Fréttablaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 5. febrúar 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
n
Samgönguráðherra fundar með flugmálastjóra í dag:
Synjun um heilbrigð-
isvottorð rakalaus
flug Flugmálastjórn var ekki
heimilt samkvæmt stjórnsýslulög-
um að synja flugstjóra um útgáfu
heilbrigðisvottorðs. Þetta er niður-
staða nefndar sem samgönguráð-
herra skipaði að beiðni flugmála-
stjóra til að gera úttekt á stjórn-
sýslu Flugmálastjórnar vegna deil-
na trúnaðarlæknis embættisins og
flugmanns um flughæfi eftir vægt
heilablóðfall. Nefnd samgönguráð-
herra telur að synjunin sé ekki
byggð á neinum rökum sem talin
eru málefnaleg eða eðlileg. Stjórn-
sýslulög voru því brotin.
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, á fund með flugmála-
stjóra í dag. Aðspurður hvort flug-
málastjóri yrði áminntur vegna
þessara brota sagði hann rétt að
hann fengi tækifæri til að gera
grein fyrir afstöðu embættisins og
nýta þannig andmælarétt sinn.
Sigurður Guðmundsson land-
læknir, sem átti sæti í úttektar-
nefndinni, segir í séráliti að sjúk-
dómseinkenni flugmannsins hafi
gengið fullkomlega til baka og
sjúkdómsgreining áfrýjunar-
nefndar óumdeilda. „Telja verður
því flugmanninn heilbrigðan," seg-
ir í áliti Sigurðar. ■
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti:
Valgerður vill frið-
mælast við BHM
hugverkaréttinpi Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðar- og við-
skiptaráðherra hefur óskað eftir
að ræða við forustu Bandalags há-
skólamanna vegna mótmæla
bandalagsins við því að eiga ekki
fulltrúa í nefnd sem ráðherra hef-
ur skipað. Þessi nefnd á að vinna
að mótun löggjafar um hugverka-
réttindi. Björk Vilhelmsdóttir for-
maður BHM segir að það muni
væntanlega koma í ljós á þeim
fundi hvort sjónarmið þeirra nái
fram að ganga um að launafólk
eigi fulltrúa í þessari nefnd.
í nefndinni eiga sæti fulltrúar
ráðuneytisins, menntamálaráðu-
neytis, Samtaka iðnaðarins, Há-
skóla íslands og samtaka um
vernd hugverkaréttinda. BHM
telur hins vegar óeðlilegt að í
nefndinni sé enginn fulltrúi
starfsmanna sem vinna við störf á
sviði hugverka og uppfinninga.
Björk bendir m.a. á að BHM hefur
haft áhuga á þessu máli til margra
ára, auk þess sem mörg mál þessu
tengd hafa komið til umfjöllunar
hjá Félagi háskólakennara og Fé-
lagi íslenskra náttúrufræðinga.
Meðal annars hafa einstaklingar
leitað eftir aðstoð BHM við að
semja um höfundarrétt á hug-
verkum sínum. Þá sé starfandi
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Stjórn BHM hefur gagnrýnt ráðherrann fyrir
að skipa ekki fulltrúa launafólks í nefnd
sem vinnur að mótun löggjafar um hug-
verkaréttindi.
sérfræðingahópur innan BHM um
hugverkaréttindi. Björk minnir á
að þegar hugmyndir hefðu komið
fram í fyrra um þessa hugsanlega
lagasetningu um hugverkarétt-
indi hefði stjórn BHM lýst yfir
áhuga á því að taka þátt í mótun
löggjafarinnar. Af þeim sökum
hefðu menn orðið fyrir vonbrigð-
um með þessi vinnubrögð ráð-
herrans. ■
OEGD skammar Dani:
Stöðugar skattahækkanir
panwiörk Efnahags- og framfara-
stofnun Evrópu, OECD, sendir
dönskum sveitarfélögum tóninn í
nýrri greiningu á dönsku efna-
hagslífi. Sett er út á aðferð sveit-
arfélaga við að gerð fjárhagsá-
ætlana, og ekki síður þá stað-
reynd að alltaf sé farið fram úr
þeim. Það hefur gerst afar oft
síðari ár með þeim afleiðingum
að álögur á einstaklinga hafa far-
ið síhækkandi. OECD leggur til
að sveitafélögin verði svipt valdi
til að semja fjárhagsáætlanir.
Þess í stað setji þingið þeim fjár-
hagsramma. Stofnunin leggur
einnig til að sett verði þak á
skattahækkanir og bendir á að sl.
átján ár hafi álögur verið hækk-
aðar ellefu sinnum. OECD segir
að lækka hefði átt skatta í Dan-
mörku í ár. Það hefði ekki verið
gert, því útgjöld til hins opinbera
' héldu áfram að aukast. ■
INNLENT
Ranglega var farið með verð á
mjólkurvörum í Fjarðarkaup-
um í verðkönnun A.S.I. sem fjall-
að var um í Fréttablaðinu fyrir
helgi. Þegar A.S.Í. framkvæmdi
könnun á mjólkurvörum var tek-
ið verð á hillu en 3% verðlækkan-
irnar Fjarðarkaupa koma ekki
fram á hillu heldur við kassa. í
tilkynningu A.S.Í. segir að þeim
hafi ekki verið kunnugt um að
Fjarðarkaup hefði aðeins breytt
verðinu á kassa. Starfsmaður
Fjarðarkaups gerði ekki athuga-
semd við verðupptökuna að henni
lokinni.
—«—
Stjórn Símans hefur gengið frá
starfslokasamningi við Þórar-
in V. Þórarinsson, fyrrum for-
stjóra fyrirtækins. Þórarinn fær
37 milljónir króna á núvirði fyrir
það sem eftir lifir fimm ára ráðn-
ingarsamnings sem gerður var í
júní árið 1999. Viðræður um
starfslokasamninginn hafa staðið
frá því í desember.
STIFAR PREK- OG BRENNSLUÆFINGAR FY
KONUR OG KARLMENN.
50 3 30 JT' T\ 3
í Fitnessboxi eru gerðar allar þrekæfingar sem boxarar gera; sippa,
magaæfingar, armbeygjur, skuggabox, kýlt í boxpúða, og fleira.
Útrás, brennsla og skemmtun sem slær öllu öðru við.
o
ieiðbeinamdi: Bergiinsl Oiaöniyndsciótltir
Skráning í síma 551-2815 eða í afgreiðslu Ræktarinnar, Suðurströnd 4,
jjí Seltjarnarnesi.
IfÉA Boxútbúnaður i Ræktinni.
í Ræktinni er nú hægt að kaupa allan útbúnað til boxþjálfunar eins og
‘ÍA vafninga, æfingahanska (sekkhanska), hringhanska (sparring hanska),
er : ' góma (munnstykki), sippubönd o.fl.
RÆKTIN
Suðurströnd 4, Seltjarnarnes
sa\etn\ ro/sctu
fcí. 12.900
*. 990 m2
Síoíuteppi frá kr. 750
tpavket itá Kt. \>090
Opnum ný]a verslun aö
Skútuvogí 6 f Dyrjun mars.
Marparfcet 14 mmírákr. 2.990 m2
AiFABORG P
iMiarrarvogi 4 * s: 568 6755 • www.alfaborg.is
\
Y/