Fréttablaðið - 01.10.2001, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 1. október 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
INNKAUP TIL HEIMILISINS
Fréttablaðið Morgunblaðið
Sér um innkaup 78,7% 71,1%
Sér um að hluta 81,6% 73,4%
Sér ekki um 72,6% 73,4%
AFGERANDl MUNUR
Það er áberandi hversu mikill munur er á
dagblaðalestri þeirra sem sjá annars vegar
um innkaup til heimilisins og hinna sem
gera það ekki.
Innkaup til heimilisins:
Mikill munur
könnun Þegar litið er til þess hvort
þátttakendur í fjölmiðlakönnun
PriceWaterhouseCoopers segjast
kaupa inn til heimilisins eða ekki;
kemur í ljós mikill munur milli
lesenda Fréttablaðsins og Morgun-
blaðsins. Lesendur Fréttablaðsins
eru líklegri til að kaupa inn en
Morgunblaðsins miklu síður. ■
STARFSGREINAR
Stjórnendur Fréttablaðið 81,1% Morgunblaðið 73,3%
Skrifstofufólk 74,9% 77,4%
Iðnaðarmenn 71,8% 63,8%
Ósérhæft starfsf. 85,0% 66,6%
Heimavinnandi 81,3% 63,3%
Nemar 77,0% 72,9%
Lífeyrisþegar 71,9% 72,7%
5:2 FYRIR FRÉTTABLAÐINU
Fleira skrifstofufólk og lífeyrisþegar lesa
Morgunblaðið en Fréttablaðið hefur vinn-
ingin í öllum öðrum starfsgreinum.
Starfsgreinar:
Stjórnendur
velja frekar
Fréttablaðið
könnun Samkvæmt nýrri fjöl-
miðlakönnun PriceWaterhouse-
Coopers lesa fleiri stjórnendur og
sérfræðingar Fréttablaðið en
Morgunblaðið. Hið sama má segja
um iðnaðarmenn og sérhæft
starfsfólk, nema, heimavinnandi
og ósérhæft starfsfólk. Einu
atvinnugreinarnar þar sem fleiri
lesa Morgunblaðið en Fréttablaðið
eru skrifstofumenn (verslun og
þjónusta) og lífeyrisþegar og at-
vinnuleysingjar. ■
TEKJUHÓPUR,
Fréttablaðíð Morgunblaðíð
Lágtekjufólk 78,3% 62,5%
Millitekjufólk 76,1% 65,6%
Hátekjufólk 83,3% 80,4%
MEIRA LESIÐ AF ÖLLUM
Fréttablaðið er meira lesið en
Morgunblaðið af öllum tekjuhópum.
Tekjuhópar:
Allir lesa
Fréttablaðið
könnun Samkvæmt könnun Price-
WaterhouseCoopers er Fréttablað-
ið meira lesið en Morgunblaðið af
öllum tekjuhópum. Blaðið er mest
lesið af hinum tekjuhæstu, þá af
hinum tekjulægstu en minna af
millitekjufólki. Lestur blaðsins er
þó óvenjujafn milli þessara hópa.
Morgunblaðið er frekar lesið af
hinum tekjuhærri, þó ekki það
mikið að lestur þess hóps á
Morgunblaðinu nái lestri hans á
Fréttablaðinu. ■ MENNTUN
Fréttablaðið Morgunblaðið
Almennt nám 72,0% 63,3%
Starfsnám 82,3% 66,7%
Bóklegt nám 79,8% 73,3%
Háskólanám 80,3% 77,1%
MIKIÐ LESIÐ AF ÖLLUM
Fréttablaðið er meira lesið en Morgun-
blaðið af öllum menntunarhópum.
Lestur eftir menntun:
Jafn og góður
könnun Samkvæmt könnun PWC
er sama hvernig fólki er skipt eftir
menntun; Fréttablaðið er meira
lesið en Morgunblaðið af öllum
hópum. Það er miklu meira lesið af
þeim sem hafa minni menntun en
einnig meira af þeim sem meiri
menntun hafa. Það má því segja að
öfugt við Morgunblaðið nái Frétta-
blaðið jafnt til allra - að það sé blað
allra landsmanna jafnt. ■
Dreifing Fréttablaðsins:
Kemur á nærri
95 prósent heimila
KÖNNUN Fréttablaðið kemur á
94,4% heimila á höfuðborgarsvæð-
inu samkvæmt fjölmiðlakönnun
PriceWaterhouseCoopers, sem
gerð var dagana 17. til 28. septem-
ber síðastliðna. Þetta er svipuð
niðurstaða og í könnun sem gerð
var um mánaðamótin júní/júlí.
Hvorugt hinna dagblaðanna stá-
tar af viðlíka dreifingu. Morgun-
blaðið er keypt í fullri áskrift á
53,7% heimila. Auk þess kaupa
11,2% heimila svokallaða helgar-
áskrift að Morgunblaðinu.
Dreifing Fréttablaðsins er jöfn
í öllum aldurshópum. Áskrifend-
um Morgunblaðsins fjölgar hins
vegar í eldri aldurshópum. Við
samanburð við síðustu könnun
kemur í ljós að áskrifendum
Morgunblaðsins fækkar í aldur-
shópunum 25 til 29 ára og 40 til 49
ára. Þess skal getið að dagana sem
könnunin fór fram bauð Morgun-
blaðið ókeypis kynningaráskrift að
blaðinu. Þátttakendur voru ekki
spurði hvort þeir greiddu fyrir
áskriftina. ■
Dreífing Fréttablaðsins og Morgunblaðsins á heimili
Samkvæmt fjölmíðlakönnun PriceWaterhouseCoopers sem gerð var á höfuðborgarsvæðinu
daganna 17. til 28. september 2001.
Morgunblaðið, helgaráskrift
Allir
18-24 ára 24-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-67 ára
FRÉTTABLAÐIÐ FER Á 94,4 PRÓSENT HEIMILA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Ekkert dagblað hefur viðlíka dreifingu. Morgunblaðið er mest keypt í áskrift af eldri aldurs-
hópum. Fréttablaðið fer á allt að fjórum sinnum fleiri heimili yngra fólk.
Meðallestur dagblaðanna á virkum dögum á höfuðborgarsvæðinu
samkvæmt fjölmiðlakönnun PriceWaterhouseCoopers sem gerð var daganna 17. til 28. september 2001.
I Fréttablaðið
Morgunblaðið L_J DV
I I Fréttablaðið [H Morgunblaðið EZl DV
(júní/júlí 2001) (júní/júlí 2001) (júní/júlí
77,9%
72,3%
71 nw.71,9%
35,2%
Allir; 18 til 67 ára
18-24 ára
MEÐALLESTUR FRÉTTABLAÐSINS EYKST UM 7,4 PRÓSENTUSTIG
Öll dagblöðin auka við lestur sinn frá síðustu könnun PriceWaterhouseCoopers, sem gerð var á sumarleyfistíma; eða um mánaðamótin júní/júlí. Aukning á meðallestri
Morgunblaðsins er 0,5 prósentustig, 2 prósentustog hjá DV en 7,4 prósentustig hjá Fréttablaðinu, sem er nú orðið lang mest lesna dagblaðið á höfuðborgarsvæðinu.
Fréttablaðið langmest lesna
blaðið á höfiiðborgarsvæðinu
Hvert tölublað Fréttablaðsins er lesið af um 78 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins samkvæmt
nýrri fjölmiðlakönnun PriceWaterhouseCoopers. Lesendum hefur Qölgað mikið frá síðustu
könnun. Mikill meirihluti íbúa á svæðinu segist lesa Fréttablaðið alla virka morgna.
könnun Fréttablaðið er orðið lang-
mest lesna dagblaðið á höfuðborg-
arsvæðinu á virkum dögum. Þetta
kemur fram í nýrri fjölmiðlakön-
nun PriceWaterhouseCoopers,
sem gerð var dagana 17. til 28.
september síðastliðna. Meðallest-
ur Fréttablaðsins er samkvæmt
könnuninni 77,9 prósent. Næst
mest lesna dagblaðið á virkum
dögum, Morgunblaðið, er að
meðaltali lesið af 72,3% íbúa
höfuðborgarsvæðisins - eða 5,6
prósentustigum færri en Frétta-
blaðið. DV er að meðaltali lesið af
35,2% höfuðborgarbúa.
í könnun sem PriceWater-
houseCoopers gerði um mánaða-
mótin júní og júlí í sumar munaði
litlu á meðallestri Morgunblaðs-
ins og Fréttablaðsins. Síðan þá
hefur lestur á Fréttablaðinu stór-
aukist á meðan lestur á Morgun-
blaðinu hefur nánast staðið í stað.
Yfirburðir Fréttablaðsins yfir
hinum dagblöðunum eru mestir í
aldurshópunum 25 til 49 ára. Ef
þessi hópur er tekinn sérstaklega
þá er meðallestur Fréttablaðsins
78,5%, Morgunblaðsins 68,8% og
DV 31,5%. Lesendur Fréttablaðs-
ins í þessum aldurshópi eru því
14% fleiri en Morgunblaðsins og
rétt tæplega 150% fleiri en DV.
Fleiri karlar en konur lesa
Fréttablaðið. Samkvæmt könnun-
inni lesa 80,4% karla Fréttablaðið
að meðaltali en 75,3% kvenna.
Ef litið er til aldurs og kynja þá
kemur í ljós að 75,4% yngri karla
(18 til 29 ára) lesa Fréttablaðið að
meðaltali en 65,5% Morgunblaðið.
82,0% miðaldra karla (30 til 49 ára)
lesa Fréttablaðið en 66,7%
Morgunblaðið. 83,8% eldri karla
(50 til 67 ára) lesa Fréttablaðið en
77,8% Morgunblaðið.
67,2% yngri kvenna (18 til 29
ára) lesa Fréttablaðið að meðaltali
en 66,3% Morgunblaðið. 77,0%
miðaldra kvenna (30 til 49 ára) lesa
Fréttablaðið en 74,3% Morgun-
blaðið. 82,5% eldri kvenna (50 til
67 ára) lesa Fréttablaðið en 89,5%
Morgunblaðið. Eldri konur eru því
eini hópurinn þar sem fleiri lesa
Morgunblaðið en Fréttablaðið. ■
Mest aukning meðal þeirra sem lesa Fréttablaðið alltaf:
63% lesa Fréttablaðið alltaf
könnun Þegar þrjár nýjustu fjöl-
miðlakannanirnar eru bornar
saman kemur í ljós að lesenda-
hópur Fréttablaðsins hefur vaxið
á jöfnum hraða frá því að blaðið
hóf göngu sína fyrir rétt rúmum
fimm mánuðum. í könnun sem
Gallup gerði í maí síðastliðnum
sögðust 84,7% lesa Fréttablaðið
einhvern tímann. í könnun sem
PriceWaterhouseCoopers gerði
um mánaðamótin júní og júlí var
þetta hlutfall komið í 90,8%. í
nýjustu könnuninni er það síðan
93,4%.
Ekki er síður forvintilegt að
skoða þá sem segjast lesa blaðið
alltaf; eða hvern virkan dag. í maí
var það hlutfall 51,8%, um mán-
aðamótin júní og júlí var það
komið í 53,5% en það er síðan
62,7% núna í lok september.
Þessa aukningu má sjá í öllum
hópum. Alls staðar fjölgar þeim
sem segjast lesa Fréttablaðið alla
virka daga og þeim fækkar sem
segjast aldrei lesa blaðið. ■
Þrjár nýjustu
fjölmiðlakannanirnar
Hlutfall íbúa höfuðborgar-
svæðisins sem segjast lesa
blöðin alltaf eða oft.
■
i - -
■=> k-m
Fréttablaðið Morgunblaðið
FRÉTTABLAÐIÐ ER í SÓKN
En hin dagblöðin standa í stað.