Fréttablaðið - 13.07.2001, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
13. júlí 2001 FÖSTUDACUR
Á HVAÐ TÍMUM LIFUM VIÐ?
Ragnar Halldórsson
ritstjóri Fálkans
Við lifum á breytingatímum. Við höfum upp-
fyllt flestar grunnþarfir okkar á efnissviðinu
þótt við viljum reyndar alltaf meira. Við erum
farin að koma auga á margt annað í tilver-
unni. Ég held að mannúðarhyggja verði ein-
kenni á komandi öld og nærgætni gagnvart
náunganum og tilfinningum okkar. ■
HVERT ERTU AD FARA UM HELGINA?
SIGURÐUR
SNORRASON
Ég er að fara I hey-
skap um helgina,
upp í Norðurárdal.
Það er spáð góðu
veðri þannig að ég
ætla að hjálpa vini
mínum sem er bóndi
í heyskapnum eins
og ég hef gert mörg
undanfarin ár.
HELGA
BENEDIKTSDÓTTIR
Ég er að fara til Vest-
mannaeyja að heim-
sækja vinkonu mína
og ætla að vera þar
yfir helgina.
EINAR
BRYNJARSSON
Ég er að fara hring-
inn i kringum landið,
ég veit ekki hvora
leiðina. Við verðum í
svona viku. Ég hef
ekki farið hringinn
áður.
DAVE DEAN
Ég er að fara norður
í land í ferð með
Bátafólkinu. Við verð-
um i vestari Jökulsá.
ARI BERG
Ég er að fara til Egils-
staða á kajak og verð
um helgina. Við
verðum i Eyvindará
og Grímsá.
NANNA
KRISTINSDÓTTIR
Ég fer í mesta lagi að
hjóla um Reykjavík á
nýju hjóli.
Jóladagar í júlí:
Skraut,
sveinar og öl
markaður Um helgina verða Jóla-
dagar í Jólahúsinu í Kópavogi. Á
lóð Jólahússins við Smiðjuveg í
Kópavogi verður jólamarkaðs-
stemning ríkjandi, jólaskrautið
verður á markaðsverði, jóla-
sveinn lítur við og boðið verður
upp á jólaöl. Þetta er í fyrsta sinn
sem haldnir eru Jóladagar í júlí. ■
Sumarkvöld við orgelið:
Efnilegur Svíi
tónlist Tónleikaröðin Sumarkvöld
við orgelið stendur nú í Hall-
grímskirkju. Um helgina heldur
Ulf Norberg, einn efnilegasti org-
anisti Svía, tvenna tónleika en
organistarnir sem koma fram í
tónleikaröðinni í sumar eiga það
sammerkt að vera ungir að árum.
Norberg er þar engin undantekn-
ing, aðeins 24 ára gamall.
Fyrri tónleikar Norbergs verða
kl. 12.00 á morgun en þá leikur
hann verk eftir Louis Vierne og
tvo sænska fulltrúa rómantískrar
orgeltónlistar, Emil Sjögren og
Oskar Lindberg. Á seinni tónleik-
um sínum, kl. 20.00 á sunnudag-
inn, leikur Norberg m.a. konsert
eftir Vivaldi í orgelumritun Bachs
(BWV 596) og magnaða fantasíu
og fúgu um tónana og nafnið B A
C H eftir Max Reger. Einnig ætlar
hann að iðka hina fornu list að
leika af fingrum fram, en þess má
geta að hann kynntist kennara sín-
um í spuna, hinum fræga spuna-
meistara Anders Bondeman, á
Norrænum orgeldögum, sem
haldnir voru í Hallgrímskirkju í
september 1999. ■
ORGELIÐ GÓÐA
Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju er
tónleikaröð sem hefur unnið sér sess, sér-
staklega meðal erlendra ferðamanna.
Þýskur þýðandi:
Lestur
og spjall
bókmenntir í dag er þýska ljóð-
skáldið og þýðandinn Manfred
Peter Hein gestur Þýðingaseturs
Hugvísindastofnunar Háskólans.
Hann mun lesa ljóð og texta eftir
sig sem að hluta verða þýdd á ís-
lensku. Manfred Peter Hein hefur
verið búsettur í Finnlandi frá ár-
inu 1958 og hefur gefið út fjölda
ljóðabóka og einnig prósa og mik-
ið af þýðingum úr finnsku, ljóð,
prósa og leikrit. Lesturinn hefst
klukkan 15 í stofu 301 á þriðju
hæð í Nýja Garði við Suðurgötu
og eru allir velkomnir að hlýða á
og spjaOa. ■
FÖSTUDAGUR
13. JÚLÍ
FYRIRLESTRAR_______________________
15.00 Þýska Ijóðskáldið og þýðandinn
Manfred Peter Hein les Ijóð og
texta eftir sig sem að hluta verða
þýdd á íslensku. Lesturinn verður
í stofu 301 á þriðju hæð í Nýja
Garði við Suðurgötu og eru allir
velkomnir.
17.30 Atlantshafsbandalagið og Evr-
ópusambandið er yfirskrift mál-
fundar um stækkun NATO, eld-
flaugavarnarkerfið og vanda ís-
lenskrar ráðastéttar andspænis
ráðastéttum annarra landa og
vinnandi fólki heima fyrir. Mál-
þingið verður haldið í Pathfinder-
bóksölunni, Skólavörðustíg 6B og
standa Ungir sósíalistar og að-
standendur sósíalíska fréttablaðs-
ins Militant að því.
LEIKHÚS____________________________
20.00 Stúdentaleikhúsið sýnir leikritið
Ungir menn á uppleið í Kaffi-
leikhúsinu í kvöld. Boðið er upp
á mat frá Tapasbarnum og mæta
matargestir kl. 19.00.
20.00 Einleikhúsið sýnir leikritið Fröken
Júlía - enn og aftur alveg óð
í Smiðjunni Sölvhólsgötu 13.
20.30 Söngleikurinn Hedwig er sýndur í
Loftkastalanum í kvöld. Aðalhlut-
verkið er í höndum Björgvins
Franz Gíslasonar en Magnús Geir
Þórðarson leikstýrir sýningunni.
Höfundur er John Cameron
Mitchell.
TÓNLIST____________________________
22.30 Föstudagurinn þrettándi, tónleikar
á Grand Rokk. Siðrokkbandið Suð
og pönkhljómsveitin Fræbbblarnir
spila á Grand Rokk I dag.
Bang Gang á Gauknum á sunnudagskvöld:
Kaílaskila-
tónleikar
tónust Hljómsveitin Bang Gang
heldur tónleika á Gauknum á
sunnudagskvöld en ekkert hefur
heyrst til hljómsveitarinnar hér á
landi í tæpt ár.
Bang Gang gaf út plötu hér
heima fyrir þremur árum. Sú
plata kom út í Frakklandi fyrir
síðustu jól og gekk ágætlega þar
að sögn Barða Jóhannssonar og
Arnars Þórs Gíslasonar. „Fyrir ári
var sett saman band en áður var
ekki hljómsveit á tónleikum," seg-
ir Barði. Hljómsveitin sem kemur
fram er alltaf skipuð sömu mönn-
um en mismunandi söngkonur
hafa fylgt sveitinni á tónleikum.
Auk Barða sem leikur á gítar og
Arnars sem ber trommur er hún
skipuð Jóhanni Gunnarssyni sem
leikur á bassa og Þórhalli Berg-
mann sem spilar á hljómborð.
Söngkonurnar Védís Hervör
Árnadóttir, Sara Guðmundsdóttir
og Esther Talía Casey hafa skipts
á að syngja með strákunum á tón-
leikum en Esther Talía verður
söngkona á sunnudaginn. „Þær
ganga undir nöfnunum Veddar-
inn, Sararinn og Sterarinn," segir
Barði. „Og Sterarinn er besti rót-
arinn í bandinu," skýtur Arnar
inn. „Sterarinn var upphaflega
söngkonan en hún fór í leiklistar-
skóla og hefur ekki getað sinnt
þessu af fullum krafti þannig að
þetta er líklega í síðasta skipti
sem hún syngur með bandinu."
Barði og Arnar segja tónleik-
ana á sunnudag verða kafla-
skilatónleika. „Við ætlum að kveð-
ja einhver lög af því að við erum
að byrja á nýrri plötu þannig að
einhver lög munum við aldrei
leika hér á landi framar."
Bang Gang hefur undanfarið
verið að spila erlendis, aðallega í
Frakklandi, bæði á sjónvarps-
stöðvum og tónleikum. í lok sept-
ember hefst upptaka á nýrri plötu
en hljómsveitin var einmitt að
hætta hjá plötufyrirtækinu sínu.
„Við erum laus og liðug, bara búa
til músík og ekkert kjaftæði," seg-
ir Arnar að lokum.
steinunn@frettabladid.is
Hljómsveitin Spútnik heldur uppi gleð-
inni á Players I Kópavogi I kvöld og ann-
að kvöld.
Sálin treður upp á Gauki á Stöng I kvöld,
ásamt gestasveitinni Flauel.
Fönksveitin Atom leikur fyrir gesti á veit-
ingastaðnum Vídalín I Aðalstræti.
SÝNINGAR______________________________
Á efri hæð Hafnarborgar stendur Þjóð-
minjasafn íslands fyrir sýningu á Ijós-
myndum eftir Hans Malmberg frá þvi
um 1950. Sýningin nefnist ísland 1951,
en það ár kom út Ijósmyndabók með
myndum Malmbergs sem talinn var
einn fremsti heimildarljósmyndari Svia á
sinni tíð. Á sýningunni verða sýndar nýj-
ar stækkanir af íslandsmyndum Hans
Malmberg og frumkópíur af nokkrum (s-
landsmynda hans. Sýningin er opin alla
tónlist Nú fer önnur helgi sumar-
tónleika í Skálholti í hönd og er
Karólína Eiríksdóttir staðartón-
skáld Sumartónleikanna um þessa
helgi. Verk Karólínu sem flutt
verða eru skrifuð á tímabilinu 1979
til 2001 og verður eitt verk frum-
flutt á Sumartónleikunum. Það er
verkið Að iðka gott til æru, sem er
samið fyrir einsöngvara, óbó,
víólu, selló, sembal og kór. Verkið
er byggt á lögum sem fundist hafa
í íslenskum handritum og notar
Karólína ljóð eftir Hallgrím Pét-
ursson og Jón píslarvott.
Peter Tompkins, Jónína Auður
Hilmarsdóttir, Sigurður Bjarki
Gunnarsson og Helga Ingólfsdóttir
flytja verkið ásamt söngkonunni
Ásgerði Júníusdóttur og Kam-
daga nema þriðjudaga og henni lýkur
6. ágúst.
í Sverrissal Hafnarborgar er sýning á
skotskífum úr fórum Det Kongelige
Kjobenhavnske Skydeselskab og
Danske Broderskab. Það er eitt elsta
starfandi félag í Danmörku og margir
íslendingar og íslandskaupmenn hafa
verið meðlimir þess. Sýndar eru um 15
skotskifur með íslensku myndefni eða
frá íslenskum félögum skotfélagsins.
Skífurnar eru frá árunum 1787-1928.
Þjóðminjasafn íslands stendur fyrir
þessari sýningu. Sýningin er opin alla
daga nema þriðjudaga og henni lýkur
6. ágúst.
Kanadíski Ijósmyndarinn Arni Haralds-
son sýnir Ijósmyndir frá sex löndum í
Gallerí Klaustri að Skriðuklaustri. Sýn-
ingin stendur til 15. júli.
merkór Suðurlands undir stjórn
Hilmars Arnar Agnarssonar.
Af öðrum verkum Karólínu sem
flutt verða um helgina mætti
nefna tónverkið Na Carenza sem
var frumflutt á Alþjóðlegri tónlist-
arhátíð kvenna í Vínarborg árið
1995 en heyrist nú í fyrsta skipti á
íslandi. Einnig verða fluttir þættir
úr óperuleiknum Maður lifandi,
óperuleikur um dauðans óvissan
tíma, sem var flutt í Borgarleik-
húsinu í júní 1999. Sverrir Guð-
jónsson, Guðrún S. Birgisdóttir,
Sigrún Eðvaldsdóttir, Sigurður
Bjarki Gunnarsson og Pétur Jón-
asson flytja þættina í breyttri
mynd.
Fyrri tónleikar Sumartónleika á
morgun eru kl. 15 þegar flutt
í Árbæjarsafni standa yfir nokkrar sýn-
ingar. í Lækargötu 4 er sýningin Saga
Reykjavíkur - frá býli til borgar. í
Kjöthúsi er sýningin Saga bygginga-
tækninnar. í Líkn er sýningin Minn-
ingar úr húsi. Þar er sýnt innbú frá
fjölskyldu Vigfúsar Guðmundssonar
búfræðings sem bjó á Laufásvegi 43.
Sýningin í Suðurgötu 7 ber yfirskrift-
ina: Til fegurðarauka. Sýning á út-
saumi og hannyrðum. ÍEfstabæ má
sjá hvernig tvær fjölskyldur bjuggu í
húsinu um 1930, þar af önnur barn-
mörg.
I Ljósmyndasafní Reykjavíkur stendur
Ijósmyndasýning Henri Cartier-
Bresson i Grófarsal, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15. Sýnd eru verk þessa
franska Ijósmyndara sem nú er á tí-
ræðisaldri og hefur oftast verið kennd-
ur við stílinn „hið afgerandi augnablik".
verða verkin In Vultu Solis (1980),
Na Carenza (1993), Hugleiðing
(1996) og Að iðka gott til æru
(2001). Þeir síðari eru kl. 17 en þá
verða flutt verkin IVP (1979), Vor-
vísa (1991), Spor (2000) og þættir
úr Maður lifandi, óperuleik um
dauðans óvissan tíma (1991).
Á sunnudaginn eru tónleikar kl.
15. Á efnisskrá þeirra er Spor
(2000), þættir úr Maður lifandi, óp-
eruleik um dauðans óvissan tíma
(1991), Hugleiðing (1996) og Að
iðka gott til æru (2001). Orgelstund
verður í Skálholtskirkju á sunnu-
dag klukkan 16:40 og flytur þá
Hilmar Örn Agnarsson orgelverk
eftir J. S. Bach. í messu kl. 17:00
verða fluttir þættir úr verkinu Að
iðka gott til æru, eftir Karólínu.
Sýningin er opin virka daga frá kl. 12-
17 og um helgar kl. 13-17 og stendur
til 29. júli.
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic í
Austurstræti og er þetta er fyrsta einka-
sýning Ara. Þema sýningarinnar á Atlant-
ic er íslenski fáninn. Gengið er inn frá
Austurvelli.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu i vikingaþorpi þar sem hægt er að
sjá fólk við vinnu sína og hins vegar sýn-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur víkinga sem féllu í bardög-
um. Á sýningunni eru raunverulegar lík-
amsleifar sem geta valdið óhug. Sýning-
arnar eru opnar alla daga frá 13 til 17
og standa til 1. október.
STAÐUR HÁTÍÐARINNAR
Sumartónleikar í Skálholti eiga sér orðið
alllanga hefð.
Tónleikarnir standa um klukku-
stund og er boðið upp á barnapöss-
un í Skálholtsskóla fyrir þá sem
þurfa. Veitingasala milli tónleika
er á vegum Skálholtsskóla. Að-
gangur er ókeypis og eru allir vel-
komnir. ■
Verk eftir Karólínu Eiríksdóttur frumflutt á Sumartónleikum í Skálholtskirkju:
Að iðka gott til æru