Fréttablaðið - 28.08.2001, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 28. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Alex Ferguson:
Fúll út í dómarann
knattspyrna Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Man. Utd. telur að
Graham Barber, dómarinn í leikn-
um gegn Aston Villa, hafi haft sig-
ur af United vegna þess að hann
hafi ekki bætt við tilskyldum við-
bótartíma. Ummælin vekja at-
hygli ekki síst þar sem þær fjórar
mínútur, sem Barber bætti við
hefðbundinn leiktíma, dugðu
Man. Utd. til að jafna leikinn og
þar með tryggja liðinu mikilvægt
stig í Úrvalsdeildinni.
Ferguson, sem er þekktur fyrir
að fylgjast vel með leiktímanum,
taldi að Barber hefði hugsanlega
átt að bæta 14 mínútum við hefð-
bundinn leiktíma.
„Fjórar mínútur voru bara
grín,“ sagði Ferguson. „Leikurinn
var a.m.k. stoppaður fjórum sinn-
um vegna meiðsla og þá var fjór-
um leikmönnum skipt inn á. Það
tók Peter Schmeicher líka alltaf
eina mínútu að sækja boltann.
Hversu miklum tíma hefði átt að
bæta við? A.m.k. 14 mínútum."
„Við erum með klassa lið, sem
hefur sýnt að það gefst aldrei upp.
Ef tilskyldum tíma hefði verið
bætt við hefðum við líklega unnið
leikinn."
John Gregory, framkvæmda-
stjóri Aston Villa, var hins vegar
algjörlega ósammála Ferguson.
„Alex kvartaði en ég held að
ÓÁNÆGÐUR
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Man.
Utd., telur að Graham Barber dómari hafi
átt að bæta 14 mínútum við leikinn gegn
Aston Villa.
Barber hafi í raun verið mjög
gjafmildur með því að bæta fjór-
um mínútum við leikinn,“ sagði
Gregory. ■
Enski boltinn:
Dudek til Liverpool?
KNATT5PYRNA Jerzy
Dudek, hinn pólski
markvörður Feye-
noord í Hollandi,
gæti verið á leiðinni
til Liverpool fyrir 5,7
milljónir punda að
því er fram kemur í
hollenskum fjölmiðl-
um um helgina.
Dudek var sterk-
lega orðaður við
Arsenal í sumar en
ekkert varð úr þeim
kaupum þar sem
Lundúnaliðið keypti
Richard Wright frá Ipswich. Hol-
lenska fréttastofan ANP greindi
DUDEK
Hollenskir fjölmiðlar segja að
Gerard Houllier hafi átt fund með
Jerzy Dudek á sunnudaginn.
verið aðalmarkvörður
anfarin misseri.
frá því að Gerard
Houllier, fram-
kvæmdastjóri
Liverpool, hefði átt
fund með Dudek í
Rotterdam á sunnu-
daginn fyrir leik
Feyenoord og Ajax,
sem Ajax sigraði 2-
1.
Ef Dudek gengur
til liðs við Liverpool
vakna upp spurning-
ar um framtíð Sand-
er Westerveld hjá
liðinu, en hann hefur
þess und-
í VANDRÆÐUM
Sven Göran Eriksson á í vandræðum með
lið sitt en þó nokkrir leikmenn eru meiddir
og einhverjir tæpir. Þar á meðal er fyrirlið-
inn David Beckham.
Undankeppni HM:
Murphy
í landsliðið
knattspyrna Danny Murphy, leik-
maður Liverpool, er í 25 manna
hópi Sven Göran Eriksson-
, landsliðsþjálfara Englands, en
liðið mætir því þýska á laugardag-
inn kemur. Liðin eiga í harðri bar-
áttu um laust sæti á HM 2002.
Teddy Sheringham, leikmaður
Tottenham og fyrrum leikmaður
Man. Utd., er hinsvegar dottinn úr
hópnum og fer þjálfarinn því að-
eins með fjóra framherja í leik-
inn. Þeir eru Andy Cole, leikmað-
ur United, Michael Owen, Emilie
Heskey og Robbie Fowler frá
Liverpool. Alan Smith frá Leeds
er meiddur, sem og Martin
Keown, Nicky Butt og David
James. Owen Hargreaves, leik-
maður Bayern Múnchen, heldur
sæti sínu en óvíst er með David
Beckham en hann meiddist í leik
gegn Aston Villa um síðustu helgi.
„Þetta kemur mér talsvert á
óvart þar sem svo lítið er liðið af
tímabilinu," sagði Murphy þegar
Eriksson hafði kunngjört val sitt.
England mætir Þýskalandi á
laugardag og því albanska f jórum
dögum seinna. Eriksson segir að
það sé erfið barátta framundan.
„Það eru tveir erfiði'r leikir
framundan en ég hef fulla trú á
þessum hóp. Ef við ætlum okkur
að vinna riðilinn verðum við að
sigra í Múnchen. Eins og er kemst
aðeins sigur að,“ sagði hinn
sænski Eriksson. ■
Undankeppni HM:
Scholl
meiddur
knattspyrna Þjóðverjar leika án
Mehmet Scholl, miðvallarleik-
manns Bayern Munchen, þegar
þeir mæta Englendingum á laug-
ardaginn kemur í undankeppni
HM. Scholl er meiddur á ökkla en
hann hefur verið einn besti leik-
maður Þjóðverja undanfarin ár.
Hann missti af vináttulandsleik
við Ungverjaland fyrir skömmu,
sem Þjóðverjar unnu með 5 mörk-
um gegn 2.
Scholl hefur skorað 8 mörk í
þeim 35 landsleikjum sem hann
hefur spilað og hefur verið lykil-
maður í landsliðinu sem og hjá
Bayern. H
Karla
HReynnc
ý 8-vikna námskeið hefjast 3. september.
otaðu tækifærið og breyttu þinum lífsstíl til
ns betra. Láttu Hreyfingu hjálpa þérvið að
á þínu takmarki.
Hreyfing Faxafeni 14 568 9915 www.hreyfing.is
Hreyfing
er hluti af
mínu lífi
Freyr Þórðarson,
27 ára, nemi við Háskólann í Reykjavík.
Hefur æft í Hreyfingu í rúmt ár.
Ég mæti að jafnaði þrisvar til fjórum sinnum í viku
og finn mikinn mun á mér eftir að ég fór að stunda
reglubundna þjálfun.
Líkamsræktina stunda ég til að halda mér í góðu
formi, jafnt líkamlega sem andlega.
Eftir að ég fór að æfa reglulega er mun auðveldara
að vakna á morgnana og ég er orkumeiri í amstri
dagsins. Námskeiðið auðveldaði mér að gera
þjálfunina að föstum lið í lífi mínu.
Mér finnst gott að koma í Hreyfingu vegna þess að
andrúmsloftið er vinalegt og þægilegt. Aðstaðan
er auk þess öll til fyrirmyndar og nýju tækin í
tækjasalnum eru frábær.
Starfsfólkið er alúðlegt og vill allt fyrir mann gera.
Svo hef ég kynnst fullt af skemmtilegu fólki í
Hreyfingu!
Ég mæli með Hreyfingu!