Fréttablaðið - 01.10.2001, Page 2

Fréttablaðið - 01.10.2001, Page 2
KJÖRKASSINN FRÉTTABLAÐIÐ 1. október 2001 MÁNUDACUR BREYTIR LITLU Netverjar vilja ekki meina að hryðjuverkin í síðasta mánuði hafi breytt nokkru um vilja þeirra til flugferða. Ertu smeyk/ur við flugferðír eftir hryðjuverkin í Bandaríkj- unum? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is Spurning dagsins í dag: Ætlarðu að fylgjast með handboltanum í vetur? Farðu inn á vísi.is og segðu | þína skoðun ............[ Landspítalinn: Fimm á gjörgæslu slys Fimm einstaklingar liggja á gjörgæslu á Landspítalanum eft- ir umferðarslys að undanförnu. Maður sem slasaðist í umferð- arslysi í Langadal á fimmtudag í síðustu viku er alvarlega slasað- ur og í öndunarvél. Ókumaður mótorhjóls sem slasaðist mikið í árekstri á Bústaðavegi sama dag er mikið slasaður en ekki í önd- unarvél. Ungur maður sem slas- aðist á kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni er á batavegi en enn á gjörgæslu. Ökumaður flutningabíls sem slasaðist alvar- lega þegar bíll hans fór út af veg- inum í Svínahrauni um miðjan síðasta mánuð er á batavegi og losnaði úr öndunarvél í síðustu viku. Tólf ára stúlka sem hlaut mikla höfuðáverka þegar ekið var á hana þegar hún fór yfir gangbraut við Háaleitisbraut 12. september s.l. er á batavegi en enn í öndunarvél. ■ ■■ Hryðjuverk: Mjög raun- veruleg ógn washington. ap John Ashcroft, dómsmálaráðherra Bandaríkj- anna, varaði við því í gær að Bandaríkjamenn stæðu frammi fyrir mjög raunverulegri ógn frekari hryðjuverka og sagði að sú ógn ætti eftir að magnast enn þegar Bandaríkjamenn byrjuðu að svara fyrir árásirnar í síðasta mánuði. „Við teljum líkur á frek- ari aðgerðum hryðjuverka- manna“, sagði Ashcroft í sjón- varpsviðtali í gær og taldi að enn væru staddir hryðjuverkamenn í Bandaríkjunum sem hyggðust grípa til aðgerða. ■ ....- Á HJARTAGÖNGU I tilefni alþjóðlega hjartadagsins í gær var haldin fræðsludagskrá í Mjóddinni í gær, þar sem m.a. var boðið upp á maelingar á áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma. Síðaan var farin árleg Hjarta- og fjölskyldu- ganga Landsamtaka hjartasjúklinga. Geng- ið var frá Mjóddinni áleiðis í Elliðaárdal. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur umfjöllun um hryðjuverk í dag: Hryðjuverkastarfsemi hefur ekki verið skilgreind enn new york.ap Allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna kemur saman í dag til þess að hefja umfjöllunum um að- gerðir gegn hryðjuverkum. Á föstudaginn afgreiddi Örygg- isráð með hraði ályktun þar sem öll 189 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna eru hvött til þess að neita hryðju- verkamönnum um fé, stuðning og skjól. Hér er um að ræða bindandi samþykkt og sagði John Negroponte, sendiherra Bandaríkj- anna, að hún væri „án fordæma í baráttunni gegn hryðjuverkum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna" og Jean- David Levitte, sendiherra Frakka, sem er í forsæti öryggis- ráðsins, sagði hana „sögulega" og bera vott um úrslitaþýðingu Sam- einuðu þjóðanna við að mynda heimssamstöðu í baráttunni við sameiginlegan vágest. Þetta er í fyrsta sinn sem ráðið gerir sam- þykkt í deilumáli án þess að nefna land, samtök eða hóp af fólki. í henni er krafist aðgerða frá öllum ríkjum og ráðinu heimilað að grípa til aðgerða til þess að tryggja frið og öryggi á alþjóðavísu. Oryggisráðið hefur samþykkt á annan tug löglegra aðgerða til þess að berjast gegn hryðjuverkum en aðeins fimm þeirra hafa hlotið stað- festingu meir en 100 ríkja og þannig orðið bindandi fyrir aðildarríkin. Meðal þeirra sem ekki hafa hlotið nægan stuðning er sú aðgerð að hætta fjárstuðningi við hryðju- verkamenn. í samþykktinni er „hryðjuverkastarfsemi" ekki skil- greind með vilja vegna þess að full- trúar í Öryggisráðinu hafa ekki get- JEAN-DAVID LEVITTE Sendiherra Frakka hjá Sameinuðu þjóð- unum segir fyrirhugaða samþykkt sögulega og vera vott um þýðingu SÞ í baráttunni gegn hryðjuverkum. að komið sér saman um slíka skil- greiningu. ■ Undrast skilnings- leysi borgarfulltrúa Framkvæmdastjóri Línu.nets segir 70 til 80 prósent íjárþarfar fyrirtæk- isins vera uppfyllta en íjármögnun hafi tafist því hlutaQárútboð hafi ekki þótt raunhæfur kostur. Flann segir viðræður við lífeyrissjóði um fjármögnun standa yfir og undrast að vinnugögn úr þeim viðræðum skuli hafa komist í hámæli. EIRÍKUR BRAGASON Framkvæmdastjóri Línu.nets undrast að borgarfulltrúar minnihlutans I Reykjavík skuli leg- gja steín í götu fyrirtækis sem náð hafi miklum árangri I gagnafiutningsþjónustu fyrir mörg helstu fyrirtæki og stofnanir landsins. FYRIRTÆKJAREKSTUR Eiríkur Braga- son, framkvæmdastjóri Línu.nets, undrast það skilningsleysi sem rekstur fyrirtækis hans hefur mætt hjá borgarfulltrúum minni- hlutans í Reykjavík. Hann segist síður vilja dragast inn í pólitíska umræðu en telur mikilvægt í ljósi gagna sem Guð- laugur Þór Þórðar- son, borgarfulltrúi í Reykjavík, hefur lagt fram í fjöl- miðlum að koma sjónarmiðum fyr- irtækisins á fram- færi. Eiríkur segir umræðuna snúast um þriðja hluta fjármögnunar fyr- irtækisins, en áður hafi verið lokið fjármögnun með hlutafé og lang- t í m a 1 á n u m . „Þriðja hlutann átti að fjármagna með hlutafjárútboði sl. vor. Ákveðið var að fresta útboðinu og í ljósi þess sem verið hefur að gerast hjá Landsímanum og ís- landssíma tel ég það hafa verið alveg rétta ákvörðun," sagði hann. í stað útboðsins segir Ei- ríkur þriðja hlutann verða fjár- magnaðan með söluandvirði Tetralínu og lánum hjá lífeyris- sjóðunum. Hann segir stöðu fyr- irtækisins hafa gjörbreyst við sölu Tetralínu. „Þessi drög sem Guðlaugur Þór komst yfir, fær hann í hendur áður en ég var sjálfur búinn að sjá þau. Þetta voru vinnugögn úr bankanum, sem höfðu verið send sem trún- aðarmál á nokkra lífeyrissjóði, en málið er allt á viðræðustigi og ekki búið að ganga frá neinu. Þannig er ákvæðið sem Guðlaug- ur fjallar um, ekki í drögunum sem ég er með, heldur er þar ákvæði um að fari hlutdeild kjöl- festufjárfestis niður fyrir 50 pró- sent hafi lífeyrissjóðurinn rétt á að gjaldfella lánið,“ sagði hann og áréttaði að við fyrstu sýn væri ekkert í drögunum sem stangað- ist á við sveitarstjórnarlög. Þá vildi Eiríkur koma á framfæri að tilkoma fyrirtækisins hafi orðið til að lækka verð á gagnaflutn- ingum verulega, borgurum og fyrirtækjum til hagsbóta. „Það er ótrúlegt að einhverjum skuli detta í hug að sveitarfélag eigi að vera að standa í svona æv- intýri," sagði Guðlaugur Þór, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins og líkti rekstri Línu.nets við nútíma fiskeldis- og loðdýrarækt- arævintýri. Hann segir rúman milljarð hafa verið settan í fyrir- tækið af sköttum almennings, bæði í beinhörðum peningum og með yfirtöku skulda. „Síðan er í ofanálag verið að opna einhvern víxil með þessum ábyrgðum," bætti hann við og taldi gott, hafi orð hans orðið til þess að menn rykju til um helgi við að endur- skoða þær skuldbindingar. Guð- laugur vildi ekki gefa upp hvaðan hann fékk sínar upplýsingar í málinu en áréttaði að almenning- ur hafi verið honum innan handar með upplýsingagjöf í mörgum málum. oli@frettabladid.is Þessi drög sem Guðlaug- ur Þór komst yfir, fær hann í hendur áður en ég var sjálfur búinn að sjá þau. Þetta voru vinnugögn úr bankanum, sem höfðu verið send sem trúnaðar- mál á nokkra lífeyrissjóð —*—• Skemmdarverk og þjófn- aðir: Skrílslæti á Patreksfirði lögregluiviál Hópur milli 15 og 20 ungmenna var með mikil skrílslæti á Patreksfirði aðfaranótt laugar- dags og sunnudags og vann miklar skemmdir á bifreiðum, bekkjum og fleiri munum í eigu einstaklinga og bæjaryfirvalda. Um er að ræða hóp einstaklinga sem mættu á föstudag í yfirheyrslur vegna afbrota sem er verið að rannsaka og nokkra vini þeirra. Komuna í heimabæ nýttu þeir svo til þess að ganga um bæ- inn og valda miklurn skemmdum. Málið hefur vakið mikla reiði á Pat- reksfirði og hafa komið fram tillög- ur um að boða til borgarafundar til að ræða hvernig bregðast megi við atburðunum sem eru fjarri því einsdæmi. Hópurinn sem hér á í hlut hefur verið til vandræða á Patreksfirði um nokkurra ára skeið og gert mik- inn óskunda. Þeir hafa haldið til náms á höfuðborgarsvæðinu en munu vanir því að láta til sín taka þegar þeir koma aftur á heimaslóð- ir. Meðal fyrri afbrota gengisins má nefna að nokkrir úr hópnum ruddust fyrir nokkru inn í hús í bænum og börðu heimafólk. ■ STUTT Ferða- og risnukostnaður ríkisins og stofnana þess jókst um 492 milljónir króna frá 1998 til 2000 og nam rúmlega 2,3 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta kemur fram á heimasíðu Jóhönnu Sigurðardóttur, alþingismanns. Risna rikisins hefur aukist úr tæpum 210 milljónum í um 281 milljónir á tveimur árum. Samanlagður ferðarkostnaður inn- an- og utanlands jókst úr 1.613 milljónum í 2.034 mílljónir. Lögreglan í Reykjavík stöðvaði mann laust eftir klukkan sex í gærdag grunaðan um ölvun við akstur. Maðurinn hafði keyrt á í Mosfellsbæ og stungið af en var stöðvaður af lögreglu skömmu síð- ar. Það er ekki einsdæmi að menn séu stöðvaðir svo snemma dags grunaðir um ölvun við akstur. Tveir voru stöðvaðir á sjötta tím- anum á laugardag, einnig grunaðir um ölvun við akstur. Litlu flugfélögin óviðbúin hertum reglum: Nýjar flugreglur setja litlu félögin í uppnám SAMGöngutr Einar Örn Einarsson, rekstrarstjóri Jórvíkur ehf. segir að vegna evrópskra reglna um flug- rekstur sem taka eiga gildi fyrir smærri flugfélögin hérlendis í dag ríkja óvissa með flug minni flugfé- laganna. Um er að ræða hertar regl- ur sem stærri flugfélögin hafa þurft að fylgja um skeið en gildistökunni var flýtt í kjölfar umræðunnar eftir Skerjafjarðarslysið. Einar Örn segir að vegna mis- skilnings hafi menn talið að veittur yrði nokkur frestur til að uppfylla skilyrðin en að nú væri unnið að því að finna leiðir til lausnar. Jórvík hefur stefnt að því að hefja áætlunarflug til Hafnar í Hornafirði og til Vestmannaeyja frá og með deginum í dag. Áformin hafa hins vegar mætt talsverðu andstreymi. Fyrst tilkynnti íslandsflug að það ætlaði að hefja flug til Eyja og PIPER CHIEFTAIN VÉL JÓRVÍKUR Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI Hertar öryggisreglur taka gildi I dag og setja litlum flugfélögum stólinn fyrir dyrnar. Óvíst er hvort Jórvlk takist að hefja Vestmannaeyjaflug I dag vegna þeirra. fylgdi velþóknun bæjaryfirvalda þar ákvörðuninni. Þá ætlar Flugfé- lag íslands að taka áskorun bæjar- ráðs Ilornafjarðar og halda flugi þangað áfram út október. í áskorun- inni sagði að ljóst að ekki væri „fyr- irséð að viðunandi þjónusta verði frá og með 1. október" og taka Jór- víkurmenn það afar óstinnt upp. Þeir hafa hætt við flugið til Hafnar en ætla að halda sínu striki varðandi Vestmannaeyjar. „Við verðum ódýr- ai'i og erum alveg óhræddir,“- segir Einar Örn. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.