Fréttablaðið - 13.07.2001, Qupperneq 12
12
FRETTABLAÐIÐ
13. júlí 2001 FÖSTUDAGUR
BSRB:
Átak til að
efla tölvulæsi
STARFSMENNTUN Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja, BSRB og Nýi
tölvu- og viðskiptaskólinn, NTV hafa
undirritað samning tii að efla tölvu-
læsi félagsmanna aðildarfélaga. Alls
tóku átta skólar þátt í útboði en NTV
átti lægsta tilboðið um 42 milljónir
króna. Ogmundur Jónasson formaður
BSRB segir að þetta sé stærsta verk-
efni sem samtök launafólks hefur
ráðist á þessu sviði.
Þá er almennur vilji meðal
starfsmenntunararsjóða aðildar-
félaga BSRB til að taka þátt í
kostnaði félagsmanna. Það þýðir
að námskeiðin verða trúlega fé-
lagsmönnum að kostnaðarlausu en
þau kosta 28 þúsund krónur. Þá
hefur þetta átak vakið athygli er-
lendis og m.a. í Bretlandi. Ráðist
er í þetta átak í framhaldi af skoð-
anakönnun um tölvulæsi BSRB-fé-
SAMNINCUR UNDIRRITAÐUR
Forusta BSRB og Nýja tölvu- og viðskiptaskólans binda miklar vonir við samstarf um að
auka tölvumenntun opinberra starfsmanna
laga í fyrra. Þar kom fram afger-
andi vilji félagsmanna til að efla
tölvukunnáttu sína. í fyrsta áfan-
ga verður boðið upp á 100 nám-
skeið, 75 á höfuðborgarsvæðinu
og 25 úti á landi með áherslu á al-
menna tölvukunnáttu, stýrikerfi
og netið. ■
UMKRINCDUR FRÉTTAMÖNNUM
Margir Búlgarar hafa fagnað endurkomu Simeon og hrifist af bakrunni hans sem aðalsmanns auk ferskra hugmynda hans, enda margir
eflaust orðnir þreyttir á þeim fjölmörgu hneykslismálum sem komið hafa upp í landinu eftir fall kommúnismans árið 1989.
Kóngur verður
forsætisráðherra
Simeon II var krýndur konungur Búlgaríu 6 ára gamall. Sneri aftur úr
útlegð fyrir þremur mánuðum.
Eldflaugavarnarkerfi:
Undir-
búningur
hefst í apríl
WASHINCTON. ap. Bandaríska varn-
armálaráðuneytið, Pentagon, ætl-
ar í apríl á næsta ári að hefja
undirbúning fyrir tilraunir á
nýju eldflaugavarnarkerfi. Talið
er að tilraunirnar, sem að öllum
líkindum munu fara fram í
Alaska, gætu brotið í bága við
ABM samkomulagið við Sovét-
ríkin frá árinu 1972 sem kveður á
um bann við eldflaugavörnum, en
það var á sínum tíma undirritað
til að koma í veg fyrir frekara
vígbúnaðarkapphlaup á milli
stórveldanna tveggja. í vitnis-
burði sínum fyrir vopnanefnd
öldungadeildar Bandaríkjaþings,
vildi Paul Wolfowitz, fulltrúi
varnarmálaráðuneytisins, ekki
greina nánar frá tilraununum, en
sagðist þó fullviss um að einhver
umræða muni verða um hvort til-
raunirnar muni brjóta í bága við
samkomulagið um eldflauga-
varnir. Vonaðist hann þó til að
fljótlega yrði hægt að ná nýju
samkomulagi við Rússa um eld-
flaugavarnir. ■
|löcreglufréttir|
Búist er við hundruðum eða
þúsundum ferðamanna á
Suðureyri um helgina þar sem
hinir árlegu Sæludagar fara
fram. Lögreglumenn á ísafirði
sem fást við löggæslu á Suður-
eyri sögðust þó ekki gera ráð
fyrir því að það þyrfti að hafa
sérstakan viðbúnað af þessum
sökum. Hátíðirnar hefðu farið
vel fram á undanförnum árum
og því ekki útlit fyrir auknar
annir þó íbúafjöldinn yfir helg-
ina ykist stórkostlega.
Daglegt puð lögreglunnar á
Siglufirði hefur verið í lág-
marki undanfarna daga enda
bæjarlífið gengið vel fyrir sig
að undanförnu. Útlit er þó fyrir
að verkefnum lögreglunnar taki
að fjölga nokkuð á næstunni ef
norsk og færeysk loðnuskip
sem eru að veiðum á mörkum
landhelginnar koma í höfn til að
landa afla sínum. Lögreglan
hefur tolleftirlit með höndum
og mun því tollskoða þau er-
lendu skip sem koma til hafnar.
SOFÍA. BÚLCARÍU. ap. Simeon II, fyrr-
verandi konungur Búlgaríu, var í
gær tilnefndur sem næsti forsæt-
isráðherra landsins, eftir að
Plamen Panayotov, formaður
þingflokks Simoen hafði átt fund
með Petar Stoyanov, forseta. Að
sögn Panayotov var tilnefning
hans til forsætisráðherra sam-
þykkt einróma af flokksmeðlim-
um í síðasta mánuði en ákveðið
hafi verið að halda henni leyndri
þar til í gær.
Flokkur Simeon, sem er fjar-
skyldur ættingi Elísabetar II
Englandsdrottningar, vann yfir-
burðasigur í búlgörsku þingkosn-
ingunum þann 17. júní og er búist
við Simeon muni mynda nýja rík-
isstjórn í landinu innan 10 daga.
„Með sterkum tilfinningum, en
samt sem áður með minni eðlis-
lægu ábyrgðartilfinningu, tek ég
þessu boði með traust kjósenda
frá 17. júní í huga,“ sagði Simeon
eftir að Stoyanov hafði veitt hon-
um umboð til að mynda ríkis-
stjórn.
Simeon var krýndur konungur
Búlgaríu aðeins 6 ára gamall árið
1943 eftir dauða föður síns, Boris.
Þremur árum síðan missti hann
völdin eftir þjóðaratkvæða-
greiðslu í landinu, sem talið er að
kommúnistar hafi hagrætt. Níu
ára gamall þurfti hann því að
flýja land og fór hann með móður
sinni, Ioanna, til Egyptalands.
Þaðan fluttist hann síðar til Spán-
ar þar sem hann vann við ýmis-
konar ábyrgðarstörf.
Fyrir aðeins þremur mánuðum
sneri hinn 64 ára gamli Simeon
síðan aftur til Búlgaríu úr útlegð-
inni.
Fyrst hafði hann hug á að
bjóða sig fram til forseta en fékk
ekki sökum þess að hann hafði
ekki búið nógu lengi í landinu.
Þess í stað ákvað hann að stofna
Þjóðarhreyfinguna, hægri flokk
við miðju, sem hefur það m.a. á
stefnuskránni að binda endi á fá-
tækt í landinu og draga úr at-
vinnuleysi, en ástandið í Búlgaríu
hefur verið afar slæmt eftir um-
skiptin sem urðu við fall komm-
únismans. Að sögn Simeon mun
endurreisn konungsveldisins hins
vegar ekki vera á stefnuskrá
hans, en hann hefur þrátt fyrir
það aldrei afsalað sér konungs-
tign sinni. ■
Geimskutlunni Atlantis
skotið á loft:
Flytur nýja
hurð fyrir
geimstöð
CANAVERALHÖFÐI. FLÓDÍDA. AP.
Geimskutlunni Atlantis var skot-
ið á loft í gær og stefnir hún á al-
þjóðlegu geimstöðina Alpha með
nýja hurð sem koma á fyrir í
geimstöðinni, en hurðin kostaði
164 milljónir dala í framleiðslu.
Geimskotið var fyrst áætlað fyr-
ir mánuði en var frestað vegna
tæknilegra örðugleika í geim-
stöðinni. Áhafnarmeðlimir
geimskutlunnar eru fimm talsins
og er reiknað með að það taki þá
KRÓNPRINS JÚGÓSLAVfU
Aleksander Karadjordjevic var hylltur af
þorpsbúun í Topola, 70 km suður af
Belgrad er hann var á ferð að heimsækja
leiði ættingja og skoða hús í eigu fjölskyld-
unnar þar.
Júgóslavía:
Kongungs-
fjölskyldu af-
hentar eignir
belcrað. ap. Júgóslavneska ríkis-
stjórnin samþykkti í gær að leyfa
konungsfjölskyldunni, Karadjor-
djevic, að flytja inn í höll forfeðr-
anna í miðborg Belgrad eftir ára-
tuga útlegð.
Aðgerðin er hluti af loforði
ríkisstjórnarinnar um að veita
konungsfjölskyldunni sín fyrri
réttindi en hún var gerð útlæg af
kommúnistum þegar þeir komust
til valda að lokinni heimsstyrj-
öldinni síðari.
Fyrr á árinu var fjölskyldunni
afhent vegabréf og hafist var
handa við að semja lög sem
kveða á um afhendingu eignanna
sem kommúnistar gerðu upptæk-
ar á sínum tíma.
Fyrrverandi forseti
Júgóslavíu, Slobodan Milosevic,
leyfði fjölskyldunni að heim-
sækja landið á nýjan leik í byrjun
tíunda áratugarins en vildi hvor-
ki skila eigum þeirra né ríkis-
borgararétti.
Karadjordjevic-f jölskyldan
hefur búið í Bretlandi frá lokum
heimsstyrjaldarinnar. Nokkrir
meðlimir fjölskyldunnar hafa
sótt landið heim á undanförnum
árum, stutt við bakið á lýðræðis-
hreyfingum og sinnt hjálpar-
störfum. ■