Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2001, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 08.11.2001, Qupperneq 22
22 FRÉTTABLAÐIÐ 8. nóvember 2001 FIMMTUDAGUR HRAÐSOÐIÐ ÁRNI GUÐMUNDSSON Þriðjungur verslana brýt- ur tóbakslögin HVAÐ kom út úr síðustu könnun ykk- ar um ólöglega tóbakssölu verslana i Hafnar- firði til unglinga undír 18 ára aldri? „Það eru 35% verslana sem selja unglingum tóbak, eða 10-11 versl- anir af öllum þeim 31 sem eru í bænum. Þótt þetta sé alls ekki nógu gott þá er þetta þó betri niðurstaða en var þegar við hófum að kanna þetta árið 1996. Þá voru 90-94% verslana sem seldu unglingum undir 18 ára aldri tóbak. í þessum könnun- um hefur komið fram að það eru ákveðnar verslanir sem virða tó- bakslögin algjörlega að vettugi á meðan flestar þeirra eru að reyna að fara eftir þeim.“ HVAÐ er til ráða? „Með nýju lögunum verða verslun- areigendur að sækja um tóbaksölu- leyfi. Þótt við viljum ekki vera í neinum lögguleik þá teljum við að besta ráðið til að ráða bót á þessu sé m.a .sú að fólk kæri þetta til lög- reglu þegar það verður vitni að því þegar verið sé að brjóta lögin á þennan hátt. Við höfum hins vegar með þessum könnunum verið að vekja athygli á viðhorfinu og sýna fram á að þetta sé enn fyrir hendi þrátt fyrir lögin sem banna sölu á tó- baki til unglinga undir 18 ára aldri. Það er líka mjög hvimleitt að þurfa að halda úti könnunum sem þessum til margra ára til að fá fólk til að virða lög. Það er mjög sérstætt. Þótt þessi niðurstaða gefi til kynna að ástand þessara mála sé einna best í Hafnarfirði, þá tel ég að þetta sýni að verslunin eigi langt í land til þess að geta selt jafn viðkvæma vöru eins og t.d. áfengi." HVERNIG rökstyður þú það? „Ég tel að ef verslunin getur ekki farið eftir tóbaksvarnarlögunum, þá er varla ástæða til að ætla að þeir hinir sömu muni virða bann við áfengissölu til þeirra sem ekki hafa aldur til slíkra kaupa.“ VERÐUR þessum könnunum haldið áfram? „Já, það ætlum við að gera. Hins vegar má segja að við ofurefli sé við að etja þar sem eru þær auglýsingar tóbaksiðnaðarins sem beinast að unga fólkinu með aðstoð ýmsra fyr- irmynda þess í tísku og kvikmynda- heiminum." Árni Guðmundsson er æskulýðs- og tóm- stundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar og formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar. Arthur C. Clarke: Hafnar ferð til Playboy set- ursins fyrir borðtennis sri lanka. ap Arthur C. Clarke til- kynnti í fyrradag að hann ætlar ekki að ferðast til Playboy seturs Hugh Heffner í Los Angeles til að vera viðstaddur verðlaunaafhend- ingu Arthur C. Clarke verðlaun- anna. Þau er veitt fólki, sem þykir hafa skarað fram úr í sjónvarps- þátta- og kvikmyndagerð. „Ég mun auðvitað sakna vina minna. Löng ferðalög eru hins- vegar út úr myndinni hjá mér,“ sagði Clarke, sem er orðinn 83 ára gamall. Hann hefur verið ötull í skrifum í langan tíma en er hvað þekktastur fyrir söguna að 2001: A Space Oddyssey, sem Stanley Kubrick kvikmyndaði árið 1969. Myndin verður sýnd á Kvik- myndahátíð í Reykjavík. Clarke er í hjólastól vegna fylgikvilla mænusóttar, sem hann fékk árið 1959. „Ég vil láta lítið á mér bera og hafa nægan tíma af- lögu til að hlusta á góða tónlist og spila borðtennis. Stundum finnst mér ég vinna allt of mikið.“ Verðlaunin verða veitt í kvöld- verðarboði 15. nóvember. Skipu- leggjendur hjá Frumkvöðlastofn- un geimvísinda segja að leikstjór- inn James Cameron og leikarinn Tom Hanks verði umsjónarmenn kvöldsins og að geimfararnir Buzz Aldrin og Jim Lovell ætli að mæta. Þó að Clarke sitji heima á Sri Lanka ætlar hann samt að reyna að koma á gervihnattasambandi við samkomuna í Los Angeles, bæði til að ávarpa hana og fylgj- ast með framgangi mála. ■ Ætlar ekki að snæða með geimförum og öðrum framémönnum á Arthur C. Clarke verðlaunaafhendingunni í Los Angeles, er í góðu yfirlæti á Sri Lanka. FRÉTTIR AF FÓLKI Iþróttadeild Deiglunnar.com finnst árangur Atla Eðvalds- sonar, landliðsþjálfara vera ásættanlegur, miðað við að hann hafi einungis ver- ið ráðinn í hluta- starf á sínum tíma. „Að lokinni riðlakeppni EM í haust lá Atli undir ámæli og dráttur varð á að gengið yrði frá endurráðningunni. Ár- angur Atla við stjórn liðsins er hins vegar fullkomlega ásættan- legur þegar haft er í huga að Atli var á sínum tíma ráðinn til að sinna starfi landsliðsþjálfara í hlutastarfi. Það er auðvitað ekki hægt að ætlast til þess, að maður í hlutastarfi kynni sér ástand leikmanna sem eru atvinnumenn erlendis eða rannsaki leik and- stæðinga landsliðsins fyrirfram. Það er einfaldlega ekki það sem hann fær borgað fyrir að gera,“ segir í fréttinni. Tónlistarkennarar eru í verk- falli þessa dagana og margir nemendur um land allt sem verða af tónlistarnámi þessa dagana. Svo er þó ekki um grunnskóla- nemendur í fjórða bekk á ísafirði og í Bolungarvík. Þar læra nem- endur þessa dagana á klarinett og kornett undir handleiðslu tónlist- armannanna Guðmundar Nordal og Tómasar Guðna Eggertssonar að því er greinir frá á fréttavef Bæjarins besta. í Grunnskólanum á ísafirði er námið valfrjálst en í grunnskólanum í Bolungarvík er kennslan hins vegar hluti af skipulögðu skólastarfi. Kennt verður fram á vorið en eftir það eiga börnin möguleika á að æfa með skólahljómsveit og eins geta þau haldið náminu áfram í tón- listarskólunum. „Markmiðið er að börnin kynnist blásturshljóðfær- um og fá innsýn í lúðrasveita- starf,“ segir í fréttinni. Gera má því skóna að þeir Guðmundur og Tómas hafi ráðið sig sem grunn- skólakennara, en tónlistarskóla- kennarar eru nú með mun lægri laun en þeir. Ragnar Óskarsson bæjarfull- trúi Vestmannaeyjalistans mun ekki gefa ekki kost á sér við bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Ragnar sagðist vera búinn að vera í bæjarstjórn nær óslitið frá 1978 og þessi ákvörðun var tekin í sátt og samráði við hans stuðningsmenn segir á fréttavef Eyjafrétta. Kaldir stjórnmálmenn á lista Kremlverja eru allir úr Sjálfstæðisflokknum, þar fer fyrstur forsætisráðherra, Davíð Oddsson „stjórnmálamaður á út- leið. Á enn eftir að tapa kosning- um og tölfræðin segir okkur að nú styttist í það. Verður líklega stunginn í bakið af Framsóknar- flokknum eftir næstu kosningar og endar sinn feril sem geðvond- ur stjórnarandstæðingur," segja Kremlverjara. Hinir sem þykja kaldir eru Árni M. Mathiesen „þjóðin hætt að hafa áhuga á Með minnispunkta á handarbaki Veturinn er genginn í garð og tími til kominn að setja vetrardekkin undir. Asgeir Gíslason hefur verið í bransanum í sautján ár og segir Islendinga þurfa smá skot til að koma sér á vetrardekkin. ÁSGEIR GÍSLASON Hefur rekið hjólbarðaverkstæði Sigurjóns í 17 ár. Aðspurður hvort það hafi ekki hvarfl- að að honum að skipta um nafn sagði hann. „Nei, þetta er ágætis nafn. Sigurjón var sjálfur búinn að vera lengi í þessu svo það er ágætt að halda bara nafninu." fólk „Það er búið að vera mjög mikið að gera síðustu daga og í raun í allt haust,“ segir Asgeir, sem rekið hefur Hjólbarðar- verkstæði Sigurjóns við Hátún 2a, síðastliðin 17 ár. Hann segir íslendinga hafa verið nokkuð tímanlega í að skipta um dekk í ár miðað við oft áður. „Það var töluvert af fólki búið að skipta áður en þetta fór í gang fyrir alvöru. Það koma hálka þarna fyrir nokkrum vik- um, einn laugardag, og þá fór þetta í gang. En þetta var byrjað að hjaðna þegar frostið kom fyr- ir alvöru." „íslendingar verða alltaf að fá smá skot til að koma sér af stað en það er alveg eðlilegt því það er ekki gaman að berja á nöglum." Samkvæmt lögum má setja nagladekkinn undir bílinn þann 31. október en þau verða að vera farin af 15. apríl. „Það er öruggara að vera tím- anlega og menn eru kannski dá- lítið seinir á dekkin en kannski af þeim líka,“ segir Ásgeir. Hann er með um tíu manns í vinnu, að hluta til skólafólk, en það er helmingi fleiri en í venju- legum mánuð. Hann segir það léttara að fá mannskap til vinnu nú en oft áður en honum veitir ekki af því álagið er mikið. „Þetta hefur sýnilega gengið mjög vel í dag [þriðjudag] en við afgreiddum 182 bíla en 140 dag- inn á undan.“ Ásgeir segir það taka mis- langan tíma að skipta um dekk á bílum, það fari eftir því hvort um jeppa eða fólksbíl sé að ræða, eða hvort bíllinn sé á álfelgum eða ei. „Bílarnir eru miserfiðir og þegar þarf að líma lóðin á álfelgur þá tekur það lengri tíma en venjulegar stálfelgur. Maður verður að gefa sér tíma í þetta. Svo fer það líka eftir því hvort það komi mikið af jeppum, því þá minnka af- köstin." Það er margt sem þarf að muna þegar fjöldi viðskiptavina er slíkur og rak blaðamaður augu í að Ásgeir hripar minnisp- unkta á handarbak sér. „Það kemur fyrir að ég skrifi á handarbakið á mér en það er þeir hlutir sem ég vil alls ekki gleyma," segir Ásgeir en bætir við hlæjandi. „Það þurrkaðist að vísu smá út fyrir nokkrum dögum en ég gat, sem betur fer, rifjað það aftur upp.“ Hann segist ekki hafa boðið upp á loftbóludekkin svokölluðu og velur sjálfur nagladekin fyr- ir íslenskan vetur. Hann segir þó lítin mun vera á dekkjunum. „Þetta er allt ágætt- ágætis viðbót í flóruna. „ kristjan@frettab!adid.is sjávarútvegsmálunum og engir nema vinalausustu kverúlantarn- ir gefa sig á tal við hann. Þeir eru að vísu allir trylltir yfir að- gerðum Árna og munu ekki hætta fyrr en síðustu leifar strákslega gaflaraglottsins hafa verið þurrk- aðar af andliti og allt,“ Inga Jóna Þórðardóttir „verður borg- arstjóri þegar síðasti Reykvík- ingurinn deyr úr miltisbrandi. Ef Sjálfstæðismenn ætla að vinna borgina, þá verða þeir að skipta henni út fyrir bara einhvern annan. T.d. Albert Jensen vel- vakanda," og Árni Johnsen, „mun líklega ekki ná mómentum fyrir kommbakki bak við lás og slá.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.