Fréttablaðið - 28.09.2001, Page 6
Sigurlaug Gunnarsdóttir, verslunarmaður
SPURNING DAGSINS
MÓTMÆLI
Pakistanar í borginni Karachi, mótmæla
mögulegri árás Bandaríkjamanna á
Afganistan.
Pakistanskir studentar:
„Leggjum
Bandaríkin
í rúst“
CHAMAN.PAKISTAN.AP Hálf milljón
pakistanskra stúdenta segist til-
búin til að berjast við hlið Tali-
bana í heilögu stríði gegn Banda-
ríkjamönnum. Þetta segir Fazl-ur
Rheman, leiðtogi Islamska
klerkasambandsins, sem rekur
yfir eitt hundrað trúarlega skóla
í suðvesturhluta Pakistan. Sést
hefur á veggjakroti á islömskum
skólum skammt frá afgönsku
landamærunum setningar eins
og: „Ef Bandaríkin drepa Osama,
munu 100 aðrir Osamar koma í
hans stað,“ og „Við munum berj-
ast þar til við leggjum JjJandarík-
in í rúst.“ ■
—♦—
Svarar gagnrýnendum
hnattvæöingar:
Vill „siðferði-
lega hnatt-
væðingu"
brussel. ap Forsætisráðherra
Belgíu, Guy Verhofstadt, hvatti
í gær auðug ríki til þess að
stuðla að „siðferðilegri hnatt-
væðingu" með það markmið að
brúa bilið milli fátækra og ríkra
þjóða. Belgía fer sem stendur
með forsæti Evrópusambands-
ins, en Verhofstadt birti hvatn-
ingu sína í opnu bréfi, sem er
svar hans til allra þeirra sem
gagnrýnt hafa hnattvæðinguna
og staðið fyrir mótmælum í
tengslum við leiðtogafundi. „Þió
eruð að spyrja margra af réttu
spurningunum,“ segir í bréfi
forsætisráðherrans. „En eruð
þið með réttu svörin?“ ■
FRETTABLAÐIÐ
28. september 2001 FÖSTUDACUR
að lokka ad
ferðamenn
Verslunarhúsnæði:
Helmings-
aukning
verslun Samkvæmt nýjum tölum
frá Þjóðhagsstofnun er verslunar-
rými á höfuðborgarsvæðinu nú um
380.000 fermetrar og hefur aukist
um helming frá 1987. Eftir opnun
Kringlunnar var verslunarrými á
hvern íbúa svæðisins 1,4 fm. en
verður 2,1 fm. eftir opnun Smára-
lindar í næsta mánuði. Þetta kemur
fram í Hagvísum stofnunarinnar.
Ekki eru dregnar aðrar ályktanir af
tölunum að sögn Vilhjálms Bjarna-
sonar hjá Þjóðhagsstofnun en að
fólk vilji hafa rýinra um sig nú en
áður fyrr. Áhrif þessarar aukning-
arinnar á verðlag liggja ekki fyrir
og ekki hafa heldur fengist saman-
burðartölur frá Norðurlöndunum. B
Finnst þér dýrt að
lifa á íslandi?
Já mér finnst dýrt að lifa og kaupa í
matinn á islandi. ■
Meintur fjársvikari áfram í varðhaldi:
Grunur um íslenska vitorðsmenn
Ferðamönnum í Bandaríkjunum hefur fækkað
gríðarlega undanfarið. Almenningur lokkaður
í ferðalög með gylliboðum.
stórveldi af
ferðamönn-
ORLANPO.AP Öllum ráðum er nú
beitt til að endurlífga ferðaþjónus-
ta í Bandaríkjunum, sem hefur
.orðið fyrir miklum
„Bandaríkin skakkaföllum eftir
voru stofnuð hryðjuverkaarasina
„nrA þann 11. september
2SÍ sfðastliðinn. Aug-
lysingaherferðir
eru komnar á fullt
skrið, boðið er upp á
afslætti og pakka-
tilboð. Fyrst og fremst er þó reynt
að telja almenningi trú um aö þrátt
fyrir allt sem á undan er gengið þá
sé öruggt að ferðast í Bandaríkjun-
um. Ferðamannaráðið í New York,
sem á hverju ári hefur staðið fyrir
auglýsingaherferðinni „Málið bæ-
inn rauðan," frá janúarmánuði
fram á haustdaga, hefur nú ákveð-
ið að lagfæra nafnið á herferðinni.
Heitir hún nú „Málið bæinn rauð-
an, hvítan og bláan,“ þar sem reynt
er að höfða til sterkrar þjóðernis-
kenndar Bandaríkjamanna. Einnig
býður ráðið upp á afslætti á hótel-
um, veitingastöðum og sýningum á
Broadway.
Á næstu tveimur vikum ætla
Samtök bandarískra ferðaskrif-
stofa að fara af stað með 700 millj-
óna króna herferð þar sem auglýst
verður í 20 af stærstu dagblöðum
Bandaríkjanna. í lokaorðum aug-
lýsingarinar segir: „Þrátt fyrir allt
þá voru Bandaríkin stofnuð, þróuð
áfram og gerð að stórveldi af
ferðamönnum. Enginn getur tekið
það frá okkur. Ekki núna. Aldrei."
Á næstu vikum ætla samtökin auk
þess að fá frægar bandarískar
stjörnur til að auglýsa fyrir þau í
sjónvarpinu.
Ferðamenn, bæði innlendir og
erlendir, eyða um 150 milljörðum á
degi hverjum í Bandaríkjunum, en
sem von er hefur sú tala lækkað
stórlega undanfarið. Stjórnvöld í
Washington ásamt ferðaskrifstof-
um hafa t.a.m. beðið Bandaríkja-
stjórn um fjárstuðning vegna þess
eins milljarðs króna sem tapast
hefur í ferðaþjónusta í ríkinu á
degi hverjum frá því hryðjuverka-
árásin átti sér stað. „Tapið verður
sögulegt," sagði Betsy O'Rourke,
talsmaður Samtaka bandarískra
ferðaskrifstofa. „Við þurfum að ná
okkur á strik eins fljótt og hægt
er.“
freyr@frettabladid.is
AUÐAR CÖTUR
Lítið hefur verið um ferðamenn undanfarið
( hinni annars vinsælu borg spilavítanna,
Las Vegas, í Nevada-fylki. Hin fræga
„Boulevard Strip," gata í borginni hefur
verið nánast auð.
Borgarstjórn:
Stuðningur við rafræna
kosningu í Reykjavík
SVEITARSTJÓRNAKOSNINCAR
Svo virðist sem stuðning-
ur sé meðal borgarfull-
trúa í báðum fylkingum
fyrir þeim möguleika að
kosið verði rafrænt í
borgarstjórnarkosningun-
um á vori komandi en ver-
ið er að skoða það hjá
borginni og ráðuneytum.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarfulltrúi sjálf-
stæðismanna segist ekki
standa í vegi fyrir nýjung sem
VILHIÁLMURÞ.
VILHJÁLMSSON.
BORCAR-
FULLTRÚI
þessari. Hann seg-
ir ef þetta verði að
veruleika muni ef-
laust margir sakna
þeirrar spennu
sem hefur verið
við talningu á
kosninganótt, auk
þess sem kjósend-
ur geta ekki lengur
skrifað vísur á
kosningaseðla eins
og áður.
Ilrannar B. Arnarson borgar-
HRANNAR B.
ARNARSON
BORGAR-
FULLTRÚI
ar
fulltrúi R-lista segist vera
fylgjandi því að skoðaður
verði möguleiki á rafrænn-
um kosningum n.k. vor.
Hann bendir einnig á að með
þessu nýja fyrirkomulagi
opnast möguleikar fyrir því
að kjósa um marga aðra
hluti samhliða borgarstjórn-
arkosningunum. Hann seg-
ist t.d. gjarnan vilja að borg-
arbúar láti í ljós afstöðu
sína til útvarpsprósentunn-
svo dæmi sé tekið. ■
lögreglumál Hæstiréttur hefur
staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð
yfir erlendum manni sem grun-
aður er um að hafa notað sex
stolin greiðslukort til að svíkja út
að minnsta kosti hátt á aðra
milljón króna í tveimur ferðum
sínum til íslands í september.
Grunur leikur á að maðurinn
eigi sér vitorðsmenn á íslandi og
í Englandi.
Meðan á frumrannsókn máls-
ins stendur þykir hætta á að mað-
urinn nái að torvelda rannsókn
málsins, svo sem með því að
skjóta undan munum eða hafa
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS
Útlendur maður skal sitja í varðhaldi til 19. október vegna gruns um fjársvik.
áhrif á vitni eða samseka, auk
þess sem ætla megi að hann muni
reyna að komast úr landi, en að
sögn lögreglu segist maðurinn
engan þekkja á íslandi og eiga
engan samastað hérlendis. Hann
á að sitja í varðhaldi til 19. októ-
ber.
Maðurinn var handtekinn í
söluskrifstofu Flugleiða í flug-
stöðinni í Keflavík 14. september
en þá var hann á leið úr landi.
Lögregla telur að hann hafi haft í
hyggju að snúa aftur til íslands
nokkrum dögum síðar í því
augnamiði að svíkja út fé. ■
Gylliboðum
er beitt til