Fréttablaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 24. janúar 2002 FIMMTUPAGUR Skagfirðingar athugið! Þorrablót verður haldið laugardagskvöldið 2. febrúar 2002 í Akógessalnum - Sóltúni 3 (2. hæð) Húsið opnar kl:19 Fjölbreytt og glæsilegf þorraborð. Sönghópurinn Veirurnar. Óvæntar uppákomur. Veislustjóri: Sölvi Sveinsson, Ari Jónsson og Hilmar Sverrisson leika fyrir dansi. Miðaverð 3500 kr. Tryggið ykkur miða í tíma. Forsala aðgöngumiöa fer fram í Drangey - Stakkahlíð 17 Laugardaginn 26. jan. 2002, ki 14 - 16 eða hjá eftirtöldum: Bílaspítalinn s: 565 - 4338 (Ingvi) , Denna s: 565 - 8649, Óli Jóh. s: 564 - 3294 Skemmtum okkur að skagfirskum sið! HESTAFLUTNINGAR KG-FLUTNINGAR S. 695 8558, 854 5558, 426 8562 Útsala Flísar Dagana 27. janúar til 2. febrúar verður 15-20% afsláttur á öllum vörum á lager Mílanó-Flísaverslun Ármúla 17a - Sími: 511 1660 Álafoss-föt bezt Miðnæturtónleikar Bubbi Morthens og hljómsveitin Stríð og friður föstudagskvöld 25. janúar. Steindór Andersen og Sigur Rós. Þorrablót 2. og 16. feb. á Álafossi þar sem Steindór og hljómsveitin Sigur Rós sjá um þjóðlega dagskrá. Sjá nánar á alafoss.is Álafoss-föt bezt 566 8585 Þrífum bíla utan sem innan • Alþrif • Mössun • Djúphreinsun • Vönduö vinna • Vélarþvottur • Tökum í umboðssölu hljómflutningstæki í bíla • Aðstoðum við ísetningu hljómflutningstækja í bíla, einnig viö minniháttar bílaviðgerðir GERUM TILBDÐ TIL FYRIRTÆKJA OG STOFNANA SÆKJUM OG SENDUM BÍLA LÁTUM FAGMENN UINNA UERKIN BÓNSTÖÐIN BÓN OG ÞRIF Smiðjuvegi 44e, gul gata - Sími 564 0330 Há lendingar- og þjónustugjöld í Keflavík: Go hættir Islandsflugi samgöncur Lágfargjaldaflugfélag- ið Go mun ekki fljúga til íslands í sumar eins og tvö undanfarin ár vegna hárra lendingar- og þjón- ustugjalda í Keflavík. Meginástæða þess að félagið hættir áætlunarflugi milli London og Keflavíkur er sú, að lendingar- gjöld og afgreiðslukostnaður á Keflavíkurflugvelli er allt of hár fyrir lágfargjaldaflugfélög, segir í fréttatilkynningu. Go útilokar þó ekki að félagið muni endurskoða flug til íslands á næsta ári ef for- sendur breytast. Kostnaðurinn á Keflavikurfíugvelli er að jafnaði tvisvar sinnum hærri en á flestöll- um öðrum flugvöllum sem Go flýgur til í Evrópu. „Okkur þykir mjög leitt að geta ekki hafið flug til Islands í sumar, en við verðum að halda öllum kostnaði í algjöru lágmarki til að geta ávallt boðið lægstu mögulegu fargjöldin. Þess vegna höfum við ákveðið að einbeita okkur að þeim áfangastöðum þar sem við getum haldið þessum kostnaði í lágmarki. Það er krafa nútíma ferðamanns- ins,“ segir David Melivio, mark- aðsstjóri Go. Go flaug fjórum sin- num í vikum milli London og Keflavíkur sumarið 2000. í fyrra flaug félagið þessa leið alla daga vikunnar um sumarið og fjórum sinnum í viku til loka október. ■ INNLENT Tilkynnt var um þrjú innbrot til lögreglunnar í Reykjavík í gær. Gluggi var brotinn upp í bakhurð húss í Mosfellsbæ og ýmsu verð- mætu stolið. Bílar á Borgarbílasöl- unni á Grensásvegi fengu ekki að vera í friði og geymsla í Unufelli var opnuð. Rótað var um allt íbúð- arhúsið og leitað að verðmætum. Ýmislegt var horfið eins og hljóm- flutningssamstæða, tölva, skanni, fjórar myndavélar, GPS staðsetn- ingartæki, vídeomyndavél, tveir sjónaukar, fatnaður, leður- kventaska og ilmvatn. Verðmæti þessara muna er óljóst. Á bílasöl- unni var farið inn í tvo bíla og það- an stolið geislaspilurum. Geymslan hýsti barnakerru og átta kippur af Kóka kóla sem hvarf. Lögreglan vinnur að rannsókn málanna. Samkeppni um bryggjuhverfi á norðurbakkanum í Hafnarfirði hefst í febrúar: Þrír aðilar taka þátt í lokaðri samkeppni V NORÐURBAKKINN Lokuð samkeppni um hönnun norðurbakkans hefst í næsta mánuði. Sigurður Einarsson, formaður skipulagsnefndar Hafnarfjarðar vildi ekki gefa upp hvaða aðilar koma að sam- keppninni. HAFNARFJÖRÐUR Skipulagsstjóri Hafnarfjarðar hefur sett sig í sam- band við fulltrúa Norðurbakka ehf. um samstarf varðandi fyrirhugaða uppbyggingu á norðurbakka Hafn- arfjarðarhafnar. Hafnarfjarðar- bær, Þyrping hf. og J&K Eignar- haldsfélag ehf., sem eiga fasteign- ir á norðurbakkanum, gerðu með sér samstarfssamning um skipu- lagningu og uppbyggingu íbúða- hverfis á norðurbakkanum og á landfyllingu vestan við hafnar- bakkann. „Þrátt fyrir að bæjarráð hafi ekki sent þetta í allar nefndir tók- um við þetta mál upp, því þetta er fyrst og fremst mál skipulags- nefndar,“ sagði Sigurður Einars- son, formaður skipulags- og um- ferðarnefndar Hafnarfjarðar. „Á sínum tíma áttum við þátt í að undirbúa þetta mál með okkar ráðgjafa, Richard Abraham, sem vann tillögur fyrir miðbæ Hafnar- fjarðar. Þá voru þessar hugmyndir viðraðar og þá var eðlilegt að við tækjum málið upp.“ Fyrirhuguð er lokuð samkeppni um hönnun svæðisins. Þar er rætt um allt að 600 íbúðir fyrir um 1800 manns og á uppbyggingunni að vera lokið fyrir mitt ár 2006. „Við erum að ræða hvaða for- sendur við teljum að eigi að koma inn í þessa samkeppni. Það verður tekið fyrir á fundi skipulagsnefnd- ar næsta þriðjudag.“ Að sögn Sigurðar er hugmyndin sú að samkeppnin hefjist í mars og taki um tvo mánuði. Þremur aðil- um hefur verið boðið að taka þátt og fá þeir greitt fyrir sínar hug- myndir. Hann vildi þó ekki gefa upp um hvaða aðila væri að ræða. Fasteignirnar sem nú standa á norðurbakkanum verða afhentar 1. júlí, 2003. Um er að ræða hús- næði sem kennt hefur verið við Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, Norð- urstjörnuna og fasteignir Jóna hf. kristjan@frettabladid.is Dönsk innflytjendalöggjöf: Hlynntir hertum reglum könnun Helmingur Dana er hlynntur tillögum dönsku ríkis- stjórnarinnar um að herða á inn- flytjendalöggjöfinni samkvæmt skoðanakönnun sem Jyllands- Posten birti í gær. Helmingur þeirra sem voru spurðir sögðu tillögurnar hæfilegar. 34% töldu að hert væri um of á innflytj- endalöggjöfinni. 7% voru þeirr- ar skoðunar að herða ætti enn frekar á löggjöfinni. Samkvæmt könnuninni er meirihluti Dana hlynntur því að sjö ár líði áður en innflytjendur fái varanlegt dvalarleyfi. Sam- kvæmt núverandi löggjöf þurfa þrjú ár að líða. Meirihluti er ein- nig hlynntur því að innflytjend- ur verði að vera orðnir 24 ára gamlir áður en þeir fá leyfi til að fá maka sína frá öðrum löndum til sín. Ýmis mannréttindasamtök hafa orðið til að gagnrýna dönsk stjórnvöld fyrir tillögur sínar um að herða á innflytjendalög- gjöf. Stjórnvöld segja að tillög- urnar gangi engan vegin í ber- högg við alþjóðasáttmála sem Danir eru aðilar að. ■ MISJAFNLEGA TEKIÐ Stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir breyt- ingar sínar. Egginu var hins vegar kastað I forsætisráðherrann fyrir að gera ekki nóg í málefnum heimilislausra. 15-60% afsláttur Stólar - borð - skápar - hillur - Ijós Mörkinni 3,108 Reykjavík, sími 588 0640

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.