Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2001, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 08.11.2001, Qupperneq 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 8. nóvember 2001 FIMMTUDACUR SVONA ERUM VIÐ ÞORSKAFLINN Á síðustu fimm árum hafa Islendingar veitt nærri 1.200 þúsund tonn af þorski. Aflinn skiptist þannig milli ára: Fiskveiðiðár ______________Heimild: Fiskistofa Úttekt Ríkisendurskoð- unar á Flugmálastjórn ekki nafin: Beiðni Gísla breytti engu stíórnsýsla Sigðurður Þórðarson ríkisendurskoðandi segir embætt- ið ekki hafa hafið heildarúttekt á Fiugmálast.jórn. Minnisblað vegna farþegalista flug- vélar Flugmála- stjórnar hafi ver- ið svar við af- markaðri spurn- ingu alþingis- mannsins Gísla S. Einarssonar. Sigurður segir svarið einnig hafa verið sent Sturlu Böðvarssyni sam- gönguráðherra. Ríkisendurskoð- andi segist ekki hafa átt von á að Gísli gerði inni- hald minnisblaðs- ins opinbert fyrr en kæmi að utandagskrárumræðu um málið á Alþingi í dag. Sigurður segir að beiðni Gísla um úttekt á á rekstri flugvélar Flugmálastjórnar, sem fjárlaga- nefnd Alþingis framsendi Ríkis- endurskoðun, breyti litlu: „Það liggur hér fyrir beiðni frá forseta Alþingis í framhaldi af beiðni þingflokks Samfylkingarinnar frá því í vor en sem ég fékk í septem- ber um það að gera stjórnsýsluút- tekt á flugmálastjórninni þannig að þetta fellur bara undir það. En þetta er ábending og það er alltaf gott að fá ábendingar," segir hann. Að sögn Sigurður mun úttektin á Flugmálastjórn, þegar hún hefj- ist, taka langan tíma, a.m.k. eitt- hvað fram eftir vetri. ■ SIGURÐUR ÞÓRÐARSON Rikisendurskoð- andi segir beiðni Gísla um úttekt á á rekstri flugvélar Flugmálastjórnar breyta litlu: „En þetta er ábending og það er alltaf gott að fá ábend- ingar." Össur Skarphéðinsson: Sjúkrafiðar sæta ranglæti alþingi „Það er hróplegt ranglæti að meirihluti heilbrigðis- og trygg- ingar vilji ekki hitta sjúkraliða til að ræða kjör þeir- ra sem eru smán- arleg,“ segir Öss- ur Skarphéðins- son, en þingflokk- ur Samfylkingar- innar átti fund með forystu sjúkraliða vegna kjarabaráttunnar. „Það hefur ekki gerst áður að nefndin tali ekki við hópa sem óska eftir fundi með nefndinni. Sjúkraliðar eru illa haldnir í launum og við styðjum þá heilshugar." ■ jLÖGREGLUFRÉTTIRj ~ Tap á rekstri Skýrr fyrstu níu mánuói ársins var 151 milljón króna. Rekstrartekjur jukust á milli ára um 36% og voru um 1,5 milljarður. Veltuaukning skýrist að stórum hluta af sölu húgbún- aðarleyfa ásamt vinnu við að inn- leiða nýja fjárhags- og mannauðskerfi fyrir ríkið. ÖSSUR SKARP- HÉÐINSSON Samfylkingin óskaði eftir fundi með sjúkraliðum. DAS fær ekki að byggja: 400 aldraðir á biðlista í aldraðir „Við höfum um árabil barist fyrir því að fá að byggja 60 gistirými við Hrafnistu f Reykjavík og 90 í Hafnarfirði en höfum ekki fengið grænt ljós frá heilbrigðisráðuneytinu, það stendur á svonefndum fram- kvæmda- og rekstrarleyfum," segir Guðmundur Hallvarðsson, þingmaður og stjórnarformaður DAS. Hann segir að um 400 aldr- aðir í Reykjavík bíði nú eftir því að komast annaðhvort á hjúkrun- arheimili eða vistheimili og því ljóst að úrbóta sé þörf. Ráðu- neytið hafi m.a. svarað því til að ekki væri brýn þörf á fleiri gisti- rýmum í Reykjaneskjördæmi. CUÐMUND- UR HALL- VARÐSSON Þingmaðurinn segir að úr- bóta sé þörf í húsnæðismál- um aldraðra, en áréttar að óalgengt sé að aldraðir sjómenn leigi hjá Rauða krossinum. Ofbeldi stráka og stelpna ólíkt Skýringar unglinga á ofbeldi sem þeir beita fara ekki alveg saman við skýringar hinna full- orðnu, bæði foreldra og meðferðaraðila. Páll Biering komst að þessu í rannsókn á skýringar- líkönum unglingaofbeldis sem hann vann á meðferðarheimili fyrir unglinga. Hann telur mikilvægt og vænlegt til árangurs að unglingar og meðferðaraðilar skiptist á hugmyndum um orsakir vandans þannig að hugmyndir þeirra samræmist. unglingaofbeldi Hugtakið skýr- ingarlíkan snýst um hugmyndir þeirra sem koma að meðferð til- tekins vandamáls eða sjúkdóms um skýringar á honum. Páll Bier- ing bendir á að ef skjólstæðingur hefur allt aðrar hugmyndir um vandamál sitt en meðferðaraðilinn dragi það úr mögu- leikum á að með- ferð og fræðsla komi að gagni. Páll komst að því að mismunur er á skýringarlík- önum unglinganna og hinna fullorðnu. „Fullorðna fólkið tengir ofbeldishegðun við sjálfsmynd unglinga, að ungling- arnir séu reiðir vegna þess að sjálfsmynd þeirra sé á einhvern hátt brotin. Unglingarnir hafa ekki hugtakið sjálfsmynd inni í sínum skýringum. Þau eru bara reið af því að einhver gerði þeim eitt- hvað.“ Páll segir mun einnig koma fram milli foreldra og meðferðar- aðila þannig að meðferðaraðilar leggja meiri áherslu á fjölskyldu- þætti og foreldrar á meðfædda þætti. „Bæði foreldrar og unglinga gera meira úr vímuefnaneyslu sem orsakaþátt í unglingaofbeld- inu en meðferðaraðilarnir. Ung- lingarnir tala líka um að þeir fái spennukikk út úr ofbeldinu.“ „Það sem kom mér mest á óvart var sterkur kynbundinn mismunur á því hvernig strákar og stelpur bæði skýra ofbeldi sitt og upplifa það. Stelpurnar sögðust hafa beitt ofbeldi af því að þær væru reiðar vegna þess að einhver hefði gert þeim eitthvað. Þær vísuðu jafnvel í eitthvað sem hefði komið fyrir þær í æsku. Strákarnir aftur á móti skýrðu ofbeldi sitt meira með því sem gerist á götunni, til dæmis að einhver sé fyrir þeim eða mis- virði þá. Ofbeldi er hluti af þeirra menningu. Það veitir þeim ákveð- inn orðstír og virðingu að beita of- „Það sem kom mér mest á óvart var sterkur kynbundinn mismunur á því hvernig strákar og stelpur bæði skýra ofbeldi sitt og upplifa það." Víðidalur: Dýraspítalinn í nýtt húsnæði heilbrigði Dýraspítalinn í Víðidal hefur flutt sig um set í nýtt 500 fermetra sérhannað húsnæði á horni Breiðholtsbrautar og Vatns- veituvegs. Spítalinn er deildar- skiptur, annars vegar fyrir smá- dýr og hins vegar fyrir stórdýr og þá aðallega fyrir hesta. Helgi Sig- urðsson einn af fimm dýralækn- um sem starfa við spítalann segir að þótt stefnt sé að sérstakri opn- unarhátíð í næsta mánuði sé smá- dýradeildin þegar tekin til starfa og innan tíðar verður hestadeildin tekin í notkun. Hann segir að nýi spítalinn sé búinn öllum helstu tækjum sem prýða nútíma dýralæknisþjónustu eins og t.d. röntgentæki, svæfing- artæki, sónar- og speglunartæki. Þá býður spítalinn upp á brennslu á dýrahræjum og sérbrennslu ef dýraeigendur óska þess. Auk þess að bjóða upp á vaktþjónustu allan sólarhringinn er spítalinn opinn alla daga frá klukkan 8 - 18 og á laugardögum frá klukkan 10-12. Athygli er vakinn á því að spítal- inn hefur fengið nýtt símanúmer, 540-99-00. ■ Reykjavík „Þeir hafa ekki sýnt því skilning að Reykjavík og Hafnarfjörður eru saman á höfuðborgarsvæð- inu.“ Guðmundur vill leiðrétta það sem haft var eftir Helga Vil- hjámssyni í Fréttablaðinu í gær um að algengt væri að aldraðir sjómenn ættu ekki í önnur hús að venda en Rauða krossinn. „Það er markmið okkar að taka inn sjómenn og þá einstaklinga sem þeim tengjast." Hann segist hafa upplýsingar um að nú sé einn aldraður sjómaður hjá Rauða krossinum. Hann bíði eftir vist- un hjá Öryrkjabandalaginu í Há- túni en ekki Hrafnistu. ■ Flóð á Filippseyjum: Að minnsta kosti 66 manns létust FILIPPSEYJUMAP Rúmlega 66 manns létust og að minnsta kosti 57 er saknað eftir flóð á eyjunni Camiguin á Filippseyjum sem komu í kjölfar mikils hitabeltis- storms, en eyjan er fræg fyrir fagrar sólarstrendur sínar. „Ég trúði því ekki að þetta gæti gerst. Heilu húsin fóru af stað í flóðun- um,“ sagði Pedro Romualdo, ríkis- stjóri eyjarinnar, í gær. Búist var við að stormurinn myndi næst ganga yfir Panay-eyju, sem stað- sett er um 400 km suðaustur af Manilla, höfuðborg Filippseyja. ■ MISMUNANDI SKÝRINGAR Á OFBELDI Páll Biering varði i vor doktorsritgerð sína um skýringarlikön unglingaofbeldis við Texashá- skóla í Austen. beldi.“ Þetta bendir, að mati Páls, til að það þurfi mismunandi nálgun við meðferð og forvarnastarf á of- beldishegðun stráka og stelpna. Páli finnst mikilvægt að með- ferðaraðili og skjólstæðingur nál- gist vandamálið gegnum samræð- ur sín á milli, að meðferðaraðilinn skilji viðhorf skjólstæðings og öf- ugt. „Þetta finnst mér sérstaklega mikilvægt gagnvart foreldrum. Þeir hafa ekki haft mikil áhrif á hvernig meðferð fer fram.“ Páll Biering flytur fyrirlestur um rannsókn sína í hátíðarsal Há- skólans í dag kl. 16 og er fyrirlest- urinn öllum opinn. steinunn@frettabladid.is SÉRHANNAÐ HÚSNÆÐi Dýralæknar í Víðidal hafa fjárfest í nýju og glæsilegu húsi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.