Fréttablaðið - 01.10.2001, Blaðsíða 1
AFGANJSTAN
Afturhvarf
til lýðrœðis?
bls 12
BÆKU»
Ovenjulegir
lslendingar
nútímans
bls 18
KONGAFÓLK
Vilhjálmur
fær ekkifrið
fyrir fátvarði
bls 22
0
una.ner
FRETTABLAÐIÐ
112. tölublað - 1. árgangur
Þverholti 9, 105 Reykjavík - sími 515 7500
Mánudagurinn 1. október 2001
Helmingur sjúkraliða
í verkfalli eða hættur
Þriggja daga verkfall 400 sjúkraliða átti að hefjast á miðnætti. Þess utan hætta 100 sjúkraliðar.
Formaður Sjúkraliðafélags Islands segir flestar heilbrigðisstofnanir hafa hunsað boð um að leggja
fram tillögu að neyðarlistum og því verði þeim engar undanþágur veittar.
Alþingi sett
ALÞINCI. Alþingi íslendinga, 127.
löggjafarþing verður sett í dag á
hefðbundinn hátt. Að lokinni guðs-
þjónustu í Dómkirkjunni setur for-
seti íslands þingið í Alþingishúsinu.
Skattalækkun fyrir-
tækja boðuð í flár-
lagafrumvarpi?
FJÁRLÖC. Fjárlagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar lítur
dagins ljós í dag
og verður útbýtt á
fyrsta fundi Al-
þingis. Væntan-
lega verður þar
gert ráð fyrir
lækkun á sköttum
fyrirtækja, ef
marka má yfirlýsingar úr f jármála-
ráðuneytinu undanfarið.
Breytingar
í flugi til Eyja
fluc. Flugfélag íslands hættir í dag
flugi til Vestmannaeyja og þess í
stað hefjast íslandsflug og Jórvík
handa um að halda uppi loftbrú
milli lands og Eyja með meira
sætaframboði en nokkru sinni fyrr.
verkfall Allt benti til þess í gær-
kvöldi að um miðnætti hæfist
þriggja daga verkfall sjúkraliða hjá
ríkinu og á dvalarheimilunum
Grund í Reykjavík og Ás í Hvera-
gerði. Verkfallið er það fyrsta af
þremur sem sjúkraliðar hafa boðað
til í október.
Ríflega 820 félagsmenn Sjúkra-
liðafélags íslands starfa hjá ríkinu.
Þar af starfa 550 sjúkraliðar á
stofnunum Landspítala-Háskóla-
sjúkrahúss en alls munu á bilinu
130 til 140 þeirra taka þátt í verk-
fallinu auk þess sem 96, sem ekki
áttu að vera í verkfalli, hafa sagt
starfi sínu lausu og ganga út á mið-
nætti. Aðrir sjúkraliðar á Landspít-
alnum veróa áfram við störf sam-
kvæmt samkomulagi þar um.
Ekkert samkomulag liggur hins
vegar fyrir um aðrar heilbrigðis-
stofnanir ríkisins víða um land og
verða því allir sjúkraliðar á þeim
stöðum í verkfalli. Samtals nær
verkfallið því til rúmlega
400 sjúkraliða og um 100
eru hættir.
Anna Stefánsdóttir
hjúkrunarforstjóri á Land-
spítalanum sagði verkfallið
munu hafa mest áhrif á lyf-
lækninga- og skurðlækn-
ingadeildir enda séu flestar
uppsagnirnar þar. Hins veg-
ar séu slysadeildir, bráða-
móttökur og gjörgæslur og aðrar
bráðadeildir undanþegnar. Það
sama gildi um endurhæfinguna í
Kópavogi og lítið verði dregið úr
starfsemi á öldrunar- og geðsvið-
um.
Anna sagði aðeins örfáa sjúkra-
liðana sem sagt hafi upp hafa dreg-
ið uppsagnirnar til baka. „í mínum
huga er fullvíst að þeir
hætta,“ segir hún og boðar
að auglýst verði í stöðurnar.
Saminganefndir sjúkra-
liða og ríkisins voru á fundi
hjá ríkissáttasemjara í gær
en nefndirnar eyddu degin-
um hvor í sínum fundarsaln-
um að sögn Kristínar Á.
Guðmundsdóttur, formanns
Sjúkraliðafélags íslands.
„Því miður er útlitið slæmt
vegna þess að fjármálaráðuneytið
hefur algjörlega dregið lappirnar
að horfa á stöðuna eins og hún er.
Ráðuneytið gerir sér enga grein
fyrir þjónustunni sem heilbrigðis-
kerfið er að veita og það sýnir sig
best í því hvernig samninganefndin
hagar sér,“ sagði Kristín.
Kristín sagðist ekki hafa yfirsýn
á það hvernig ástandið yrði í verk-
fallinu en það nær m.a. til á þriðja
tug stofnana sem engar undanþág-
ur fá: „Þegar vió höfðum samið við
Landspítalann um undanþágur
sendum við bréf til allra hinn stofn-
ananna vegna þess að neyðarlistar
eru of gamlir til að við getum unnið
eftir þeim og buðum þeim að gera
athugasemdir. Engin hafði sam-
band og því fara allir sjúkraliðarnir
þar í verkfall í nótt. Ef ég stæði í
þeirra sporum væri ég ráðþrota."
gar@frettabladid.is
„Ef ég stæði í
þeirra sporum
væri ég ráð-
þrota," sagði
formaður
Sjúkraliðafélags
íslands.
FYLGST MEÐ ORRUSTUNNI Hermenn Norðurbandalagsins, andstæðinga talebana I Afganistan, skoða stöðvar talebana á víglinunni
norðan Kabúl. Þeir tilkynntu í gær að þeir hefðu náð yfirráðum i Qadis sem hefur verið á valdi talebana.
Ný fjölmiðlakönnun PriceWaterhouseGoopers:
Fréttablaðið er langmest
lesið af dagblöðunum
'VEÐRIÐ í DAG
REYKJAVÍK Norðaustan
8-15 m/s, skýjað með
köflum.
Hiti 8 til 13 stig.
ísafjörður VINDUR ÚRKOMA (3 10-18 Rigning HITI QI * * * * * 7
Akureyri (3 10-18 Rigning Ql°
Egilsstaðir <3 10-18 Rigning O8
Vestmannaeyjar (3 5-10 Skýjað Qio
Kiwanismenn
selja lykil
5ÖFNUN. Kiwanis-menn selja K-lyk-
ilinn til styrktar geðsjúkum í dag
og næstu daga. í gær afhentu þeir
forseta íslands fyrsta lykilinn.
Þetta er í tíunda sinn sem Kiwanis-
menn selja lykilinn og hafa þeir
alls safnað 170 milljónum króna til
góðgeröarmála á þennan hátt. Lyk-
illinn kostar 500 kr.
KVÖLDIO í KVÖLD
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
FJOLMIÐLAKONNUN PRlCEWATERHOUSECOOPERS VAR
FRAMKVÆMD DAGANA 17. TIL 28. SEPTEMBER 2001.
dacblaðalestur Fréttablaðið er
langmest lesna dagblaðið á höfuð-
borgarsvæðinu að því er kemur
fram í nýrri fjölmiðlakönnun
PriceWaterhouseCoopers. Könnun-
in var gerð dagana 17. til 28. sept-
ember sl. Lesendum hefur fjölgað
mikið frá síðustu könnun og mikill
meirihluti íbúa á svæðinu segist
lesa Fréttablaðið alla virka morgna.
Samkvæmt könnuninni er með:
allestur blaðsins 77,9 prósent. í
öðru sæti virka daga kemur Morg-
unblaðið. 72,3 prósent íbúa höfuð-
borgarsvæðisins lesa það að meðal-
tali; 5,6 prósentustigum færri en
lesa Fréttablaðið. Að meðaltali lesa
urn 35,2 prósent höfuðborgarbúa
DV.
Séu niðurstöðurnar bornar sam-
an við könnun sem PriceWaterhou-
seCoopers gerði í sumar sést að
lestur á Fréttablaðinu hefur stór-
aukist meðan Morgunblaðið stend-
ur í stað.
Nánar bls. 13.
| FÓLK ]
|| Dimmt, list-
I rœnt ogfrið-
samlegt
SÍÐA 16
ÍÞRÓTTIR
Hakkinen fagnaði sigri í
Bandaríkjunum
Breskir fjölmiðlar:
Aras
yfírvofandi
afcanistan Breska blaðið The
Observer hélt því fram í gær að
það hefði heimildir fyrir því að
bandarískar og breskar hersveitir
myndu ráðast til atlögu gegn tale-
bönurn og Osama bin Laden á
næstu sólarhringum. Blaðið sagði
að fyrsta skref árásanna yrði að
ráða niðurlögum flughers tale-
bana og eyða loftvarnakerfum auk
þess sem gerðar yrðu loftárásir á
skriðdreka og brynsveitir stjórn-
valda. Að því loknu yrði landher
sendur inn í landið til að berja nið-
ur sveitir talebana og hryðju-
verkahreyfingu bin Ladens.
Varnarmálaráðherra Sádí-Ar-
abíu lýsti því yfir að Bandaríkja-
menn og bandamenn þeirra fengju
ekki að nota landið sem stökkpall
til árása á Afganistan. Þó mættu
þeir væntanlega fljúga í gegnum
sádí-arabíska lofthelgi með sveitir
sem taka þátt í aðgerðum. ■
I þetta HELST I
Framkvæmdastjóri Línu.nets
segir 70 til 80 prósent fjárþarf-
ar fyrirtækisins vera uppfyllta.
Viðræður við Lífeyrissjóði um
fjármögnun standi yfir. Hann
undrast að vinnugögn úr þeim við-
ræðum skuli hafa komist í há-
mæli. bls. 2.
—♦—
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna kemur saman í dag til
þess að hefja umfjöllunum um að-
gerðir gegn hryðjuverkum. bls. 2.
Fimm einstaklingar liggja á
gjörgæslu á Landspítalanum
eftir umferðarslys að undanförnu.
bls. 2.