Fréttablaðið - 12.10.2001, Page 12

Fréttablaðið - 12.10.2001, Page 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 12. október 2001 FÖSTUDAGUR Minningarathafnir í Bandaríkjunum: Mánuður frá árásunum árás A ameríku Mánuður var í gær liðinn frá því hryðjuverkaárásirn- ar voru gerðar á Bandaríkin. Minningarathafnir vegna þeirra sem létust voru haldnar víðsvegar um landið. George W. Bush, Bandaríkjaforseti, hélt ræðu við minningarathöfn sem haldin var fyrir utan Pentagon-bygginguna. Bað hann skólafólk út um allt land að flytja með sér hollustueið til bandaríska fánans. Þúsundir manna voru samankomnar við bygginguna, þar sem alls 189 manns létu lífið. ■ Breyting á úthlutun fiár- magns til grunnskóla Reykjavíkur: Miðað við nemenda- íjölda skólamál Stefnt hefur verið að því í nokkur ár að úthlutun fjármagns vegna kennslu í grunnskólum Reykjavíkur miðist við nemendur í stað bekkjardeilda, eins og lengst af hefur tíðkast. Unnið hef- ur verið að undirbúningi þessarar breytingar á Fræðslumiðstöð Reykjavíkur undanfarin ár. Skref- ið var stigið til hálfs á þessu skólaári og verður stigið til fulls næsta haust. Við bekkjarmiðaða úthlutun gat fjárveiting milli skóla af svip- aðri stærð orðið afar mismunandi, eftir því hvernig nemendur röð- uðust á árganga. Einnig gat einn nemandi til eða frá í árgangi haft mikil áhrif á fjárveitingu. Nem- endamiðaða aðferðin er talin rétt- látari og koma meira til móts við einstaklinginn og þarfir hans. Einnig er aðferðinni ætlað að styrkja þá stefnu að losa um bekkjarkerfið. Breytingarnar koma misjafn- lega við skólana. Þannig fá þeir skólar sem hafa verið með fjöl- mennar bekkjardeildir nú meira fjármagn í sinn hlut en skólar með fámennari bekkjardeildir minna. ■ ^Annast veislur heimahúsum. Tek að mér innkaup og matreiðslu. Tilvalið íyrir saumaklúbba og aðra hópa Upplýsingar gefur Shabana Zaman í símum V 659 3045/581 1465 J Smáralind: Ætla að „fríka“ út og versla viðskipti Fimm vinkonur sátu í bifreið fyrir utan Smáralind og biðu eftir því að verslunarmið- stöðin opnaði. Þetta voru þær Hjödda, Inga, Erla, Erna og Þuríð- ur. Sögðust þær vera fullar til- hlökkunar eftir að skoða verslun- armiðstöðina og væri ætlunin að „fríka“ út í innkaupum, eins og þær komust sjálfar að orði. Að- spurðar um hvert mesta aðdrátt- araflið væri í Smáralind svöruðu þær einum rómi tískufataverslan- irnar Zara og Mango. Stelpurnar eru allar nemendur í Verzlunar- skóla íslands og blaðamaður innti þær eftir hvort þær væru nokkuð að skrópa í skólanum. Sögðu þær svo ekki vera en gátu engu lofað að það gerðist ekki í framtíðinni. Að lokum sögðust stúlkurnar ekki vera í neinum vafa um að þær ættu eftir að venja komur sínar í Smáralind. ■ FIMM FULLAR TILHLÖKKUNAR Stelpurnar sögðust vera algjörar búðarkerlingar og gátu engu lofað að þær myndu ekki einhvern tímann skrópa í skólanum til að fara í Smáralind. Bókstafstrú Vesturlanda? Loftárásunum á Afganistan hefur víða verið mótmælt, þótt fréttir af því fari ekki hátt. Repúblikani á Bandaríkjaþingi spyr hvort þær séu van- hugsaðar. Frjálslyndi Vesturlanda sagt minna á bókstafstrú. MÓTMÆLI f BERLfN Þýskir mótmælendur voru ekkert að skafa utan af því frekar en venjulega: „Menning er þjóðarmorð. Víetnam, Tripoli, Téténía, Bagdað, Júgóslavía - Stöðvið stríðið," stendur á þessum mótmælaborða sem sjá mátti þar sem nokkur hundruð mótmælendur komu saman f Berlín á mánudaginn. VIÐBRÖCÐ Á VESTURLÖNPUM Ekki ei' annað að sjá, en að yfirgnæfandi meirihluti Bandaríkjamanna styðji loftárásirnar á Afganistan. Jafnt Repúblikanar sem Demókratar á bandaríska þinginu hafa einnig verið nánast einróma um réttmæti árásanna. Einn þingmaður, Repúblikaninn Jim McDermott, lýsti þó á þriðju- daginn efasemdum sínum um að árásirnar á Afganistan væru nógu vel ígrundaðar. „Þetta minnir ansi mikið á írak. Saddam Hussein er enn við völd,“ sagði hann í yfirlýs- ingu sinni, sem er fyrsta opinbera gagnrýni bandarísks þingmanns eftir að árásirnar hófust. „Það er almenningur í írak, en ekki Saddam, sem þjáist enn vegna af- leiðinganna af þessum loftárásum og flugskeytaárásum sem gerðar voru í Persaflóastríðinu og refsiað- gerðunum sem við lögðum á þessa þjóð í framhaldinu.“ Fjöldamótmæli hafa verið skipulögð bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu, þótt fréttir af þeim hafi ekki farið ýkja hátt. Þúsundir mótmæltu loftárásunum í nokkrum helstu borgum Evrópu á mánudaginn, m.a. í London, Berlín, Vín og Brússel. Einna öflugust g hafa mótmælin verið í Þýskalandi | og lögreglan þar á jafnvel von á óeirðum. Víða hefur verið boðað til mótmælafunda á föstudag og laug- ardag. í New York var einnig efnt til fjölmennra útimótmæla á mánu- daginn, þar sem fólk gekk um með mótmælaspjöld. „Neitum stríði" og „New York. Ekki í okkar nafni,“ mátti lesa þar meðal annars. Þá hafa greinarhöfundar í bandarískum og evrópskum blöð- um sumir hverjir gagnrýnt loft- árásirnar harðlega. Madeleine Bunting, sem skrif- aði grein á vefsíðu breska dag- blaðsins Guardian á mánudag, seg- ir að vestrænt frjálslyndi geti ver- ið ekki síður óbilgjarnt og kreddu- kennt eins og hin herskáu afbrigði íslamskrar bókstafstrúar. Frjáls- lyndið verði þá að bókstafstrú Vesturlanda. „Þegar verst lætur endurspeglar vestræn bókstafstrú þau einkenni, sem hún hefur því- líka andstyggð á í óvini sínum bin Laden: í fyrsta lagi, hugmyndir um eigin yfirburði án allra efa- semda; í öðru lagi, fulla trú á því að gildismati hennar sé hægt að beita alls staðar; og í þriðja lagi, vilja- skort til þess að skilja það sem er í grundvallaratburðum öðru vísi en hún sjálf.“ ■ RÁS 2 TIL AKUREYRAR Hugmyndum um flutning Rásar 2 til Akur- eyrar almennt vel tekið í þingsal. RÚV til umræðu á þingi: Rás 2 til Akureyrar? alþinci Björn Bjarnason mennta- málaráðherra sagði í fyrradag að til greina kæmi að skilgreina Rás 2 sem miðstöð svæðisútvarpa og flytja starfsemi hennar til Akur- eyrar. Þetta kom fram í umræðu um fjárhagsvanda Ríkisútvarps- ins í utandagskrárumræðum á Al- þingi. Steingrímur J. Sigfússon átti upphafið að umræðunni og gagn- rýndi menntamálaráðherra harkalega fyrir að Ríkisútvarpinu hefði ekki verið tryggðar tekjur til að standa undir starfsemi sinni meðan kostnaður þess hefði auk- ist og auglýsingatekjur dregist saman. Steingrímur gagnrýndi að afnotagjöld hefðu ekki fylgt verð- lagi og sagði aðgerða þörf til að bæta stöðu RÚV sem ætti við þungan skuldabagga að glíma og lífeyrisskuldbindingar sem hvíldu þungt á því. Menntamálaráðherra tók undir að lífeyrisskuldbindingar RÚV mætti taka til sérstakrar skoðun- ar en veittist harkalega að Stein- grími sem hann sagði óábyrgan í málflutningi að ætla að leysa öll mál með hærri álögum á borgar- ana. ■ r FILTUBE 8,a. Pressfittings Ryðfrí stálrör og press- fittings Stærðir: 12,18,22,28 og 35mm Hagstætt verð! VA TNSVIRKINN ohf. Ármúla 21, Sími: 533-2020 Nóbelsverðlaun í efnafræði: Spegilmyndir sameinda stokkhólmur. ap Tveir Banda- ríkjamenn og einn Japani skipta með sér Nóbelsverðlaununum í efnafræði þetta árið. Bandaríkja- maðurinn William S. Knowles og Japaninn Ryoji Noyori fá helming verðlaunanna, sem alls nema um 100 milljónum íslenskra króna, en hinn helmingurinn kemur í hlut Bandaríkjamannsins K. Barry Sharpless. Allir fá þeir verðlaun- in fyrir rannsóknir sínar á því einkenni sumra sameinda að koma fram í tvenns konar formi, þar sem annað formið er eins og endurspeglun á hinu, líkt og hægri og vinstri hönd á fólki. Nóbelsverðlaunanefndin í Stokkhólmi kynnti verðlaunahaf- ana í efnafræði í gær, en á mánu- daginn voru Leland H. Hartwell, Tim Hunt og Paul Nurse útnefnd- ir Nóbelsverðlaunahafar í læknis- fræði og á þriðjudag voru Eric A. Cornell, Carl E. Wieman og Wolf- gang Ketterle útnefndir Nóbels- verðlaunahafar í eðlisfræði. í dag, fimmtudag, verður til- kynnt hver hlýtur bókmennta- verðlaun Nóbels og á föstudaginn verður sagt frá því hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels. Nóbelsverðlaunin verða eins og venjulega afhent þann 10. des- NÓBELSVERÐLAUN I HEILA ÖLD Við verðlaunaafhendinguna I Stokkhólmi I desember verður haldið upp á hundrað ára af- mæli Nóbelsverðlaunanna. Þangað verður öllum núlifandi Nóbelsverðlaunahöfum boðið. ember næstkomandi. Að þessu sinni verður öllum núlifandi Nóbelsverðlaunahöfum boðið á samkomuna í tilefni af aldaraf- mæli Nóbelsverðlaunanna. Sænski iðnjöfurinn Alfred Nobel stofnaði verðlaunin og var þeim fyrst úthlutað árið 1901. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.