Fréttablaðið - 27.07.2001, Page 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
27. júlí 2001 FÖSTUDACUR
Símadeild kada:
IBV í annað sæti
Tour de France:
• •
Oruggur
Armstrong
HJÓLREIÐAR Belginn
Serge Baguet sigr-
aði í 17. legg Tour de
France keppninnar á
4 klst. 13 mín. og 36
sek. og kom sjónar-
mun á undan Danan-
um Jakob Piil.
Texasbúinn Lance
Armstrong kom í mark 13 sek. á
eftir sigurvegaranum og er nán-
ast öruggur með sigur í saman-
lagðri keppni, þriðja árið í röð.
Armstrong er enn með 5 mín. og 5
sek. forskot á helsta keppinaut
sinn Jan Ullrich frá Þýskalandi. ■
Heimsmeistaramótið
í Fukuoka:
Sjötti maður
inn í úrslit
SUNP Örn Arnarson, sundmaður
úr Hafnarfirði, varð sjötti inn í úr-
slitin í 200 metra baksundi á
heimsmeistaramótinu í sundi í
Fukuoka í Japan í gær. Úrslita-
sundið fer fram um klukkan 9 í
dag og verður Örn á 7. braut. Sýnt
verður frá sundinu í Sjónvarpinu.
í fyrrinótt synti Örn í undan-
rásum og varð hann fimmti inn í
milliriðla á tímanum 2.00,66 mín-
útum. í gærmorgun synti hann
síðan í milliriðlinum á tímanum
1.59,75 mínútum og varð sjötti
eins og áður sagði.
J&I. —i-------------
ÖRN f ÚRSLIT
Örn verður á 7. braut í úrslitum í 200
metra baksundi í dag.
Lára Hrund Bjargardóttir lauk
keppni á heimsmeistaramótinu í
gær, þegar hún tók þátt í undan-
rásum í 400 metra fjórsundi. Lára
Hrund synti á tímanum 2.22,66
mínútum og varð í 23. sæti af 35
keppendum. íslandsmet hennar í
greininni er 2.22,42 mínútur. ■
knattspyrna Þrír leikir fóru fram í
Símadeild karla í gærkvöldi. í
Kaplakrika tók FH á móti Eyja-
mönnum. Úrslitamark leiksins
kom strax á tíundu mínútu þegar
Gunnar B. Runólfsson skoraði fyr-
ir ÍBV. Grindavík tók á móti Val.
Heimamenn sigruðu 2-0, Grétar
Ólafur Hjartarson og Scott Ramsey
skoruðu.
Markaleikur kvöldsins var í Ár-
bænum, þar sem Fylkir gerði jafn-
tefli móti Keflavík, 2-2. Sverrir
Sverrisson skoraði fyrir Fylki strax
á níundu mínútu og Pétur Björn
Jónsson fylgdi í fótspor hans á
fjórtándu. Keflvíkingarnir Haukur
Ingi Guðnason og Þórarinn Krist-
SÍMAPEILDIN
LEIKIR u J T MÖRK STIC
Fylkir 11 6 4 1 20:7 22
(BV 11 6 2 3 8:8 20
ÍA 10 5 2 3 15:9 17
Valur 11 5 2 4 14:14 17
FH 10 4 3 3 9:7 15
Grindavík 9 5 O 4 13:13 15
Keflavík 11 4 3 4 16:17 15
KR 9 3 2 4 8:10 11
Breiðablik 10 2 1 7 8:17 7
Fram 10 1 1 8 10:18 4
jánsson svöruðu á 26. og 65. mínútu.
í fyrstu deild karla mættust
Tindastóll og KA. Sigurmark
leiksins kom á síðustu mínútu
þegar Þorvaldur Makan skoraði
fyrir KA. ■
| MOLAR ~|
Stefán Gíslason, 21 árs leikmað-
ur norska úrvalsdeildarliðsins
Strömsgodsets, fékk brjál-
Bæðiskast eftir að
líta rautt spjald í
bikarleik á mið-
vikudag. Stefán
klippti niður
Espen Sögard,
leikmann Lil-
leström, á 87.
mínútu og ljóst
var að Strömgod-
sets myndi tapa 1-5. Dómarinn
sendi hann samstundis inn í bún-
ingsklefa. Þegar þangað var kom-
ið gekk hann berserksgang og
voru það skápahurðir og spegill
sem fengu að kenna á því. „Fyrst
sparkaði hann í skápahurðir leik-
manna Lilleström. Síðan byrjaði
hann að berja í veggina og loks
rústaði hann skápahurðum leik-
manna Strömgodsets. Hann hélt
lengi áfram,“ sagði húsvörðurinn
Roy Andersen. Lilleström mun
senda Stefáni reikning fyrir
skemmdunum og hann má búast
við því að yfirmenn hjá Ströms-
godset lesi yfir honum. Lil-
leström mætir Brann í fjórð-
ungsúrslitum bikarsins. Verdens
Gang greindi frá.
ITslenska U-21 kvennalandsliðið
tapaði fyrir Bandaríkjunum á
Opna Norðurlandamótinu í knatt-
spyrnu á miðvikudag. Bandaríkja-
menn höfðu yfirburði í leiknum
og sigruðu 3-1. Þeir skutu 31 sinni
á mark íslendinga, sem skutu
þrisvar sinnum á móti. Þýskaland
sigraði Danmörku 3-0, Finnland
sigraði Svíþjóð 2-1 og Noregur og
Kanada gerðu 1-1 jafntefli.
Skagamenn halda hátíð á sunnu-
daginn. Þá eru liðin 50 ár síðan
ÍA varð fyrst allra félaga utan
Reykjavíkur til að vinna íslands-
meistaratitil í meistaraflokki
karla í knattspyrnu. Látinna fé-
laga verður minnst í Akranes-
kirkju kl. 16, kl. 17 verður dag-
skrá í sal Grundarskóla og dagur-
inn nær hámarki kl. 20 þegar IA
mætir KR í Símadeildinni.
Hollendingurinn Ruud van
Niestelrooy, sem kostaði
Manchester United 19 milljónir
punda á dögunum,
hefur áhyggjur af
lyfjaprófunum á
nandrolone ster-
unum sem margir
leikmenn eru bún-
ir að falla á. Hann
segist hafa tekið
fjölvítamín og
fæðubótarefni þegar PSV Eind-
hoven var að búa sig undir Meist-
arakeppni Evrópu og haft miklar
áhyggjur af því að falla á prófinu.
Félagar hans í hollenska landslið-
inu, Edgar Davids og Frank de
Boer, voru báðir settir í leikbann
vegna steranna. „Ég er búinn að
tala við þá og þeir hafa ekki hug-
mynd um hvernig sterarnir
komust inn í líkamann. Ég trúi
þeim. Það verður að gera eitthvað
til að bæta þessi mál.“ De Boer
sat fyrir spurningum hjá nefnd á
vegum UEFA á dögunum og er
bjartsýnn á að samtökin dragi
ársbannið til baka. Þau kynna nið-
urstöðu um helgina.
Ósáttur við stjórn Barcelona
Rivaldo segir Barcelona skulda sér 300 til 400 milljónir króna. Stjórn liðsins fundaði með um-
boðsmanni Rivaldo í fyrrakvöld. Italskir ijölmiðlar greindu í gær frá því að bæði Lazio og
Juventus væru að undirbúa tilboð í kappann.
knattspyrna Rivaldo er ósáttur við
stjórn Barcelona, þar sem hann
telur liðið skulda sér 300 til 400
milljónir króna samkvæmt samn-
ingi sem undirritaður var síðast-
liðið sumar. Rivaldo hefur hótað
að taka ekki þátt í undirbúnings-
tímabilinu nema málið verði leyst
fyrir sunnudag, en þá hyggst hann
halda blaðamannafund til að
skýra sín mál.
Síðasta sumar hótaði Rivaldo
því að hætta hjá félaginu ef hann
fengi ekki launahækkun. Joan
Gaspart, sem þá var nýtekin við
af Josep Lluis Nunez sem forseti
Barcelona, ákvað að verða við ósk
Rivaldos. Leikmaðurinn segist
hins vegar enn ekki hafa fengið
launahækkunina og sendi hann
Gaspart opið bréf á heimasíðu
sinni (http://www.rivaldolO.com),
þar sem hann fer fram á að skuld
félagsins við sig verði greidd.
„I bréfinu gaf ég félaginu 10
daga frest til að útkljá málið,“
sagði Rivaldo. „Ef það verður ekki
gert mun ég líta svo á að félagið
þurfi ekki á kröftum mínum að
halda á næsta leiktímabili."
Carlos Lage, umboðsmaður
Rivaldo, fundaði með nokkrum
stjórnarmönnum Barcelona í
fyrrakvöld og eftir fundinn sagði
Anton Parera, einn stjórnarmann-
anna, að um smá misskilning
hefði verið að ræða og að hann
vænti þess að Rivaldo kæmi á æf-
ingu í dag. Lage tjáði sig hins veg-
ar ekkert um niðurstöðu fundar-
ins.
Rivaldo heldur því fram að
Gaspart hafi viljað selja hann fyr-
ir síðasta leik Barcelona í deild-
inni í vor, sem var gegn Valencia.
Rivaldo skoraði þrennu í leiknum
og tryggði Barcelona sigurinn og
sæti í Meistaradeild Evrópu með
ótrúlegri hjólhestaspyrnu á
lokamínútunum. Eftir það hefur
Gaspart sagt að Rivaldo, sem hef-
ur leikið í fjögur ár með
Barcelona, verði ekki seldur und-
ir neinum kringumstæðum. í gær
greindu hins vegar ítalskir fjöl-
miðlar frá því að bæði Lazio og
Juventus væru að undirbúa tilboð
í kappann.
trausti@frettabladid.is
SVIKARAR
Rivaldo segir að Barcelona Hafi ekki staðið
við samning sem undirritaður var síðasta
sumar. Þá hótaði hann að hækka, fengi
hann ekki launahækkun.
Eddie Irvine opnar munninn á ný:
„Schumacher
er langbesturu
kappakstur Þótt Eddie
Irvine hafi endað í ní-
unda sæti í síðustu For-
múlu 1 keppni, á Silver-
stone brautinni, og hafi
aðeins náð fjórum stig-
um það sem af er heims-
meistarakeppninnar,
segist hann vera næst
besti ökuþór heims á
eftir Þjóðverjanum næst bestur
Michael Schurnacher. Eddie Irvine sést hér i kappakstrinum I Monakó. Hann
Irvine er þekktur fyrir naó' Þar öðru sæti sem er hans besti árangur á þessu ári.
Enski boltinn:
Laurent
Robert til
Newcastle?
knattspyrna Samningaviðræður
Newcastle við Laurent Robert, 26
ára gamlan Frakka, sem leikið
hefur með Paris St. Germain eru á
lokastigi. Talið er líklegt að geng-
ið verði frá kaupunum á næstu
dögum og verður kaupverðið um
10,5 milljónir punda. Robert, sem
leikur vinstra megin á miðjunni,
var keyptur til PSG árið 1999 frá
Montpellier. Hann hefur Ieikið
184 leiki í frönsku 1. deildinni og
skorað í þeim 47 mörk. Fulham,
West Ham og Barcelona, Valencia
og Bayern Munich hafa öll sýnt
Robert áhuga.
Víst er að Bobby Robson, fram-
kvæmdastjóra Newcastle, á eftir
að verða létt ef Robert gengur til
liðs við liðið, því honum hefur
gengið afar illa að lokka til sín
leikmenn fyrir næsta leiktímabil.
Hann vildi fá Francis Jeffers frá
ROBERT
Talið að Newcastle þurfi að greiða 10,5
milljónir punda fyrir Robert.
Everton, en hann ákvað að ganga
til liðs við Arsenal og þá neitaði
Hollendingurinn Boudewijn
Zenden að ganga til liðs við
Newcastle frá Barcelona.
Robson hefur samt tekist að
styrkja lið sitt aðeins, því fyrr í
sumar gekk hann frá kaupum á
Craig Bellamy frá Coventry fyrir
6 milljónir punda og þá fékk hann
Robbie Elliott frá Bolton án þess
að þurfa að greiða nokkuð fyrir
hann, þar sem hann var samnings-
laus. ■
að segja það sem honum liggur á
hjarta um aðra bílstjóra hvort
sem það er af hinu góða eður ei.
Hann hefur m.a. látið ýmislegt
niðrandi flakka um áðurnefndan
Schumacher, Rubens Barrichello,
David Coulthard og Ralf
Schumacher. Nú vendir hann
kvæði sínu hinsvegar í kross og
hefur sjálfan sig til skýjanna. „Ég
held, á heildina litið, að ég sé
besti bílstjórinn fyrir utan
Schumacher," sagði Irvine. „Þeir
sem segjast vera jafngóðir eða
jafnvel betri en hann eru annað-
hvort lygarar eða barnalegir. Við
viljum allir geta sagt að við séum
jafngóðir og hann, en það þorir
enginn að sverja fyrir það. Hann
er einfaldlega langbestur." ■