Fréttablaðið - 01.10.2001, Page 9

Fréttablaðið - 01.10.2001, Page 9
MÁNUDAGUR 1. október 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 9 Þingkosningar í Bangladess: Tvær konur berjast um völdin DflKfl. bangladess. ap Svo undar- lega sem það kann að hljóma, þá hefur kosningabaráttan í Bangla- dess, eða Bengalalandi, staðið einkum á milli tveggja kvenna. Fjölda kvenna er hins vegar ekki leyft að greiða atkvæði í þing- kosningunum, sem fara fram í dag, jafnvel þótt lög kveði á um jafnan kosningarétt allra fullorð- inna landsbúa. Svo virðist sem fáir karlmenn í landinu séu reiðu- búnir til að heimila konum sínum að fara á kjörstað. Þeir halda fast í gamlar hefðir íslams, sem er ríkjandi trú í Bangladess. Konurnar tvær sem berjast um völdin eru Sheikh Hasina og Khaleda Zia, sem báðar eru fyrr- verandi forsætisráðherrar lands- ins. Báðar hafa þær lýst því yfir, að þær muni ekki viðurkenna úr- slit kosninganna í dag ef hin sigr- ar. Blóðugum átökum og pólitísk- um verkföllum, sem íþyngt hafa landsmönnum og ekki síst efna- hag landsins, lýkur því vart í bráð, sama hver úrslitin verða í dag. Faðir Hasinu og eiginmaður Ziu hafa báðir látið lífið í þessum átökum, og hvor um sig gruna þær fjölskyldu hinnar um að bera ábyrgð á þeim voðaverkum. Faðir Hasinu var Sheikh Mujibur Ra- hman, leiðtogi sjálfstæðisbaráttu landsins og fyrsti forseti þess, en MEGA EKKI KJÓSA Þessar konur hylja flestar andlit sitt meðan þaer fylgjast úr fjarlægð með ræðuhöldum karla á kosningafundum. Zia er ekkja Ziaur Rahmans, hers- myrtur í valdaráni hersins árið höfðinga sem varð forseti en var 1981. ■ Heilinn: Viðbrögð sýna á hvað horft er vísindi Vísindamenn við geðheil- brigðisstofnun Bandaríkjanna, hafa komist að því, að með því að skoða hvað gerist í heila fólks geta þeir sagt fyrir um á hvers konar hluti fólkið er að horfa. Sex manns voru látnir horfa á myndir af and- litum, köttum, húsum og fleiru. Til samanburðar voru þeir látnir horfa á merkingarlausar myndir. Síðan var fylgst með viðbrögðum heilans. Vísindamennirnir gátu í 96% tilfella sagt á hvers konar hlut viðkomandi var að horfa hverju sinni, hvort það var t.d. andlit eða skór eða merkingarleysa, ein- göngu með því að fylgjast með mynstrinu í starfsemi heilans. ■ Meira fé í rekstur Upphaflegt markmið með stofnun framkvæmdasjóðs aldraðra var að standa straum af uppbygginu húsnæðis. Meira fer nú í rekstur sem telst óeðlilegt þar sem gjaldið er nefskattur. Heilbrigðisráðherra vill hækka gjaldið í annað sinn á tæpu ári. r; • > i t« i ‘ DVALARHEIMILI ALDRAÐRA Ákveðið hlutfall af byggingarkostnaði, vegna uppbyggingar á þjónustustofnunum fyrir aldraða, er hægt að fá úthlutað úr Framkvæmdasjóði. álögur „Framkvæmdasjóður aldr- aðra var í upphafi stofnaður til að byggja hjúkrunarheimili fyrir aldraðra," segir Guðmundur Hall- varðsson alþingismaður. í ráð- herratíð Guðmundar Bjarnasonar var svo tekið fyrsta skrefið í að taka pening úr sjóðn- um til að standa undir rek- stri við húsnæði og þjón- ustu við aldraða. „Það er óeðlilegt að ráð- stafa fjármunum sjóðsins nema til uppbyggingar fyr- ir aldraða á sviði hjúkrun- ar og dvalarrýma. Þetta byggist á nefsköttum og því ekki við hæfi að útdeila þessum peningum til rekstrar," segir Ásgeir Ingvason, framkvæmda- stjóri sjómannadagsráðs Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar, sem rekur dvalar- heimili aldraðra á Hrafnistu. Jón Kristjánsson, heilbrigðis- ráðherra, hefur lagt til í ríkis- stjórn að gjald, sem rennur í framkvæmdasjóð aldraðra, verði hækkað um tæp 5.5%. Gjaldið GUÐMUNDUR HALLVARÐSSON IVIargir eru mjög ósáttir viö að nef- skatturinn fari í annað en upp- byggingu á hús- næði fyrir aldr- aða. hækkar þá úr 4.578 í 4.826. Um síðustu áramót hækkaði gjaldið um rúmar 500 krónur. Allir ein- staklingar á aldrinum 16 til 70 ára eru skyldugir til að greiða þetta gjald samkvæmt lögum frá 1981. Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í heilbrigð- is- og tryggingaráðuneyt- inu, Segir þessa hækkun nú vera eðlilegt ferli í kring- um fjárlagagerðina. Nú þurfi að leita eftir laga- breytingum vegna hækk- ana á opinberum gjöldum, sem áður fylgdu verðvísi- tölu. Hækkunin er tilkomin til helminga vegna hækk- unar á bygginga- og neyslu- verðsvísitölu. Þótt upphaflegt mark- mið hafi verið að standa straum af uppbyggingu stofnana fyrir aldraða hafa lagabreytingar stefnt að því að taka meira fé í rekstur, breytingar á húsnæði og þjónustu við aldr- aða. Einnig er heimilt að veita fé í rannsóknir, kennslu og kynningu á öldrunarmálum. ■ Japönsk menning Fimmtudaginn 4.október 2001 Kjarvalsstaðir 18:30 -19:00 Ávarp Hr Kawai, sendiherra Japans „New Period of Japan - lceland Relationship" 19:10-19:40 Tónleikar Mieko Miyazaki leikur á Koto (japönsk harpa) Seizan Matsuda leikur á Shakuhachi (japönsk bambus flauta) Föstudaginn 5.október 2001 Hótel Loftleiðir (Blómasalur) 17:00-18:00 Tónleikar Mieko Miyazaki leikur á Koto [japönsk harpa) Seizan Matsuda leikur á Shakuhachi (japönsk bambus flauta) Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir Aðgangur er ókeypis en nauösynlegt er að tilkynna þátttöku til sendiráös Japans Sími 510 8600, fax 510 8605 eða e-mail: dagnyosk@itn.is Sendiráö Japans / íslenska - Japanska félagið A HAOÆÐA HEIMIUSTÆKIUM Rýmum fyrir nýrri gerðum. Mikill aJsláttur næstu daga. Nú efiium við til rýminsarsölu á eldri gerðum ýmissa neimilistækja. Mikið úrval, aðeins gæðavaræ Eldavélarfrá 39-990.- Þvottavélar frá 44.900.- Helluborðfrá 16.990.- Kæliskápar frá 44.900.- Háfar, 90cm frá 27.900.- Uppþvottavélar frá 49-900.- Háfar, frístandandi 49.990.- PAKKATILBOÐ ofaar og helluborð 39-990.- ^fRÚLEG'r Sýningareintök og útlitsgölluð eintök: jJJU)? Seljum Kka nokkur eintök af ofnum, helluborðum, viftum, háfum og ýmiskonar smátækjum. ‘Heimilistiekjaverslun Grensásvegur 13-108 Reykjavík - Sími 333 2222 - Veffang w.pfaff.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.