Fréttablaðið - 01.10.2001, Page 18

Fréttablaðið - 01.10.2001, Page 18
18 FRETTABLAÐIÐ 1. október 2001 MÁNUDAGUR HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA? Guðmundur Steinn Gunnars- son Gítarleikari Kuai „Ég er að lesa myndasögu sem heitir Nausicaa of the Valley of the Wind eftir Hayao Miyazaki. Það er sami og samdi Princess Mononoke. Ég er kominn í bók númer þrjú, af fjórum, og hún er mjög góð." LEIRMUNIR Guðný gerir smærri og stærri verk, bæði myndverk og nytjahluti. Guðný Magnúsdóttir: Vinnustofu- sýning MVNDUSTASÝNimc Guðný Magnús- dóttir listakona opnaði á fimmtu- dag vinnustofusýningu í tilefni flutnings vinnustofu hennar á Lindargötu 14. Guðný, sem gerir smærri og stærri verk, bæði myndverk og nytjahluti, rak Gall- erí Úmbra í fimm ár en hefur sagt skilið við reksturinn til að gefa listsköpun sinni betra tóm. „Ég hef hugsað mér að hafa gluggagallerí í framhaldi af sýn- ingunni, sýnirými fyrir áhuga- verða hönnun, sem tengist og handverki. Vinnustofan verður opin að hluta til. Þar ætla ég að stilla út mínum eigin verkum og hafa samtengingar við aðra lista- menn, kynna list þeirra," segir Guðný. Sýningin verður opin til 14. október, miðvikudaga til sunnu- daga frá kl. 14 til 18, eða eftir samkomulagi. Pólk getur hringt í Guðný, sem er jafnan á vinnustof- unni, og samið um að kíkja í heim- sókn. ■ Safír Enskur snyrtisér- fræðingur gefur ráð og upplýsingar, um það nýjasta sem er í dag Hann kynnir M.D.Formilation, sem er ein virkasta varan á markaðn- um í dag. Safír MORÐ f NORÐURMÝRI Þriggja manna dómnefnd á vegum Hins íslenska glæpafélags tilnefndi bók Amalds Indriðasonar. Mýrin eftir Arnald Indriðason: Keppir um Gler- lykilinn 2002 VERÐLAUNASAMKEPPNI BÓk AmaldS Indriðasonar, Mýrin, hefur verið valin sem framlag íslands til keppninnar um Glerlykilinn 2002. Mýrin, sem kom út hjá Vöku-Helgafelli haustið 2000, segir frá rannsókn lögreglu- mannsins Erlends á morði á gömlum manni, sem býr einn í kjallara í Norðurmýrinni. Leit Erlends að lausn gátunnar leiðir hann langt aftur í fortíð hins látna, sem reynist síður en svo jafn ómerkileg og við- burðasnauð og ætla mætti í fyrstu. Mýrin er lipurlega skrifuð glæpasaga þar sem trúverðug og spennandi at- burðarás og vönd- uð persónusköpun fara saman svo úr verður sann- færandi raunsæissaga úr ís- lenskum samtíma. Glerlykillinn er verðlauna- gripur sem veittur er af Skand- inaviska Kriminalselskabet, SKS, fyrir bestu norrænu glæpa- söguna ár hvert. Þetta er í annað skiptið sem ísland á fulltrúa í keppninni, en Glerlykillinn hef- ur verið veittur um tíu ára skeið. í fyrra var bók Viktors Arnar Ingólfssonar, Engin spor, fram- lag íslands, en það var hin sæns- ka Karin Alvtegen sem hreppti verðlaunin fyrir bók sína Saknad. Þriggja manna dómnefnd á vegum Hins íslenska glæpafé- lags tilnefnir sögur fyrir íslands hönd og voru allir dómnefndar- menn á einu máli um að senda Mýrina í keppnina að þessu sinni. ■ MÁNUDAGURINN 1. OKTOBER FUNPIR_____________________________ 20.00 Aglow kristileg samtök kvenna halda fund í Færeyska Sjó- mannaheimilinu, Brautarholti 29. Gestir fundarins eru meðlimir úr landsstjórn Aglow á íslandi en þær eru nýkomnar heim frá Hu- ston f Texas þar sem þær sóttu kvenna- og alheimsmót Aglow. Á dagskrá er einnig söngur, lofgjörð og fyrirbænaþjónusta. Aðgangs- eyrir kr. 600. Allar konur velkomn- ar. BÍÓ________________________________ 22.30 Filmundur sýnir gamanmynd Jacques Tati, Les Vacances De M. Hulot. Miðaverð kr. 500 fyrir Fil- mundarfélaga en kr. 800 fyrir aðra. SÝNINGAR___________________________ Handritasýning í Stofnun Árna Magnús- sonar, Árnagarði við Suðurgötu. Sýningin er opin kl. 14 til 16 þriðjudaga til föstu- daga til 15. maí. í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf víkinganna í York . Um er að ræða tvær sýningar, annars vegar endurgerð á götu í víkingaþorpi og hins vegar sýn- ingu þar sem má sjá beinagrind og hauskúpur víkinga sem féllu í bardög- um. Sýningarnar eru opnar alla daga frá 13 til 17 og standa til 1. október. Á ferð um landið með Toyota er yfir- skrift sýningar Fókuss, Ijósmyndaklúbbur áhugamanna. Sýningin er í salarkynnum nýrra bíla Toyota við Nýbýlaveg i Kópa- vogi. Ljósmyndir á sýningunni voru .tekn- ar á ferð klúbbsins um Suðurlandshá- lendið, í Þjórsárdal, Veiðivötnum, Dóma- dal, Landmannalaugum, Fjallabaksleið og víðar. Sýningin er opin á opnunar- tíma söludeildar Toyota. MYNPLIST___________________________ Sígurbjörn Jónsson opnaði sýningu á málverkum í Hafnarborg á laugardag. Sýningin er opin alla daga nema þriðju- daga frá kl 11 til 17 og stendur.til 15. okt Sýningin Mynd og málstaður stendur yfir í Tjarnarsal Ráðhússins. Sýningin stiklar á stóru í sögu herstöðvaand- stöðu frá stríðslokum með áherslu á pólitískar teikningar. Sýningin er opin alla daga og stendur til 7. október. Að- gangur er ókeypis. Jón Valgard Jörgensen opnaði á laugar- dag sína fimmtu myndlistarsýningu í Fé- lagsstarfi Gerðubergs. Sýndar eru lands- lagsmyndir, fantasíur, portrait teikningar og dýramyndir. Sýningin stendur til 9. nóvem- ber. Opnunartímar sýningarinnar: mán. - fös. kl. 10-17 og um helgar kl. 13-16. Linda Oddsdóttir opnaði í gær sína fyrstu einkasýningu á Cafe Presto Hlíða- smára 15. Á sýningunni eru eingöngu olíumálverk sem eru unnin á þessu ári. Myndefníð er aðallega sótt í náttúru landsins. Opnunartímar virka daga frá 10 til 23 og um helgar frá 12 til 18. Sýn- ingin stendur til 19 október. Ný skáldverk og endurrituð frá Forlaginu: (O)venjulegir Islendingar nútímans JÓN ATLI JÓNASSON Hefur um árabil verið einn af fastaröddum á Radió X og vinnur nú við kvikmynda- og auglýsingagerð. Fyrir jól kemur út smásagnasafn eftir hann. bækur Brotinn taktur, Sigurveg- arinn, Hótel Kalifornía og Anna eru heiti nýrra skáldverka sem koma út hjá Forlaginu fytlr jól. Brotinn taktur er safn ellefu smásagna eftir Jón Atla Jónasson og er þetta fyrsta bók hans. í bók- mni segir frá örlögum venjulegra íslendinga, fyndnum, óvæntum, grimmilegum og gleðilegum. Sögurnar afsanna, að því er út- gefandi hermir, að líf nútímtíma Islendinga skorti dýpt en sögurn- ar segja meðal annars frá pizzu- sendlum og ungum starfsmönn- um utanríkisráðuneytisins. Magnús Guðmundsson sendir einnig frá sér sína fyrstu sögu. Hún heitir Sigurvegarinn og í henni lýsir Dagbjartur, eða Daddi eins og hann er kallaður, hvernig á að takst á við lífið. Hann er einn þeirra ungu manna sem komu sér vel fyrir á góðær- isskeiðinu og hann getur bent á ýmsar leiðir til hamingjunnar, yfirráð yfir öðrum og ríkidæmi eru þar á meðal. Stefán Máni sendir frá sér söguna Hótel Kaliforníu. Hér er lofað hrollvekjandi og bráðfynd- inni sögu af verkamanninum Stefáni sem á yfir 300 vínilplötur og drekkur brennivin í pepsí þeg- ar hann er að skemmta sér. Bók- in er einnig fjölskyldusaga sem spannar líf þriggja kynslóða. Stefán Máni vakti athygli fyrir skáldsögunu Myrkravél sem kom út fyrir tveimur árum. Anna er endurritun höfundar, Guðbergs Bergssonar, á skáld- sögu sem fyrst kom út árið 1968. Guðbergur hefur á síðustu árum endurritað skipulega fyrri bæk- ur sínar í því skyni að bæta við „nýjum tíma,“ líkt og hann hefur komist sjálfur að orði. Bók Guð- bergs, Sú kvalda ást sem hugar- fylgnin geyma, verður endurút- gefin fyrir jólin. ■ 1 Listhúsinu í Laugardal stendur mál- verkasýning Elisabetar Stacy Hurley. Elisabet er af islenskum ættum en er búsett í Bandaríkjunum. Björg Örvar sýnir náttúrulífsmyndir í sýningarsal verslunarinnar Álafoss, Álafosshvos í Mosfellsbæ. Opið er virka daga kl. 9 til 18 og laugardaga kl. 9 til 16 og stendur sýningin til 27. október. Sýning Bjarna H. Þórarinssonar sjón- háttarfræðings stendur nú í Reykjavík- ur Akademíunni í JL-húsinu Hringbraut 121. Sýningin er opin 9 til 17 virka daga og stendur til 1. október. Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona sýnir í Gullsmiðju Hansínu Jens að Lauga- vegi 20b. Yfirlitssýning Errósafnsins stendur i Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Sýn- ingin er opin alla daga kl. 10 til 17 en til kl. 19 á miðvikudögum. Hún stendur til 7. október. Svipir lands og sagna er yfirskrift sýn- ingar á verkum Ásmundar Sveinssonar í Listasafni Reykjavikur, Ásmundar- safni. Á sýningunni eru verk sem span- na allan feril listamannsins. Safnið er opið daglega kl. 10 til 16. Örsagna- og ljóðasamkeppni Mjólkursamsölunnar: Textar á þjóðtungum nemenda S:533-3100 Álfheimar 6 Kristján Guðmundsson hefur opnað einkasýningu í Listasafni Reykjavikur, Kjarvalsstöðum. Sýningin er opin 10 - 17 alla daga nema miðvikudaga 10 - 19. Hef hafið störf á Hársnyrtistofu Nínu, Strandgötu 3, Hfj. Tímapantanir í síma 565 3949 / 895 6234 Sigrún Guðmundsdóttir samkeppni í tilefni af evrópsku tungumálaári 2001 mun Mjólkur- samsalan í vetur standa fyrir ör- sagna- og ljóðasamkeppninni Fernuflugi í samstarfi við Islenska málnefnd, menntamálaráðuneytið og Samtök móðurmálskennara. Unglingum í þremur efstu bekkj- um grunnskóla býðst að spreyta og skrifa efni til notkunar á mjólkur- fernum. Ef vel tekst til má gera ráð fyrir að allt að 64 textar eftir jafnmarga höfunda verði valdir til birtingar. Efnið verður notað í u.þ.b. tvö ár og má gera ráó fyrir að það verði alls prentað í um 40 milljónum eintaka af nýmjólkur- og léttmjólkurumbúðum. Formað- ur dómnefndar og sérstakur verndari keppninnar er frú Vigdís Finnbogadóttir, sendiherra tungu- mála hjá UNESCO. Keppendum eru fáar takmark- anir settar aðrar en að textinn sé að hámarki u.þ.b. 100 orð. Engar kröfur eru gerðar um efnistök og ljóð mega jafnt vera rímuð sem órímuð. Þeim unglingum, sem eru af erlendu bergi brotnir, býðst að skrifa örsögur sínar og ljóð á eigin þjóðtungu. í samráði við kennara þeirra verður slíku efni snúið yfir á íslensku og hljóti það viðurkenningu dómnefndar verður efnið birt undir nafni höfundar og þýðanda. ■ VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR Formaður dómnefndar og sérstakur vernd- ari keppninnar. Vigdís er sendiherra tungu- mála hjá UNESCO.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.