Fréttablaðið - 08.10.2001, Side 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
8. október 2001 MÁNUDACUR
HÁSKÓLABÍÓ
JULlETTt BINOCHE
37 ára gömul. Lék í öllum þremur mynd-
um þríleiks Kiewslowski, Bláum, Hvítum
og Rauðum.
Filmundur sýnir þríleik
Kiewslowskis:
Blár sýndur
í kvöld
kvikmyndir Filmundur endursýnir
í kvöld fyrstu myndina Blár í þrí-
leik pólska leikstjórans
Krzysztofs Kiewslowski sem oft
er kenndur við liti. Á næstu mán-
uðum verða Hvítur og Rauður ein-
nig á dagskrá Filmundar. Mynd-
irnar eru ekki aðeins kenndar við
litina í franska
þjóðfánanum, heldur einnig við
einkunnarorðin frelsi, jafnrétti og
bræðralag. í Bláum er frelsi ein-
staklingsins skoðað á einkar áleit-
inn og nærgöngulan hátt. Julie
missir mann sinn og dóttur í bíl-
slysi, hún flýr heimili sitt og sest
að í París, þar sem hún reynir að
hefja nýtt líf og gleyma því liðna.
f ljós kemur að erfitt getur reynst
að halda minningunum í skefjum,
fortíðin er í senn óumflýjanleg og
ómótstæðileg. Með burðarhlut-
verkið fer Juliette Binoche sem
var tilnefnd til Óskarsverðlauna
nýverið fyrir leik sinn í myndinni
Chocolat. Miðaverð er kr. 500 fyr-
ir Filmundarfélaga og kr. 800 fyr-
ir aðra. Hægt er með einföldum
hætti að gerast meðlimur í Fil-
mundi í miðasölu Háskólabíós. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI 1
Það hlaut að koma að því.
Nicole Kidman er byrjuð að
setja út á kærustu síns fyrrver-
andi, Penelope
Cruz. Hún segir
spænsku leikkon-
una vera of
„grunnhyggna"
til að umgangast
börnin sín. Kidm-
an, sem er 34
ára, vill vera viss
um að Isabella,
sem er átta ára, og Connor, sex
ára, læri að efnislegir hlutir eru
ekki það mikilvægasta. „Ég vil
ekki að þeim finnist að stórinn-
kaup sé allt sem þau þarfnist í
lífinu, eins og Penelope," sagði
hún. Þegar hún var spurð hvort
hún væri afbrýðissöm út í Cruz,
sem er 27 ára, sagði hún: „Tom
getur líka séð mig fyrir sér í
rúminu með einhverjum öðrum,
kannski einhverjum sem er enn
myndarlegri en hann.“ Brátt
setjast þau niður með lögmönn-
um til að skipta niður sameigin-
legum 280 milljón dollara eign-
um. Ef þau ná ekki samkomu-
lagi fyrir 4. janúar verður málið
tekið fyrir í rétti í Los Angeles.
Talið er að erfiðast verið að út-
kljá hvort fái höfðingjasetrið í
Los Angeles, þar sem ættleiddu
börnin tvö ólust upp.
Söngvari Jamiroquai, Jay
Kay, á yfir höfði sér sex
mánaða fangelsisdóm vegna
kæru fyrir lík-
amsárás og
skemmdarverk.
Fönkboltinn var
að koma út af
næturklúbbnum
Attica í London í
apríl þegar hann
réðst á ljósmynd-
ara. Sá segist
hafa verið kýldur í andlitið og
fengið hné breikarans fyrrver-
andi af miklu afli í klofið.
Einnig segir hann árásina hafa
kostað hann að andvirði 105
þúsundum króna fyrir viðgerð á
ljósmyndagræjunum. Talið er
að Jay Kay hafi verið svona við-
kvæmur vegna þess að honum
var þá nýlega sagt upp af
kærustunni Denise Van Outen.
Hann kemur fyrir rétt í dag.
Talsmaður hans segir að hann
muni halda fram sakleysi sínu.
' NABBI
Nýr danskur pólfari?
I dag kemur í búðir sjöunda breiðskífa hljómsveitarinnar Nýdönsk.
Platan heitir Pólfarir þrátt fyrir að liðsmenn hafi ferðast á miðbaug,
þar sem þeir fengu hæfilega Qarlægð frá þeim báðum, til þess að
TÓNLIST Þrátt fyrir að nafnið upp-
lýsi það kannski ekki er hljóm-
sveitin Nýdönsk líklegast ís-
lenskari en harðfiskur. Það þyk-
ir orðið jafn velkomið að sjá
plötur þeirra í hillum plötubúða
og að sjá skyr í matvöruverslun.
Skyrið stendur alltaf fyrir sínu,
við vitum hvernig það bragðast
jafnvel og vió vitum hverju við
getum búist við frá þessari einni
yirtustu popphljómsveit okkar
íslendinga. „Við vildum að þetta
yrði algjör hljómsveitaplata,"
segir Jón Ólafsson tónfari og
hljómborðsleikari Nýdanskra.
„Það eru engin aukahljóðfæri.
Það er svo oft sem þú heyrir
plötur, veist ekkert hver spilar á
hvað og svo sérðu hljómsveitina
á tónleikum og það er allt önnur
upplifun. Við erum nokkuð viss-
taka hana upp.
ir um að geta boðið áhorfendum
okkar upp á það sama og þeir
heyra á plötunni." Sú ákvörðun
sveitarinnar að flýja land til
þess að vinna breiðskífuna á
Möltu, vakti athygli fjölmiðla.
Jón segir sveitina hafa tekið
hana nánast alla upp þar, en
smiðshöggið hafi verið slegið á
klakanum. Pólfarir, en engar
bólfarir. Skyldi þessi titill vera
til heiðurs Haraldi Arnar Ólafs-
syni Norðurpólfara? „Þetta er
lag á plötunni, það er ekkert
endilega um hann. Okkur fannst
þetta bara fallegasta nafnorðið
af lagatitlunum á plötunni og
ákváðum því að skreyta plötu-
umslagi okkar því.“ Þegar hafa
tvö lög af plötunni farið í spilun,
„Kraftaverk" sem flaut ofan á
öldum ljósvakans í sumar og
dægurflugan „Lærðu að ljúga“
sem nú hefur tekið við af hinu.
Myndband við lagið hefur verið
tekið til sýningar á PoppTíví, en
í því má sjá liðsmenn sveitarinn-
ar taka sér stöðu fyrir aftan
kennsluborðið, staður þar sem
einstaklingum gefst færi á að
fylla mótandi huga af ýmsum
sannindum eða ósannindum um
þær lífsþrautir sem bíða. Hvort
liðsmenn Nýdanskrar hafa
ákveðið að gera á þessari plötu
verður að koma í ljós með tíman-
um. Jón segir margt framundan
hjá sveitinni, þ.á.m. spila-
mennska á Airwaves tónlistar-
hátíðinni, Gauknum og 90 ára af-
mælistónleikum Háskólans sem
haldnir verða í Háskólabíói á
föstudag.
biggi@frettabladid.is
TÓNAFLÓÐ Á MÖLTU
Pólfarir var nánast öll tekin upp á Möltu en smiðshöggið var slegið hér á klakanum.
ORYGGISKERFI
fffl Raflagnir ísiands
Sími 511 1122