Fréttablaðið - 30.10.2001, Síða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
30. október 2001 ÞRIÐJUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
VIÐSKIPTI MEÐ HLUTABRÉF
Hér sjást heildarviðskipti með hlutabréf á
Verðbréfaþingi (slands á fyrri og seinni árs-
helmingum áranna 1999 til 2001. Viðskipt-
in náðu hámarki á fyrri helmingi ársins
2000 um svipað leyti og hlutabréfavísitölur
náðu hámarki. Útlit er fyrir að hlutabréfa-
viðskipti dragist enn saman á yfirstandandi
árshelmingi. Frá júlí til september voru við-
1999 1999 2000 2000 2001
BERA LIKKISTU
Meðlimir í rússneska sjóhernum bera kistu
eins mannanna sem létust um borð í
Kúrsk, en lík sjö sjómanna hafa verið send
með flugvél til heimabyggðar þeirra þar
sem þeir verða grafnir.
Kj amorkukafbáturinn
Kúrsk:
45 lík hafa
fundist
moskva.ap Tekist hefur að ná 45
líkum úr flaki rússneska kjarn-
orkukafbátarins Kúrsk, sem sökk
í Barentshafi fyrir rúmu ári síðan
með 118 áhafnarmeðlimi um borð.
Tveimur flugskeytum hefur ein-
nig verið náð úr bátnum, en alls
voru 22 slíkar skeyti um borð þeg-
ar báturinn sökk. Stjórnvöld í
Rússlandi segja aðgerð þessa
nauðsynlega til að grafa þá sem
létust í slysinu á sómasamlegan
hátt og til að komast að orsökum
sprengingarinnar sem varð til
þess að báturinn sökk. ■
—
Ofbeldisverk í Bandaríkj-
unum:
Konur lang-
líklegustu
fórnarlömbin
washincton.ap Konur voru fórnar-
lömbin í 85% tilfella af rúmlega
790 þúsund „ofbeldisverkum á
milli para“ sem framin voru í
Bandaríkjunum árið 1999, að því
er segir í opinberum tölum. Yngri
konur um hálfþrítugt voru þar í
mestum áhættuhópi. Fórnarlömb
heimilisofbeldis á aldrinum 35 til
49 ára voru líklegust til að vera
myrt. ■
1 SMÁTT [
A' tta manns létust og 12 særð-
ust í sprengingu sem varð í
flugeldaverksmiðju í norðaustur-
hluta Kína í gær.
Sveinn Einarsson, leikstjóri og
rithöfundur, var á föstudag
kjörinn fulltrúi íslands í fram-
kvæmdastjórn Menningarmála-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
(UNESCO), til næstu fjögurra
ára. Sveinn er eini norræni full-
trúinn í framkvæmdastjórninni. í
framkvæmdastjórn UNESCO eru
58 fulltrúar frá öllum heimshorn-
um, en aðildarlönd UNESCO eru
189.
Heilbrigðisráðherra Afganistans:
„Börn eru að deyja á
sjúkrcthúsum okkar“
kabúl.afganistan.ap Frá því árásir
Bandaríkjamanna á Afganistan
hófust hafa allir þeir sem mögu-
lega gátu yfirgefið barnasjúkra-
húsið í Kabúl, höfuðborg landsins,
komið sér í burtu. Fyrir árásirnar
voru sjúklingarnir um 300 til 400
talsins og oft voru tvö til þrjú
börn um hvert rúm en nú hafa
hlutirnir breyst, enda er sjúkra-
húsið staðsett skammt frá her-
bækistöðvum í borginni og er því
í mikilli sprengjuhættu. Þrátt fyr-
ir að Bandaríkjamenn segist ekki
ætla að varpa sprengjum á sak-
lausa borgara þá taka aðstandend-
ur barnanna enga áhættu. Sjúkra-
húsið átti í miklum fjárhagsörð-
ugleikum áður en sprengingarnar
hófust og ekki hefur ástandið
batnað. Rafmagnið á sjúkrahús-
inu er tekið af á næturna vegna
sprenginganna og stundum er það
lítið sem ekkert notað á daginn.
Mullah Abbas Akhund, heil-
brigðisráðherra Afganistans, boð-
aði nýverið til blaðamannafundar
þar sem hann fordæmdi loftárás-
irnar á landið, sem nú hafa staðið
yfir í rúmar þrjár vikur. „Börn
eru að deyja á sjúkrahúsum okkar
vegna þess að við höfum engin
bóluefni," sagði Akhund. „í gær
komu fram nokkur tilfelli af
hundaæði. Við gátum ekki sent
börnin á neinn annan stað. Ef við
fáum ekki bóluefni munu þau
HANDLEGCSBROTIN
Hin tíu ára gamla, Maria, féll niður úr
glugga á annarri hæð þegar sprengja
sprakk í nágrenninu. Hún liggur nú hand-
leggsbrotin á sjúkrahúsi í Kabúl,
deyja innan þriggja til fjögurra
daga,“ sagði hann. ■
Stolið fyrir 3-4
milljarða í verslun
Um 1,5% af heildarveltu smásöluverslunar á ári. Meira um þjófagengi en áður. Konur stela fleiri
og ódýrari hlutum en karlar færri og dýrari. Forvarnir og kynningarátak
verslun Talið er að árlega tapist
um 3 - 4 milljarðar úr veltu smá-
söluverslunarinnar vegna rýrnun-
ar og þá aðallega vegna hnupls í
verslunum. Sigurður Jónsson
......«... framkvæmda-
Á hinn bóginn
sé Ijóst að
konur steli oft
á tíðum fleiri
og ódýrari
hlutum en
karlmenn
færri og dýr-
ari.
stjóri hjá Samtök-
um verslunar og
þjónustu segir að
þetta sé um 1,5%
af heildarveltunni
sem er um 155
milljarðar á ári að
undanskildri
áfengissölu. Hann
segir að þarna sé
því um gríðarlega
mikla f jármuni að ræða sem hægt
væri að nýta til að lækka vöru-
verð og hækka laun verslunar-
fólks. Af þeim sökum m.a. sé
brýnt að lágmarka þessa rýrnun
af völdum hnupls eins og kostur
er með öllum tiltækum ráðum.
Framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu segir að
þessi rýrnun og
hnupl sé bæði af
völdum starfs-
manna verslana
og utanaðkom-
andi og virðist
því miður ekki
fara minnkandi.
Þá virðist það
færast í vöxt að
TönsToUn Mófar vinni
Segir brýnt að nokknr saman
sporna við búða- V1Ó þessa lðju
hnupli eins og sína á opnunar-
kostur er tíma verslana
fyrir utan innbrot og rán og ein-
staklingsbundin hnupl. Hann seg-
ir að þeir sem stela í verslunum
komi úr öllum þjóðfélagshópum
% ■%
|| \ j ’Jft 1 iFHf M| || í | • í | iM \ : v\1 ■ m- ,..*n ydfc. -1
og séu á ýmsum aldri. Á hinn bóg-
inn sé ljóst að konur steli oft á tíð-
um fleiri og ódýrari hlutum en
karlmenn færri og dýrari. Þá hafa
menn tekið eftir því að „fagmenn-
irnir“ halda sig venjulega til hlés
þegar eftirlitið er einna mest eins
og í kringum hátíðar, öndvert við
þá sem minni reynslu hafa.
Á undanförnum misserum hafa
nokkur hundruð starfsmenn og
eigendur verslana sótt forvarnar-
námskeið þar sem fólki er kennt
hvernig það eigi að bera sig að
gagnvart þjófnaði í verslun og
kunnáttu í meðhöndlun öryggis-
búnaðar. Þá er lögð áhersla á
áfallahjálp fyrir starfsmenn. Að
loknum þessum námskeiðum fá
viðkomandi fyrirtæki vottun frá
VERSLUNIN
Verslunareigendur reyna með ýmsum ráð-
um að sporna við þjófnaði í verslunum
sínum.
lögreglu sem auðkennd eru með
límmerkinu „Varnir gegn vágest-
um.“ Ætlunin er að kynna þetta
merki með sérstakri auglýsinga-
herferð í fjölmiðlum á næstunni.
grh@frettabladid.is
Tannlæknafélag íslands:
Hlutfall endurgreiðslu hefur lækkað
TANNLÆKNINCAR „Það endur-
greiðsluhlutfall sem fólk fær
vegna tannviðgerða og eftirlits
hefur lækkað,“ segir Þórarinn
Jónsson, formaður Tannlæknafé-
lags fslands. Fyrir þremur árum
hafi Tryggingastofnun sagt upp
samningi milli Tannlæknafélags-
ins og heilbrigðisráðuneytisins,
en sjúklingar hafi, eftir sem áður,
átt rétt á endurgreiðslu vegna
tannviðgeróa. „Á þeim þremur
árum sem liðin eru, hafa orðið
verðlagsbreytingar, auk þess sem
að frjáls samkeppni er meðal
tannlækna og þeir ekki með sömu
verðskrá. Endurgreiðslan hefur
þó ekki verið uppfærð í samræmi
við það, og miðast enn við gjald-
skrá síðan 1998,“ segir Þórarinn.
Heilbrigðisráðuneytið telji að
ekki verði hægt að breyta endur-
greiðslu, nema samið verði við
tannlækna. „Því erum við ósam-
mála. Ráðherra ákveður gjald-
skrána og getur uppfært hana,“
segir Þórarinn. „Við erum, hins-
vegar, tilbúnir að semja, og bíðum
þess að heilbrigðisráðherra setji á
laggirnar samninganefnd svo
samningar geti hafist að nýju.“ ■
TANNLÆKNINGAR
Endurgreíðsla vegna tannlækninga er sam-
kvæmt verðskrá sem orðin er þriggja ára
gömul, þótt sjúklingarnir greiði samkvæmt
núgildandi verðskrám tannlækna sem
hækkað hafa á tímabilinu. Hlutfall endur-
greiðslu hefur því í raun lækkað.