Fréttablaðið - 28.08.2001, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 28.08.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ KJÖRKASSINN 28. ágúst 2001 PRIÐJUDAGUR KÆMI FLEIRUM Á ÓVART Aðeins 26% telja að Ólafur Ragnar Críms- son og Dorrit Moussai- eff gangi í hjónaband á þessu ári, en hinum kæmi það á óvart. Telur þú að Ólafur Ragnar Crímsson og Dorrit Moussa ieff gangi í hjónaband á þessu ári? Niðurstöður gærdagsins á vwvw.visir.is Já 26% Nei 74% Spurning dagsins í dag: Telur þú að Vinstri-Grænir bjóði fram með R-listanum? Farðu inn á vísi.is og segðu þína skoðun __________________ OLÍUBORPALLURINN Starfsmenn olíufélaga í Nigeríu verða ósjaldan fyrir hremmingum i tengslum við gagnrýni á þau. Olíuborpallur í Nígeríu: Gíslum sleppt í gær abuja. ni'geríu. ap Herská ung- menni í Nígeríu slepptu í gær tug- um starfsmanna á olíuborpalli út af strönd Vestur-Afríku sem þau höfðu tekið í gíslingu á fimmtu- daginn í síðustu viku. Borpallur- inn er í eigu Royal Dutch/Shell, en starfsemi fyrirtækisins í Nígeríu hefur lengi verið umdeild og gagnrýnd harðlega fyrir um- hverfisskaða sem borunin veldur ásamt tregðu til að greiða skaða- bætur fyrir land sem notað hefur verið undir starfsemina. Fregnum bar ekki saman um hversu margir gíslarnir voru. Ýmist voru þeir sagðir fimmtíu talsins, þar af fimm Bretar, tveir Bandaríkjamenn og einn Egypti, eða þeir voru sagðir 99, þar af áttatíu Nígeríumenn og 19 útlend- ingar. ■ Ilögreglufréttir Bílvelta varð við Breiðabóls- stað í Sökkólfsal um eitt- leytið á laugardag. Tvennt var í bílnum, móðir með son sinn, og hlaut drengurinn heilahristing og stakkst hlutur sem í bílnum var í vinstri upphandlegg hans. Móðir drengsins hlaut höfuðá- verka og fingurbrotnaði. Mæð- ginin voru flutt með sjúkrabif- reið til Akraness til aðhlynn- ingar og fengu þau að fara heim í gær. Talið er að konan hafi misst stjórn á bifreiðinni þegar hún kom af tvíbreiðum vegi yfir á einbreiðan og missti hún bíl- inn út í vegarkant með þeim af- leiðingum að hann fór fjórar veltur. —.....- Lögreglan á Eskifirði hafði af- skipti af ökumanni á Neskaup- stað aðfaranótt sunnudagsins sem grunaður er um ölvun við akstur. Þá var einn tekinn á 124 km hraða fyrir utan Reyðarfjörð og á sá von á dágóðri sekt. Norðlingaholt Gegn bensínstöð á vatnsverndarsvæði Dæmdur morðingi: Lögmaðurinn alltaf fullur umhverfi Meirihluti umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur telur að vegna nálægðar við Bugðu og viðkvæmra útivistar- svæða í nágrenninu sé óheppilegt að tengja Norðlingaholt við Suður- landsveg með mislægum gatna- mótum á því svæði sem áformað er. Nefndin leggst einnig gegn því að byggð verði bensínstöð á vatns- verndarsvæðinu þar eins og ráð- gert er samkvæmt tillögu að skipulagi svæðisins. I samþykkt meirihluta nefndar- innar er hins vegar lýst yfir ánægju með meginþema skipu- lagstillögunnar, enda séu áherslur hennar í samræmi við stefnu borgarinnar um uppbyggingu sjálfbærs samfélags. Af einstök- um atriðum hennar eru nefndar- menn einna hrifnastir af því að hægt verður að komast fótgang- andi um allt hverfið án þess að þurfa að fara yfir umferðargötur. Sömuleiðis eru menn ánægðir með hversu vel á að nýta græn svæði til að tengja hverfið saman og GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON BORGARFULLTRÚI Kvartar yfir því að fá ekki kort og önnur umbeðin gögn á fundum umhverfis- og heilbrigðisnefndar mynda heildstæð tengsl við úti- vistarsvæðin í nágrenninu. ■ RALEIGH. AP Ronald Wayne Fray, fangi í Norður-Karólínu í Banda- ríkjunum, er einn þeirra fjölmörgu Bandaríkjamanna sem bíða fulln- ustu líflátsdóms. Nú í vikunni er komið að því að dómnum verði full- nægt, en Fray hafði hlotið lífláts- dóm fyrir morð. Fray hefur hins vegar gripið til þess ráðs að fara fram á miskunn á þeim forsendum að lögfræðingur hans innbyrti jafn- an mikið magn af áfengi meðan á réttarhöldunum stóð. Fullyrðir Fray að lögfræðingurinn hafi ekki dregið fram öll nauðsynleg gögn í málinu og almennt staðið sig illa vegna ofdrykkjunnar. ■ ENN LANGT í LAND Þegar auðlindanefnd skilaði af sér síðasta haust sagðist sjávarútvegsráðherra vonast til þess að endurskoðunarnefnd skilaði af sér fyrir þinglok. Ekkert varð af því og næsti skilafrestur rennur úr á laugardag án þess að nefndin hafi skilað tillögum. Verulegur ágreiningur er innan nefndarinnar Kemur í ljós á næstu dögum hvort endurskoðunarnefnd um fiskveiðistjórn skilar sameiginlegum tillögum. Mikill skoðanamunur í nefndinni og ekki hefur náðst sátt í helstu deilumálum. Ljóst að nefndin skilar ekki af sér á þessu fiskveiðiári eins og stefnt hafði verið að. fiskveiðistiórn Enn ber langt í milli í skoðunum manna í endurskoðun- arnefnd um stjórn fiskveiða og ljóst er að nefndin mun ekki skila af sér tillögum fyrir 1. september nk. eins og stefnt hafði verið að. Nefndarmenn sem Fréttablaðið ræddi við sögðu að vilji væri fyrir því að reyna að ná sáttum en sögðu jafnframt að þar sem skoðanir væru mjög mismunandi væri það ekki auðvelt. Jóhann Ársælsson sagði í gær að meiri hreyfing hefði komist á málin eftir síðasta fund nefndar- innar en þrátt fyrir það væri enn langt á milli manna. „Það er ekki auðvelt að finna samkomulagsflöt. Það mun koma í ljós á næstu dög- um hvort menn geta náð einhverri samstöðu." Kristinn II. Gunnars- son tekur undir að erfitt sé að ná samkomulagi í máli þar sem skoð- anir manna séu jafn skiptar og raun ber vitni um stjórn fiskveiða. „Þetta er stærsta mál samtímans. Auðlindanefnd mat verðmæti veiðiheimildanna á 290 milljarða króna, það er meira en milljón á hvert mannsbarn. Þar sem hags- munirnir eru mestir eru mestar líkur á að menn verði ósammála." „Það vilja sem flestir ná sáttum því það er mikill ágreiningur í samfélaginu um þessi mál“, segir Árni Steinar Jóhannsson. „Ef menn geta náð einhverri málamiðl- un sem allir geta verið sáttir við þá er það náttúrulega það albesta. Þess vegna höfum við tekið svo langan tíma í þessa urnræðu." Einn viðmælenda Fréttablaðs- ins sagði að þó menn gerðu tilraun- ir til að ná sátt í starfi nefndarinn- ar mætti búast við að niðurstaðan yrði sú að í stað einnar tillögu rnyndu koma fram nokkur sérálit þar sem hver um sig gerir grein fyrir því hvaða leið ætti að verða ofan á. Langt hefur verið á milli manna og þrátt fyrir mikla vinnu hefur ekki náðst samstaða um hel- stu ágreiningsefni. „Eg vænti þess að nefndin skili af sér í fyrrihluta septembermán- aðar,“ segir Friðrik Már Baldurs- son, formaður nefndarinnar, sem viðurkennir að erfitt sé að ná nið- urstöðu vegna ólíkra skoðana. Hann segist þó gera það sem hann getur til að ná sameiginlegri niður- stöðu og gefa ekki eftir fyrr en í fulla hnefana. binni@frettabladid.is Afl kærír úrskurð skipulagsstjóra: Tilræði við nýsköpun í atvinnulífi virkjun „Við teljum að úrskurður skipulagsstjóra vegi að möguleik- um Austfirðinga til nýtingu tæki- færa í atvinnumálum, mannlífinu og afkomu byggðanna," segir Jón Ingi Kristjánsson, formaður starfsgreinafélagsins Afls á Aust- urlandi, en stjórn þess tók í gær formlega ákvörðun um að kæra úrskurðinn um höfnun Kára- hnúkavirkjun til umhverfisráð- herra. Hann segir að líta megi á niðurstöðuna sem rökrétt fram- hald niðurstöðu fundar sambands sveitarfélaganna á svæðinu. „Stuðningur við virkjunina hefur verið mikill hér. Við teljum að úr- skurðurinn líti framhjá mikilvægi virkjunar fyrir framtíð atvinnu- og byggðamála.“ Afl-Starfsgreinafélag Austur- lands varð til sl. vetur við samein- ingu sex verkalýðsfélaga. Þau eru Verkalýðs- og sjómannafélag Fá- skrúðsfjarðar, Árvakur á Eski- firði, Verkalýðsfélag Norðfirð- inga, Verkalýðsfélag Fljótsdals- héraðs og Borgarfjarðar-eystri, Fram á Seyðisfirði og Sjómanna- félag Vopnafjarðar og Skeggja- staðahrepps. Nokkra athygli vakti Af| æt|ar að kæra úrskurð Skipulagsstofn- að Reyðarfjörður tók ekki þátt í unar og segir hann vega að afkomu sameiningunni. ■ byggðanna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.