Fréttablaðið - 13.07.2001, Síða 19
FÖSTUPAGUR 13. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
MYNDIR ÚR NÁTTÚRUNNI
Fjallasýn eftir Sesselju Tómasdóttur er ein myndanna á sýningunni.
Samsýning á Hótel Eld-
borg:
Landslag
og fuglar
myndlist Þeir sem leið eiga um
Borgarfjörðinn geta komið við í
Hótel Eldborg í Kolbeinsstaða-
hreppi þar sem sex myndlista-
konur, Dröfn Guðmundsdóttir,
Freyja Önundardóttir, Gunnhild-
ur Olafsdóttir, Jóhanna Sveins-
dóttir, Sigríður Helga Olgeirs-
dóttir og Sesselja Tómasdóttir
standa fyrir samsýningu í sum-
ar. Sýninguna kalla þær Náttúru-
sýn, en hún samanstendur af
landslags- og fuglamyndum
ásamt leirskúlptúrum. Á sýning-
unni eru myndir unnar með graf-
íktækni, olíulitum á striga og
tré, glermyndir og skúlptúrar
mótaðir með leir.
Listakonurnar eru meðal þeir-
ra sem um árabil ráku Gallerí
Listakot á Laugavegi 70 í
Reykjavík. Sýningin stendur til
15. ágúst og er opin alla daga
vikunnar. ■
MULDRA OG ÖSKRA
Barði Jóhannsson hefur fram til þessa
samið mestalla tónlist Bang Gang.
ffann leikur á gítar í hljómsveitinni og
trallar auk þess með að eigin sögn.
Arnar Þór Gíslason leikur á trommur og
lætur iðulega heyra í sér með öskrum á
tónleikum líka.
í Sjóminjasafninu í Hafnarfirði stendur
handverkssýning Ásgeirs Guðbjartsson-
ar. Sjóminjasafnið er opið alla daga frá
kl. 13 til 17. Sýningin stendur til 22. júlí.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
sem í vetur hafa unnið undir hand-
leiðslu Marteins Sigurgeirssonar
stendur yfir í Gerðubergi. Sumar
myndanna eru Ijóðskreyttar en aðrar
segja sjálfar allt sem segja þarf. Opnun-
artími sýningarinnar er virka daga frá 12
til 17 og stendur sýningin til 17. ágúst.
MYNPLIST____________________________
Alda Ármanna sýnir ný og eldri verk á
vinnustofu sinni að Logafold 46 í dag kl.
18, olíumyndir, konumyndir og gyðjur,
helgimyndir, einnig landslagsmyndir í
vatnslit. Skáldkonan Anna S. Björnsdóttir
les úr óbirtum verkum sínum og einnig
verður tónlistarflutningur. Boðið verður
upp á léttar veitíngar. Sýningin verður
opin fram á sunnudag.
Sýning sem nefnist Eden er i Gula hús-
inu á horni Frakkastígs og Lindargötu.
Sýnd eru myndbandsverk, málverk,
skúlptúrar og innsetningar. Sýnendur
eru Björg Melsted, Þorgerður Jörunds-
dóttir, Anna Sóley Þorsteinsdóttir, Marta
María Jónsdóttir, Kristin Elva Rögnvalds-
dóttir og Elina Sörenson. Sýningin er
opin kl. 15.00 til 18.00 og henni lýkur
föstudaginn 13. júlí.
Eggert Pétursson sýnir blómamyndir
sínar galleríi i8 við Klapparstíg.
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona sýnir
í Gulismiðju Hansínu Jens að Lauga-
vegi 20b (gengið inn frá Klapparstíg).
Þóra hefur skipað sér í fremstu röð ís-
lenskra leirlistarmanna á undanförnum
árum og haldið fjölmargar sýningar.
Meðal annars nýtir hún sér hrosshár og
horn í verkum sínum.
Glerlist og höggmyndir Gerðar Helga-
dóttur í Listasafni Kópavogs, Gerðar-
safni. I tilefni sýningarinngar er kynning
á minjagripum sem hannaðir hafa verið
út frá verkum Gerðar. Hópur hönnuða
hefur unnið að þessu verkefni um
nokkurt skeið. Minjagripirnir eru silfur-
munir, postulín, slæður, bolir og minnis-
bækur og verða þeir til sölu í safninu.
Sýningin stendur til 12. ágúst. Hún er
opin alla daga nema mánudaga frá 11-
17.
islenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningar í Safni Ásgríms
Jónssonar við Bergsstaðastræti 74 I
Reykjavík. Á sýningunni sem stendur til
1. september eru margar af frægustu
þjóðsagnamyndum listamannsins. Þar
má einnig sjá vinnustofu, heimili og
innbú hans.
( Listasafni Reykjavíkur - Kjarvals-
stöðum er sýning sem ber nafnið Flog-
ið yfir Heklu. Sýningarstjóri er Einar
Garibaldi Eiríksson myndlistarmaður
og prófessor við Listaháskóla íslands. Á
sýningunni getur að líta mismunandi
myndir Heklu sem sýndar eru hlið við
hlið. Sýningin stendur til 2. september.
í miðrými Kjarvalsstaða er sýning
sem ber yfirskriftina 1461 dagur. Þar
sýnir Grétar Reynisson verkefni sem
hann hefur unnið að frá 1. janúar 1997.
Þetta er vaxtarverkefni af þeirri tegund
sem á ensku væri kallað „work in
progress." Sýningin stendur til 19. ágúst.
Hafliði Sævarsson sýnir í Gallerí Geysi
í Hinu húsinu. Sýninguna nefnir hann
Kínakrakka og sýnir hann aðallega
málverk en einnig skúlptúra og teiknað-
ar skissur.
í Listhúsi Ófeigs Skólavörðustíg 5
GOÐSÖGN Á SVIÐI
Hér sést hinn kunni bandariski blúsari B.B. King á tónleikum í Stravinski salnum í
Montreux í Sviss. Þar leikur hann á 35. Montreux jazzhátíðinni en hátíðin
stendur til 21. júll.
stendur leirlistarsýningin Neriage
Postulín. Listamaðurinn er Nanna
Bayer frá Finlandi og beitir hún svo kall-
aðari neriage aðferð við gerð leirmun-
anna en sú aðferð er japanskrar ættar.
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur I
Listasafni Reykjavikur, Hafnarhúsi.
Sýning Unnars Arnar Auðarsonar stend-
ur nú f gallerí@hlemmur.is, Þverholti
5. Á sýningunni er vinnur Unnar með
hluti úr sínu daglega lífi eins og mat,
heimili og íþróttir, sem hann hristir
saman. Sýningin stendur til 15. júlí og
er opin fimmtudag til sunnudags frá kl.
14-18.
Fjórir listamenn sýna nú i
Nýlistasafninu. Þeir eru Daníel Þorkell
Magnússon i Gryfju, Ómar Smári
Kristinsson á palli, Karen Kirstein í
forsal ogPhilip von Knorring í SÚM-
sal.
Stella Sigurgeirsdóttir sýnir nú í
Hafnarhúsinuhafnarmegin, í
sýningarsal fslenskrar grafíkur
Tryggvagötu 17. Sýningin ber yfirskriftina
Portrett landslag - tuttugu orð. Verkin
eru tvívíð og eru unnin í Imageon fil-
mur og býflugnavax. Sýningin stendur
til 15. júlí og er opin fimmtudaga til
sunnudaga kl. 14-18.
Sýning á verkum kalifornísku listako-
nunnar Karenar Kersten, sem hún
kallar Alls staðar, stendur yfir á
Mokka-kaffi. Sýningin stendur til 14.
júlí.
Málverkasýning Lárusar H. List
Vitundarástand stendur yfir í
Veislugallery og Listacafé í Listhúsinu í
Laugardal. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 9.00 til 19.00 og stendur til 31.
júlí.
Sýningin List frá liðinni öld stendur yfir
í Listasafni ASf. Á sýningunni eru sýnd
öndvegisverk úr eigu Listasafnsins. Litið
er til fyrri hlutar síðustu aldar og
sjónum beint annars vegar að yngri
verkum frumherjanna. Sýningin stendur
til 12. ágúst.
Sumarsýning Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar ber yfirskriftina Hefð og
nýsköpun. Þar má sjá úrval verka eftir
Sigurjón frá þrjátíu ára tímabili, 1930-
1960. Safnið er opið alla daga milli
klukkan 14 og 17, nema mánudaga.
Sumarsýning Listasafns islands nefnist
Andspænis náttúrunni. Á henni eru
eingöngu verk eftir íslendinga f eigu
safnsins og fjallar hún um náttúruna
sem viðfangsefni íslenskra listamanna á
20. öld. Opið frá kl. 11 til 17 alla daga
nema mánudaga. Aðgangur er ókeypis
á miðvikudögum. Sýningin stendur til 2.
september.
Sumar á Jómfrúnni:
Úti í sól
eðainnií
rigningu
jazz Sumarjazz á Jómfrúnni
hefur þegar unnið sér sess meðal
jazzáhugafólks.
Á morgun kemur kvartett saxó-
fónleikarans Hauks Gröndal
fram á sjöundu tónleikum sum-
artónleikaraðar Jómfrúrinnar
við Lækjargötu. Með Hauki leika
Björn Thoroddsen á gítar, Gunn-
ar Hrafnsson á kontrabassa og
Matthías Hemstock á trommur.
Tónleikarnir verða utandyra á
Jómfrúrtorginu ef veður leyfir
en annars inni á Jómfrúnni. Tón-
leikarnir hefjast kl. 16 og standa
til kl. 18. Aðgangur er ókeypis. ■
ÚTIVIST
Draumalaug
í Dölum
Laugar í Sælingsdal eiga sér
merka laugasögu. Þar var
hlaðin heit laug svipuð Snorra-
laug en talið er að hún hafi orðið
undir skriðu. Sundlaug var
steypt þar um sama leyti og
Sundhöllin í Reykjavík var
byggð en hefur nú verið leyst af
hólmi með glæsilegri sundlaug.
Sælingsdalslaug er fyrsta
flokks, hvort heldur fyrir sund-
garpa eða dæsara. Sjálf laugin er
eins og best verður á kosið. Pott-
arnir eru tveir, annar með hal-
landi bakka þannig að hægt er að
liggja þar í sólbaði og hinn heit-
Staðsetning: Laugum í Sælingsdal
Opnunartfmi: 9 til 22 á virkum dögum, 10 til
19 um helgar
Verð Fullorðnir: 200 kr. stakur miði, tíu miðar
á 1.400, Börn og eldri borgarar 100 kr.
ari með venjulegum sætum sem
mér þóttu reyndar ekki alveg
nógu þægileg.
I Sælingsdalslaug er allt vel
merkt, dýpt laugar og hitastig
potta og er það ótvíræður kostur.
Ágætt eimbað er við laugina en
virðist þarfnast andlitslyftingar.
Steinunn Stefánsdóttir
MENNTASKÓLINN VIÐ SUND
Enskukennari
óskast til starfa
Við Menntaskólann við Sund er næsta skólaár laus staða
enskukennara. Ráðning í stöðuna er frá 1. ágúst nk. og eru
starfskjör samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands ís-
lands og fjármálaráðherra. Ekki þarf að sækja um á sérstökum
eyðublöðum en upplýsingar um menntun og starfsferil þurfa
að fylgja umsókn. Afrit af vottorðum um nám skulu fylgja um-
sókn.
Umsóknir sendist í Menntaskólann við Sund,
Gnoðarvogi 43,104-Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Már Vilhjálmsson rektor
í síma 861-9425. Umsóknir þurfa að berast skólanum fyrir
mánudaginn 30. júlí nk.
Rektor
Útsala
Mikil verðlækkun
TÍSKUVERSLUN
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Qpið TtHn.-fös. frá kl. 10-18,
laugardaga 10-14
Bónstöðin TEFLON
GSM 821 4848 sími 567 8730
l Lakkvörn
2. ára ending
Teflonhúdun Djúphreinsun
Blettanir Mössun Alþrif
Opið alla virka daga 8.30-18.00
www.teflon.is • Krókhálsi 5-» Toughseal umboðið
GRACEI I
I
Útsala - Útsala
30-60% afsláttur
Ef verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira
er gefin 10% aukaafsláttur
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Fákafen)
sími 553 0100