Fréttablaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 8
Amerískar súkkulaðibita- kökur a la amma Silja Ulfarsdóttir bakar með mömmu sinni. Spretthlauparinn Silja Úlfars- dóttir segir að amerísku súkkulaðikökurnar hennar ömmu séu ótrúlega góðar. Þegar hún var yngri hafi hún þó ekki viljað smakka þær vegna þess að í þeim eru hnetur. Nú þurfi hins vegar að fela þær fyrir henni svo þær klárist ekki fyrir jólin. Silja segir að amma hennar baki þessar kök- ur fyrir alla fjölskylduna en að hún hafi aldrei viljað gefa upp uppskriftina fyrr en núna. Að sögn Silju er jólabakstur- inn nauðsynlegur hluti af jóla- undirbúningnum. Hún segist ætla að baka smákökur með mömmu sinni og systur, en að amma yrði látin um að baka am- erísku súkkulaðibitakökurnar. Engum öðrum væri treystandi til þess. ■ Amerískar sukkulaðibitakokur 300 g smjörlíki 340 g strasykur 340 g púðursykur 4 egg 450 g hveiti 2 tsk. sódaduft 2 tsk. salt Nokkrir dropar af heitu vatni 2 bollar af brytjuðum möndlum eða hnetum 4 bollar af söxuðu súkkulaði Smá sletta af vanilludropum SPRETTHLAUPARI Silja Úlfarsóttir er einn fremsti spretthlaup- ari íslands. Hún flytur með kærastanum sinum, til Bandaríkjanna í janúar, en þar hyggst hún stunda nám við Clemson-há- skóla í Suður-Karolínu og keppa fyrir skól- ann. AÐFERÐ: Byrjað er á að blanda sam- an smjörlíkinu, strásykrinum og púðursykrinum og síðan er hinu bætt við. Deigið er sett í plastpoka og geymt í ísskáp í þrjá til fjóra daga. Það er síðan flatt út og búnar til litlar smákökur. Þær eru settar á plötu og eiga að bakast í 140 gráðu heitum ofni (blástursofni) í um 20 mínútur. 7. desember 2001 Þekkt og óþekkt jólatónlist Söngsveitin Fílharmónía með aðventu- tónleika í Langholtskirkju Söngsveitin Fílharmónía heldur árlega aðventutónleika í Lang- holtskirkju. Haldnir voru tónleik- ar á miðvikudag og fimmtudag og á sunnudag, 9. desember, verða þriðju og síðustu tónieikarnir. Tónleikar á aðventu hafa verið fastur liður í starfi söngsveitar- innar frá 1989. Efnisskráin er blanda af sígildum, þekktum lög- um og öðrum nýjum eða lítt þekktum hér á landi. Meðal þess sem flutt verður er verkið The Lamb eftir John Tavener, enskt tónskáld sem nýtur mikillar virð- ingar um þessar mundir og mótettan Ave Verum Corpus eftir William Byrd, sem lést 1623. Þá eru á efnisskránni tvö ný verk eft- ir Hildigunni Rúnarsdóttur og heita þau Hirðarar sjá og heyrðu en texti þess er eftir Einar Sig- urðsson skáld í Eydölum og Sé ástin einlæg og hlý og er texti þess þýdd dönsk þjóðvísa. Sigrún I-Ijálmtýsdóttir er ein- söngvari á tónleikunum þetta árið. Þá fær söngsveitin liðsinni kammersveitar við flutning stær- ri verkanna. Á tónleikunum eiga áheyrendur þess kost að taka und- ir í tveimur lögum og hefur það SYNGJA MEÐ DIDDÚ Á SUNNUDAGINN Söngsveitin Filharmónía hefur haldið jólatónleika árlega síðan 1989. ævinlega mælst vel fyrir. meistari á tónleikunum er Rut Sigurðardóttir og raddþjálfari El- Stjórnandi söngsveitarinnar er Ingólfsdóttir. Píanóleikari ísabet Erlingsdóttir. Tónleikarnir Bernharður Wilkinson og konsert- söngsveitarinnar er Guðríður St. hefjast kl. 20.30. ■ Besti vinur bútasaumskonunnar Þeir sem kaupa Husqvarna tölvuvél fyrir jólin fá frítt útsaums- og quilttækninámskeió eftir áramótin. Husqvarna saumavelar a kr 29 900 stgr VOLUSTEINN tilboösveró fra fy fi f' Jólakúlukeppnin okkar er hafín!! Sendu okkur þínar kúlur, bjöllur, engla eöa hvaö sem er og taktu þátt f skemmtilegri keppni þar sem veglegar vöruúttektir eru íboöi fyrir efstu þrjú sætin. Skilafrestur er til 10. desember og geta vegfarendur skoöað hlutina hjá okkur og gefið atkvæði. 1. verölaun eru kr. 30.000 2. verölaun eru kr. 20.000 3. verðlaun eru kr. 10.000 *Verölaunaupphæðir eru vöruúttektir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.