Fréttablaðið - 08.11.2001, Side 10

Fréttablaðið - 08.11.2001, Side 10
I RETTABLAÐiÐ FRETTABLAÐIÐ 8. nóvember 2001 FIMMTUDAGUR 10 rírokiy hleypidómar og hleranir Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: (P-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. 1 BRÉF TIL BLAÐSINS~[ Engar gleðipillur Frá Tryggingastofnun ríkisins iyf í Staðtölum Tryggingastofnun- ar fyrir árið 2000 er m.a. fjallað um lyfjamál og gerð grein fyrir kostnaði við nokkra lyfjaflokka. í texta er notað orðið „gleðipil- la“ sem er bein þýðing á orðinu „lykkepillen" sem er mikið notað í Danmörku. Tryggingastofnun fellst á að þessi orðanotkun er óheppileg og hefur sært marga þá er þurfa að nota þessi lyf til hjálpar gegn erf- iðum sjúkdómum. Tryggingastofnun telur afar brýnt að koma fram við skjól- stæðinga af fullri viðringu og vill stuðla á virkan hátt að því aö geð- sjúkir geti lifað og starfað í þjóð- félaginu af fullri reisn. ■ Rústimar eiga heima í kjallaranum Þórður skrifar. fornleifar Það er alveg út í hött að halda því fram, eins og Ari gerir í Fréttablaðinu í gær, að rústirnar í Aðalstræti séu einhverjir píramídar íslendinga. íslendingar eiga enga píramída, nema þá helst bækurnar, sem með sögunum um Ingólf Arnarson, Egil Skalla- grímsson og alla hina. Þeim er sýndur fullur sómi vestur í Árna- stofnun og í hugum þeirra þús- unda íslendinga sem hafa þær að þráhyggju sinni. Rústirnar ætti fremur að kalla þústirnar, þær eru litlar og lágreistar og alls ekki svo merkilegar að það eigi að splæsa bestu lóðinni í miðbænum undir eitthvert minnismerki. Ég vil hvetja borgaryfirvöld til að byggja þarna hótel, eins og ætlun- in er, og hafa það sem stærst og mest. Hugmyndin um að hafa rústirnar sýnilegar í kjallaranum er ágæt; það fer vel á því, og það væri við hæfi að hafa mátulega lágt til lofts, svona eins og í torf- bæjunum, þannig að nútímafólk þurfi að ganga eilítið lotið til að virða þær fyrir sér. ■ Embættismenn hverju nafni sem þeir nefnast ættu að hafa að leiðarljósi, að virða skjólstæð- inga sína. Engu máli skiptir hverj- ir þeir eru. Grundvallarréttindi manna eru söm og jöfn í samfé- laginu, hver svo sem staða þeirra er að öðru leyti. Á þessu er oft verulegur misbrestur. í litlu landi flýgur fiskisagan og fólk á það til að tala um það sem ekki á erindi út fyrir veggi fyrirtækis eða stofnunar, án þess að nokkrir sjá- anlegir hagsmunir séu í húfi. For- vitni, sem er ein af höfuðdyggðum blaðamanna, má ekki fara út fyrir mörk þess sem þjónar almanna- hag. Blaðamenn standa oft fram- mi fyrir slíkum freistingum, en vitund um skyldur og eðli starfs- Þorsteinn Þorgeirsson: Fyrirtæki orðið fyrir búsifjum orsteinn Þorgeirsson, hag- fræðingur Samtaka iðnaðar- ins, segir að SI hafi kallað eftir vaxtalækkun frá því í vor. „Þótt aðstæður hafi breyst síðan þá, teljum við að vaxtastigið sé allt of hátt miðað við aðstæður." Þorsteinn segir fyrirtæki á ís- landi hafa orðið fyrir þungum búsifjum vegna sjálfstæðrar stjórnar peningamála. Ljóst sé að ört lækkandi eftirspurn, mikil gengistöp og viðvarandi hátt vaxtastig hafi sett mikinn þrýst- ing á fyrirtæki. Viðbúið sé að at- vinnuleysi vaxi á meðan Seðla- bankinn bíði eftir hagtölum sem staðfesta samdráttinn. „Verðbólgukúfur sem myndað- ist í ár í kjölfar gengislækkunar krónunnar er nú að ganga niður,“ segir Þorsteinn. Framleiðslu- spenna sé með öllu horfin og fyr- irsjáanlegt að slaki komi í hag- kerfið strax í vetur. „Þar sem breytingar á vaxtastiginu hafa áhrif eftir 6 til 18 mánuði, er orð- ið tímabært fyrir Seðlabankann að lækka vexti og það myndar- lega, því vaxtastigið hérna er í raun fáránlega hátt miðað við það, að verðbólgan verður að öllum lík- indum komin niður í 4% í lok næsta árs.“B cegn hryðjuverkum „A1 Kaída hef- ur starfsemi í meira en 60 lönd- um, þar á meðal í Mið- og Austur- Evrópu. Þessir hryðjuverkahópar reyna að draga úr jafnvægi innan einstakra ríkja og heimssvæða. Þeir reyna að komast yfir efna- vopn, sýklavopn og kjarnavopn. Miðað við tækin sem þeir beita geta þessir óvinir okkar ógnað hverri einustu þjóð, og að lokum siðmenningunni sjálfri. Þess vegna erum við staðráðin í að berjast gegn þessari illsku; berjast þar til við höfum rekið hana af höndum okkar. Við ætlum ekki að bíða eftir því að þeir sem staðið hafa að fjöldamorðum kom- ist yfir gjöreyðingarvopn. Við bregðumst við núna, af því að við verðum að losa samtíma okkar ins, á að vera yfirsterkari rammri taug forvitninnar. Sama gildir um símhleranir fangavarða. Það er óþolandi fyrir fólk sem lendir, af ýmsum ástæð- um, bak við lás og slá , að við frelsissviptinguna bætist að brot- inn séu á þeim persónuréttindi. Heimildir Fréttablaðsins um að fangaverðir hleri samtöl fanga, án heimildar og að nauðsynjalausu, eru í besta falli dæmi um stjórn- lausa forvitni. Að manni læðist sá grunur að rætur þessarar breytni séu dýpri og flóknari; að þær liggi í hroka og hleypidómum gagnvart skjólstæðingunum. Fangar eru auðvelt skotmark þeirra sem kjósa að veita annar- legum hvötum sínum útrás. Marg- Gunnar Páll Pálsson: Atvinnuleysi í pípunum Við teljum að það þurfi að lækka vexti. Hvort það líéfði átt að lækka þá mánuði fyrr eða síðar er erfitt að vita fyrr en eftir á. En það er ljóst að það stytt- ist í það,“ segir Gunnar Páll Páls- son, forstöðumaður hagdeildar Verslunarmannafélags Reykjavík- ur. Hann segir að atvinnuleysi sé meira en birtist í atvinnuleysistöl- um því fólki hefur verið sagt upp og sé ennþá að vinna uppsagnar- frestinn. „Við höfum lýst áhyggjum yfir því að það sé brugðist of seint við,“ segir Gunnar. Hann segir tvíbent skilaboð berast frá markaðnum. Annars vegar er atvinnuleysi ekki að aukast mjög hratt og launaskrið sé mikið. Hins vegar verður VR var við að fólki er sagt upp störf- um. „Það er hætt við að það komi hér mikill skellur upp úr áramót- um þegar uppsagnirnar taka gildi.“ Gunnar segir alveg ljóst að ekk- ert hrun hafi orðið og segist hafa skilning á því að Seðlabankinn hafi viljað biða eftir skýrari upplýsing- um um samdrátt. Þrátt fyrir að margir hafi kallað eftir vaxtalækk- un sé þessi afstaða bankans skilj- anleg þar sem hann hefur verið að verja verðbólgumarkmið sín.B undan þessari myrku ógn og bjar- ga komandi kynslóðum. [...] Okkur miðar vel að marki í þágu okkar réttláta málstaðar. Við beinum spjótum að hryðjuverka- mönnum og hernaðarskotmörkum af því að, ólíkt óvinum okkar, ber- um við virðingu fyrir mannslíf- um. Við gerum ekki saklaust fólk að skotmörkum og syrgjum þá erfiðu tíma sem talibanar hafa kallað yfir fólkið í sínu eigin landi. Herafli okkar vinnur mark- visst að markmiði sínu. Við höfum eyðilagt fjölmargar búðir hryðju- verkamanna. Við höfum rofið fjarskiptakerfi. Við erum að eyði- leggja loftvarnarkerfi og ráðumst nú á víglínu talibana. Ég hef séð fréttir um að marg- (________lyiál..m.a.n.n.a. Haflíði Helgason skrifar um hleranir í fangelsum ir hafa misstigið sig hraustlega og framið hin verstu verk. Sumir hafa engu skeytt um líf, eigur og virðingu samborgara sinna. Slíkt fordæmir siðað samfélag með dómum sínum. Við það á að láta sitja. Fangaverðir eru ekki fram- hald dómsvaldsins og hlutverk þeirra er að gæta þess að fangar fylgi reglum fangelsis og halda þeim þar meðan þeir afplána dóma. Þeim ber að sýna skjól- stæðingum sínum virðingu og tryggja þeim að ekki séu brotin á þeim réttindi. Fangavörður sem Kristín Pétursdóttir: Samkeppnisstaða versnar E' g tel líkur á að vextir lækki á næstu vikum. Það eru yínis merki þess að það sé að hægjast verulega á efnahags- starfseminni hérna," segir Kristín Pétursdóttir, sérfræðingur hjá Kaupþingi. Hún bendir á að frétt- ir berist á hverjum degi um aukið atvinnuleysi og von sé á að verð- bólga lækki nokkuð á næstunni. „Svo ég tel ágætis líkur á því að vextir lækki fyrir næstu árarnót." Kristín segir Seðlabankann vera að stýra sinni peningamála- stefnu í samræmi við verðbólgu- markmið, sem bankanum eru sett. Því hafi hann metið forsendur þan- nig að ekki sé ástæða til að lækka hér vexti. „Bankinn mun ekki lækka vexti fyrr en það sjást aug- ljós merki þess að hér sé að hægj- ast á efnahagsstarfseminni og verðbólga fari minnkandi," segir Kristín og telur augljóst að þess sjáist merki í efnahagslífinu í dag. Kristfn segir að samkeppnis- hæfni íslenskra fyrirtækja versni þegar þau búa við svona miklu hærri vexti en fyrirtæki í helstu samkeppnislöndum. „Fyrirtæki í löndunum í kringum okkur búa við vexti sem eru langt undir fimm prósentum á meðan við erum með vel yfir tíu prósent vexti.“ ■ ir afganskir borgar óska þess að talibanar hefðu aldrei leyft hryðjuverkamönnum A1 Kaída að setjast að í landinu. Ég áfellist þá ekki og ég vona að þessir borgar- ar aðstoði okkur við að staðsetja hryðjuverkamennina, vegna þess að því fyrr sem við finnum þá því betra verður líf þjóðarinnar. Það gæti tekið langan tíma en hversu langt sem líður munum við færa réttvísinni þá sem drápu þúsundir Bandaríkjamanna og þegna yfir 80 annarra þjóða. Misnotkun Afganistans sem þjálfunarbúða fyrir hryðjuverk mun linna. [-] Síðar í þessari viku mun ég gera Sameiðnuðu þjóðunum grein fyrir sýn minni á okkar sameigin- legu ábyrgð í stríðinu gegn ORÐRÉTT Bíðum ekki eftir að fjöldamorð- ingarfái gjöreyðingarvopn bregst þeirri skyldu er ekki starfi sínu vaxinn. ■ Viðhalda trúverðugleika Asgeir Jónsson, hagfræðingur á Hagfræðistofnun Háskóla ís- lands, segir að verðbólga hafi verið meiri en talið er æskilegt og þess vegna hafi menn verið tregir til þess að lækka vexti. Auk þess hef- ur krónan átt undir högg að sækja aukin vaxtamunur við útlönd hafi því ef til vill verið nauðsynlegur til þess að styðja við gengið. Hins vegar mun hátt váxtastig örugglega hafa neikvæð áhrif á at- vinnulífið þegar fram í sækir, og jafnvel valda einhverjum sam- drætti, enda ekkert einsdæmi að menn verði á velja á milli þess að viðhalda verðstöðugleika eða á hinn bóginn tryggja hagvöxt og at- vinnu. Markmið Seðlabankans samkvæmt lögum eru mjög skýr í þessu efni, lág verðbólga sé algert forgangsatriði. „Seðlabankinn þarf líka að hafa trúverðugleika í peningamála- stjórn sinni. Það má ekki líta þan- nig út að hann gefi eftir kröfum að- ila atvinnulífsins.“ Ásgeir segir að yfirlýsingar ein- stakra seðlabankamanna hafa gef- ið til kynna að þeir álíti að ástandið í efnahagsmálum sé að snúast mjög hratt til verri vegar, og því sé ef til vill ekki mjög langt að bíða og vextir lækki. ■ GEORGE W. BUSH hryðjuverkum. Ég mun gera sér- hverri þjóð grein fyrir því að þær skyldur leggja okkur á herðar annað og meira en að sýna samúð og mæla fram orð. Engin þjóð get- ur verið hlutlaus í þessum átökum vegna þess að engin siðmenntuð þjóð getur verið örugg í veröld sem býr við ógn hryðjuverka." Úr ávarpí George W. Bush, Bandaríkja- forseta, tíl ráðslefnu um baráttu gegn hryðjuverkum f Varsjá, 6. nóvember.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.