Fréttablaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ
! FRÉTTIR AF FÓLKI
Samfylking ákvað um helgina
að hafa prófkjör um skipan
þriggja efstu sæta listans á
Reykjavíkurlistanum við kosn-
ingarnar í vor.
Ekki var ein-
hugur um mál-
ið. Mörður
Árnason vildi
hafa uppstill-
ingu, Pétur
Jónsson próf-
kjör. Vilji Þét-
urs varð ofan á.
Formaður fram-
kvæmdastjórnar, Stefán Jón Haf-
stein, flutti tillögu um að eftir að
prófkjörsúrslit liggi fyrir megi
kjörnefnd breyta niðurstöðunum.
Allt til að gera listann kosninga-
vænni, sölulegri og það allt. Til-
laga formannsins var felld.
22
v I
FRÉTTIR AF FÓLKI
5El
[nefaleikafrumvarp Gunnars
I. Birgissonar var tekið til
umræðu á Alþingi
í gærdag enn einu
sinni. Málið hefur
sem kunnugt er
verið lagt fyrir
tvisvar sinnum
áður án þess að
ná fram að ganga,
... ■ Fá þingmanna-;
frumvörp hafa þó vakið jafn
mikla athygli og jafn mikla um-
ræðu, innan þings
jafnt sem utan.
Halldór Blöndal
sá því ástæðu til
þess þegar hann
tók frumvarpið á
dagskrá að vara
þingmenn við því
að líklega þyrfti
að efna til kvöldfundar ef komast
ætti yfir að ræða þetta mál og
önnur þau mál sem síðar væru á
dagskrá.
Umræöan varð enda fljótt fjör-
leg. í framsögu fyrir meiri-
hlutaáliti mcnntamálanefndar.. -
taldi Sigríður
Anna Þórðar-
dóttir, formaður
nefndarinnar,
það málinu til
tekna að sam-
kvæmt skoðana-
könnun nyti
frumvarpið
stuðnings 60%
þjóðarinnar. Þetta vakti athygli
Össurar Skarphéðinssonar sem
spurði hvort þetta þýddi ekki að í
framhaldinu myndi Sigríður
Anna flytja frumvarp þar sem
hún legði til að núverandi fisk-
veiðistjórn-
kerfi yrði
bylt í sam-
ræmi við
skoðanákann-
anir. Næsta
skref yrði
svo að mæla
fyrir því að
ísland sækti
um aðild að
Evrópusambandinu enda hefðu
allar skoðanakannanir síðustu ár
sýnt stuðning almennings við að-
ildarumsókn. Sigríður benti Öss-
uri hins vegar á að hún hefði
mælt með því að frumvarpið yrði
samþykkt áður en skoðanakönn-
unin hefði verið gerð.
I FRÉTTIR AF FÓLKI
Talandi um Pétur Jónsson.
Margt bendir til að hann sæk-
ist eftir frama í prófkjörinu -
prófkjörinu sem hann mælti fyrir
á fundinum um helgina. Pétur
var borgarfulltrúi allt þar til fyr-
ir fjórum árum að
Hrannar B. Arn-
arsson, nýkominn
úr Alþýðubanda-
lagi, og Helgi Pét-
ursson, nýkominn
úr Framsóknar-
flokki, náðu fyrs-
ta og öðru sæti
Alþýðuflokksins á listanum 1988.
Eldri kratar gátu aldrei sætt sig
við þessi málalok og þeir hyggja
á endurkomu Péturs.
Ekki fer á milli mála að það
verður erfitt verk fyrir Pétur
að ná öðru af tveimur efstu sæt-
um Samfylkingarinnar. Fyrir eru
þrír borgarfull-
trúar sem sækj-
ast eftir endur-
kjöri; Helgi
Hjörvar, Steinunn
Valdís Óskars-
dóttir og Hrannar
B. Arnarsson.
Auk þess sækir
varaborgarfulltrúinn Ingvar
Sverrisson fast fram og ætlar sér
frekari frama. Af þeim sem nú
gegna störfum í borgarstjórn er
það Hrannar sem virðist mest
áfjáður í prófkjör. Hann vildi
aldrei uppstillingu - átti von á að
honum yrði ekki stillt um með
handafli og þess vegna sé hans
mesta von bundin því að ná ár-
angri í prófkjöri.
Það er víðar en í Reykjavík
sem mikið gengur á hjá Sam-
fylkingunni. í Kópavogi og á Ak-
ureyri eykst
spennan. Ekki
; vegna þess að bú-
ist sé við stórsigri
Samfylkingarinn-
ar, heldur vegna
þess að í þeim
bæjarfélögum ótt-
ast félagarnir að
illa kunni að fara. Flosi Eiríksson
og félagar í Kópavogi eiga langt í
iand og sama er að segja um fé-
laga þeirra fyrir norðan.
Mest er bjartsýni Samfylking-
arfólks í Hafnarfirði. Fram-
boðslistinn, undir
forystu Lúðvíks
Geirssonar, þykir
ágætur. Auk þess
eiga báðir A-
flokkarnir nokkuð
góðar rætur í
Hafnarfirði. Þá
________ hefur Samfylk-
ingunni tekist ágætlega að halda í
gamla kjarna í Hafnarfirði. Tak-
mark Samfylkingarinnar í Hafn-
arfirði mun vera að ná hreinum
meirihluta. Spennandi verður að
fylgjast með hvort það tekst.
Aísafirði, sem vlðar, er gert
ráð fyrir spennandi kosning-
um. Nokkur óá-
nægja er með
framgang bæjar-
mála. Það nær
bæði til minni-
hluta og meiri-
hluta bæjar-
stjórnar. Þess
yegna er reiknað
Doberman eins og bíll
meðbeinni innspýtingu
Hanna Arnórsdóttir dýralæknir áréttar að engin skyldi taka að sér
hund eða önnur dýr án þess að vera í öruggu húsnæði. Hundar þurfa
kærleika og öryggi rétt eins og börn.
dýrahalp „Ég myndi ekki mæla
með því að fólk taki að sér
Rottweiler eða Doberman sem
heimilishund nema þeir hafi
kynnt sér eiginleika tegundanna
mjög vel. Það er aðeins á færi
þeirra sem eru mjög vanir að
halda hunda af þessum tegund-
um,“ segir Hanna Arnórsdóttir
dýralæknir hjá Dýralæknastof-
unni í Garðabæ. Hanna á sjálf
afskaplega ljúfa Dobermantík
sem hún flutti með sér heim frá
Danmörku. „Það er vandasamt
verk að halda aga á þessum
hundum óg mjög auðvelt að
missa tökih.á uppeldinu. Rott-
veíler og Doberman henta ágæt-
lega sem heimilishundar ef fólk
hefur nægan tíma til að sinna
þeim. Þeir þurfa ákveðið upp-
eldi og mikinn kærleika. Einnig
eru þeir góðir spor- og lögreglu-
hundar því allir bera virðingu
fyrir þeim. Þeir sem ráða við að
eiga svona hunda verða að gera
sér grein fyrir því að það eru
mun meiri kröfur gerðar til
þeirra og ábyrgð þeirra er mikil.
Ég hef oft líkt Dobermannhund-
inum við hraðskreiðan bíl með
beinni innspýtingu. Það er auð-
velt að missa stjórnina ef þú
lærir ekki vel á hann í byrjun."
Hanna segir að bæði Do-
berman og Rottweiler séu af-
skaplega hlýðnir og auðveldir
þeim sem kunni til verka. „Þeir
eru húsbóndahollir og bera ótak-
markaða virðingu fyrir eiganda
sínum og vel alinn hundur hlýð-
ir í einu og öllu. Þeir þurfa mikla
hreyfingu og mikil hætta er á að
þeir verði pirraðir ef þeim er
pkki sinnt sem skyldi. Að sama
skápi þola þeir ilía einveru og
eru mjög háðir eigendum sínum.
Menn hafa komið heim að öllu í
rúst ef þeir eru of lengi einir. Sú
DIXIE ER BLÍÐ OC CÓÐ
Hanna Amórsdóttir dýralæknir með Dobermantíkina sína. Hún segist aldrei hafa lent i
vandræðum vegna hennar.
hætta á að hundar verði tauga-
veiklaðir við lélegan aðbúnað og
sinnuleysi eigenda er auðvitað
til staðar hjá öllum tegundum en
skaðsemi þessara varðhunda-
tegunda verður að sjálfsögðu
meiri en annars."
Hanna segir að því miður
gerist það of oft að ungt fólk
sem ekki er komið með öruggt
húsnæði tekur að sér hunda og
önnur dýr að illa ígrunduðu máli
og lendi síðan á vergangi með
þau. „Hundarnir eru þá jafnvel
hýstir á hinum og þessum stöð-
um s.s. í bílum eða á hundahótel-
um. Þar er uppeldislegum þörf-
um hundanna ekki sinnt og þeir
geta einangrast félagslega. Það
getur valdið því að eigendurnir
ná ekki þeim tengslum og aga
sem þarf og hundarnir verða
óöruggir. Þetta á vissulega við
allar tegundir hunda og það eru
því miður dæmi um þetta hér-
lendis." Hanna segir ennfremur
að enginn skyldi treysta neinum
hundi hundrað prósent þegar
börn séu annars vegar. „Vel al-
inn hundur sem býr við gott at-
læti er besta trygginginn fyrir
góðri hegðun og öryggi.“ ■
með að Frjálslyndi flokkurinn og
klofningsframboð Sjálfstæðis-
manna, undir stjórn Halldórs
Jónssonar fyrrverandi bæjarful-
trúa, komi til með að verða einna
sterkustu öflin innan bæjar-
stjórnar að loknum kosningum.
Meira af Frjálslynda flokkn-
um. Talað er um að flokkur-
inn bjóði fram í fjórum sveitarfé-
lögum; Reykjavík með Ólafi F.
Magnússyiii, á ísafirði þar sem
Ásthildur Cecil Þórðardóttir
garðyrkjustjóri verði í framsæt-
inu, á Stöðvarfirði en ekki er vit-
að hvers vegna og í Sandgerði.
Þar verði Grétar Mar Jónsson,
skipstjóri og fyrrverandi forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, í framsætinu. Grétar er
ekki ókunnugur bæjarstjórnar-
málum í sínu sveitarfélagi. Hann
sat um árabil í bæjarstjórn fyrir
Alþýðuflokkinn og gegndi meðal
annars formennsku í hafnar-
stjórn á miklu uppgangstíma
hafnarinnar.
„Það góða sem
maður gerir er
fljótt að gleymast."
í spásímanum 9086116 er
spákonan Sirrý og spáir í
ástir og örlög framtíðar.
Einnig tímapantanir fyrir
einkatíma í sama síma.
Andleg leiðsögn, miðlun, tarot, spilaspá,
draumaráðningar og huglækningar.
Leitum lausna við vandamálum.
Verð við frá kl.15-2
i síma 908-6040. Hanna
Tarotlínan sími 908 5050
tarotlestur, miðlun, draumráðningar.
Fínsvör um hjónabandið, ástina,
heilsuna, fjármálin, símatími 18-24
C1 V1
Sálarrannsóknarfélag íslands
stofnað 1918
Garðastræti 8, Reykjavík.
Miðlarnirog huglæknarnir
Birgitta Hreiðarsdóttir, Bjarni
Kristjánsson, Erna Jóhanns-
dóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir,
Hafsteinn Guðbjörnsson, Krist-
ín Karlsdóttir, Lára Halla Snæ-
fells, María Sigurðardóttir,
Rósa Ólafsdóttir, Skúli Lórenz-
son og Þórunn Maggý Guð-
mundsdóttir starfa hjá félaginu
og bjóða upp á einkatíma.
Einig starfar Amy Engilberts
dulspekingur hjá félaginu og
býður upp á einkatíma.
Friðbjörg Óskarsdóttir heldur
utan um mannræktar-, þróun-
ar- og bænahringi.
Upplýsingar og bókanir eru í
s. 551 8130 alla virka daga frá
kl. 9.00 til 15.00 Einnig er hægt
að senda fax, 561 8130, eða
tölvupóst, srfi@isholf.id
SRFÍ.
Sálarrannsóknarfélag
íslands stofnað 1918
Frá Sálarrannsóknarfélagi íslands:
Eftir miðjan febrúar eru fyrirhuguð þrjú
ný námskeið hjá félaginu:
HUGLEIÐLUNÁMSKEIÐ þar sem
kennd verður MYNDRÆN HUG-
LEIÐSLA.
ORKUUPPBYGGING eða hvernig við
eigum að byggja upp orkuna okkar
með hjálp orkustöðvanna.
TILFINNINGAÚRVINNSLA hvernig
getum við unnið okkur út úr erfiðri til-
finningalegri reynslu
ATH! vegna takmarkað fjölda er fólk
beðið að bóka sig sem fyrst.
Sálarrannsóknarfélag íslands
Garðarstræti 8
101 Reyjavík
s:551 -8130
Fax:561 -8130
netfang: srfi@simnet.is
Iðnaður ^
Námskeið
Námskeið í tré og
trérennismíði hefjast í
febrúar, lýkur fyrir páska
Kennari
Þórarinn Þórarinsson
Upplýsingar í síma
894 3715
www. simnet. is/inni