Fréttablaðið - 24.01.2002, Qupperneq 24
I
FRETTABLAÐIÐ
HYUNDAI Mu/ti<2$
: Total IT Solution Provider
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, slmbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20
VlB SECJUWI FRÉTTiR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Hagkvæm og traust tölva
fcxiTÆKNIBÆR Skipholti 50C
S: 551-6700 www.tb.is
Umboðsaðili HYUNDAI á Islandi
IsjSYi I
tengingar
1 a
’ Intemetpiónusta
/\OSL ráil gjafínn þtinn!
[777
Sími SES
Bakþankar
STEINUNN STEFANSDÓTTIR
Gleðin í
hinu smáa
Lífið er eins og snjóbolti sem rúll-
ar niður brekku, hraðar og hrað-
ar. Fólk er stundum að furða sig á
því hvað tíminn er farinn að líða
hratt en það hefur kannski ekki beint
með tímann að gera heldur frekar
það hvernig hvert ár, mánuður og
vika er alltaf minna brot af öllu lífi
manns. Flestir muna áreiðanlega
hvað eitt skólaár í æsku gat verið
óendanlega lengi að líða. Þetta má
svo bera saman við hversu furðulega
stutt er frá hausti og fram á vor þeg-
ar á fullorðinsárin er komið, að ekki
sé minnst á það hvernig sumarið þýt-
ur hjá.
HÆTTANVIÐþað hvað tíminn líð-
ur hratt er að við gleymum að njóta
þess sem er. Kannski finnst okkur
ekki taka því vegna þess að það er
hvort sem er svo fljótt búið. Hitt er
líklegra að við föllum í þá gryfju að
finnast alltaf vera svo stutt í eitthvað
betra eða að við töpum okkur í bið-
inni eftir betri tíð. Við ætlum kanns-
ki að vinna rosalega mikið núna og
minnka svo verulega við okkur vinn-
una á næsta ári, eða þarnæsta. Þegar
sá tími er kominn höfum við gleymt
þeim áformum okkar af einhverjum
ástæðum eða erum farin að bíða eftir
enn betri tíð. Á meðan sniglast tími
barnanna okkar áfram og allt tal um
næsta ár eða þarnæsta jafnast nán-
ast á við að vera að tala um næsta líf
hjá okkur hinum.
AÐ LIFA FYRIR FRAMTÍÐINA
er hættuleg gryfja sem margir falla
í. Auðvitað koma tímar sem eru ekki
jafnskemmtilegir eða góðir og aðrir
og þá er gott að eiga kost á að hlakka
til. Lífið snýst ekki eingöngu um líð-
andi stund. Við verðum að horfa
fram á veginn líka. Hins vegar má
sýnin til framtíðar ekki ná yfirhönd-
inni. Lífið er hverfult og það líður
svo hratt. Ekki viljum við standa
uppi einn góðan veðurdag og finnast
það hafa þotið hjá, án þess að við
höfum eiginlega tekið eftir því.
LÍFIÐ STENDUR YFIR einmitt á
þessari stundu. Þess vegna er svo
mikilvægt að njóta stundarinnar, að
finna gleðina í litlu hlutunum með
fram þeim stóru. Þegar öllu er á
botninn hvolft eru það kannski ein-
mitt þeir sem veita okkur mesta
gleði í lífinu, fyrir utan börnin sem
eru stærsta verkefni og mesti gleði-
gjafi þeirra sem þau eiga. Bragðast
morgunkaffið ekki annars vel? ■
BLÁA BOMBAN
T DEBENHAMS
ERÍ FULLUM GANGI!
Bd%
50°/<
mmm
' <jfr .j
iSS
PjjP* -J; 1
rm
Awi
r% ik r' w"B‘
ERUM JAFNFRAMT AÐ TAKA UPP MIKIÐ LJRVAL AF NÝJUM VÖRUM
NÝTT KORTATiMABIL
DEBENHAMS
SMÁRALIND
Tandurhrein tilboö á þvottavélum,
þurrkurum og uppþvottavélum
15-20% afsláttur
BRÆDURNIR
ORMSSON
HEIMILISTÆKI
Lágmúla 8 • Sími 530 2800