Fréttablaðið - 28.09.2001, Side 19
FÖSTUPAGUR 28. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Tískudagar í Kringlunni:
Haust- og vetrar-
tískan við völd
TísKA í dag
hefjast tísku-
dagar í Kringl-
unni en þeir
standa til 30.
september. Á
tískudögum
verður það
nýjasta í
haust- og vetr-
artískunni á
boðstólum í öllum fata- og skó-
verslunum Kringlunnar. Tísku-
vörunni verður stillt upp jafnt
inni í verslunum og úti á göngum.
Á tískudögum er ekki aðeins verið
að kynna fatatískuna, heldur ein-
nig það nýjasta í rafmagnstækj-
um og snyrtivörum.
Tískuvikan hefst með tísku-
sýningu í Borgarleikhúsinu þar
sem sýndar verða vörur sem fást
í Kringlunni. Sýningin er stærsta
tískusýning sem haldin er hér á
landi. Sýnendur eru 23 verslanir í
Kringlunni og innkomur sýning-
arfólks verða 148 talsins. Þetta er
í annað skipti sem Kringlan stend-
ur að svo umfangsmiklu tískusýn-
ingu. ■
Matthías Johannessen:
Minningaskáldsaga
og úrval ljóða
bækur Minningaskáldsaga Matthí-
asar Johannessen kemur út fyrir
jólin hjá Vöku Helgafelli. í bók-
inni sem ber heitið, Hann nærist á
góðum minningum, segir frá eldri
manni í nútímanum og hvernig
hann minnist uppvaxtarára sinna.
í henni kemur margt heim og
saman við ævi Matthíasar sjálfs
og mun bókin ugglaust sæta tíð-
indum og verða lesin af mikilli at-
hygli því búast má við að Matthías
hafi frá ýmsu merkilegu að segja.
Vaka Helgafell gefur einnig út
úrval úr ljóðum Matthíasar. Þar
velur Silja Aðalsteinsdóttir úr öll-
um útgefnum bókum hans frá
Borgin hló, sem út kom 1958, til
Ættjarðarljóða á atómöld, sem
kom út 1999. Alls hefur Matthías
sent frá sér 18 ljóðabækur, þar af
eina með ljóðabálki sem hann end-
urvann og lengdi (Sálmar á
atómöld 1966/1991). Bókinni fylg-
ir diskur þar sem Matthías les
hluta af Hólmgönguljóðum, alla
Sálma á atómöld og nokkur ljóð úr
Vötn þín og vængur.
í ítarlegum formála Silju um
ljóðagerð Matthíasar segir meðal
annars: „Matthías Johannessen
hefur alltaf lifað og hrærst í sín-
um samtíma og ort eins og sá sam-
tími blés honum í brjóst. Þó ekki
vélrænt þannig að hann hafi fylgt
tískusveiflum, þvert á mól^ er
hann frumlegt skáld og óvenju
fjölbreytt í efnisvali og formi,
SILJA UM MATTHÍAS
„Ástin er það afl sem hann trúir mest á
manneskjunni til gæfu og hins lífsnauð-
synlega unaðar, og sjaldgæf eru þau skáld
i íslenskri bókmenntasögu - og þótt viðar
væri leitað - sem hafa ort fegurri og næm-
ari Ijóð um samskipti kynjanna. Ljóð hans
sem heild undirstrika mátt hins góða ef
við berum gæfu til að hafa það með í för.".
eins og ljóðaúrvalið ber með sér.
Hann hefur fundið til í stormum
sinnar tíðar en reynt að bera sam-
ferðamönnum þann boðskap að
ekki dugi að láta undan svartsýni
og þunglyndi; sagan og bókmennt-
irnar segi okkur að það sé alltaf
von, hversu vonlaust óg svart sem
virðist framundan." ■
LEIKHUS
Hver er hrœddur...
HVER ER
HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF?
Hafi fólk áhuga á því að sjá
leikara fara á kostum þá er
sennilega hvergi betra að byrja
en á sýningu Þjóðleikhússins,
Hver er hræddur við Virginíu
Woolf. Leikritið, sem vakti
hneykslan þegar það var fyrst
sýnt, er nefnilega algert leik-
araleikrit og leikararnir fjórir,
Pálmi Gestsson, Lilja Guðrún
Þorvaldkdóttir, Inga María
Leifsdóttir og Rúnar Freyr
Guðmundsson, standa undir
þeim kröfum sem leikritið gerir
til þeirra, sérstaklega konurnar
tvær. Leikritið fjallar um hjón-
in George og Mörtu, hann er
háskólaprófessor og hún
frústreruð eiginkona, sem fá
unga háskólaborgara í nætur-
heimsókn. Við fylgjumst með
henni og þeirri klikkuðu veröld
Sýnt á litla sviði Þjóðleikhússins.
LEIKSTJÓRI: Kjartan Ragnarsson.
sem þau Georg og Marta búa í
og draga hjónin ungu ofan í
þannig að úr verður nótt af-
hjúpunar. Verkið telst til meist-
ararstykkja 20. aldar en það
féll í misjafnt kram hjá mér. Al-
menn frústrasjón bælda há-
skólaborgarans finnst mér t.d.
lítið spennandi en dramatískt
samband Georgs og Mörthu er
það"vissulega. Það síðarnefnda
er þungamiðja leikritsins og
höfðar til sálfræðipæíarans í
okkur öllum.
DRAMATÍSKT LEIKRIT ÞAR SEM LEIKARAR FARA
A KOSTUM
Sigríður Bjdrg Tómasdóttir
GRAND ROKK
Föstudag 28/9 Laugardag 29/9
Fræbbblarnir. Fæbbb/arnir.
Andvaka. Lirmill.
klár í miðbælnn!
'FÍXl'
Frítt inn!
Opið til kl. 05
Bjór tilboð til kl. 22
Opið alla helgina
frá kl. 12 - 05
80's stemning
Kátasta krái
í hæniiin
SINCE 1931
Hádegishlaðborð: 790 kr.
Kvöldverðarhlaðborð: 990 kr.
Glæsilegur
matsölustaður
og dans á eftir
Hafnarstpæti 4 • Tel: 511 32:
Hverfisgata 26 -Te!.: 511 32
Handhafar stúdentaskírteina fá fritt inr
* Snóker
* Pool
Dart
Risaskj<.
Sunn.: lokað
Mán.: lokað
Þriðj.: STEFNUMÖT
Miðv.: RADI0-X / 0UTC01D
Fimm.: BUFF
Öll dagskráín á: www.gaukurinn.is 1
TRYGGVAGÖTU 22 - S: 551 1556 1
51
-2Sm Mi
Smiðjustígur 6. Sími 551 5522