Fréttablaðið - 01.10.2001, Page 11

Fréttablaðið - 01.10.2001, Page 11
MÁNUDAGUR 1. október 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 11 Hæstaréttur sakfelllir útgerðarfélagið Stíganda: Dæmir hlunnförnum skipverja tæpa milljón hæstiréttur IJtgerðarfélagið Stíg- andi ehf. hefur í Hæstarétti verið dæmt til að greiða skipverja á skipinu Ófeigi VE-325 900 þúsund krónur vegna vanreiknaðra launa. Stígandi hafði hlunnfarið skip- verjann árið 1999 með því að reik- na laun hans ekki miðað við raun- verulegt söluverð afla á erlendum markaði heldur mun lægra verð sem útgerðin sagðist hafa fengið fyrir aflann hér innanlands með sölu til fyrirtækisins Blábergs ehf. Að því er segir í dómi Hæsta- réttar komst verðlagsstofa skipta- verðs að þeirri niðurstöðu, að afla- hluturinn hefði verið vanreiknaður tímabilinu júlí til nóvember 1999: „í raun hefðu 136.577.992 krón- ur fengist fyrir aflann en ekki 104.364.781 króna eins og áfrýjandi heldur fram. Aflinn hefði verið ís- aður í kassa og hefði áhöfn Ófeigs annast löndun hans og frágang í gáma. Engin vinnsla eða virðis- aukning var talin hafa átt sér stað á aflanum hjá Blábergi ehf. og engin gögn höfðu borist frá því fyrirtæki til Fiskistofu um kaup eða sölu fiskafla," segir í dómnum. ■ Aðhaldsaðgerðir Flugleiða: Einfcildur og ferskur matur fyrir farþega flucleiðir Hluti af aðhaldsaðgerð- um sem Flugleiðir hafa gripið til auk uppsagna eru breytingar í matar- þjónustu um borð í vélum félagsins. Ætlunin er að leggja meiri áherslu á ein- faldan og ferskan mat og verða nýjungarnar kynnt- ar núna í vikunni. Þá sagði Sigurður Helgason, for- stjóri félagsins á blaða- mannafundi fyrir helgi að símainnritun verði einnig hætt. Þar sagði hann að réðu SIGURÐUR HELGASON Forstjóri Flugleiða segir að frekari samdráttar í rekstri sé ekki að vænta í bráð. bæði hagkvæmnis- og örygg- issjónarmið. Sem dæmi um breyttar aðstæður í rekstri sagði Sigurður að gera mætti ráð fyrir að tryggingarið- gjöld félagsins færu úr lið- lega 50 milljónum í 600 milljónir. Hann var von- góður um að samningar næðust við alþjóðleg tryggingafélög um endur- tryggingar fyrir 25. októ- ber þegar endurtryggará- byrgð ríkisins rennur út. ■ Kaupandi úrelts skips: Engar bætur fyrir veidi- leyfissynjun póivisiviál Fyrirtækið Eystrasalt sem keypti skipið Stokksness VE 700 og sótti um leyfi til veiða í at- vinnuskyni fyrir það fær ekki bætur fyrir að hafa verið synjað um veiðileyfið af Fiskistofu og síðar sjávarútvegsráðuneytinu. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar. Veiðileyfisbeiðni Eystrasalts hafði verið hafnað með vísan til þess að endurnýjunarrétti og rétti Stokksness til veiðileyfis hefði á sínum tíma verið afsalað til Þró- unarsjóðs sjávarútvegsins af þá- verandi eigendum skipsins gegn greiðslu 39,4 milljóna króna úr- eldingarstyrks. Eystrasalt krafðist ógildingar á úrskurði sjávarútvegsráðuneyt- isins og 14,7 milljóna króna bóta vegna ætlaðs tekjutaps þann tíma sem skip hans hafði ekki veiði- leyfi. Hæstiréttur sýknaði ríkið og kvað Eystrasalt bundið af þeim samningi sem gerður var um úr- eldingu skipsins enda væri hann enn í gildi og bakaði fyrirtækinu sömu skyldur og styrkþega á sín- um tíma. ■ —♦...•- Notaði markaðsráðandi stöðu: Harpa sektuð fyrir brot samkeppnismál Samkeppnisráð hefur komist að þeirri niðurstöðu að málningarverksmiðjan Harpa hafi brotið samkeppnislög. Ráðið telur fyrirtækið hafa notað mark- aðsráðandi stöðu í samkeppni um iðnaðargólf. Forsaga málsins er sú að Mal- land sem sérhæfir sig í gerð iðn- aðargólfa, kvartaði undan óeðli- legum starfsháttum Hörpu í kjöl- far þess að prentsmiðjan Oddi hætti við tilboð fyrirtækisins. Oddi hafði tekið tilboði Mallands um gerð gólfs, en snérist hugur og beindi viðskiptum til Hörpu, tveimur dögum áður en verkið átti að hefjast. Töldu forsvars- menn Mallands að Harpa hafi hót- að að hætta að láta prenta efni frá sér í Odda, fengju þeir ekki við- skiptin. Samkeppnisráð komst að þeirri niðurstöðu að Harpa væri mark- aðsráðandi við gerð iðnaðargólfa og hefði misnotað aðstöðu sína. Var fyrirtækinu gert að greiða 400 þúsund krónur i ríkissjóð. ■ B&L, Grjóthálsi 1, sími 575 1220, www.bl.is Opið virka daga 9-18 BÍLAR AF BESTU GERÐ Fram tll 6. október bjóðum við hjá B&L nokkra vel með farna reynsluaksturs- og sýningarbíla á lægra verði en nokkru sinni fyrr. Kíktu til okkar og kannaðu málið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.