Fréttablaðið - 28.08.2001, Blaðsíða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
28. ágúst 2001 ÞRIÐIUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
ALDURSDREIFING NÝKOMU
KVENNA Á VOG ÁRIÐ 2000
HEIMILD: ARSRIT SAA 2000-2001
VARÐ ELDSNEYTISLAUS
Fimmtíu farþegar meiddust, en níu þurftu
að fara á sjúkrahús og höfðu þeir flestir
meiðst í baki.
Kanadísk þota:
Naudlenti á
Azoreyjum
Farþegar í kanadískri Airbus-
þotu sögðu það kraftaverki líkast
að flugmanninum hafði tekist að
lenda vélinni eftir að vélin varð
eldsneytislaus yfir Atlantshafi í
gær og drapst á öllum hreyflum.
Flugmaðurinn flaug vélinni án
vélarafls í átján mínútur og tókst
að Ienda heilu og höldnu á her-
flugvelli á eyjunni Terceira, sem
er ein Azoreyja.
Áhöfn vélarinnar virðist hafa
fyllst skelfingu þegar vélarnar
gáfust upp, sem olli því að mikill
óróleiki varð meðal farþeganna.
Vélin missti hæð býsna hratt og
var á 500 km hraða þegar hún
lenti á flugvellinum. Hjólbarðarn-
ir sprungu og síðan kviknaði í
þeim eftir að eldsneyti lak út. ■
.....
Breskir sjúklingar í bið
eftir aðgerð:
Leyfitil
meðferðar
erlendis
london.ap Sjúklingar sem þurft
hafa að bíða lengi eftir að komast
í aðgerð hjá bresku heilbrigðis-
þjónustunni fögnuðu í gær tillögu
þess efnis að þeir geti leitað sér
meðferðar hjá sjúkrahúsum í öðr-
um löndum Evrópu. Alan Milburn,
heilbrigðisráðherra Bretlands,
sagði í gær að landið hefði sam-
þykkt úrskurð Evrópudómstólsins
um að þeir sjúklingar sem hafa
þurft að þola mikla seinkun í
heimalöndum sínum skuli eiga
möguleika á að leita sér aðstoðar í
öðrum löndum innan Evrópusam-
bandsins. Bætti hann því við að
svo gæti farið að breyta þyrfti
breskum lögum vegna úrskurðar-
ins.
Breska heilbrigðisþjónustan,
NHS, hefur verið gagnrýnd harð-
lega undanfarin ár vegna þess
mikla biðtíma sem sjúklingar
hafa þurft að þola og eru dæmi
um að þeir hafi þurft að bíða í
rúmt ár eftir því að komast í að-
gerð. Einnig hefur skortur á
sjúkrarúmum verið gagnrýndur
auk skorts á sérfræðingum í
læknastéttinni. ■
Laumufarþegar í Lagarfossi:
Leitarhundar
fundu mennina
laumufarþegar Tveir laumufar-
þegar fundust um borð í Lagar-
fossi á föstudagskvöld. Höfðu
þeir vistað sig upp fyrir ferðina
og komið sér vel fyrir í lest skips-
ins sem var á leið til Kanada. Kall-
að var eftir aðstoð lögreglu sem
flutti mennina frá borði en engar
tafir urðu á brottför skipsins af
þessum sökum. Lögreglan vinnur
að frekari rannsókn málsins.
Það voru leitarhundar slysa-
varnafélagsins Landsbjargar sem
fundu mennina en samstarf hefur
staðið yfir undanfarna mánuði
milli Landsbjargar og Eimskips
til að fyrirbyggja að laumufar-
þegar komist með millilandaskip-
um félagsins. Staðið er að leitinni
þannig að hundarnir eru settir í
útbúnað til sigs og látnir fara um
allt skip og gefa síðan merki þeg-
ar þeir renna á lykt af fólki.
Þess má geta að svipað mál
kom upp um borð í Lagarfossi fyr-
ir u.þ.b. mánuði þegar tveir Rúss-
SIGIÐ TIL LEITAR
Hundarnir eru látnir síga um borð i skipið og fara um
allt skip. Mennirnir voru búnir að koma sér vel fyrir um
borð í Lagarfossi.
ar fundust þegar skipið átti eftir
tveggja daga ferð til hafnar á Ný-
fundnalandi. ■
Breskur hermadur
lét lífið í Makedóníu
Vopnasöfnun NATO hafin. Deilur uppi um Qölda vopna sem á að safna. Makedónar hindruðu
hersveitir NATO með vegartálma.
VOPNASÖFNUNIN HAFIN
Franskir hermenn aka um þorpið Otlaja þar sem vopnasöfnun átti að fara fram. Flutningaþyrlur sjást lenda í baksýn. Af þeim 3500 her-
mönnúm sem taka þátt í vopnasöfnuninni eru 1.400 þeirra breskir.
SKOPJE.MAKEDÓNÍU.AP TvítUgur,
breskur hermaður lét lífið í gær
eftir að hópur ungmenna kastaði
steypuklumpi í höfuð hans er
hann var á leið í herbíl sínum til
Skopje, höfuðborgar Makedóníu.
Önnur manneskja var einnig í
bílnum þegar atburðurinn átti
sér stað en hana sakaði ekki.
Þrátt fyrir áfallið héldu hersveit-
ir NATO áfram söfnun vopna al-
banskra uppreisnarmanna sem
hafði hafist skömmu áður en
maðurinn lést. Albanir tóku al-
mennt vel í vopnasöfnunina í gær
en Makedóníubúar virtust hins
vegar vera tortryggnir gagnvart
aðgerð NATO og hermönnum
þess. Reyndi hópur Makedóníu-
búa m.a. að hindra för hersveita í
gegnum borgina Tetovo, skammt
vestur af Skopje, með því að
setja upp vegartálma.
NATO ætlar sér að safna sam-
an 3.300 vopnum í aðgerðinni og
er reiknað með að hún taki 30
daga. Einhver gagnrýni hefur þó
komið fram um að sá dagafjöldi
nægi ekki hersveitunum. Þrátt
fyrir bjartsýni á meðal ráða-
manna NATO yfir vopnasöfnun-
inni eru makedónsk stjórnvöld
ekki ánægð með þann litla fjölda
vopna sem hermennirnir ætla að
safna saman og segja hann vera
„fáránlegan og niðurlægjandi".
Telja þau réttan vopnafjölda vera
um 60 þúsund.
Makedónar hafa kennt NATO
að stórum hluta um þau átök sem
átt hafa sér stað í landinu undan-
farna sex mánuði á milli
Makedóna og albanskra upp-
reisnarmanna. Saka þeir ráðið
um að hafa gert lítið til að koma í
veg fyrir þann fjölda vopna sem
flætt hefur inn í landið frá
Kosovo og þar með hafi það lagt
uppreisnarmönnunum lið í bar-
áttu sinni.
Þrátt fyrir komu hersveita
NATO til Makedóníu hafa átök
haldið áfram í landinu. f gær-
morgun og í fyrrakvöld sprungu
tvær sprengjur í Skopje nálægt
verslunarmiðstöðvum, en enginn
slasaðist. ■
Leigumarkaðurinn
Margir búa í
óíbúðarhæfu húsnæði
leigjendur Skelfilegt ástand ríkir
á leigumarkaðnum í borginni að
mati Leigjendasamtakanna og
raunar almennt í málum fátæks
fólks. í greinargerð sem samtökin
hafa sent frá sér kemur fram að
tveggja ára bið sé eftir leiguíbúð í
félagslega hluta markaðarins.
Samtökin telja að slík bið sé með
öllu óþolandi því flest biðlistafólk-
ið býr við afar erfiðar aðstæður.
Bent er á að fjöldi fólks býr í óí-
búðarhæfu húsnæði eins og t.d. í
moldarkjöllurum, bílskúrum og
ýmiskonar iðnaðarhúsnæði. Talið
er að það þurfi um 3 þúsund leigu-
íbúðir til að tæma biðlista.
JÓN KJARTANSSON
FORMAÐUR LEIGJ-
ENDASAMTAKANNA
Gagnrýnir borgaryfir-
völd um aðgerðarleysi í
málefnum leigjenda.
í greinargerðinni eru m..a.
vakin athygli á miklu öryggisleysi
sem leigjendur verða að búa við.
Sem dæmi er bent á að það sé of
algengt að þegar leiguíbúð er seld
sé tækifærið notað til að krefjast
allt að tvöfalt hærri leigu af nýj-
um eiganda, eða brottfarar að öðr-
um kosti. Af hálfu Leigjendasam-
takanna kemur fram að hótanir
sem fram hafa komið í málum
sem þessum hafi m.a. beinst að
börnum. ■
lögreglufréttirT
Að sögn lögreglunnar í Kópa-
vogi var óvenjumikill erill að-
faranótt sunnudagsins. Sagði við-
mælandi Fréttablaðsins mikið
hafa verið um ölvun í bænum og
fólk verið ansi hávaðasamt.
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
sjö ökumenn vegna gruns um
ölvun við akstur. Þá voru 39
árekstrar tilkynntir um helgina.
Ekið var á 10 ára gamla stúlku í
Fannafold. Stúlkan meiddist á
hné og var flutt á slysadeild.
Maður skarst í andliti eftir að
hafa verið sleginn með glasi
á veitingastað í miðbænum. Var
árásarmaðurinn góðkunningi lög-
reglunnar.