Fréttablaðið - 22.12.2001, Side 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
22. desember 2001 LAUGARDAGUR
SPURNING DAGSINS
Hjálpræðisherinn:
A annað hundrað
í jólamatinn í ár
Saknar þú jólasnjósins?
„Ég sakna hans, ég neita því ekki. Við feng-
um smá smjörþef um daginn og vonandi
kemur hann aftur."
Þorvaldur Finnsson, leigubílsstjóri
hjálparstarf Ragnheiður Jóna Ár-
mannsdóttir kapteinn hjá Hjálp-
ræðishernum býst við að hátt í
130 manns muni koma í mat hjá
þeim klukkan 18 á aðfangadags-
kvöld. í gær höfðu 80 manns
skráð sig í hátíðarmatinn. Þarna
eiga í hlut einstæðingar, barna-
fjölskyldur, sjúklingar, öryrkjar
og aðrir sem minna mega sín í
samfélaginu. Þetta er nokkru
meira en var i fyrra. Hún segir
að frá því í haust hafi verið mik-
ið að gera við að aðstoða fólk með
matarúttektir og fatnað sem get-
ur ekki séð sér farborða vegna
fjárhagslegra erfiðleika og fá-
tæktar. Hún er ekki frá því að
þessi aðstoð hafi aukist frá síð-
asta ári.
Þá virðist almenningur vera
þokkalega jákvæður fyrir því að
gefa í söfnunarbauka Hjálpræð-
ishersins um þessar mundir eins
og endranær. Það sem safnast á
hverju ári er svo notað til að
styðja þá sem eru minnimáttar í
samfélaginu sem leita ásjár hjá
þeim. Þessir fjármunir koma sér
einnig vel vegna aðstoðar fyrir
jólin ár hvert. ■
RAGNHEIÐUR JÓNA
ÁRMANNSDÓTTIR KAPTEINN
Segir að þeim virðist fara fjölgandi sem
leita sér aðstoðar vegna fátæktar.
KRISTALSGLÖS
Krístalsglös Og kaffibollar f úfvali.
ó horni
Barónsstígs og Grettisgötu
Sfmi: 562 10 29
Raf-
geyma
þjónusta
t>á finnst mér jólin
loks vera komin
Jakobi Þórarinssyni varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar finnst að þegar fólk streymi
í kirkjugarðana á aðfangadag þá hefjist hátíðin.
HELGISTUND f MATSALNUM
Strákarnir í umferðardeild lögreglunnar eiga saman helgistund og syngja sálm á aðfangadagsmorgni.
JÓL Jakob Þórarinsson varðstjóri í
umferðardeild lögreglunnar í
Reykjavík verður í fyrsta sinn í
sjö ár, í fríi um jólin. Hann þekkir
því vel til á lögreglustöðinni um
jólin og þá tilfinningu að vera
fjarri fjölskyldunni. „Það er til-
tölulega rólegt um jólin en þó get-
ur brugðið til hins verra þegar
komið er fram að öðrum í jólum.
Þá er því miður ekki óalgengt að
við förum í hús þar sem heimilis-
ófriður ríkir eða áfengi er haft
ótæpilega um hönd og mér finnst
það alltaf jafn sorglegt.“ Jakob
segir að á aðfangadag hafi þeir
sem eru á vakt í umferðardeild-
inni það til siðs að koma saman í
matsalnum. „Presturinn okkar á
með okkur helgistund og við
syngjum saman sálm. Síðan förum
við í kirkjugarðana og aðstoðum
fólk við að komast þangað og
stjórnum umferðinni. Umferðin
þar hefur aukist ár frá ári og ekki
vanþörf á að vera sýnilegur. Þá
fyrst finnst mér jólin vera að hefj-
ast þegar leið fólks liggur í kirkju-
garðinn. Um kvöldið er síðan mjög
rólegt og lítið um útköll. Embættið
sér okkur fyrir nógu af fínt
smurðu brauði og gosdrykkjum en
við fáum ekki heita máltíð."
Jakob segir menn reyna að
hliðra til svo þeir geti skroppið
heim og borðað með fjölskyldunni
en síðan komi þeir aftur og ljúki
sinni vakt. „Við reynum að taka til-
lit til þeirra yngri sem eiga lítil
börn og leyfum þeim að fara fyrr
heim ef það er mögulegt."
Jakob hlakkar mjög til þessara
jóla enda langt síðan hann fékk
gott frí um jól. „Ég hef saknað
þess að geta ekíd tekið þátt í
matseldinni með konunni og öllu
því sem fylgir því ég hef svo gam-
an af að elda. Nú ætla ég svo sann-
arlega að slaka á því ég á ekki að
fara aftur að vinna fyrr en eftir
jól. Það hittist svona á núna að ég
á gott frí en þannig er það hjá okk-
ur að við förum eftir okkar vakta-
skrá og því ræður kylfa kasti með
það hvernig jól og áramót koma út
hjá hverjum og einum. ■
Seinni hálfleikur eftir hjá sjúkraliðum
VELALAND"
VÉLASALA • TURBÍNUR
VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR
Vagnhöföi 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
kjaramál Kristín Á. Guðmunds-
dóttir formaður Sjúkraliðafélags
íslands segir að það sé gífurleg
vinna framundan við að fylgja eft-
ir ákvæðum nýgerðra kjarasamn-
inga og þá aðallega við sjúkra-
stofnanir víðs vegar á landsbyggð-
inni. Hún telur einsýnt að þetta
verk muni standa yfir allt næsta ár
ef að líkum lætur. Athygli vekur að
nefnd sú sem heilbrigðisráðherra
ætlaði að skipa til að fjalla um end-
urskoðun á réttindum og skyldum
sjúkraliða hefur ekki enn tekið til
starfa. Þá virðist ekki heldur bóla
neitt á reglugerð ráðuneytisins
sem ætlun er að gefa út til skýr-
inga á lögum um sjúkraliða.
Bíldshöfða 18, 110 Reykjavík, sími: 587-1777
Hún segir að vinnan framundan
felist einkum í því að hrinda í
framkvæmd vinnustaðasamning-
um sem gerður voru við ríkið.
Samkvæmt ákvæðum samningsins
eiga vinnustaðasamningarnir að
færa sjúkraliða upp í ákveðnar
starfslýsingar, auka við verksvið
sjúkraliða og bæta við starfsleg
réttindi þeirra. Hún segir að ein-
hverra hluta vegna hafi þessi
ákvæði ekki skilað sér í reynd því
þau áttu að koma til framkvæmda
frá og með 1. nóvember sl. Þá hafa
einnig komið upp vandamál vegna
samnings sjúkraliða við Launa-
nefnd sveitarfélaga. Þau stafa að-
allega af því að verið sé að breyta
verksviði sjúkraliða frá því sem
verið hefur, öndvert við það sem
samið var um. Það er m.a. rökstutt
með því að laun þeirra hafi hækk-
að svo mikið að nauðsynlegt sé að
hagræða á móti. ■
Jólasveinar! Jólasveinar!
Búningarnir ykkar eru komnir.
SALA OG LEIGA.
Kveðja Grýla
s: 555 0021 og s: 552 4898