Fréttablaðið - 07.12.2001, Síða 6

Fréttablaðið - 07.12.2001, Síða 6
Hálfmánarnir hennar mömmu eru í miklu uppáhaldi órey Edda Elísdóttir, einn fremsti stangarstökkvari ís- lands, segist sjaldan baka en að hálfmánarnir sem mamma hennar baki fyrir jólin séu í miklu uppá- haldi hjá sér. Hún segist hafa hjálpað mömmu sinni að baka þeg- ar hún var yngri en nú gefist henni ekki tími til þess, þar sem hún sé í verkfræði í Háskóla íslands og að æfa. Þórey Edda segist reikna með að hún muni baka meira þegar hún verði aðeins eldri og hafi meiri tíma til að undirbúa jólin. Þó 500 g hveiti 200 g smjörlíki 200 g sykur 1 egg . 150 g miolk 1/2 tsk. kanill 1/2 tsk. kardimommudropar 1/2 tsk. hjartarsalt 1/2 tsk. lyftiduft aðferð: Deigið er hnoðað og flatt út. Svo er notað glas til að búa til hringi og sett sulta í miðjuna á hverjum hring og svo er honum lokað með gaffli. finnist henni ekkert sérstaklega gaman að ganga frá eftir bakstur- inn. ■ 7. desember 2001 EKKI FYRR FRÁGANGINN Þórey Edda er einn fremsti stangarstökkvari íslands. Hún er að æfa á fullu þessa dagana fyrir mót í janúar og Evrópumeistaramótið er um mánaðarmótin febrúar mars. Hún náði 6. sæti á Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Edomonton I Kanada í sumar. EKKI JÓLABARN Erpur Eyvindarson er þó önnum kafinn þessa dagana. Ekki hrifinn af jólalögum Rapparinn og sjónvarpsmaðurinn Erpur Eyvindarson hefur í nógu að snúast fram að jólum. Hann segist ekki vera mikið jólabarn í sér en lík- ar hins vegar vel við jólaljósin í skammdeginu. Erpur Eyvindarson, söngvari rapphljómsveitarinnar um- búðalausu X Rottweilerhunda, hefur í ýmsu að snúast á aðvent- unni. „Það verður brjáluð vinna allt fram að jólum út af Johnny og Rottweiler og það fer eigin- lega allur tíminn í það, en ég er nú að reyna að fara til mömmu og pabba. Síðasta sunnudag fór ég til þeirra og borðaði hangi- kjöt og drakk allt appelsínið." Ertu kominn í jólaskap? „Já, já, en ég er ekkert jólabarn. Það er ágætt að það séu einhver ljós, einhver diskóljós sem lýsa að- eins upp og þannig mætti það vera áfram í desember, janúar, febrúar og mars. Ég nenni samt ekki að skreyta eða gera neitt svoleiðis. “ Ferðu í jólahlaðborð? „Mér er alveg sama hver ástæðan er, partý er alltaf hressandi, alltaf gaman, hvort sem það er afmæli eða eitthvert íþróttapartý, mér er nokk sama.“ Aðspurður um jólainnkaup segist hann fara í þau á aðfangadag. En ætli Erpur hlusti mikið á jólalög? „Þegar það er verið að búa til plötu þá eru tekin upp fullt af lögum og þá eru alltaf einhver lög sem eru handónýt og virka ekki og eru alveg ömurleg. Svo koma jólin og þá eru þessi lög tekin og þetta er ónýtt „material" sem ekki undir nokkrum kringum- stæðum er hægt að gera neitt við. Á jólunum eru lögin tekin og svo er skeytt inn í viðlögin svona „jóla, jóla“ eitthvað og svo kemur þetta út sem jólalag. Jólalög; mér líður eins og í gasklefa þegar þau eru í gangi. Rottweiler gerði reyndar eitt jólalag fyrir seinustu jól og það var svona ekkert hefðbundið jólalag. Það var líka tekið upp með allt öðru sjónarhorni. Þar var meðal annars talað um að berja jólasveina með kú- beini...“ ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.