Fréttablaðið - 31.01.2002, Side 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
31. janúar 2002 FIIMMTUPAGUR
HÁSKÓLABÍÓ
&iú
I J
Sýnd kl. 5, 7 og 9
AMELIE kl. 5.30,8 og 10301
Irecína kL 5!
Sýnd kl. 8
IMAVAHLATUR kL6|
ELLINC kLloj
FILMUNPUR
|la vie de boheme kl. 10.301
ALFABAKKA 8, SIMI 587 8900
C.ii
www.samfitm.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
IDOMESTIC DIST... kl. 8 og 10.15 | |VT lATLANTIS m/isLtali wTlp!j
|k-pax kl. 5.30, 8 og 10.201OT IHARRY POTTER m/isltali kL4ÍW
Iregína kl. 4 og 61 pTj ÍHARRYPOTTER m/ens.tali ku]|ST|
1 FRÉTTIR AF FÓLKI
Sita
Þakniðurföll
Eigum á lager
þakniðurföll,
með eða án hita.
Með mismunandi
dúkum til álímingar
eða suðu
^ VATNBVmKINN #hf.
Ármúla 21, Simi: 533-2020
Diesel
stillingar
VELALAIMD
VÉLASALA • TÚRBÍNUR
VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR
Vagnhöföi 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis, sími
551 9090
Sumir menn verða að bíómynd-
um, aðrir að bókum en Boy Ge-
orge er nú orðinn að söngleik. Verk-
ið heitir „Taboo“
og byggir á ævi
poppstjörnunnar.
Söngleikurinn var
frumsýndur í
London í vikunni
og fékk afbragðs
dóma. Margar
stjörnur létu sjá
sig á frumsýning-
unni, m.a. Charlotte Church,
Andrew Lloyd Webber og maðurinn
sjálfur. Boy George lenti í ýmsu
eftir að hann sló í gegn snemma á
níunda áratuginum, þ.á.m. heróín-
fíkn og miklu aðkasti fjölmiðla.
Honum hefur alla tíð fundist hann
vera vanmetinn sem lagahöfundur.
Victoria Beckham segist ekki
vilja syngja dúett með ein-
hverri af vinkonum sínum úr Spice
Girls. Eins og er sé
hún að einbeita sér
af sólóferlinum og
slíkt myndi aðeins
rugla fólk í riminu.
Hún segir einnig
að Kryddstúlkurn-
ar hafi engin
áform um að taka
upp nýja plötu í
náinni framtíð. Það eina sem sé á
dagskránni sé safnplata með vin-
sælustu lögum þeirra.
Nú eru byrjaðir að birtast dómar
um handrit væntanlegrar Star
Wars myndar á Netinu. Samkvæmt
dómunum, sem
skrifaðir eru af að-
dáendum sem
segjast hafa lesið
handritið, á mynd-
in að innihalda
fleiri hasar atriði
en nokkur önnur
Stjörnustríðs-
mynd. Á heimasíð-
unni www.darkhorizons.com segir
„gagnrýnandinn" að myndin skili
öllu því sem Episode 1 lofaði en
klikkaði svo á. í myndinni eru
morðtilræði, þrjú einvígi, tveir
bardagar í lofti, ein stór landorr-
usta, þrír skrímslabardagar auk
þess sem ástin svífur yfir vötnum.
Aðal illmenni myndarinnar heitir
Count Dooku og er leikinn af
Christopher Lee sem síðast fór
með hlutverk Sarúman í Hringa-
dróttinssögu. Myndin er frumsýnd
hér á landi þann 17.maí.
ÚTSKRIFAST I VOR
Steinunn leikstjóri segir verkefnið hafa einkennst af tilraunum og hópvinnu. Stuðst er við myndbandsvélar, hljóðnema og
leikið með leikstflinn.
Hugarheimar Krúsídúllu
Nemendaleikhúsið frumsýndi á laugardaginn verkið , Jslands þúsund
tár“ eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Verkið gerist í blokk í Breiðholti þar sem
sama fjölskyldan býr í öllum íbúðum, í öllum bænum á öllu landinu.
leikhúS „Það er grimm ádeila í
verkinu á íslenska sjálfsmynd,"
segir Steinunn Hildigunnur
Knútsdóttir leikstjóri. „Um hver
við teljum okkur vera og á
ákveðna tegund þjóðrembu. Við
erum svo ung þjóð að okkar
sjálfsmynd er ekki sterk. Þá vill
oft brenna við að-Akveðin minni-
máttarkennd kemur fram í létt-
um hroka eða þjóðarrembu."
Fjölskyldan sem verkið fjall-
ar um er nútímafólk og í raun
táknmynd hinnar íslensku „þjóð-
arfjölskyldu'*. Heimilsfaðirinn
(Ólafur Egill Egilsson) er sjón-
varpsstjarna og upplifir hann líf
sitt og eiginkonu sinnar (Tinnu
Hrafnsdóttur) í gegnum fjöl-
miðla. Aðalpersónan er þó dóttir
þeirra Krúsídúlla (Vigdís
Hrefna Pálsdóttir) sem er inn-
hverf og heldur sig því mest til
heima hjá sér, nánast lokuð inn í
eigin hugarheimi. Það sem vek-
ur athygli er að það þarf þrjá
leikara til þess að túlka persónu
Krúsídúllu.
„Vigdís leikur Krúsídúllu í
gegnum allt verkið. Hinar
„Krúsídúllurnar“ verða til í
miðju verkinu og eiga að standa
fyrir sitt hvora hlið hennar," út-
skýrir Steinunn. „Hún klofnar.
Hún á þó alls ekki við geðræn
vandamál að stríða. Þessir klofn-
ingar standa fyrir mjög sterk öfl
innra með henni. Ánnarsvegar
prinsessuna (Brynja Valdís
Gísladóttir) sem er í afneitun og
vill breiða yfir allt og hafa allt
gott. Hins vegar beinagrindina
(Unnur Ösp Stefánsdóttir) sem
sér sannleikann."
Steinunn segir leikritið ekki
lýsa atburðum heldur sé í raun
sýn inn í hugarástand
Krúsídúllu. Til dæmis upplifi
áhorfandinn allar aðrar persón-
ur leikritsins í gegnum hana.
Kynnt eru til sögunnar afi
stúlkunnar (Gísli Pétur Hinriks-
son) og amma hennar (Arnbjörg
Hlíf Valsdóttir) sem þó enginn
annar sér nema hún. „Amma
hennar er dáinn og Krúsídúlla
ein hefur samskipti við hana.
Amman er hennar förunautur í
gegnum allt verkið. Hún er
hennar verndarengill."
Eina persónan sem ekki er
meðlimur fjölskyldunnar er dul-
arfullur pizzasendill (ívar Örn
Sverrisson). „Hann er ein-
hversskonar prins á hvítum
hesti. Hann stendur fyrir það
sem er spennandi og framandi
og sést mjög lítið í gegnum verk-
ið.“
Steinunn segir að það hafi
verið markmið hjá henni og
hópnum að prófa nýja hluti.
Steinunn hefur stundað leiklist-
arnám bæði í Danmörku og
Bretlandi og að eigin sögn feng-
ist mikið við jaðarleikhús. Hún
lumar því á allskyns nýstárleg-
um vinnuaðferðum. „Við styðj-
umst við myndbandsvélar, hljóð-
nema og leikum okkur mikið
með leikstílinn. Þannig að þetta
hefur verið mjög mikið tilrauna-
verkefni og hópvinna. Við tókum
ákveðna áhættu og erum búin að
skila fínni sýningu sem ég stend
alveg 100 prósent við.“
biggi@frettabladid.is