Fréttablaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 10
FRETTABLAÐÍÐ
10
FRÉTTABLAÐIÐ
Evrópsk blöð gagnrýna Bush
ítMmút
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: VÍsir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu fomni og í gagnabönkum
án endurgjalds.
Leiðárahöfundar evrópskra
blaða eru ekki hrifnir af stefnu-
ræðu Georges Bush. Franska dag-
blaðið Le Monde spurði hvort
hættan væri virkilega jafn mikil
og Bandaríkjamenn vilja vera láta.
Blaðið segir ennfremur að Bush
láti sér lynda að hafa bæði Rúss-
land og Kína með sér í baráttu
sinni gegn hryðjuverkum. „í
Téténíu og Tíbet hafa þau sýnt að
aðferðir óttans - sem kallast
hryðjuverkastarfsemi - eru hluti
af verkum þeirra.“ Auk þess hafi
Rússland og Kína verið duglegri
en önnur ríki að útvega írak, íran
og Norður-Kóreu vopn. Þetta
„dregur enn úr trúverðugleika
ræðunnar sem Bush flutti."
Independent
Breska blaðið Independent telur
Bush hafa ofmetnast af velgengni
heima fyrir. Blaðið telur að jafnvel
þótt ræða Bush mælist vel fyrir á
heimavelli sé ekki sama að segja
um umheiminn. Margt af því sem
sagt var í ræðunni sé líklegt til að
vekja reiði og efasemdir. Þá sé ekki
síður athyglisvert að gefa því
gaum sem ekki var sagt. „Ekki var
minnst á ástandið í Mið-austurlönd-
um og vaxandi mannfall, ekki svo
mikið sem gefið í skyn að áhugi sé
fyrir því að lægja ofbeldisölduna
.Þráður....í.umræðunni
Stefnuræðu Bush var ákaft fagnað heima
fyrir. Hrifningin er ekki jafn mikil annars
staðar í heiminum. Evrópskir leiðarahöf-
undar eru ósáttir við hversu lítill skilning-
ur á viðkvæmri stöðu alþjóðamála birtist i
stefnuræðunni.
né heldur að hefja á ný samninga-
viðræður um frið.“ Blaðið telur að
tilgangur ræðunnar hafi að hluta
verið að endurspegla herstyrk
Bandaríkjanna til að vekja ótta hjá
ríkjum sem hneigðust til að veita
hryðjuverkamönnum skjól. Blaðið
óttast að ræðan sé ekki til þess fall-
in að auka vinsældir Bandaríkj-
anna á alþjóðavettvangi.
Financial Times er líka gagnrýnið
á ræðu Bush. Leiðarahöfundur
| BRÉF TIL BLAÐSINS |
Sidlaus
skatta-
mismunu]
tungumála
MONÖ'
Jón skrifar
5. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR
FINANCIAJL TCVIES
segir á Bush ríði á öldu vinsælda
heima fyrir í Ijósi baráttunnar
gegn hryðjuverkum. Ræða hans
hafi ýtt á takka þjóðerniskenndar,
stolts og einbeitts vilja til að sigr-
ast á hryðjuverkaöflum. Það eitt
sé þó ekki nóg. „Samt er afar mik-
ilvægt að forsetinn yfirgefi ekki
hófstillta sýn og háttvísi í alþjóða-
samskiptum sem gert hefur
Bandaríkjunum fært að mynda
breiðfylkingu um aðkallandi
vandamál á alþjóðavettvangi." ■
Alþjódaviðskiptarádstefnan í New York, World Trade Forum, hefur borið merki atburða síðustu
mánaða. Sjónir manna hafa beinst að vandamálum fátækari heimshluta. Fyrri ráðstefnur hafa
einkum beinst að hagvexti í heiminum og viðskiptatækifærum. A ráðstefnunni um helgina voru
rædd ýmis félagsleg vandamál heimsins, sprottin af ólíkri efnahagsstöðu jarðarbúa. Málefni sem
fyrri ráðstefnur hafa verið gagnrýndar fyrir að taka ekki til umræðu.
Alþjóðavœðing
fyrir alla
f alþjóðavæðing í viðskiptum
er ekki í þágu allra, mun hún
að lokum verða í einskis þágu,“
sagði Kofi Annan, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna. Hann kallaði
eftir stuðningi stórfyrirtækja við
áætlun Sameinuðu þjóðanna um
að byggja upp viðskipti um heim-
inn á grundvelli virðingar fyrir
mannréttindum, vinnuvernd og
umhverfisvernd. Markmið verk-
efnisins er að byggja upp innviði
samfélaga þannig að þau verði
fær um að taka þátt í heimsvið-
skiptum. Annan sagði að við-
brögð fyrirtækja væru góð.
Markmiðið er að fá til þessa
verkefnis þúsund stórfyrirtæki á
þessu ári.
„Þið sem hér sitjið eruð vafa-
laust sannfærð um ágæti alþjóða-
væðingar viðskipta. Ekki er hins
vegar hlaupið að því að sannfæra
fólk um ágæti þeirrar hugmyndar
sem lifir á innan við tveimur doll-
urum á dag. Ekki heldur meðan
10% fjármuna til heilbrigðismála
er varið til heilsufarsvandamála
sem þjaka 90% mannkyns." ■
Nýjar
átakalínur
Fulltrúar ríkja Evrópu og mar-
gra annara létu í ljós ótta sinn
við orðfæri Bush Bandaríkjafor-
seta í stefnuræðu hans. Þar notaði
hann skilgreininguna „öxulríki
hins illa“ um írak, Iran og Norður-
Kóreu. Menn gátu ekki varist til-
finningunni um ofurríki í leit að
vandræðum. Colin Powell, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna,
kom til skila þeim sjónarmiðum
Bandaríkjanna að þeir myndu ef
nauðsyn krefði heyja sitt stríð
gegn hryðjuverkum án þátttöku
annarra. Javier Solana, fram-
kvæmdastjóri Evrópusambands-
ins og fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Nato, benti á að bandalags-
ríki Bandaríkjanna vildu vægi í
þeim ákvörðunum sem væru
teknar. „Fyrir mér snýst bandalag
ríkja ekki einungis um að deila
ábyrgð og markmiðum, heldur
einnig að taka sameiginlegar
ákvarðanir," sagði Solana.
Joseph Nye, skólameistari
Harvard’s Kennedy School of
Goverment, dró saman átakalínur
Bandaríkjanna við bandamenn
sína. „Menn grunar að Bush sé á
leið til einhliða ákvarðana. Að eft-
ir Afganistan hafi Bandaríkin
engan sérstakan áhuga á að hlusta
á aðra.“ ■
ORDRÉTT
Eg hef mikinn áhuga á sagn-
fræði, sérstaklega sögu seinni
heimsstyrjaldar. Af skiljanlegum
ástæðum er afskaplega lítið skrifað
um þetta á íslensku. Það sem verra
er að það er ekki mikið meira flutt
inn af bókum. Þess vegna hef ég
brugðið á það ráð að kaupa mér
bækur frá útlöndum. Ég lendi alltaf
í því þegar bækurnar koma að ég
þarf að borga virðisaukaskatt af
þeim. Það get ég svo sem sætt mig
við. Það sem mér finnst óásættan-
legt er að ég skuli vera látinn borga
24,5% virðisaukaskatt af erlendum
bókum meðan ég þarf ekki að borga
nema 14% virðisaukaskatt af bók-
um sem eru gefnar út hér á landi.
Maður hefði haldið að með EES-
samningnum væri þetta ólöglegt
þar sem með þessu er verið að
skattleggja erlendra framleiðslu
umfram innlenda. Mér lögfróðari
menn segja þó að þetta sé í lagi út
af einhverjum undanþágum í samn-
ingnum. Mér finnst samt siðlaust af
stjórnvöldum að skattleggja þau
okkar sérstaklega sem leggjum á
okkur að sækja fróðleik í bóka-
formi út fyrir landamærin. ■
--^---
Samið um
starfslok
Frá Pétri Péturssyni, upplýsingafulltrúa
fslandssima.
Vegna fréttar Fréttablaðsins í
[gær] um uppsagnir hjá ís-
landssíma vill félagið árétta að
samkomulag var um starfslok í
öllum þeim tilvikum sem um var
fjallað.” ■
Gagnrýnin
á Bandaríkin
rátt fyrir að flestir þeir sem
til máls tóku á ráðstefnunni
hældu Bandaríkjamönnum fyrir
viðbrögð þeirra eftir atburðina
11. september var Ijóst að undir
lá mikil gagnrýni á Bandaríkin.
Gagnrýnin kom ekki einungis frá
fulltrúum annara þjóða, heldur
frá málsmetandi Bandaríkja-
mönnum. Hillary Clinton benti á
að ímynd Bandaríkjanna væri
slök og vísaði til alþjóðlegrar
rannsóknar þar sem sýndi að í
hugum heimsins væru Banda-
ríkjamenn sjálfselskir og fyrst
og fremst tilbúnir að skara eld að
eigin köku.
Gagnrýnt var hversu litlir
þátttakendur Bandaríkjamenn
væru í þróunaraðstoð. Þeir styd-
du fyrst og fremst ríki sem þjón-
uðu markmiðum þeirra sjálfra,
en ekki þeirra sem væru í mestri
þörf fyrir stuðning.
Mótmæli almennings voru
með minna móti og fóru friðsam-
lega fram. Mikil mótmæli urðu á
síðustu ráðstefnu í Seattle, en í
þetta sinn fengu táragasbirgðir
óeirðarlögreglunnar að liggja
óhreyfðar. ■
Áskorun um
dreifingu lífsgæða
jöldi fátækra er ekki stærsta
vandamálið, heldur skortur á
úrræðum," sagði Mark Malloch
Brown framkvæmdastjóri Þró-
unarhjálpar Sameinuðu þjóð-
anna. 1,2 milljarðar jarðarbúa
hafa úr minna að spila en einum
dollar á dag. Góðu fréttirnar eru
að frá 1990 hefur hlutfall þeirra
jarðarbúa sem lifa í algerri fá-
tækt lækkað úr 28% í 15%.
Slæmu fréttirnar eru þær að í
Afríku hefur ástandið versnað og
engin teikn á lofti um að sú þróun
sé að breytast.
Hagvöxtur er nauðsynlegt en
ekki nægjanlegt skilyrði þess að
fátækum fækki. Menntun, þjálf-
un og skýrar leikreglur sem hin-
dra spillingu voru að mati sér-
fræðinga nauðsynlegir þættir til
að koma þjóðum úr vítahring fá-
tæktar.
George Soros sem er goðsögn í
heim verðbréfaviðskipta kallaði
eftir jafnvægi milli verðmæta-
sköpunar og dreifingar verð-
mæta. Nauðsynlegt væri að end-
urskoða viðskiptaumhverfi
heimsins, því eins og staðan væri
dag væru viðskipti milli fátækra
ríkja og ríkra ójafn leikur. ■
INNANTÓMT
KURTEISISSAMBAND
„Á hverjum tíma þarf þjóðkirkjan
aðhald og gagnrýni frá því samfé-
lagi sem hún lifir í og samfélagið
þarf sömuleiðis aðhald og gagnrýni
kirkjunnar. í þeim samskiptum er
þörf á meiru en almennri kurteisi
og e.t.v. hafa samskiptin einmitt lii
ast of lengi af innantómri kurteií
milli þjóðar og kirkju. Annað ein
getur jú gerst á eitt þúsund árum
Þjóðin gaf þjóðkirkjunni skýi'
skilaboð á þúsund ára afmælin:
þegar hún hugðist halda hátíð meö
þjóð sinni, en varð fyrir því áfalli
að halda bara hátíð fyrir þjóðina."
Sr. Bjarni Karlsson, Mbl. 1. febrúai
FÍN, MENNTUÐ, GÓÐ
OG MÁLLAUS
„Hin vitiborna og frjálsa íslenska
þjóð hefur ekki smekk fyrir þjóð-
kirkju sem stendur örugg við hlið
valdhafanna í samfélaginu, þegar
almenningur lifir óvissutíma.
Þjóðina vantar ekki örugga og
sjálfumglaða kirkju, hún vill
kirkju sem tekur áhættuna af því
að standa við hlið hins almenna
manns, kirkju sem tekur mannlíf-
ið inn að hjarta sínu og þekkir til
hlítar aðstæður þessarar þjóðar.
Slík kirkja getur prédikað. En
kirkja sem fyrst er fín, síðan
menntuð og loksins svolítið góð,
er mállaus.“
Sr. Bjarní Karisson. Mbl. 1. febrúar.
HINIR LÍKÞRÁU
„Læknavísindin
hafa nefnilega
komist að þeirri
niðurstöðu að eng-
inn sjúkdómur
finnist með þjóð-
um heims sem
ekki er hægt að
kenna reykingum
um, og læknavís-
indum ber að treysta. [...] For-
dæming fremur en lækning virð-
ist vera hlutskipti þeirra sem hafa
ánetjast tóbaksnautninni. Þjóðfé-
lagið hefur í þeim fundið „hina
líkþráu” nútímans."
Árni Björnsson, læknir. Mbl. 1. febrúar.
Utsala
Mikið úrval
Efni frá kr ÍOO kr
Z-brautir & gluggatjöld
* Faxafen 14 i 108 Reykjavík j Sími 525 8200 j Fax 525 82011 Netfang www.zeta.is 1