Fréttablaðið - 08.11.2001, Page 14

Fréttablaðið - 08.11.2001, Page 14
14 FRÉTTABLAÐIÐ 8. nóvember 2001 FIMMTUDAGUR KNATTSPYRNA Guðjón þrýstir á stjórn Stoke: Vill ólmur fá Pétur Væri það skynsamleg ákvörðu hjá Pétri Marteinssyni að fara til Stoke? „Það er eítthvað sem maður getur ekki metið sjálfur. Ef hann færi væri hann að fara í meira knattspyrnuumhverfi þótt íþróttin sé vinsæl í Noregi. England er Mekka knattspyrnunnar í Evrópu. Með því að vera þar á hann kannski mögu- leika á að komast til einhvers stærra liðs í Englandi, þ.e. ef hann stendur sig vel og ef hlutirnir ganga eftir hjá Stoke sem lítur annars ágætleg út núna." ■ Ásgeir Eliasson, þjálfari knattspyrna Guðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Stoke City, fundaði með stjórnarmönnum fé- lagsins í gær vegna Péturs Mart- einssonar, leikmanns Stabæk, en Guðjón vill ólmur fá hann til fé- lagsins, samkvæmt enska blaðinu The Sentinel. Pétur, sem er samn- ingslaus, átti í samningaviðræð- um við íslendingaliðið fyrir skömmu en stjórnin var ekki til- búin til að greiða honum nægilega há laun og því slitnaði upp úr við- ræðunum, Guðjóni til mikillar óá- nægju. Guðjón telur að Stoke þurfi á mun breiðari leikmannahópi að halda ef það ætli sér upp í 1. deild. í fyrradag gerði liðið 2-2 jafntefli við Blackpool á útivelli. Varnarmaðurinn Wayne Thomas var í banni og þykir líklegt að Guðjón hefði sett Brynjar Gunn- arsson í vörnina og Pétur á miðj- una, ef samningar hefðu tekist við hann á sínum tíma og mun Guðjón væntanlega hafa notað þetta sem rök á fundi sínum með stjórninni í gær. Þá mun hann ef- laust leggja mikið upp úr því að stjórnin semji við Pétur fyrir helgi, því miðvallarleikmaðurinn James O’Connor verður í banni á laugardaginn, þegar Stoke, sem er í þriðja sæti deildarinnar, tek- ur á móti toppliði Brentford. ■ Hörð barátta í 1. deild karla: Haukar mörðu sigur handbolti Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla í handknattleik í gær. Haukar mörðu sigur á nýliðum Sel- foss, 29-28. Selfyssingar höfðu frumkvæðið í leiknum lengst fram- an af og höfðu yfir í hálfleik, 15-17, en Haukar höfðu betur á lokamínút- um. Haukar halda því enn toppsæti deildarinnar og hafa þriggja stiga forskot á næsta lið. Gömlu erkifj- endurnir Víkingur og FH skildu jöfn í Víkinni, bæði lið skoruðu 23 mörk. í Ásgarði tók Stjarnan á móti ÍR og skildu liðin jöfn 21-21. ■ Viltu auka viðskiptin? Má bjóða þér athygli 78% íbúa höfuðborgar- svæðisins? Flokkaðar auglýsingar litlir en öflugir athygliskrókar! Heilsa Bílar Námskeið Sjá dæmi á bls. 23 (FRÍ;TTABl.AölÐ Auglýsingasími: 515 7515 Maradona í góðu formi Maradona er kominn til Argentínu frá Kúbu. Hann mætti tveimur tímum of seint á blaða- mannafund vegna kveðjuleiks hans á laugardaginn. Landsliðstreyja númer 10 verður tekin úr umferð eftir leikinn. knattspyrna Knattspyrnugoðið Diego Armando Maradona kom til Argentínu í fyrradag, en á laugar- daginn verður haldinn kveðjuleik- ur honum til heiðurs á Bombonera vellinum, heimavelli Boca Juniors. Maradona, sem er 41 árs, sagði á blaðamannafundi við komuna heim að hann væri við hestaheilsu, en undanfarna mánuði hefur hann dvalið á Kúbu þar sem hann hefur verið í meðferð vegna fíkniefna- vanda sem hann hefur átt við að etja. Leikurinn á laugardaginn verð- ur á milli argentínska landsliðsins, eins og það er skipað í dag, og heimsúrvalinu, en í því verða leik- menn eins og Hristo Stoichkov, Car- los Valderama, Enzo Francescoli, Eric Cantona og Romario. Mardona sagðist mjög stoltur yfir því að leik- urinn skyldi vera haldinn honum til heiðurs og lofaði því að hann myndi leggja sig allan fram. Hann fékk hjartaáfall í janúar á síðasta ári, sem rekja mátti til eiturlyfjaneyslu og í síðasta mánuði gekkst, undir smávægilega aðgerð á hné. Þrátt fyrir þetta sagðist hann vera í góðu formi og tilbúinn að leika í 100 mín- útur ef hann fengi það. Á blaðamannafundinum í gær þakkaði Maradona argentínska knattspyrnusambandinu fyrir þá ákvörðun að taka landsliðstreyju númer 10 úr umferð eftir leikinn á laugardaginn. Það verður gert til heiðurs þessum besta knattspyrnu- manni Argentínu fyrr og síðar, en hann skoraði 34 mörk í 91 landsleik frá 1977 til 1994. Líkt og menn bjuggust við mætti Maradona tveimur tímum of seint á blaðamannafundinn. Hann leit út fyrir að vera mjög ánægður og yfirvegaður á fundinum, sem stóð yfir í um klukkustund og ræddi hann við blaðamenn um ým- islegt. Auk knattspyrnu ræddi hann um argentínska stjórnmála- menn og stríðið í Afganistan. Þá sendi hann baráttukveðjur til Car- los Menem, fyrrverandi forseta Argentínu og góðs vinar síns, en hann situr nú í stofufangelsi vegna ásakana um ólöglega vopnasölu. Maradona óskaði argentinska landsliðinu til hamningju með frá- bæran árangur undanfarið, en það hefur ekki tapað leik síðan í júlí og er talið eitt allra sigurstrangleg- asta liðið í Heimsmeistarakeppn- inni í Japan og Suður-Kóreu á næsta ári. „Það er ekkert lið sem leikur eins og Argentína gerir núna,“ sagði Maradona. „Þeir verða bara að halda þessum stöðugleika fram á næsta ár og þá verðum við mjög sterkir á HM.“ Rúmlega fjögur ár eru síðan Maradona lék síðast opinberan leik, en það var með Boca Juniors gegn River Plate í apríl 1997. Nokkrum sinnum hefur verið reynt að skipuleggja kveðjuleik honum til heiðurs en vegna deilna um tímasetningu og það hvernig leikurinn ætti að vera var það ekki fyrr en í ágúst sem það var loks tókst. Á 20 ára ferli varð Maradona BREYTTUR MAÐUR Maradona sendi baráttukveðjur til Carlos Menem, fyrn/erandi forseta Argentínu og góðs vinar síns, en hann situr nú í stofu- fangelsi vegna ásakana um ólöglega vopnasölu. m.a. ítalskur og argentínskur deild- armeistari og leiddi landsliðið til sigurs á HM 1986. Á síðasta ári kaus Alþjoðaknattspyrnusamband- ið hann og Pele bestu knattspyrnu- menn sögunnar. Þá gaf hann einnig út ævisögu sína I am Diego, sem varð metsölubók. trausti@frettabladid.is Patrick Vieira: Zidane freistar knattspyrna Patrick Vieira, fran- ski landsliðsmaðurinn hjá Arsenal, segist vera spenntur að spila við hlið landa síns Zinedine Zidane hjá Real Madrid. Vieira var orðaður vió spænska stór- veldið í sumar og samkvæmt fréttum frá Spáni er Zidane byrj- aður að þrýsta á stjórn Madridar liðsins á að gera tilboð í leik- manninn. „Hann [Zidane] er einstakur leikmaður og ef hann fer fögrum orðum um mig er það vegna þess að hann líkar við leikstíl minn,“ sagði Vieira í samtali við dag- blaðið Marca. Hann neitar því ekki né játar hvort hann muni patrick vieira Hefur spilað stórkostlega á miðjunni með Arsenal undanfarin ár. Hann er aðeins 25 ára og á því mikið eftir. spila á Bernabeu leikvanginum á næstu árum. „Maður veit aldrei, af hverju ekki? En nú er ég ekki að hugsa um það, en svo gæti vel farið." ■ Leikmannamál: Blomqvist til Everton knattspyrna Everton hefur mjög óvænt samið við sænska kant- manninn Jesper Blomqvist, sem hefur verið hjá Man. Utd. síðan 1998. Blomqvist hefur verið frá vegna meiðsla í tvö ár og rann samningur hans við Man. Utd. út í vor. Ilann hefur hins vegar fengið að æfa með liðinu síðan þá til að koma sér aftur í form. Walter Smith, framkvæmda- stjóri Everton, sagði að Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Man. Utd., hefði gefið Blomqvist góð meðmæli. Hann sagði að samningurinn myndi gilda út þetta tímabil og að með tilkomu Blomqvist breikkaði leikmanna- hópur Everton. Hann sagðist hafa JESPER BLOMQVIST Alex Ferguson mælti með Blomqvist við Walter Smith. trú á að Blomqvist ætti enn nóg eftir, en að líklega þyrfti hann að leika nokkra leiki með varaliðinu til að koma sér í leikform. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.