Fréttablaðið - 08.10.2001, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
8. október 2001 MÁNUDAGUR
Iþróttir
áSýn
10. 1-J. oktoboi
KNATTSPYRNA
Ertu ánægður með árangur
íslands í undankeppni HM?
„Nei. Leíkurinn á
móti Dönum situr
náttúriega í manni,
en ég hélt að sá tími
væri liðinn að liðið
væri að tapa svona
stórt og illa. Það er
eitthvað sem á ekki
að gerast og það er
greinilega eitthvað mikið að þegar það
gerist. Ég er sáttur við ýmislegt hjá
landsliðinu en ekki heildina. Liðið skort-
ir greinilega stöðugleika og það að fá á
sig 20 mörk í þessari keppni er alltof
mikið. Þrettán stig í þessum riðli er ekk-
ert sérstakt. Við eigum að sigra þjóðir
eins og Möltu og Norður-íra og þar eru
komin 12 stig." |
Sigurður Jónsson er nýráðinn þjálfari FH í
knattspyrnu og fyrrverandi landsliðsmaður.
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari:
Ekki hægt að skamma strákana
knattspyrna „Við áttum engin
svör við þeim. Við guggnuðum.
Þeir voru betri á öllum sviðum,“
sagði Atli Eðvaldsson í gær.
Hann var í rútu á leið frá Kefla-
vík til Reykjavíkur ásamt lands-
liðinu.
„Það er auðvitað ákveðinn
stigsmunur á þessum liðum. Dan-
ir eru í öðrum klassa í Evrópu.
Það kom bersýnilega í ljós í gær.
Við vissum að þeir eru fljótir og
teknískir. Við hefðum getað flotið
á líkamlegum styrk en við náðum
ekki einu sinni að krafsa í bakk-
ann þar.“
Uppselt var í öll sæti í Parken
á laugardag og segir Atli það
áhrifavald. „Stemmningin hjá
áhorfendum var ótrúleg, það er
ekki einu sinni hægt að reyna að
lýsa því. Þegar þjóðsöngurinn
var sunginn i byrjun leiks fékk
ég í hnén. Danir segja sjálfir að
þetta sé þeirra besti leikur í lang-
an tíma. Þegar við lendum á móti
svona liði, sem nær sínum besta
leik, er lítið hægt að gera. Menn
voru hræddir við mistök, þorðu
ekki að halda boltanum. Þeir
reyndu, voru orðnir dauðþreyttir
undir lok leiksins. Sama hvað
þeir gerðu, þeir voru alltaf einu
skrefi á eftir Dönunum. Auðvitað
er ég óánægður en það er lítið
hægt að segja. Þetta var dagur-
inn sem við mættum ofjörlum
okkar. Það er ekki hægt að skam-
ma strákana fyrir það.“
Samningur Atla við KSÍ um
þjálfun landsliðsins rennur út um
næstu mánaðarmót. „Við setj-
umst niður þegar líður á mánuð-
inn og ræðum málin. Þegar við
erum búnir að því sjáum við til
hvort ég haldi áfram sem lands-
liðsþjálfari."
Nú tekur við stutt frí hjá
landsliðinu. í janúar er dregið í
riðla í undankeppni EM, sem
hefst næsta haust. „Nú verða
menn bara að rífa sig upp. Þeir
mega ekki brotna saman,“ sagði
Atli. ■
FÉKK f HNÉN
Það var ekki einungis baráttuglatt landslið,
sem tók Atla og landsliðið á taugum, held-
ur einnig fullir pallar áhorfenda að syngja
þjóðsönginn.
Skorti aga
og skipulag
nian- Heklusport
I™ kl. 22.30
mið Barcelona - Lyon
Msistarakeppni kl. 18.40
Porto - Juventus
Meisfarakeppni kl. 20.40
'im HMfralli
kl. 21.00
lau Uverpool - Leeds
Enski boltinn kl.
10.30
sun Italskl boltlnn
kl. 12.45
Aston Vllla - Fulham
Enski boltinn kl. 14.55
www.syn.is
eðalstma 515 6100
Reiknaði með Dönum
bandvitlausum
________ knattspyrna Bogi
” Ágústsson, frétta-
stjóri hjá Ríkis-
sjónvarpinu, hor-
fði á leik íslands
og Danmerkur í
Sjónvarpinu.
Hann sagðist fyr-
irfram hafa von-
ast til þess að
Danir myndu
tryggja sér sæti í
4gúsUtsson 1 o k a k e P P n i
Þaðgetakomið Heimsmeistara-
þeirdagarþar keppninnar og að
sem ekkert geng- þar sem leikurinn
ur upp." skipti íslenska
landsliðið í raun
engu máli hefði hann haldið með
Dönum í leiknum.
„Það geta komið þeir dagar þar
sem ekkert gengur upp,“ sagði
Bogi um íslenska liðið. „Sá agi og
það skipulag sem hefur einkennt
íslenska liðið fram að þessu var
ekki til staðar í þessum leik.“
Bogi sagðist hafa verið mjög
hrifinn af danska liðinu.
„Danska liðið var hins vegar
hreint út sagt frábært og
stemmningin á Parken engu lík.
Ég hlakka mjög mikið til þess að
sjá Dani í lokakeppninni, það er
að segja ef einhver sjónvarpsstöð
hefur efni á því að sýna frá leikj-
unum.“ ■
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA, segir það enga tilviljun að Danir komast á HM. Hann segir ís-
lendinga ekki hafa verið nógu grimma auk þess að vera í lélegri leikæfingu.
knattspyrna íslendingar steinlágu
fyrir Dönum, 6-0, fyrir framan
rúmlega fjörutíu þúsund manns í
Parken á laugardag. Sigurinn
tryggði Dönum fyrsta sæti í þrið-
ja riðli í undankeppni HM 2002 og
jafnframt öruggt
sæti í úrlitakeppn-
inni. Þetta er í þriðja
skipti sem Danmörk
kemst í úrslita-
keppni HM.
Margir íslend-
ingar fylgdust með
leiknum á Parken og
í sjónvarpinu á laug-
ardag. Ólafur Þórð-
arsson, þjálfari ís-
landsmeistara ÍA,
var einn þeirra. „Ég
horfði því miður á
ÓLAFUR
ÞÓRÐARSON
Segir strákana
þurfa að rifa
sig upp og
horfa fram
veginn.
ieikinn. Þetta var hrikalegt. Ég
var gjörsamlega agndofa," segir
Ólafur. „Númer eitt, tvö og þrjú
var það að Danirnir spiluðu fanta-
vel en einnig voru sumir leik-
manna okkar ekki í góðri leikæf-
ingu. Það er erfitt að spila svona
leiki, sérstaklega ekki í leikæf-
ingu.“
í upphafi leiks fór ekki milli
mála hvert stefndi. Strax á tólftu
mínútu fengu íslendingar á sig
fyrsta markið og fór boltinn varla
inn á vallarhelming Dana. „Ég set
spurningamerki við það að liggja
á vítateig. Það skapar pressu. Is-
STAÐREYNDIR UM LEIKINN
Hvat: Parken í Kaupmannahöfn.
Áhorfendafjöldi: 41.769
Dómari: Arturo Dauden Ibanez frá Spáni.
Mörk: Dennis Rommedahl 12. min., Ebbe
Sand 14. og 67. mín., thomas Gravesen 30.
og 36. mín., Jan Michaelsen 92. min.
Spjöld: Lárus Orri Sigurðsson fékk gult spjald
fyrir brot á Martin Jörgensen á 58. mín.
SIGRI FAGNAÐ MEÐ ÁHORFENDUM
Danska landsliðið spilaði sinn besta bolta. Til að eiga einhvern möguleika hefði það íslenska þurft að gera það sama.
lenska liðið hefði átt að liggja
framar. Auk þess var það ekki
nógu grimmt. Danir spiluðu sinn
besta bolta, við hefðum þurft að
gera það sama til að eiga einhvern
möguleika."
A meðan markvörður Dana,
Thomas Sörensen, snerti ekki
boltann fyrr en vel var liðið á leik-
inn og fékk varla skot á sig var
Árni Gautur Arason, markvörður
íslands, stöðugt á tánum. Hann
LOKASTAÐAN í RIPLI 5
Lið Leikir U J T Mörk 22:6 Stig 22
Danmörk 10 6 4 0
Tékkland 10 6 2 2 20:8 20
Búlgaría 10 5 2 3 14:15 17
island 10 4 1 5 14:20 13
N.frland 10 3 2 5 11:12 11
Malta 10 0 1 9 4:24 1
þurfti að horfa sex sinnum á bolt-
ann fara í sitt net. „Árni Gautur
verður ekki sakaður um slæmt
gengi liðsins. Ég vorkenndi hon-
um þarna í markinu. Danirnir
voru bara frábærir, sem kom mér
ekki á óvart. Maður reiknaði með
þeim bandvitlausum. Það kom
mér hinsvegar á óvart hvað þeir
héldu miklum krafti. Það er engin
tilviljun að þeir komast inn á HM.
Ég vona að þeir fari langt. Þeir
spila skemmtilegan bolta. Það
vantaði eitthvað í íslenska liðið
sem hefur verið þar að undan-
förnu, auk þess að sumir voru
ÖNNUR ÚRSLIT l' RIDLI 3___
Tékkland-Búlgaría
Malta-Norður írland
6-0
0-1
ekki í formi. En hverjir spiluðu er
ákvörðun þjálfarans og hann
verður að standa með henni.“
Leikurinn á laugardag var síð-
asti landsleikur á samningi Atla
Eðvaldssonar þjálfara á samningi
við KSÍ. „Hann heldur án efa
áfram. Tvö ár eru of skammur
tími sem landsliðsþjálfari. Það er
eðlilegt að hann haldi áfram. Ár-
angur liðsins að undanförnu er
ekki mjög slæmur. Við skulum
ekki gleyma því að það er ekki
sjálfgefið að komast á HM. Það
sem strákarnir þurfa að gera
núna er að rífa sig upp og horfa
fram veginn. Landsliðið hefur
áður tapað stórt. Þeir verða að
gleyma þessu og hugsa um næsta
leik,“ segir Ólafur. ■
Verra
en 14-2
knattspyrna „Ég sagði það fyrir
leikinn að til þess að brjóta niður
leik Dana þurftu íslendingar að
sækja frá fyrstu mínútu og eyði-
leggja reitaboltann hjá þeim. Þeir
eru eitt best spilandi lið Evrópu,“
sagði Magnús V. Pétursson. „Þessi
úrslit særðu undirmeðvitund
mína. Ég skil ekki hvað þessir
menn hafa að atvinnu. Fyrir hvað
er verið að borga þeim allan þenn-
an pening? Þeir voru eins og kján-
ar, algerlega grandalausir. Dan-
irnir voru sprettharðir en íslend-
ingarnir seinir í athöfnum. Þeir
komust ekki einu sinni upp að
markinu! Svo er verið að tala um
hvort Guðni eigi að vera í liðinu
og annað. Það skiptir ekki máli.
Ég ætla ekki að kenna neinum um,
hvorki Atla né einhverjum öðrum.
MAGNÚS V. PÉTURSSON
„Sjokk upp á 90 millibör."
Hann leggur auðvitað línurnar
fyrir sína menn og er með vanan
mann, Ásgeir, sér við hlið. Þetta
var verra en 14-2 tapið. Þá skoruð-
um við allavega tvö mörk á úti-
velli, sem jafngilda fjórum. Ég er
ekki ennþá búinn að ná mér. Þetta
var ferlegt, sjokk upp á 90 milli-
bör. Ég vona að við áttum okkur á
því að eitthvað verður að gera í
þessu." ■
Fara kannski
að æfa núna
KNATT5PYRNA „Ég sá nú ekki nema
seinni hálfleik af leiknum. En það er
greinilegt að þetta landslið æfir
ekki neitt. Það er ekki liðsheild,
bara einstaklingar, og það kemur
því ekki langt,“ sagði Egill Ólafsson
tónlistarmaður.
„Það segir ekki mikið að liðið
standi sig vel á góðum degi í Laug-
ardalnum með þjóðina að baki sér.
Það dettur kannski inn í fimmta
hverjum leik. Þeir voru bara með
boltann í innköstum á laugardaginn.
Þetta er ekki æft lið. Það var engin
herkænska hjá því. Svo er verið að
sækja leikmenn út í heim, sem
margir hverjir eru ungir strákar.
Það er ekki nóg að þeir séu flinkir.
Maður sá það á Dönunum að þeir
voru með liðsheild. Þetta var voða
sorglegt en ég fyllist svosem engu
EGILL ÓLAFSSON
„Held að Færeyjar séu með betra landslið."
þjóðernisstolti þegar ég horfi á ís-
lendinga spila. Kannski er þetta
bara ágætt. Ef þú ætlar að tapa á
annað borð þá er eins gott að tapa
stórt. Þeir fara kannski að æfa
núna. Við þekkjum þetta í tónlistar-
bransanum. Ef hljómsveit æfir ekki
saman þá er hún ekki góð. Annars
held ég að Færeyjar séu með betra
landslið. Ég sá það spila í Þórshöfn í
sumar, það var flott lið. Þeir æfa.“ ■