í sambúð og því fannst mér eðlilegt að ræða þetta opinskátt við hana. Það endaði með því að konan var send til Ameríku, kom til baka og kláraði verkefnið. Hún varð síðan fljótlega ólétt eftir það.“ Afreisting.is getur að líta eftirfar- andi frásögn sem ekki er lystug ef sönn er: Nú á tímum ofurverðs á grænmeti, hefur heyrst að einstaka veitingahús í höfuðborginni séu farin að fara heldur óskemmtilegar leiðir til að lækka hjá sér hráefnisreikning- ana. Ákveðið veitingahús í miðborg- inni, mun stunda það að kaupa græn- meti sem dagað hefur uppi eða er orðið „óhæft“ til sölu í verslunum. Verðið sem verið er að greiða fyrir þetta „rusl“ samsvarar flutnings- kostnaðinum og þarf viðkomandi verslun ekki að greiða urðunarkostn- að. í staðinn fyrir að aka grænmetinu á haugana er það flutt í gámum í port veitingastaðarins, skorið úr því það sem talið er nýtilegt og selt svöngum, erlendum matargestum. Með þessu móti hafa forsvarsmenn veitingastað- arins getað undirboðið flest þeirra veitingahúsa í miðbænum, sem gera út á erlenda ferðahópa. Hvar er heil- brigðiseftirlitið? ■ 20.-23. JÚNÍ Sumarið er komið! Nýjar sumarvörur eru nú í öllum verslunum Kringlunnar. Komdu og skoðaðu, gæddu þér á girnilegum réttum og gerðu góð kaup á nýjum vörum á Kringlukasti. Opi6 til kl. 19:00 í dag. Veitingastaðir og Kringiubió eru með opið lengar á kvöidin. NÝJAR VÖRUR 20%-50% ¥ Upplýsingar í sima 588 7788 JAFNINGJAFRÆÐSLA HINS HÚSSINS. Forsvarsmenn hópsins hafa áhuga á að efla starfsemina enn frekar Ungur fræðir ungan Sumarátak hjá jafningjafræðslu Hins Hússins forvarnir „Það er okkar draumur, sem nú virðist í þann mund að ræt- ast, með hjálp styrktaraðila eins og ESSO að komast hringinn í kringum landið með fræðsluna", segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir einn þriggja stjórnenda jafningjafræðslu Hins Hússins. „En við þurfum meiri fjár- styrk en þann, til að draumurinn verði að veruleika" bætti Agla Marta Stefánsdóttir við. Jafningjafræðslan er aðallega starfrækt yfir sumartím- ann og er hugmyndin sú að stuðla að forvörnum gegn vímuefnanotkun meðal ungs fólks, þar sem „ungur fræði ungan". 15 manns á aldrinum 17-22 ára hafa verið ráðnir úr hópi 96 umsækjenda. Leiðbeinendurnir, sem ýmist hafa verið í neyslu fíkniefna eða ekki, fara í upphafi á námskeið „þar sem þeir læra um efnin og hætt- urnar og fá fræðslu fá ýmsum sér- fróðum aðilum." Aðferðir við jafn- ingjafræðsluna eru nokkuð óhefð- bundnar, þar sem ekki er um mötun á upplýsingum að ræða eða svokall- aðar „predikanir", heldur er áhersla lögð á umræður. „Það er bara mjög mikilvægt að þau myndi sér skoðan- ir á þessum málefnum áður en þau lenda til dæmis í partíum þar sem áfengi og hass er á boðstólum, þau séu þá búin að taka sínar ákvarðanir. Fyrsta skrefið er að þora út í þessa umræðu." Gert er ráð fyrir að unglingar fái einn frídag frá vinnuveitendum til að taka þátt í dagskrá helgaðri fræðsl- unni. Henni er ætlað að „vera skemmtileg" og er til að mynda flétt- að saman við leiki. Nú er hinsvegar erfiðara að ná til aldurshópsins þar sem færri fara í Vinnuskóla Reykja- víkur en áður. „Þess vegna erum við nú að reyna að selja fyrirtækjum fræðslu", segir þriðji stjórnandi fræðslunnar, Oddný Helgadóttir, „markmiðið er líka að halda þessari starfsemi að einhverju leyti áfram yfir veturinn og nú leitum við að stuðningsaðila svo við getum hrint þeirri hugmynd í framkvæmd að skrifa vikulega í Fréttablaðið um það sem efst er á baugi hjá okkur. ■ MARECO UGARTE/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.