Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2002, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 31.01.2002, Qupperneq 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 51. janúar 2002 FIIVllVITUDflGUR | STUTT | Vinstri-grænir á Akranesi eru á fullu í undirbúningi fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Efnt er til málefnafunda alla laugardaga fram að páskum. Samhliða því er kjör- nefnd að störfum sem á að skila til- lögum að framboðslista fyrir félags- fund sem tekur endanlega ákvörðun um skipan á lista. Stefnt er að því að listinn verði tilbúinn fyrir páska. —♦— Norðmenn ætia á næstu árum að reisa sjö hundruð vindmyllur meðfram ströndinni. Nú þegar er búið að samþykkja að 300 þeirra verði reistar. Norsks ríkisútvarpið skýrði frá þessu í gær. Segir útvarp- ið að samtals eigi þessar sjö hund- ruð vindmyllur að framleiða orku, sem er álíka mikil og frá tveimur gasorkuverum. Samfylkingin: Prófkjör í Kópavogi SVEITARSTJÓRNARKOSNINCAR Sam- fylkingin í Kópavogi hefur ákveðið að viðhafa prófkjör til að stilla upp í fjögur efstu sæti listans fyrir bæjarstjórnarkosn- ingarnar í maí nk. Niðurstaða prófkjörs verður bindandi í fjög- ur efstu sætin að því gefnu að tryggt sé að minnst einn einstak- lingur af hvoru kyni sé meðal þriggja efstu. Gangi það ekki eftir er uppstillingarnefnd heim- ilt að víkja frá niðurstöðum prófkjörsins til að tryggja jöfn- uð milli kynja í efstu sætin. Samfylkingin bíður nú fram í fyrsta skipti við bæjarstjórnar- kosningar í Kópavogi. Fyrir fjórum árum var boðið fram í nafni Kópavogslistans. Sá listi fékk fjóra bæjarfulltrúa. Odd- viti listans þá var Flosi Eiríks- son. Þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær kvaðst hann ekki vera búinn að taka endanlega ákvörðun um hvort hann gæfi kost á sér áfram til að leiða list- ann. Kristín Jónsdóttir, sem skipaði 2. sætið síðast, gefur ekki kost á sér til endurkjörs. ■ ,1 SfMINN Einkavæðingarnefnd gæti þurft að leita annarra kaupenda. Sala Símans til TDG: _r Utboðsgeng- ið of hátt síminn Danska símafyrirtækið TDC er ekki reiðubúið til að greiða 5,75 krónur á hlut fyrir 25% í Símanum. Fréttastofa Sjónvarps greindi frá. Skarphéð- inn Steinarsson, starfsmaður einkavæðingarnefndar, vildi ekki staðfesta þetta í samtali við blaðið í. Nefndarmenn áttu samningafund með fulltrúum TDC í London fyrr í mánuðinum en samskipti í kjölfar þess hafa ekki leitt til niðurstöðu. Bréf Símans voru boðin al- menningi á genginu 5,75 í sept- ember sl. en þá reyndist áhugi fyrir þeim lítill. Salan átti að skila samtals um 10 milljörðum en aðeins fengust tveir milljarð- Gengi Símans á VÞI: Lækkun niður fyrir útboðsgengi hlutabréf Gengi bréfa Símans á Tilboðsmarkaði Verðbréfaþings fór niður í 5,50 krónur í nokkrum viðskiptum í gær. Hæst náðu bréf- in genginu 6,35 um miðjan desem- bermánuð á meðan útlit var fyrir að sala fjórðungshlutar til kjöl- festufjárfestis væri á næsta leyti. Það hefur þó ekki gengið eftir og nemur lækkunin á tímabilinu 15%. Útboðsgengi bréfanna til almenn- ings í september sl. var 5,75. Búnaðarbankinn fer með við- skiptavakt bréfanna samkvæmt samningi við Landssímann. Guð- mundur Guðmundsson, yfirmaður fyrirtækjaþróunar bankans, stað- festi að almennir fjárfestar sem keyptu í útboðinu hafi selt í gær. Þeir hafi því verið tilbúnir til að taka á sig 25 aura gengistap á hlut fremur en að halda bréfunum í von um hækkun. Samkvæmt samningi við einka- væðingarnefnd skuldbatt Búnaðar- bankinn sig til að selja bréf í eigu ríkisins ekki á lægra gengi en 6,10. Guðmundur segir að samningurinn hafi runnið út í nóvember og eng- inn áhugi komið fram, hvorki hjá bankanum né einkavæðingar- nefnd, til að endurnýja. ■ SfMlNN Verðmæti Símans er komið undir 40 millj- arða samkvæmt markaðsvirði á VÞl'. Vilja friðlýsa borgina fyrir kjarnorkuvopnum Einnig efna- og sýklavopnum. Tillaga frá fulltrúa R-lista í umhverfis- og heilbrigðisnefnd. Mörg sveitarfélög gert það sama. Getur valdið NATO og öðrum herjum erfiðleikum við að heimsækja borgina umhverfi Svo getur farið að NATO, Bandaríkjaher og önnur herveldi muni eiga í erfiðleikum með heimsækja Reykjavík ef til- laga Kolbeins Proppé fulltrúa R- lista í umhverfis- og heilbrigðis- nefnd nær fram að ganga. Á síð- asta fundi nefndarinnar lagði hann fram tillögu þess efnis að nefndin vísi því til borgarstjórnar að samþykkt verði að borgarland- ið verði friðlýst fyrir umferð og geymslu kjarnorku-, efna- og sýídavopna. Þótt nefndin hafi frestað afgreiðslu tillögunnar að ósk Guðlaugs Þórs Þórðarsonar fulltrúa sjálfstæð- ismanna í nefnd- inni býst Kolbeinn við að tillagan verði samþykkt á næsta fundi henn- ar eftir hálfan mánuð. í það minnsta telur hann að undirtekt- ir annarra nefnd- armanna við til- lögunni hafi verið mjög jákvæðar. Kolbeinn segir að ef tillagan verður samþykkt verði óheimilt að koma með þessu lífshættuleg vopn hingað í umdæmi borgar- innar. Af þeim sökum sé ljóst að sérhver hermálayfirvöld verða að gera grein fyrir því hvort þeir- ra menn séu með slík vopn með- ferðis þegar t.d. herskip koma til hafnar í Reykjavík.í greinargerð með tillögu sinni bendir Kolbeinn m.a. á að sveitarstjórnir víðs veg- ar um landið hafa verið að sam- þykkja tillögur um að friðlýsa þau fyrir umferð og geymslu þessara vopna í samræmi við .-♦— • Verði tillagan samþykkt verður óheim- ilt að koma með þessi vopn í um- dæmi borgar- innar. —♦— HERSKIP NATO Verði tillagan samþykkt getur hún þrengt að heimsóknum t.d. herskipa og kafbáta til Reykjavíkurhafnar. „Abolition" 2000 fyrir sveitarfé- lög, þ.e. kjarnorkulaus svæði. Þarna eru m.a. sveitarfélög eins og Akureyri, Akranes, Húsavík, Skagafjörður, Fjarðabyggð, Breiðdalsvík, Árborg, Siglufjörð- ur og Vopnafjörður og fleiri. Hann segir að ástæðan fyrir því að tillagan skuli koma fram í um- hverfis- og heilbrigðisnefnd sé vegna þess að þarna sé um um- hverfismál að ræða. í því sam- bandi bendir hann að borgarbúar þurfa nánast ekki að spyrja að leikslokum ef svo skyldi henda að slys verði með einhverjum af þessum vopnum í borgarlandinu. grh@frettabladid.is Dýrkeyptur ökutúr: Atta mánaða fangelsisvist pómsmál Síbrotamaður sem ók ökuréttindalaus hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi. Með akstrinum rauf maðurinn skilorð sem hann var settur á til tveggja ára þegar honum var veitt reynslulausn úr fangelsi í janúar í fyrra. Hann átti þá eftir að af- plána 200 daga fangelsisvist, eða tæpa sjö mánuði. Maðurinn hefur fengið á sig 24 dóma frá því árið 1992, aðallega fyrir brot á almennum hegningar- lögum og einnig fyrir brot á um- ferðarlögum. Alls hefur honum í þessum dómum verið gert að sæta fangelsi í 62 mánuði. ■ SIGURÐUR jóhann Hættir í bæjarstjórn eftir 28 ára starf að bæjarmálum. Breytingar á Akureyri: Hættir eftir 28 ár KOSNINCAUNPIRBÚNINCUR Tals- verðar breytingar verða á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri frá þeim lista sem boð- inn var fram fyrir síðustu sveit- arstjórnarkosningar. Fréttablað- ið hefur áður greint frá því að einn bæjarfulltrúi flokksins hafi flutt úr sveitarfélaginu og annar andast. Nú liggur ljóst fyrir að Sigurður Jóhann Sigurðsson gef- ur ekki kost á sér til áframhald- andi setu í bæjarstjórn. Sigurð- ur var fyrst kosinn í bæjarstjórn árið 1974 og hefur því verið bæj- arfulltrúi í 28 ár samfellt þegar kjörtímabilinu lýkur. Uppstillingarnefnd er nú að störfum við að stilla upp fram- boðslista fyrir sveitarstjórnar- kosningar. Anna Þóra Baldurs- dóttir, formaður nefndarinnar, segir starf nefndarinnar vera í fullum gangi. Hún gerir ráð fyr- ir því að nefndin skili af sér til fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna á Akureyri í næsta mánuði. Endanleg ákvörðun um röðun manna á lista er í höndum full- trúaráðsins. ■ Reglur um sölu og meðferð skotelda: Skýrari ákvæði í nýrri reglugerð SLYSFARIR I dómsmálaráðuneyt- inu er unnið að nýrri ítarlegri reglugerð um sölu og meðferð skotelda. Jón Þór Ólason, lög- fræðingur í dómsmálaráðuneyti, segir þó misskilning að halda því fram að gildandi reglur séu með þeim hætti að ekki sé hægt að byggja á þeim kærur f málum sem upp kunna að koma. Sýslu- mannsembættið í Kópavogi tók ákvörðun um að ákæra ekki í máli manns sem slasaðist alvar- lega um áramótin þegar skot- kaka sprakk. Jón Þór segir að í gildandi reglugerð séu ákvæði á þá leið að dómsmálaráðuneytið ákveði hverju sinni, með umburðar- bréfi _ til allra lögreglu- stjóra.Ýhvort ástæða sé til að banna innflutning og sölu á til- teknum tegundum. Ákvörðun Sýslumannsembættisins í Kópa- vogi taldi hann áð sneru frekar að því að refsiheimildir kynnu að vera óskýrar í gildandi reglu- gerð, heldur en að hún stæðist ekki fyrir dórni. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um ein- stök mál. Fulltrúi sýslumanns sagði málið hafa verið metið svo að ekki væri líklegt til sakfell- ingar. Jón Þór sagði að í nýju reglu- gerðinni sem taka myndi gildi vel fyrir næstu áramót yrðu reglur skýrari og betra að fylgja SKOTKAKA UM ÁRAMÓT Sýslumannsembættið í Kópavogi ákærði ekki í máli manns sem slasaðist á hendi þegar skotkaka sprakk um áramótin. Lögfræðingur mannsins er að skoða réttarstöðu hans áður en ákvörðun verður tekin um næstu skref. þeim eftir. „Það hefur margt breyst og notkun á skoteldum aukist ár frá ári,“ sagði hann og bætti við að nýja reglugerðin hafi verið unnin í nánu samráði við alla sem að málum koma, jafnt innflytjendur sem söluað- ila skotelda. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.