Fréttablaðið - 21.09.2001, Blaðsíða 22
22_______________FRÉTTABLAÐIÐ.............21, septem.ber.20p1, föstudagur
Utanríkisráðherra Rússlands býður fram aðstoð við Bandaríkin:
Hafa ítök í landamæraríkjum Afganistcin
Allir búnir í mútum
Karlakór Reykjavíkur fagnar 75 ára afmæli í ár. Af því tilefni verða
hátíðartónleikar í Háskólabíói á föstudag. Ekkert aldurstakmark í
kórnum en æskilegt að menn kunni eitthvað fyrir sér í nótnalestri og
séu búnir í mútum.
tónleikar „Yfirhöfuð eru þetta
menn sem eru komnir til að vera
þegar þeir á annað borð eru
komnir inn. Menn eru auðvitað á
ýmsum aldri. Nokkrir búnir að
vera þarna á bilinu 40 til 50 ár og
aðrir skemur," segir Björn Jóns-
son, kórfélagi og annar bassi í
Karlakór Reykjavíkur.
Karlakórinn heldur upp á 75
ára afmæli sitt um þessar mund-
ir. Á föstudag verða sérstakir há-
tíðartónleikar í Háskólabíói þar
sem meðal annars verður frum-
flutt nýtt lag Páls P. Pálssonar,
Dansandadans, við texta Sjón.
Bernharður Wilkinsson stjórnar
tónleikunum. í desember eru
fyrirhugaðir sérstakir aðventu-
tónleikar í Hallgrímskirkju í til-
efni afmælisársins. Þá verður
saga Karlakórsins gefin út á bók
þessu ári.
í Karlakórnum eru alls um 70
manns og hefur Björn verið
meðlimur þar um fjögurra ára
skeið. Að eigin sögn hefur hann
sungið í karlakórum síðan 1990
og syngur nú í Karlakór Kjalnes-
inga samhliða starfi sínu hjá
Karlakór Reykjavíkur. Hann
segir kórinn leggja mikið upp úr
því að vera ávallt með ferskustu
og bestu raddir á hverjum tíma
og endurnýjun kórfélaga sé því
lífsnauðsynleg.
„Kórnum ber að auglýsa á
hverju ári eftir nýjum kórfélög-
um. Þeim ber að standast radd-
próf hjá söngstjóra og æskilegt
að menn kunni eitthvað fyrir sér í
nótnalestri og tónfræði auk þess
sem reynsla af söng sakar ekki.
Það er enginn lágmarksaldur en
aðalatriðið að menn séu búnir að
ganga í gegnum mútur,“ segir
Björn og hlær við. Þess má geta
að yngstu menn í kórnum eru í
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR
Björn Jónsson, kórfélagi og annar
bassi, segir gaman að syngja í jafn
stórum kór og Karlakórnum þar sem
vandað sé til verka.
kringum tvítugt og sá elsti 76 ára.
Auk aðalkórsins er starfrækt-
ur kór fyrir eldri kórfélaga og
segir Björn flesta þá sem hætta í
aðalkórnum fara yfir í eldri kór-
inn. Mjög öflugt kvenfélagsstarf
er einnig innan kórsins og halda
eiginkonur kórfélaga utan um
það starf. Björn nefnir sem
dæmi að þegar félagsheimili
kórsins, Ýmir, var opnað hafi
kvenfélag Karlakórsins fjár-
magnað að mestu kaup á flygli af
Steinway-gerð fyrir 6-7 milljónir
króna.
„Auðvitað er Karlakór
Reykjavíkur einn besti karlakór
landsins og gaman að syngja í
svona stórum og öflugum kór
þar sem er vandað mjög vel til
verka. Þetta er gömul og merk
stofnun, ef það má orða það svo,
og vel þekkt nafn sem allir þekk-
ja,“ segir Björn.
kristjangeir@frettabladíd.is
árás Á ameríku Utanríkisráðherra
Rússa, Igor Ivanov, átti fund með
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
Colin Powell, í vikunni. Þar til-
kynnti hann að Rússar myndu
ekki leggjast gegn því að Banda-
ríkjamenn fengju afnot af land-
svæði þriggja fyrrum Sovétlýð-
velda sem eiga landamæri við
Afganistan. Ríkin sem um ræðir
eru Tadjíkistan, Úsbekistan og
Túrkmenistan en Rússar hafa
mikil ítök í þessum ríkjum þó tíu
ár eru liðin frá því að Sovétríkin
liðuðust í sundur. ívanov átti ein-
nig fund með Bush Bandaríkja-
forseta þar sem hann sagði meðal
annars að Rússar myndu heita
fullum stuðningi við Bandaríkja-
menn. „Það verður að ríkja ein-
hugur meðal ríkja heims um að
berjast sameiginlega og af heilum
hug gegn hryðjuverkum. Við
ræddum við forsetann um
ákveðnar aðgerðir í þá átt,“ sagði
ívanov. Rússar hafa í gegnum tíð-
ina þurft að glíma við hryðju-
verkamenn á rússneskri grundu
og nægir að nefna sprenginguna í
lestargöngunum við Pushkín-torg
í fyrra. g
HITTIR RÁÐAMENN
ígor (vanov ræddi við Bush
Bandaríkjaforseta (vikunni.
irmi«irrimwiiivirnyiTiwiwwwiimiii[mTtfiiiimirrm»iimwÉfiaMmaiawrriiaiwia»itMB^»i!SBg«ia^>!^
FRETTIR AF FÓLKI
ótrúlega margir ekið óvarlega.
Ásdís segist sjálf heldur kjósa
tívolí bíla til að leika sér, alvöru
bíla til að komast á milli staða.
Sjálfsagt fleiri sem gætu tekið
undir þessi orð.
Væntanleg er bók Jóhönnu
Kristjónsdóttur sem fjallar
um dvöl hennar í Egyptalandi og
Sýrlandi. Að því er greinir frá á
bókavefnum á
Strikinu segir
bókin frá námi
hennar í arabísku
í þessum löndum
og fólki sem varð
á vegi hennar þar.
Hún fléttar einnig
inn fróðleik um
menningarheim
heimshlutans en það efni vekur
ugglaust forvitni margra sem
ekki hafa ferðast á þessar slóðir
sem eru mikið í heimsfréttum, nú
sem fyrr.
Sem kunnugt er þinguðu ungir
Sjálfstæðismenn síðustu helgi
og voru hæstánægðir með helg-
ina. Ágúst Ágústsson, einn rit-
stjóri politik.is, vefs ungra Sam-
fylkingarmanna, vorkennir þeim
hins vegar heil ósköp. í pistli í á
vefnum segir að
þrátt fyrir að oft
reynist erfitt að
vera ungur Sam-
fylkingarmaður
(vegna lélegs
gengi í skoðana-
könnunum og ax-
arskafta þing-
manna), þá sé öllu verra að vera
ungur Sjálfstæðismaður. Ágúst
segir ungum Sjálfstæðismönnum
vera vorkunn vegna þess að
stefnumál þeirra frá ómunatíð,
„lægri skattar og minna bákn,“
hafi verið hunsuð í valdatíð Dav-
íðs Oddssonar, opinber gjöld á
einstaklinga hafi nefnilega þre-
faldast í tíð hans. „Davíð Oddsson
er fyrst og fremst íhaldsmaður,
alls enginn frjálshyggjumaður
eins og margir ungir sjálfstæðis-
menn virðast halda,“ segir Ágúst.
Tónleikar Jose Carreras í vik-
unni vöktu verðskuldaða at-
hygli, enda stórkostlegur söngv-
ari þar á ferð.
Tónleikarnir voru
eins og kunnugt
er haldnir í Laug-
ardalshöll enda
ekki stóru tónlist-
arhúsi til að
dreifa hér á landi.
Andríkispennar
voru eins og fleiri ánægðir með
viðburðinn. Ávarp menntamála-
ráðherra, Björns Bjarnasonar, af
tilefninu, vekur hins vegar minni
hrifningu þeirra á andriki.is.
„Markvisst er unnið að því að
skapa hér hinar bestu aðstæður
til tónlistarflutnings. Undanfarn-
ar vikur hefur farið fram hug-
myndasamkeppni um skipulag í
miðborg Reykjavíkur og við
höfnina, þar sem tónlistarhúsið
mun rísa. Þegar húsið kemur til
sögunnar munum
við njóta þess enn
betur en til þessa
að fá frábæra tón-
listarmenn í heim-
sókn,“ segir í því
og vekja orðin
litla hrifingu hjá
þeim. Orð
menntamálaráðherra eru áróður
einn því ekki hefur verið tekin
ákvörðun um að reisa tónlistar-
hús fyrir opinbert fé. Áróður
menntamálaráðherra beinist ekki
síst að alþingismönnum segja
Andríkismenn, ætlunin er að telja
þeim trú um að búið sé að ákveða
að byggja húsið. Ekki mikil trú
sem þeir hafa á þekkingu alþing-
ismanna.
*
Asdís E. Petersen, kynningar-
stjóri hjá Ríkisútvarpinu,
skrifar í pistli á vefinn konur.is
um vöntun á tívolí-bílum hér á
landi. Eftir reynslu hennar af
keyrslu norður til Akureyrar
veltir hún fyrir sér hvort ekki sé
tími til kominn að opna tívolí hér
á landi þar sem hægt væri að
keyra tívolí-bíla. Ásdísi blöskrar
nefnilega mjög aksiurslagið á
vegum úti og bendir á að það hafi
'Kartjyrír öCC tíCefní [
ÞRUDA
„Áítu nokkuð
„Langt síðan
vasapeningur-
inn minn var
hækkaður!"
kort?"
HRAÐSOÐIÐ
ÞÓRÐUR KRISTINSSON
kennslustjóri Háskóla íslands
mym
Geta verður
um heimildir
HVER eru fordæmi þessa máls hjá Há-
skóla fslands með lögfræðinginn sem sviptur
hefur verið embættístitli?
„Ég man ekki eftir neinu dæmi eins
og þessu - ekki eftir að viðkomandi
nemandi er brautskráður."
HVERNIG fylgist Háskólinn með
því að nemendur eigni sér ekki verk annarra
víð prófúrlausnir?
„Lokaritgerðir eru gerðar í samráði
við umsjónarkennara sem eiga að
fylgjast með að ekki sé haft rangt
við. Það er óskráð og skráð regla að
menn nýti sér ekki heimildir án þess
að þeirra sé getið.“
HEFUR svindl yfirleitt verið vaxandi
vandamál í Háskóla fslands?
„Nei, en það kemur alltaf fyrir ann-
að slagið að fólk verður uppvíst að
slíku. Það eru sjö þúsund nemendur
í skólanum og þetta kemur auðvitað
alltaf fyrir en er ekki algengt miðað
við nemendafjöldann.
HVAÐA viðurlög eru við svindli?
„Þetta er tvíþætt. Annars vegar er
það deildin sem ógildir viðkomandi
próf en hins vegar er það rektor og
háskólaráð sem ákveða hvaða aga-
viðurlögum er beitt. Þau geta verið
áminning og það er í sjálfu sér viss
refsing að svindlið verður uppvíst
því menn mega aðeins þreyta hvert
próf tvisvar."
HEFUR komið til brottvikningar?
„Það getur komið til þess tímabund-
ið á meðan viðkomandi er að bæta
ráð sitt og jafnvel að fullu og öllu.“
HVAÐA stöðu er mál nemandans
sem sviptur hefur verið embættistitlinum í
núna?
„Deildin hefur afgreitt málið fyrir
sitt leyti og síðan mun það koma til
umfjöllunar hjá háskólayfirvöldum
hvort viðkomandi nemanda sé heim-
il innritun að nýju.“
HVAÐA áhrif hefur tölvubyltingin
haft á möguleika nemenda annars vegar til
að hafa rangt við og skólayfirvalda hins veg-
ar að verjast þvf?
„Hún hefur örugglega haft þau áhrif
að nemendur geta nálgast efni á auð-
veldari hátt. Það má kannski segja
að skólayfirvöld eigi líka hægara um
vik að kanna hvaðan efnið kemur.“
Þórður Kristinsson er 48 ára M.litt í heim-
speki frá Edinborgarháskóla og kennslu-
stjóri Háskóla íslands frá árinu 1988.
IRYGGISKERFI
nSRaflagnir íslands
Sími 511 1122