Fréttablaðið - 21.09.2001, Blaðsíða 19
7;r'VAr:<;v?.í;ar r.lQC iot!i,u t. e> ;
FÖ5TUPAGUR 21. september 2001
n’ri A iq íTT^’on
- ■■ -
19
Slóð fiðrildanna eítir Ólaf Jóhann Ólafsson:
Tilnefnd til alþjóðlegra
verðlauna
bókmenntaverðlaun Slóð fiðrildanna
eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er til-
nefnd til IMPAC bókmenntaverð-
launanna sem veitt eru árlega fyrir
skáldverk á ensku, frumsamið eða í
þýðingu. Verðlaunaféð nemur
100.000 írskum pundum eða tæp-
lega 12 milljónum króna og eru
þetta hæstu peningaverðlaun fyrir
bókmenntaverk í hinum enskumæl-
andi heimi. Alþjóðleg dómnefnd
ákveður hver hlýtur þau en bóka-
söfnum víða um heim er heimilt að
leggja fram bækur til þeirra. Dyfl-
inarborg stendur að verðlaununum
SÝNINGAR__________________________
í dag, föstudag kl. 17.00 opnar Kristín
Helga Káradóttir, myndlistarnemi f
Listaháskóla íslands, sýningu á
flöskuskúlptúr í Gallerí Nema hvað,
Skólavörðustig 22c. Sýningin er opin
22.- 27.september frá 14 -18.
Félagar í Meistara Jakob sýna í Lista-
safni ASÍ. Meistari Jakob samanstendur
af tíu listamönnum sem vinna við list-
málun, grafík, veflist og leirlist Sýningin
stendur ftil 23. september.
í anddyri Þjóðarbókhlöðu stendur sýn-
ingin Stefnumót við íslenska sagna-
hefð. Sýningunni lýkur 22. september.
Fom tré í Eistlandi er yfirskrift sýningar
á Ijósmyndum sem eistneski Ijósmynd-
arinn Hendrik Relve hefur tekið. í Nor-
ræna húsinu eru 18 Ijósmyndir til sýnis
í anddyri hússins. Sýningin er sett upp í
tengslum við Menningarhátíð Eystra-
saltsríkjanna á Norðurlöndum sem
stendur yfir frá 1. september til 1. nóv-
ember 2001. Sýningin er opin daglega
kl. 9 til 17, nema sunnudaga kl. 12 til 17.
Sýningin stendur til 23. september.
I Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulif
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu f víkingaþorpi og hins vegar sýn-
ingu þar sem má sjá beinagrind og
hauskúpur vfkinga sem féllu í bardög-
um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá
13 til 17 og standa tíl 1. október.
MYNPLIST__________________________
Sýning opnuð í dag á verkum Kristjáns
Davíðssonar í galleri i8. Sýningin
stendur til 27. október. Opið þriðjudaga
til laugardaga frá kl. 13 -17.
Friðrika Geirsdóttir sýnir grafíkverk og
litljósmyndir í sýningarsal félagsins Is-
lensk graffk í Hafnarhúsinu, Tryggva-
götu 17 ( inngangur hafnarmegin). Sýn-
ásamt Dublin
Corp. og IMPAC
og sér Borgar-
bókasafn Dyflin-
ar um fram-
kvæmdina. Slóð
fiðrildanna kom
út hjá Vöku-
Helgafelli 1999
og aftur í kilju í
sumar. Utgáfuréttur hennar hefur
verið seldur til tíu landa, Bandaríkj-
anna, Bretlands, Danmörku, Þýska-
lands, Frakklands, Spánar, ísraels,
Ítalíu, Portúgals og Kína. ■
ingin er opin fimmtudaga til sunnudags
frá kl. 14.00 til 18.00. Aðgangur er
ókeypis.
Sýning á verkum Gísla Sigurðssonar
var opnuð í Listasafni Kópavogs s.l.
laugardag. Yfirskrift sýningarinnar er
RÆTUR. Sýningin er opin daglega nema
mánudaga milli 11- 17.
Sýning var opnuð á verkum Hjörleifs
Sigurðssonar lístmálara í Listasafni
Kópavogs s.l. laugardag. Sýndar eru
vatnslitamyndir sem hvíla að mestu leyti
á sérkennum japönsku pappfrsarkanna.
Sýningin er opin daglega nema mánu-
daga milli 11-17.
Kristján Guðmundsson opnaði einka-
sýningu í Listasafni Reykjavikur, Kjar-
valsstöðum s.l. laugardag. Sýningin er
opin 10-17 alla daga nema miðviku-
daga 10 - 19.
Síðastliðinn laugardag opnaði Olga
Bergmann sýningu í gall-
erí@hlemmur.is. Sýningin ber heitið
„Prufur Doktors B.“ og er sjálfstætt
framhald á safni verka sem heyra undir
Rannsóknarstofu Doktor Bergmann.
Sýningin stendur yfir til 7. október og er
opin frá fimmtudegi til sunnudags frá kl:
14 00 - 18 00.
Ekkert er yfirskrift sýningar Bjarna Sig-
urbjörnssonar í Hafnarborg. Á sunnu-
dag kl. 14 verður listamaðurinn með
leiðsögn um sýninguna en henni og
sýningu á Ijósmyndum Andris Egilitis frá
Lettlandi í kaffistofu listasafnsins lýkur á
mánudag. Safnið er opið frá 11 til 17.
Sýningin Sjálfbær þróun stendur nú í
Nýlistasafninu. Sýningin er liður í
átaksverkefni Nýlistasafnsins sem
kennt er við Grasrót og hefur að mark-
miði að kynna verk efnilegra lista-
manna sem eru að stíga sín fyrstu
sjálfbæru þróunarskref á sviði listarinn-
ar. Sýningin er opin milli kl. 12 og 17
alla daga nema mánudaga.
SLOÐ
FIÐRILDANNA
ÓI.AFUR JÖHANN
ÓIAFSSON
A.I. frumsýnd:
Tökubarn Spielberg
KVIKMYNDIH
„Snemma á ní-
unda áratugnum
treysti Stanley
Kubrick mér
fyrir sköpun
sinni. Hann sagði
mér fallega
sögu, sem var
ógleymanleg,“
segir Steven Spi-
elberg um fyrstu
kynni sín af hug-
arfóstri Kubrick,
A.I. Fyrir þrjátíu
árum skrifaði
vísindaskáldsöguhöfundurinn
Brian Aldiss smásöguna Super-
Toys Last All Summer Long og
birti hana í Harper’s Bazaar. Hún
fjallar um vélmennabarn í fram-
tíðinni, sem reynir án afláts að
þróa ástríkt samband við menns-
ka fósturmóður sína. Nokkrum
árum síðar keypti Kubrick réttinn
að sögunni. Það tók hana tuttugu
ár að komast á hvíta tjaldið en
Kubrick ætlaði að klára hana fyr-
ir löngu, á undan EWS.
Leikstjórarnir tveir hittust
fyrst þegar Spielberg var að taka
upp Raiders of the Lost Ark í
Bretlandi 1979. Vinskapurinn ein-
kenndist af löngum símtölum
seint á kvöldin. „Einn daginn
sagði hann í miðju samtali:
„Veistu, þú ættir að leikstýra A.I.
og ég að framleiða fyrir þig,“ seg-
ir Spielberg. „Mér dauðbrá en
hann sagði að ég væri eflaust
næmari á efnið en hann og þekkti
betur til nýjustu
tölvubrella." Eft-
ir þetta flaug Spi-
elberg til Eng-
lands og skrifaði
undir þagnarheit.
Ef það yrði rofið
ætlaði Kubrick
að útiloka hann
úr lífi sínu. Þeir
skiptust á hug-
myndum og hann
sýndi honum þús-
undir mynda,
sem teiknarinn
Fangorn gerði
fyrir hann. Ein af ástæðum þess
að Kubrick fannst Spielberg betri
til að leikstýra A.I. er sú að hann
tekur 20 vikur £ tökur á meðan
Kubrick hefði tekið sér rúmt ár og
þá hefði barnið í aðalhlutverki
hugsanlega breyst.
Spielberg tók ekki við verkefn-
inu fyrr en Kubrick lést, en þá
var hætta á að það hefði lognast
út af að eilífu. Hann skrifaði
handritið sjálfur (skrifaði síðast
Close Encounters of the Third
Kind). „Mér fannst alltaf eins og
Stanley sæti fyrir aftan mig og
segði: „Nei nei, ekki skrifa
þetta!““ segir Spielberg. Hann
fékk til sín kvikmyndatökumann,
klippara, leikmyndahönnuð og
tölvubrellumeistara, sem allir
hafa unnið Óskarsverðlaun fyrir
myndir eftir hann. Haley Joel
Osmond, Jude Law, Frances
O’Connor og William Hurt leika
aðalhlutverkin. ■
LEIKSTJÓRARNIR TVEIR
Góðvinir í tuttugu ár en hittust aðeins tólf
sinnum. Kubrick vildi láta Spielberg leik-
stýra A.I.
klár í miðbæinn!
Frítt inn!
Opið til kl. 05
Bjór tilboð til kl. 22
Opið alla helgina
fró kl. 12 - 05
80's stemning
Kótasta kráin
í bænuin
SINCE 1931
Odýrasti bjárinn
M í bænum!
Hádegishlaðborð: 790 kr.
Kvöldverðarhlaðborð: 990 kr.
^
py'-M
arstíguý
Klapp
Snóker -
Sportbar
Frakkastígur
^ Bjórmót
sunnudaginn 23. sept. kl. 16
Hverfisgata 46 * S: 552-5300
Glæsilegur
matsölustaður
og dans á eftir
Vitastí
Laugavegi 45
Laugaveg! 73 • TeL: 561 7723
Föst: BUnERCUP Laug BUnERCUP
Sunn.: Sverrir Björguins 09 co.
Mánud.: ENSÍMIogÚLPA
Þriðj : STEFNUMÚT Miðv.: FB Skólaball
Fimm.: NIRVANA - TRYBUTE
TRYGGVAGÖTU 22 - S: 551 1556
Hafnapstrætí 4 - Tel: 511 3233
Hvepfisgata 26 - Tel.: 511 3240
♦ Snóker
• Pool
m p)ari
m Risaskjár