Fréttablaðið - 07.12.2001, Qupperneq 2
i
l
►
2
t
Sörur landsliðsþjálfara
DEYR EKKI RÁÐALAUS
Atli Eðvaldsson var um skeið atvinnumað-
ur í knattspyrnu með Uerdingen í Þýska-
landi. Hann þjálfaði KR í knattspyrnu og
gerði þá að Islandsmeisturum en er nú
þjálfari landsliðsins.
Fréttablaðið fór fram á uppskrift-
ina því hann segir að 99% af kök-
unum sem hann borði séu keyptar
eða hann fái þær að gjöf frá syst-
ur sinni, Önnu Jónínu. Landsliðs-
þjálfarinn dó þó ekki ráðalaus og
leitaði á náðir systur sinnar. Atli
segir mikið mál að baka kökurnar
Systir Atla Eðvalds-
sonar hjálpar upp á
sakirnar þegar hann
reiðir fram uppskrift
að uppáhaldskökun-
um smum.
Uppáhaldskökur Atla Eðvalds-
sonar, landsliðsþjálfara í
knattspyrnu, eru Sörur. Það var
hins vegar úr vöndu að ráða þegar
7. desember 2001
sorur
100 g möndlur, malaðar
2 eggiahvítur
3/4 dl sykur
1/2 dl vatn
3 eggjarauður
150 g smjör
kakó eftir smekk
100 g suðusúkkulaði
aðferð Kökurnar: Eggjahvítur
þeyttar og möndlum blandað án
þess að hvíturnar falli. Bökunar-
pappír settur á plötu og deigið sett
; þunnt á með teskeið (mjög mikil-
vægt að nota teskeið). Kökurnar
bakaðar í 10 mínútur við 200-225
ltj.LLmiUl
gráður eða 160 gráður í blástur-
sofni. Kökurnar kældar.
Kremið: Vatn og sykur sett saman í
pott og passað að sykurinn brenni
ekki. Bráðin er orðin hæfilega þykk
þegar drýpur af skeiðinni. Þessu er
hellt í mjórri bunu út í eggjarauðu
sem er hrærð á meðan. Kæla
blönduna vel áður en smjöri er
bætt smátt og smátt við (smjörið á
að vera mjúkt). Kakói bætt út í eft-
ir smekk.
Kremið sett á kökurnar og hjúpað
með súkkulaðibráð. Kökumar
kældar.
en Anna Jónína ætlar að hjálpa
honum fyrir þessi jól. „Það er
jafnerfitt að baka þær og þær eru
góðar. En hún er nokkuð lúnkin
við þetta enda mikil afmælis- og
jólamanneskja," sagði Atli ■
Af vitringun-
um þremur
Jólastund í Kaffileikhúsinu.
IKaffileikhúsinu verður á að-
ventunni flutt jólaleikritið
Missa Solemnis sem er einleikur
eftir finnsku leikkonuna og leik-
stjórann Kristiinu Hurmerinta.
Þar segir frá vitringunum þrem-
ur sem við þekkjum úr guðspjöll-
unum og fylgdu stjörnu Jesú-
barnsins og færðu því gjafir, gull
reykelsi og myrru.
Einleikurinn er innlegg Kaffi-
leikhússins til jólanna, helgi- og
kyrrðarstund sem fólki býðst að
njóta í önn jólaundirbúningsins.
Leikari er Jórunn Th. Sigurðar-
dóttir. Sýnt verður sunnudaginn
9. desember kl. 16 og aftur næsta
sunnudag, 16. desember á sama
tíma. Á Þorláksmessu er stefnt
að miðnætursýningu kl. 24. ■
í öskrandi jólaskapi
íris í Buttercup er
ekki byrjuð að kaupa
jólagjafirnar en stefnir
að því að ljúka því
sem fyrst.
/
Iris Kristinsdóttir, söngkona
hljómsveitarinnar vinsælu
Buttercup var í góðum jólagír
þegar Fréttablaðið náði tali af
henni. „Ég er búin að skreyta,
allavega að hluta til, búin að gera
kransinn og þetta allt saman þan-
nig að maður er búin að kveikja á
einu kerti. Maður er bara að und-
irbúa jólin og reyna að slaka á.
Það er alltaf svo mikið stress í
gangi í kringum jólin. Síðan reyn-
ir maður að klára jólagjafirnar
sem fyrst, en ég er hins vegar
ekki byrjuð. Ég stefni þó að því að
klára það hvað úr hverju; fyrir
miðjan mánuðinn. Þá getur maður
notið þess að fara niður í bæ á
Þorláksmessu og fengið sér heitt
kakó í staðinn fyrir að vera að
kaupa jólagjafir þá.“
Hvað með jólahlaðborð, ferðu í
einhver slík? Já, maður fer alltaf
með vinnunni og ég held að það sé
búið að plana eitt jólahlaðborð."
En ætli söngkonan sé mikið gefin
fyrir jólalög? „Ég hlusta rosalega
mikið á jólalög. Ég bíð alltaf allt
árið eftir desember svo ég geti
hlustað á jólalög. Ég er rosalega
mikið jólabarn." Ertu þá komin í
jólaskap? „Já, já, ég er alveg í
öskrandi jólaskapi." ■
HLUSTAR MIKIÐ Á JÓLALÖG
íris Krístinsdóttir í Buttercup aetlar
að njóta þess að slappa af á Þor-
láksmessunni og fá sér heitt kakó
niðri í miðbae.