Fréttablaðið - 31.01.2002, Page 24
HYUNDAI Mu!tí(S3
Total IT Solutíon Provider
f^TÆKNIBÆR Skipholti 50C
S: 551-6700 www.tb.is
SÍMANÚIVIER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, simbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 7520
AlOSL ráti aiafínn fHnnt
V10 SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á lMSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Ævintýri handa
borgarbörnum
Einusinni í firndinni í framandi og
fjarlægu landi fyrir austan sól
og sunnan mána var maður sem hét
Vúlpes Vúlpekúla. Hann var alvöru-
gefinn og velættaður dugnaðarfork-
ur og samt var hann bara ráðherra.
Vúlpes var orðinn hundleiður á því
að rykfalla í ráðuneytinu og hugur
hans stóð til að verða um síðir aðal-
ritari Flokksins. Hann fékk því pró-
fessor Rammstein til að hjálpa sér
að semja leikfléttu, en Rammstein
var prófessor í frjálshyggju og fana-
tík við Háskólann og hafði verið
settur í það embætti til að hafa næði
til að tilbiðja Margréti Thatcher og
stunda heimatrúboð.
ÞAÐ stóð ekki á prófessornum að
sjóða saman hernaðaráætlun. „Hver
er valdamesta staðan í landinu?"
spurði hann. „Auðvitað staða okkar
háæruverðuga og margblessaða að-
alritara," sagði Vúlpes steinhissa.
„Að sjálfsögðu," sagði prófessor
Rammstein, „en hvaða staða er
næstvaldamest í ríkinu?" „Borgar-
stjóraembættið?" sagði Vúlpes eftir
dálitla umhugsun. „Laukrétt," sagði
hinn slóttugi Rammstein. „Borgin er
stökkpallurinn - af þeim palli steypti
aðalritarinn sér kollskít upp í sitt
háa embætti loflegrar minningar. Nú
þurfum við að gera þig að borgar-
stjóra."
ÞETTA var snilldarhugmynd og
Vúlpes lét þau boð út ganga að hann
gæti hugsað sér að verða borgarstjóri
með lýðræðislegum hætti ef enginn
byði sig fram á móti honum. Allir í
hans flokki voru lýðræðislega sinnað-
ir og drógu sig því samstundis í hlé.
ANDSTÆÐINGAR FLOKKSINS
voru hins vegar andlýðræðislega
sinnaðir og heimtuðu kosningar.
Þessi mótþrói kom ráðherranum
mjög á óvart. „Hvað á ég nú að
segja,“ spurði hann ráðgjafa sinn.
FRETTABLAÐIÐ
Hagkvæm og traust tölva
Umboðsaðili HYUNDAI a Islandi
Fiesta Gasgrill frá Esso
Bensínúttekt
10 bensínúttektir
tengingar
'TV? 2.040
„Þú skalt bara segja að þú sért með
eitthvað uppi í erminni," sagði
Rammstein. „En ég er ekki með neitt
uppi í erminni," sagði ráðherrann.
„Þú ert með ráðherrastól uppi í
erminni og hefur engu að tapa,“
sagði prófessor Rammstein. „Gleym-
um samt ekki því sem refurinn sagði
þegar hann nauðgaði broddgeltinum:
Engin er rós án þyrna. Nú erum við
búnir að búa til framboð og eigum
eftir að búa til eftirspurn. Eftirleik-
urinn er alltaf óvandaðri." Köttur úti
í mýri setti upp á sig stýri... ■
...aðeins betra
EVRÓPUKEPPNIN í HANDBOLTA SVÍÞjÓÐ 2002
Verið velkomin í
sýningarsal okkar og
kynnið ykkur 2002
iínuna. Fagleg ráðgjöf,
stuttur afgreiðslutími og
persónuleg þjónusta.
Þú þarft ekki að leita lengra
til að fá það betra
Stuttur afgreiðslutími
BRÆÐURNIR
OKMSSON
Lágmúla 8 • Sími 530 2800