Fréttablaðið - 27.07.2001, Síða 12

Fréttablaðið - 27.07.2001, Síða 12
FRETTABLAÐIÐ 27. júlí 2001 FÖSTUDAGUR INTER afsláttur af sportfatnaði VINTERSPORT VINTERSPORT afsláttur af barnafatnaði VINTERSPOPT afsláttur af fitnessfatnaði VINTj ‘'afsláttur af útsöluskóm VINTERSPORT Pín frístund - Okkar fag INTER V Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is Tillögur sjálfstæðismanna: Afengi bannað á Austurvelli REYKJAVÍK Borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins lögðu til á fundi borgarráðs að unnið verði að til- lögum til að koma í veg fyrir ölv- un og meðferð áfengis á tilteknum svæóum borgarinnar. Var Austur- völlur nefndur sem dæmi. í tillög- unni segir að öll meðferð áfengis verði bönnuð frá klukkan 8 á morgnana til miðnættis. Málinu var vísað til borgarstjóra. Á sama fundi voru þrjár aðrar tillögur lagðar fram. Ein sagði að hefja ætti undirbúning að því að opna umferð um Hafnarstræti til austurs á nýjan leik. Önnur lagði til að borgarráð leitaði eftir sam- ráði við rekstraraðila vínveitinga- húsa um aðgerðir til að tryggja betur öryggi fólks og umgengni á og við veitingahús í miðborginni. Þessum tillögum var vísað til við- eigandi nefnda sem hafa þessi mál til umfjöllunar. Sjálfstæðismenn vilja líka að sérstök Miðbæjardeild verði stofnuð, sem annist eftirlit á mið- borgarsvæðinu að kvöld og næt- AUSTURVÖLLUR Wleðferð áfengra drykkja bönnuð á sólrík- um dögum? urlagi um helgar í samvinnu við lögreglu. Einnig á deildin að fylgj- ast með ástandi á og við vínveit- ingastaði. Afgreiðslu þeirrar til- lögu var frestað. ■ ERLENT Farþegaþota á leið til Evrópu varð að nauðlenda í Las Vegas eftir að flugmaður hennar fékk hjartaáfall. Vélin hélt af stað frá Los Angeles á miðvikudagskvöld. Skömmu síðar var starfsmönnum McCarrans flugvallarins í Las Veg- as greint frá aðstæðum flugmanns- ins. Lendingin í Las Vegas gekk mjög vel og flugmaðurinn var fluttur á sjúkrahús að henni lok- inni. Richard Branson, forstjóri Virg- in, tilkynnti í gær að allar Virg- in Megastore verslanirnar í Frakk- landi yrðu seldar franska f jölmiðl- arisanum Lagardere SCA. Branson sagði verslanirnar yrðu betur komnar í höndum Lagardere. Yfir- menn fyrirtækisins neituðu að gefa kaupverðið upp. Ný og stærri miðborg útilokuð Samtök um betri byggð leggja til að efnt verði til alþjóðlegrar samkeppni um skipulag miðborg- arbyggðar í Vatnsmýri. Borgin áfram klofin á viðkvæmasta stað. Almennar umræður um aðal- skipulagið heíjast í haust, segir þróunarsvið borgarinnar. skipulac Samtök um betri byggð leggja til að efnt verði til alþjóð- legrar samkeppni um skipulag Vatnsmýrarinnar. „Við teljum slíka hugmyndasamkeppni, sem eðlilegt væri að efna til á Evr- ópska efnahagssvæðinu, nauðsyn- lega til þess að tryggja það að svæðið, sem er eina kjörlandið fyrir miðborgarbyggð á höfuð- borgarsvæðinu, byggist upp í samræmi við heildarsýn. Við höf- um komið þessari tillögu á fram- færi við borgarráð, Borgarfræða- setur HÍ og þróunarsvið borgar- innar og vonumst eftir góðum undirtektum," segir Örn Sigurðs- son stjórnarmaður í Betri byggð. Bjarni Reinarsson skipulagsfræð- ingur hjá þróunarsviði borgarinn- ar segir að með haustinu sé ætlun borgaryfirvalda og sveitarstjórna að efna til opinberrar umræðu um drögin að aðalskipulagi Reykja- víkur og skipulagi höfðuborgar- svæðisins fram til 2024 og eðlilegt sé að kalla eftir heildarsýn á þeim vettvangi, enda sé gert ráð fyrir að almenningi gefist kostur á að koma þar athugasemdum og til- lögum á framfæri. Samtök um betri byggð taka undir þau meginmarkmið sem fram koma í drögum að aðal- skipulagi, en efast um að þær leiðir sem fara eigi í Reykjavík dugi til að þau náist. Mestu skipti að Reykjavík verði áfram klofin á viðkvæmasta stað um flugvall- arstæðið og ný og stærri miðborg sé útilokuð sem fyrr. Sá ásetning- ur borgaryfirvalda að halda meg- inbrautinni á Reykjavíkurflug- velli allt skipulagstímabilið gangi gegn niðurstöðu kosningarinnar 17. mars síðastliðinn. Þær tillög- ur um byggð á flugvallarsvæðinu REYKJAVÍKURFLUCVÖLLUR Reykjavík áfram klofin á viðkvæmasta stað um flugvallarstæðið. sem nú hafi verið kynntar séu versta leiðin sem hægt sé að fara. „Með þeim er lokað fyrir mögu- leika á heildarsýn, svæðið bútað niður í sundurslitin hverfi sem bendir til þess að meginmarkið í drögum borgaryfirvalda að aðal- skipulagi risti ekki djúpt og gamla úthverfa- og lóðaúthlutun- arstefnan sé enn við lýði.“ ■ ÖRN SIGURÐSSON Vonumst eftir góðum undirtektum við hugmynd um alþjóðlega skipulagssam- keppni. Liðsmenn Hamas-skæruliða: Vara við fleiri sj álfsmor ðsár ásum jerúsaleivi. ap. Þúsundir Palestínu- búa fylktu liði í gær í gegnum bæinn Nablus á Vesturbakkanum í ísrael í athöfn vegna dauða eldri meðlims Hamas-skæruliða- hreyfingarinnat^ sem i fyrradag var myrtur af Israelum. Vöruðu Palestínumennirnir við því að bú- ast mætti við fleiri sjálfs- morðsárásum á næstunni, en þeir hafa gerst sekir um nokkrar slík- ar upp á síðkastið. Maðurinn lést eftir að eld- flaugar ísraelskra hermanna, sem voru staðsettir á hæðinni fyrir ofan bæinn, sprengdu upp bíl hans þegar hann var að aka í gengum Nablus. Að sögn ísraela átti maðurinn aðild að nýlegum sprengjuárásum Palestínubúa þar sem átta ísraelar létu lífið og yfir 100 særðust. Hann mun ein- nig hafa verið að undirbúa aðra stóra sprengjuárás. Palestínumenn sögðust í gær hafa sýnt Bandaríkjamönnum lista yfir 50 gyðinga, sem ætlað- ur er ísraelskum yfirvöldum, yfir menn sem grunaðir eru um öfga- verknaði og heimta þeir að ísra- GRIMUKLÆDDIR BYSSUMENN Grímukæddir liðsmenn Hamas-hreyfingar- innar bera kistu manns sem myrtur var af ísraelum í fyrradag. Um 20 skæruliðar skutu úr byssum sínum við tilefnið. elar handtaki þá þegar í stað. ísraelsmenn segjast hins vegar ekki hafa fengið listann í hend- urnar, en þeir létu Palestínumenn nýlega hafa lista yfir fjölda Palestínumanna sem grunaðir eru um aðild að árásum á ísraela og vilja að þeir verði handteknir hið snarásta. ■ Sambúð Kína og Bandaríkjanna: Náðaðir ,,njósnarar“ pekinc.ap Fræðimennirnir tveir sem Kínverjar dæmdu í fangelsi fyrir njósnir í þágu Tævana hafa verið náðaðir. Gao Zhan er þegar komin til Bandaríkjanna að því er fregnir herma en Qin Guanggu- ang afréð að vera áfram í Kína. Bæði hafa varanlegt dvalarleyfi í Bandaríkjunum þar sem þau hafa starfað undanfarin ár. Bæði höfðu þau verið dæmd í 10 ára fangelsi í réttarhöldum sem stóðu fáar klukkustundir og án þess að vitni væru færð fyrir dóminn. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.