Fréttablaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 24
Bakþanka
I Þráins Bertelssonar
Auðugir
betlarar
*
~ TTI g kalla nú ekki allt ömmu mína
X_Jen það verð ég þó að viðurkenna
að mig rak í rogastans í gær þegar
ég sá opnuauglýsingu frá einkasjón-
varpsstöð sem var að biðja almenn-
ing um að gefa sér peninga. Ég hélt
að það fyrirtæki ættu nefnilega svo-
nefndir fjárfestar og í þeim hópi
væru menn sem eiga meiri peninga
heldur en Magnús sálugi júnkæri í
Bræðratúngu erfði á sínum tíma, en
Halldór Laxness lét þá persónu fara
í hundana fyrir hönd auðugra auðnu-
leysingja á íslandi allt frá landnáms-
öld. Magnúsi í Bræðratungu var þó
annt um æru sína alla tíð þótt hann
lenti í því óláni að selja dönskum
svínahirði Snæfríði íslandssól fyrir
brennivín.
—♦—
í FRÉTTABLAÐINU nú í vikunni
var sagt frá annarri fjársöfnun. Það
er líknarsjóður handa utangarðs-
mönnum sem móðir ógæfumanns er
að reyna að koma af stað í minningu
um son sinn sem drakk og dópaði frá
sér vitið og loksins lífið sjálft. Um
svoleiðis ungmenni getum við lesið
minningargreinar í Mogganum fles-
ta daga vikunnar. Beiðni um líknar-
sjóð handa þeim sem allt skortir
- . kalla ég ekki aumingjadóm og betl
heldur manndóm og kærleiksverk.
ÞAÐERU TILSÖCURaffóta
lausum betlurum sem sitja á sínum
stað allan daginn og taka auðmjúkir
við smámynt og rísa svo á fætur á
kvöldin eða aka í fjallajeppum heim
til sín til að ausa gullpeningum yfir
hausinn á sér. En það er alveg nýtt
tilbrigði við allar betlisögur sem ég
hef heyrt þegar áhættufjárfestar
ganga fram fyrir almenning með
risaauglýsingum til að betla.
—t—
PILSFALDAKAPÍTALISA/II er það
kallað þegar kapítalistar (sem nú
eru kallaðir fjárfestar) leita til ríkis-
ins þegar samkeppnin gerist erfið.
Það er hins vegar ný útgáfa af pils-
faldakapítalisma þegar hlutafélög
sem eru starfrækt í gróðaskyni taka
að leggja starf sitt að jöfnu við
mannúðarstarf líknarfélaga eða
björgunarsveita eða taka að keppa
við móður Valgeirs heitins um fjár-
stuðning til kærleiksverka. Er ekki
pilsfaldurinn kominn ósmekklega
hátt að þessu sinni og farið að sjást í
eitthvað loðið?
P.S. Minningarsjóður Valgeirs M. er í Is-
landsbanka, reikningsnúmer 602350.
Fram til 6. október bjóðum við hjá B&L nokkra
vel með farna reynsluaksturs- og sýningarbíla
á lægra verði en nokkru sinni fyrr. Kíktu til okkar
og kannaðu málið.
B&L, Grjóthálsi 1, sími 575 1220, www.bl.is
Opið virka daga 9-18
BÍLAR AF BESTU GERÐ
Um helgina verður opið i
sýningarsal okkar á 3ju hæð
og bjóðum við ollum sem
vilja kynna sér nýjungar í
innréttingum velkomna.
Sérfræðingar verða á
staðnum. Við kaup á
innréttingum fæst 20%
afsláttur af heimilistækjum.
OPIÐ eldHÚS
Laugardag kl. 10-16
og sunnudag kl. 13-17
Stuttur afgreiðslufrestur
.4*. BRÆÐURNIFt
R)ORMSSON
Lágmúla 8 • Simi 530 2800