Fréttablaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 5. febrúar 2002 ÞRIÐIUDACUR Verðbólguspá: Lækkar milli mánuða efnahagsmál Greiningardeild ís- landsbanka spáir því að vísitala neysluverðs lækki um 0,3% milli mánuða. Gangi það eftir lækkar tólf mánuða verðbólga úr 9,4% í 8,9%. Ástæður sem Greiningar- deild íslandsbanka tiltekur eru verðlækkanir opinberra aðila og einkaaðila til að stuðla að stöðug- leika á vinnumarkaði. Útsölur verða líka til að lækka neyslu- verðsvísitölu. Gengishækkun að undanförnu á að skila sér í minni verðhækkunum og jafnvel verð- lækkunum. Hagstofa birtir vísi- tölu neysluverðs næst á þriðjudag eftir viku. ■ Hengilsvæðið eitt opið: Framleiða snjó í brekk- urnar VETRARÍÞRÓTT Ómar Skarphéðins- son, forstöðumaður Hengils- svæðisins, segir að snjóvélar blási nú tilbúnum snjó í einu brekkuna sem hægt er að hafa opna á skíðasvæðinu. Ráðgert er að opna svæðið aftur klukkan fjögur í dag. Opið var í sex daga í síðustu viku. Aðspurður um af hverju ekki fleiri snjóvélar væru í gangi á skíðasvæðum hér á landi sagði Ómar aðstæður verri en erlend- is. Vélarnar noti jafn mikið vatn á klukkustund og tvö hundruð manna byggð. Slökkva þurfi á miðstöðvum til að spara raf- magn, svo mikil orka fer í snjó- gerðina. Ómar segir vindinn líka vera versta óvin sinn því hann feykir um helming framleiðslunnar í burtu. Einnig þyrlast hann upp í vindinn og fýkur í burtu þegar fólk skíðar. Hér þurfi að hanna sérútbúna skíðabrekku til æf- inga þar sem hægt er að fram- leiða snjó. Þá þurfi leiðslur til að flytja nóg vatn og rafmagn að vera til staðar. ■ I ERLENT I A tlantshafsbandalagið, NATÓ, Xivonast til þess að ógnin við hryðjuverk verði til þess að bæta tengslin við Rússa. NATO og Rússar héldu eins dags ráð- stefnu í gær. Þar kom fram að Rússum finnst mjög að sér vegið í umfjöllun um aðgerðir þeirra í Tsjetsníu. Það er mat Rússa að þar eigi þeir í höggi við hryðju- verkamenn. Sumir líta hins veg- ar á stríðið þar sem baráttu fyr- ir sjálfstæðu ríki. Ráðstefnan er liður í tilraun NATÓ til að bæta tengslin við Rússa áður en NATÓ stækkar enn frekar, eins og hugsanlegt er. ■ Flugfélagið British Airways: 25 milljarða tap á þremur mánuðum LONPON.AP Flugfélagið British Air- ways, tilkynnti í gær taprekstur upp á um 25 milljarða króna fyrir skatta þá þrjá mánuði sem eftir lifðu af síðasta ári. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja útkomuna vera betri en búist var við eftir árásirn- ar á Bandaríkin þann 11. septem- ber. Rúmlega 9 milljarða króna hagnaður varð hjá fyrirtækinu árið áður. 7000 manns hefur verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu und- anfarið ár vegna niðursveiflunnar. Búist er við að enn fleiri verði sagt upp á næstunni. ■ FLUGVÉLAFLOTI Flugvélafloti 747-véla British Airways flug- félagsins. Wlikið tap varð á rekstri félagsins vegna árásanna á Bandaríkin. Vísindasjóður: Styrkir rannsókn á gosinu í Eldgjá jarðfræði Vísindasjóður hefur ákveðið að styrkja rannsókn á eld- gosinu í Eldgjá um 1,5 milljónir króna. Gosið í Eldgjá árið 934 er sagt vera stærsta gos á íslandi á sögulegum tíma. Sem dæmi má nefna að gossprungan var um 75 kílómetra löng og lá þriðjungur hennar undir jökli. Verkefnisstjóri þessarar rannsóknar er Guðrún Larsen jarðfræðingur hjá Raunvís- indastofnun Háskóla íslands. Með- umsækjandi hennar um styrkinn var Þorvaldur Þórðarson hjá Há- skólanum í Honolulu á Hawaii í Bandaríkjunum. Langtímamark- mið rannsóknarinnar er að fá sem nákvæmastar upplýsingar um gos- hegðun, magn og gerð gosefna, lengd gossins og breytingar á efna- samsetningu kvikunnar. Nákvæm- ari þekking á framvindu gossins er sögð vera forsenda þess að hægt sé að meta umhverfisáhrif slíks goss til fullnustu og áhrif svipaðs goss á nútímasamfélög. í þeim efnum nægir að nefna áhrif á flugsam- göngur yfir N-Atlantshaf. ■ Hestamadur mætti hjólum og datt af baki Reiðstígar við Elliða- og Rauðavatn hafa verið mikið gagnrýndir. Kristján Heiðar Kristjánsson hestamaður sagði að það væri ekki spurning hvort annað slys yrði á svæðinu heldur hvenær. HESTAR ERU HRÆDDIR f EÐLI SÍNU Kristján Heíðar kristjánsson sagðist hafa orðið var við vélknúin farartæki á hjólreiða- stígunum sem væri stórhættulegt og ólöglegt. hestar Hestamaður missti stjórn á hesti sínum þegar hann mætti hópi ungra drengja á reiðhjólum við Víðidal. Kristján Heiðar Kristjánsson sagði að hesturinn hefði gjörsamlega tryllst. Hann hefði kastað honum af baki og hlaupið heim í hesthús. Kristján sagðist hafa bólgnað illa á hné og verið frá vinnu í tvo daga vegna slyssins. „Það sem gerist er að ég mæti þremur ungum drengjum á hjól- um og öskra á þá að hægja á sér,“ sagði Kristján Heiðar. „Hesturinn hrekkur við en strákarnir stoppa. Þegar ég ríð af stað aftur hreyfðu strákarnir sig eitthvað og þá gjör- samlega tryllist hrossið og ég dett af baki. Þetta gerðist reynd- ar ekki nákvæmlega á þessum nýju stígum upp við Rauðavatn, en nálægt þeim. Þetta sýnir vel hvað getur gerst þegar hjól og hestar mætast.“ Nýju hjólreiðastígarnir við El- liða- og Rauðavatn skarast við reiðstíga sem voru fyrir á svæð- inu. Kristján Heiðar sagði ákvörðun borgaryfirvalda um að samtvinna stígana ótrúlega. „Þetta er náttúrlega alveg út úr kortinu. Það er fáránlegt að láta sér detta það í hug að setja saman stíga fyrir reiðhjól og hross. Hestar eru flóttadýr og hræddir í eðli sínu. Þá hef ég tek- ið eftir því að ökumenn vélsleða, krossara (vélhjóli) og fjórhjóla hafa nýtt sér þessa nýju stíga sem er náttúrlega ólöglegt. Eg var á þessum sama hesti um dag- inn og mætti krossara. Ég fann hvernig hesturinn spenntist upp en var sem betur fer viðbúinn og stökk af baki. Eftir að krossarinn var farinn framhjá hljóp hestur- inn í marga hringi í kringum mig.“ Kristján Heiðar sagði að það væri ekki spurning hvort annað slys yrði á svæðinu heldur hvenær. í Fréttablaðinu fyrir skömmu sagði Hrannar B. Arn- arsson, borgarfulltrúi R-listans og formaður umhverfis- og heil- brigðisnefndar, að stígarnir yrðu ekki aðskildir úr þessu. trausti@frettabladid.is MIKIÐ TJÓN I' eldhúsi Ítalíu er flest brunnið og veitinga- salurinn er einnig ónýtur eftir eldsvoðann í fyrrinótt. Eldsvoði á veitinga- staðnum Italíu: Ekki ljóst hvenær opnað aftur eldsvoði Ljóst er að gríðarlegt tjón varð í eldsvoða á Veitinga- staðnum Ítalíu við Laugaveg í fyrrinótt. Verið er að rannsaka upptök eldsins en líklegt er talið að þau hafi verið í pizzaofni stað- arins. Að sögn Salvatore Torrini, eins eiganda staðarins, verður staðurinn opnaður að nýju að loknum endurbótum en ekki er ljóst hvenær. „Við verðum fyrst að kanna hversu mikið þarf að gera og það tekur svolítinn tíma. Það er ekki hægt að segja neitt eins og er.“ Veitingastaðurinn Ítalía er á Laugavegi 11 en einungis tvær vikur eru liðnar síðan eldsvoði varð við Laugaveginn, tveimur húsum ofar. Þá kviknaði í út frá logandi kerti í íbúð. ■ Samfýlkingin Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík Efnt verður til bindandi prófkjörs til þess að velja 3 efstu menn Samfylkingarinnar í Reykjavík dagana 13.- 17. febrúar. Kjörfundur verður á skrifstofu Samfylkingarinnar í Reykjavík 4. hæð og verður kosið aila virka daga frá 16-19, laugardag og sunnudag frá 10 til 17. Próf- kjörið er opið öllum félagsmönnum og þeim stuðningsmönnum Reykjavíkurlistans sem lýsa yfir stuðningi og fara á póstlista Sam- fylkingarinnar. Félögum Samfylkingarfélaganna í Reykjavík verður sendur kjörseðill með nöfnum frambjóðenda og geta þeir póstsent atkvæði sín til og með 15. febrúar n.k. Framboðsfrestur rennur út þann 9. febrúar kl. 17 og skulu framboð hafa borist prófkjörsnefdarmönnum á skrifstofu Samfylkingarinnar fyrir þann tíma. Prófkjörsnefndin. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur: Spá í sameiginlegt framboð fyrir völdin Húsavi'k Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur á Húsavík hafa skipað fulltrúa í nefnd sem á að kanna möguleika á því að þess- ir flokkar bjóði fram sameigin- lega við komandi kosningar til sveitarstjórnar í vor. Hannes Höskuldsson formaður uppstill- ingarnefndar sjálfstæðismanna segir að tilgangurinn með þessu sé að komast að því hvort það sé vænlegri leið til að ná meirihluta í bæjarstjórninni með því að bjóða fram sameiginlegan lista í stað þess að gera það í sitt hvoru lagi eins og verið hefur. Hann segir að nefndinni hafi ekki verið sett nein tímamörk að öðru leyti en því að menn muni ekki ganga frá fram- Wliklar hræringar eiga sér stað um þessar mundir í bæjarpólitíkinni. boðslistum fyrr en séð verður hvort Reykjahreppur sameinast Húsavík í kosningu sem fram fer 9. mars n.k. Þessir flokkar skipa minnihlut- ann í bæjarstjórn Húsavíkur. Þar eru þeir með 2 fulltrúa hvor flokk- ur á móti 5 fulltrúum Húsavíkur- listans. Það er mikil breyting frá því sem var hér á árum áður þeg- ar þessir flokkar voru ráðandi í bæjarpólitíkinni þar nyrðra. Á yf- irstandandi kjörtímabili hafa ein- nig orðið töluverðar breytingar á skipan manna frá þessum flokk- um í bæjarstjórn. Hjá sjálfstæðis- mönnum hefur oddviti flokksins farið og komið aftur en fulltrúinn sem var í öðru sæti hætti á kjör- tímabilinu. Þá hefur sá sem skip- aði þriðja sæti listans við síðustu kosningar ákveðið að hætta. Hjá Framsókn hætti annar af tveimur bæjarfulltrúum flokksins sem náðu kjöri 1998. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.