Fréttablaðið - 08.11.2001, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
8. nóvember 2001 FIMMTUDACUR
I lífstíðarfangelsi:
Myrti
staðgengil í
sturtuaðtriði
uos anceles.ap Maóui' sem var sak-
felldur fyrir að hafa kyrkt tvær
konur hefur veriö dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi án reynslulausnar.
Önnur kvennanna sem maðurinn
myrti var leikkonan Myra Davis
sem var staðgengill í sturtuatrið-
inu fræga í kvikmynd Alfred
Hitchcock, „Psycho." Davis, sem
bar sviðsnafnið Myra Jones, var 71
árs gömul þegar hún var myrt árið
1988. Ekki komst upp um morð-
ingjann fyrr en hann var handtek-
inn fyrir að hafa myrt aðra konu
fyrir þremur árum síðan. ■
Hersveitir Israela:
Yfirgáfu
bæinn
Ramallah
RfllVlflLLflH.VESTURBflKKflNUIVI.flP ísra-
elar drógu hersveitir sínar til
baka úr bænum Ramallah á Vest-
urbakkanum í gærmorgun. ísrael-
ar eiga ennþá eftir að draga her-
sveitir sínar til baka úr palest-
ínsku bæjunum Túlkarem og Jen-
in, en alls voru 6 bæir herteknir
eftir morðið á ferðamálaráðherra
ísraels, Rehavam Zeevi, þann 17.
október. Að sögn varnarmálaráð-
herra ísraels, Binyamin Ben-Eli-
ezer, munu hersveitirnar áfram
vera staðsettar í grennd við bæ-
inn. Bætti hann því við að ísraelar
hefðu ekki í hyggju að hertaka
fleiri svæði Palestínumanna. ■
Á LEIÐ í BURTU
Hersveitir ísraela á leið úr bænum
Ramallah.
| LÖGREGLUFRÉTTIR
Svo illa vildi til um hálf eitt-
leytið í fyrrakvöld að bíll sem
var ekið eftir Garðastræti rann
til í hálku og lenti á rafmagns-
kassa við veitingahúsið Naust.
Engar skemmdir urðu á húsinu
né rafmagnskassanum. Ekki tók
betur við þegar lögreglan var
komin á vettvang. Þá kom annar
bíll aðvífandi, rann til á sama
stað og fyrri bíllinn, og lenti aft-
an á þeim fyrri.
Teir fólksbílar rákust saman í
hörðum árekstri á Reykjanes-
braut austan við Vogaafleggjara
um miðnætti í fyrrakvöld með
þeim afleiðingum að annar bíl-
anna lenti utan vegar. Þrír voru
fluttir á slysadeild. Tildrög slyss-
ins voru þau að öðrum bílnum
var ekið yfir á rangan vegar-
helming meö fyrrgreindum af-
leiðingum. Akstursskilyrði voru
slæm þegar slysið varð og hálka
á vegum.
Slökkviliðið á höfuðborgar-
svæðinu var kallað til um hálf-
tvöleytið í gærdag að íbúðarhús-
næði í Bólstaðarhlíð. Eldur hafði
komið upp að hurðarbaki í sorp-
geymslu. Um var að ræða minni-
háttar bruna en sjö sorptunnur
eyðilögðust. Vel gekk að ráða nió-
urlögum eldsins.
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík var mikill erill hjá þeim í
gærdag. Höfðu um sextíu bókan-
ir verið gerðar um þrjúleytið.
Bush líkir A1 Kaída við fasista:
Vill nú fá fleiri ríki
í hernaðinn
stríð gegn hryðjuverkum Bandarísk
stjórnvöld hafa í fyrsta sinn ljáð
máls á því að fá fleiri ríki í lið með
sér í hernaðinn í Afganistan, en frá
því loftárásir Bandaríkjamanna og
Breta á Afganistan hófust fyrir
mánuði hefur George W. Bush
Bandaríkjaforseti jafnan hafnað
boðum um hernaðaraðstoð frá leið-
togum Vesturlanda. Síðustu daga
hefur Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hins vegar sagt nauð-
synlegt að fleiri ríki tækju þátt í
hernaðinum. Nú hafa Þjóðverjar,
Frakkar og ítalir ákveðið að senda
herlið til Afganistans og Bush seg-
ir nauðsynlegt að breið fylking
ríkja taki þátt í hernaðinum, ekki
síst í ljósi þess að vaxandi gagnrýni
hefur gætt á loftárásirnar.
Á þriðjudagsmorgun sagði Bush
í ávarpi sínu til leiðtoga Mið- og
Austur-Evrópuríkja í Póllandi, að
Osama bin Laden hafi í hyggju að
komast yfir kjarnorkuvopnabúnað,
auk efna- og sýklavopna. „Ástæðan
fyrir því að ég sagði þetta,“ sagði
Bush við blaðamenn síðar um dag-
inn, „er að ég var að vitna í hans
eigin orð. Hann hefur sagt þetta
vera ætlun sína. Og ég trúi því að
við eigum að taka hann alvarlega."
Jafnframt líkti hann A1 Kaída
samtökunum við fasista og alræð-
isstjórnir Austur-Evrópu og sagði
LEIÐTOGAR HITTAST
Bush Bandaríkjaforseti og Jacques Chirac
Frakklandsforseti hittust í Washington á
þriðjudaginn. I gær hitti Bush einnig Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands.
brýnt að mörg ríki tækju höndum
saman um að berjast gegn þeim. ■
PÓSTMIÐSTÖÐIN STÓRHÖFÐA
Póstmiðstöðin var rýmd og engin starfsemi var það sem eftir lifði dags í húsinu. Tekin verður ákvörðun í dag hvenær opnað verður aftur.
Póstmiðstöðinni
hefur verið lokað
Grunur um militsbrand. Þrettán starfsmenn í lyfjameðferð og tafir
verða á dreifingu pósts. Forstjórinn er rólegur
miltisbrandur Þrettán starfsmenn
Islandspóst voru sendir í læknis-
rannsókn vegna hugsanlegs
militsbrandssmits eftir að ábyrgð-
arbréf með hvítu dufti barst Póst-
miðstöö íslandspósts við Stór-
höfða um hádegisbilið. Uppgötv-
aðist póstsendingin við venju-
bundna póstvinnslu. Póstmiðstöð-
in var rýmd og kallað til aðstoöar
lögreglu og slökkviliðs sem girti
af svæðið. Gerðar voru viðeigandi
ráðstafanir og bréfinu komið fyrir
í sérstökum umbúðum á rannsókn-
arstofu.
Að sögn Einars Þorsteinssonar,
forstjóra íslandspósts, var lokað
fyrir alla starfsemi í húsinu í gær-
dag og óljóst sé hvenær opnað
verði fyrir hana í dag. Muni lok-
unin gera það að verkum að óhjá-
kvæmilega verði tafir á póstdreif-
ingu næstu daga en þess má geta
að meirihluti af öllum pósti á land-
inu fer í gegnum Póstmiðstöðina.
Engum bréfapósti hefur verið
dreift í morgun og þeir sem áttu
von á sendingum í gærkveldi
fengu þær ekki. Einar átti von á
því að þrátt fyrir tafir myndi full-
ur skilningur ríkja meðal almenn-
ings á ástandinu.
Einar sagði starfsmenn ís-
landspóst hafi brugðist við með
miklu æðruleysi og yfirvegun en í
gangi hafi verið viðbragðsáætlun
í kjölfar mikillar umræðu um
miltisbrandssendingar.
„Ég hef sagt það opinberlega
og einnig við mína starfsmenn að
ég trúi því að ef okkar verklagi sé
beitt og fylgt af nákvæmni séu
starfsmenn okkar ekki í meiri
hættu heldur en aðrir lands-
menn.“ ■
Hollvinasamtök Ingólfsbæjar:
Telja landnámsbæ
inn olnbogabarn
fornminjar „Okkur finnst að við
skipulag í kringum þennan
merka fornleifafund, eigi forn-
leifafundurinn að vera það sem
gengið er út frá, en ekki væntan-
leg hótelbygging," segir Einar
Bragi, rithöfundur og forsvars-
maður Hollvinasamtaka Ingólfs-
bæjar. Samtökin afhentu borgar-
stjóra undirskriftarlista þar sem
skorað er á borgaryfirvöld að
hverfa frá hugmyndum um bygg-
ingar og annað umrót við suð-
austurhorn Grjótaþorps.
Borgarstjóri hefur skipað
vinnuhóp til að finna leiðir til að
gera fornminjarnar aðgengilegar
og til að styrkja miðborgina.
I-Iollvinasamtökin gagnrýna að
ekki skuli vera fulltrúi frá íbúum
og borgurum og telja að áherslan
sé um of á embættismenn og
hagsmunaaðila hótelbyggingar.
Einar Bragi segist ekki tjá sig
sérstaklega um skipun þessa
vinnuhóps. „Það bendir allt til
þess að menn séu búnir að
ákveða hvernig þetta á að vera.
Að fyrst rísi þarna hótel og síðan
eigi að fara að hugsa fyrir því
HRÆDDUR UM FORNMINJAR
Einar Bragi telur að búið sé að ákveða
framkvæmdir við Aðalstræti og að forn-
minjar verði settar í annað sæti við
ákvörðun um skipulag á svæðinu.
hvernig eigi að koma þessu oln-
bogabarni Ingólfs Arnarsonar og
Ilallveigar Fróðadóttur fyrir." ■
Sameignarfélag um
Orkuveituna:
Sagt undir-
strika áform
gegn einka-
vædingu
ALFREÐ
ÞORSTEINSSON
Segir að
sameignarformið
hafi reynst vel
eins og t.d. hjá
Landsvirkjun
borgin Alfreð Þorsteinsson
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavikur segir að með því að
breyta rekstrarformi veitunnar í
sameignarfélag sé m.a. verið að
undirstrika þá
skoðun R-listans
að fyrirtækið
verði ekki einka-
vætt. Það sé önd-
vert við sjónar-
mið sjálfstæðis-
manna sem vilja
halda þeim mögu-
leika opnum með
því að vilja brey-
ta fyrirtækinu í
hlutafélag „fyrst
um sinn“ eins og
þeir hafa orðað
það. Þá telur hann
aö það sé ekki
verra að með
þessari breytingu sé komið til
móts við sjónarmið Vinstri -
grænna í borginni. Aðalatriðið sé
engu að síður það að með þessari
breytingu njóti fyrirtækið ótak-
markaðrar ábyrgðar eigenda
sinna og því ættu lánskjör að
haldast óbreytt og réttindi
starfsmanna verða svipuð og
áður.
Eignarhlutar í þessu nýja
sameignarfélagi eru þeir að
Reykjavíkurborg verður með
93%, Akranesbær með 5,5%,
Hafnarfjörður með 1% og
Garðabær með 0,5%. Jafnframt
er ekki loku fyrir það skotið að
fleiri sveitarfélög muni koma að
fyrirtækinu. Þá hefur forstjóra
fyrirtækisins og borgarlögmanni
verið falið að ganga frá sam-
þykktum fyrir hið nýja félag og
einnig að undirbúa lagafrum-
varp fyrir Orkuveituna. ■
4 drengir í Skotlandi
reknir úr skóla:
Bjuggu til
eiturlyf eftir
uppskrift á
Netinu
skólamál Fjórir nemendur við
einn virtasta skóla Skotlands
hafa verið reknir úr skólanum
eftir að upp komst að þeir hefðu
búið til helsælutöflur, eftir upp-
skrift sem þeir fundu á Netinu.
Drengirnir voru fluttir á sjúkra-
hús eftir að hafa tekið inn töfl-
urnar, en eru á góðum batavegi,
að því er kemur fram á fréttavef
BBC. Nemendurnir voru á fimm-
ta ári í skólanum, en námsgjöld
við skólann nema um 2,4 milljón-
um króna á ári. ■