Fréttablaðið - 12.10.2001, Qupperneq 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
12. október 2001 FÖSTUDAGUR
HÁSKÓLABÍÓ
SmRRR
HACATORCI. SIMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
wumwtia susak tructi
BEAUTIFUL
CREATURES
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6, 8 og 10
|A.I. kl. 5.15 og 101 jlSNT SHE GREAT kl. 6Í
ÍBRIDGET JONE'S DIARY kl. 8 í ÍDOWN TO EARTH kl. 8 og 10 {
BIO
|PÉ1UR OC KÖmjRINN BRANDUR kL e! Sýnd kl. 5, 8 og 10.10
|1AY & SILENT BOB kl. 5,8 og 10.30 j jWHATS TtiE WORST_ kl.8oglQ.loj
UriDoliry /DD/ 'THy SlMl 564 0000 www.smarablo.is
ALFABAKKA 8, SIMI 587 8900
www.samfilm.is
5000 MILESTO- SJtta 1030qgIMS v'', [RUGARI5 IN PARIS m/ísltali 4 og6 ||VIT1
TVIEIN CRCWVD 8. laioog 12.15 I ;v?j SHREK m/ísL taG
M-MSQ
SWORDFISH kL 8,10.10 og 12.15 jj^ E4ST&THEFURKXJS ld.4og6 m
UNDIR PRESSU
Augu margra beinast að Karen Gillingham
að kvöldi 10. nóvember. Þá verður söng-
leikurinn um ævi Díönu prinsessu frum-
sýndur með henni í aðalhlutverki.
Söngleikur um Díönu:
Styttist í
frumsýningu
eeikhús Senn styttist í frumsýn-
ingu söngleikjarins um ævi
prinsessunnar dáðu, Díönu af Wa-
les. Þýskir framleiðendur og
breskir leikarar vinna nú hörðum
höndum að því að leggja lokahönd
á sýninguna, sem heitir Lady Di -
Diana - A Smile Charmes the
World og verður frumsýnd 10.
nóvember í Saarbruecken í
Þýskalandi.
Einn framleiðandanna segir
söngleikinn vera nútíma ævintýri,
sem segir frá lífi Díönu í sviðs-
Ijósinu og leit hennar að ást og
hamingju. Þrátt fyrir hótanir
bresku konungsfjölskyldunnar
eru Karl prins og ástkona hans
Camilla Parker Bowles persónur í
sýningunni, auk kærasta Díönu,
Dodi Fayed, sem lést með henni í
bílslysinu við árbakka Signu 3.
ágúst 1997. „í verkinu fylgjumst
við með Díönu, Camillu og Karli,
sem einstaklingum í leit að ást.
Sjálfstæði þeirra þriggja þróast í
gegnum sýninguna," segir höf-
undurinn Thomas Fuehrer. Sýn-
ingin er á þýsku en verið er að at-
huga enska útgáfu hennar. Fram-
leiðendur segja engin lagaleg
vandamál hafa komið upp. ■
Engar krumpur ...
a ASKO
Þurrkari
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikkonan Sharon Stone er kom-
in af spítala eftir átta daga
læknismeðferð. Leikkonan fékk
væga heilablæð-
ingu og ástand
hennar reyndist
ekki eins alvarlegt
og var óttast um.
Læknar segja að
atvikið ætti ekki
að hafa áhrif á
vinnu eða persónu-
legt líf Stone’s
næstu mánuði.
Söngvarinn Robbie Williams fékk
langþráðan draum sinn uppfyllt-
an á miðvikudagskvöldið er hann
hélt tónleika í Royal Albert Hall
ásamt stórhljómsveit. Þar söng
hann lög Frank Sinatra, Dean Mart-
in og önnur sem verður að finna á
tökulagaplötu hans Swing When
Your Winning.
Björk ,,okkar“ Guðmundsdóttir
upplýsir í viðtali við Time mag-
azine að hún trúir því að náttúran
sé sterkari en
maðurinn. Haft er
eftir henni að fjöl-
skylda hennar
veiði sjálf helming
þess matar sem
hún snæði. Að það
séu tengsl við nátt-
úruna sem stór-
borgir hafi glatað,
og að íbúar þeirra kaupi tengslin
aftur með hugleiðslutímum. Björk
talar um New York, segir stórborg-
ir samþjappa fólki, þar myndist því
álag og að henni líki vel þar sem
það sé mjög uppörvandi.
Breska slúðurpressan heldur því
fram að David Beckham haldi
framhjá konu sinni. Ekki í líkam-
legum skilningi
heldur hljóðlegum.
Sést hefur til hans
aka um London
með „Can’t Get
You Out Of My
Head“, lag Kylie
Minouge, í háværu
hátalarakerfinu.
Það var einmitt
þetta lag sem hélt Victoriu frá
toppsæti breska listans fyrir sköm-
mu. Kannski er ástæða þess að
hann botni það í bílnum sú að hann
fær ekki að hlusta á lagið heima
hjá sér.
FLÖGRANDI ÖGRANDl PILS
Rauða myllan skartar fjölmörgum fylgdarmeyjum, sem dansa can can. Þar hittust bæði há- og lágstétt Parísar um aldamótin 1900.
Nútíma söngvamynd
Þriðja mynd ástralans Baz Luhrman, Moulin Rouge!, hefur vakið
gífurlega athygli, Hún er frumsýnd í nýju Smárabíói, Stjörnubíói og
Borgarbíói Akureyri.
kvikmynpir Þegar önnur mynd
Baz Luhrman, Romeo+Juliet,
vakti mikla lukku opnuðust
margar dyr í kvikmyndaheimin-
um fyrir hann. í kjölfarið fór
hann að hugsa um hvernig
mætti nýta sér meðbyrinn.
Luhrman, sem hefur leikhús-
bakgrunn, ákvað að gera
söngvamynd. Fljótlega eftir það
fóru hann og eiginkonan og sam-
starfsmaðurinn Catherine Mart-
in til Parísar. Þau öfluðu sér
upplýsinga um Rauðu mylluna,
næturklúbbinn alræmda, um-
hverfi hans og fólkið sem tengd-
ist honum.
„Söngvamyndir eru búnir að
vera úr tísku lengi. Við náum til
nútíma áhorfenda með því að
hafa sönginn í myndinni ekki
skraut heldur mikilvægan fram-
vindu sögunnar. Senurnar
byggjast upp í samræmi við það.
Persónur eru orðnar svo hlaðnar
orku að þær verða að byrja að
syngja," segir Craig Pearce,
sem skrifaði handritið ásamt
Luhrman.
„Hefðbundin kvikmynd
teymir áhorfendur áfram í hálf-
gerðum draumaheimi og leyfir
þeim að skoða hluta raunveru-
leikans í gegnum skráargat. Við
viljum áhorfendur meðvitaða
um það að þeir eru að horfa á
kvikmynd. I Strictly Ballroom
notuðum við samkvæmisdansa
til þess, í Romeo+Juliet fjögur
hundruð ára gamalt tungumál
Shakespeare og í Moulin Rouge
er það tónlistin, söngurinn,” seg-
ir Luhrman.
Flest laganna eru fræg popp-
lög okkar tíma, m.a. eftir Elton
John, David Bowie og U2. Sum
samtöl eru meira að segja beint
upp úr vel þekktum lagatextum.
Luhrman segir það ekki óvana-
legt að nota slíka tónlist, eitt
sinn hafi það tíðkast að áður vin-
sæl lög væru notuð í söngva-
myndum.
Myndin gerist á blómaskeiði
Rauðu myllunar. Nicole Kidman
leikur stjörnu staðarins, Satine.
Hún var ráðin í hlutverkið þegar
Luhrman sá hana leika í Bláa
herberginu á Broadway. Ewan
McGregor, sem kemur á óvart
með öruggum söng, leikur ung-
an rithöfund, Christian. Þegar
hann kolfellur fyrir Satine vill
hann leiða hana með sér út úr
heimi Rauðu myllunnar. Þessi
saga er byggð á goðsögninni um
Orfeif, ljóðskáldið frá Þrakíu,
sem reyndi að bjarga eiginkonu
sinni, Evridís, úr Hadesarheim-
um. „Við notum alltaf vel þekkta
sögu og segjum hana í tilbúnum
heimi, sem er kunnuglegur um
leið og hann er framandi. Dans-
salur, ströndin í Verona og
Rauða myllan," segir Luhrman.
Umstang takanna var gífur-
legt. T.d. voru risastórar leik-
myndir byggðar og rúmlega
fjögur hundruð búningar saum-
aðir. Allir aðalleikarar eru með
hárkollur, nema McGregor og
John Leguizamo. Luhrman lagði
mikla áherslu á að tæknibrell-
urnar í myndinni væru ekki of
„hreinar", smáskít eins og hrist-
ing í tökuvél varð að teikna. Út-
koman er, að hans sögn, svipuð
upplifun fyrir áhorfendur í dag
og hún var fyrir gesti Rauðu
myllunnar fyrir einni öld. ■
NABBI
Einn dag leit ég í spegil og só
mig sjólfo ekki lengur.
Kæfondi, andsetið, yfirþyrmandi samband,
sem hvorugt okkar er reiðubúið fyrir!
Nabbi, ég vil hinsvegar ekki slíta sam-
bandinu okkar. Eg vil bara hafa það ó
léttu nólunum. AÍlt i lagi?
Þefta er einmitl það
sem Anna sagði að
þú myndir segja.
6*« 5