Fréttablaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 1
FQSTUDAG.UR
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
60,6%
}60.5%l
Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæð-
inu á virkum
dögum?
Meðallestur 25 til 49
ára á virkum dögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2001
70.000 eíntök
65% fólks le', blaöiö
MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA A
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT
FJÖLMIDIAKÖNNUN CAIIIJP í OKTÓBER 2001.
Lyfjastofnun fær engar tilkynningar um aukaverkanir:
Við dauðans dyr vegna
aukaverkana pillunnar
CETNAÐflRVARNflRPILLAN Kona á
fimmtugsaldri, sem Fréttablaðið
ræddi við, sagðist hafa staðið við
dauðans dyr fyrr í vetur vegna
blóðtappa sem rekja mátti beint
til notkunar á getnaðarvarn-
arpillunni. Læknir hafi ávísað
lyfinu þótt honum hafi verið
kunnugt um marga samverkandi
þætti í heilsufari hennar, sem
aukið gætu líkurnar á blóðtappa.
Hún hafi heldur ekki verið skoð-
uð með tilliti til áhættuþátta.
Rannveig Gunnarsdóttir, for-
stjóri Lyfjastofnunar ríkisins,
segir það áhyggjuefni ef læknar
séu ekki nógu duglegir að til-
kynna aukaverkanir vegna notk-
unar þriðju kynslóðar af getnað-
arvarnarpillum. „Við höfum eng-
ar tilkynningar fengið vegna
þriðju kynslóðar getnaðarvarn-
arpillunnar," segir Rannveig.
Hún segir að Lyfjastofnun hafi
verið að reyna að taka á þessum
málum. ■
FRÉTTAB
48. tölublað - 2. árgangur
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Föstudagurinn 8. mars 2002
Áfengis- Og
vímuefnanotkun:
Um 25%
prófað ólög-
leg fíkniefni
vímuefni Tæplega fjórðungur
landsmanna hefur einhvern tíman
prófað eða notað hass eða
maríjúana, ef marka má nýja
könnun sem Gallup gerði fyrir
Áfengis- og vímuvarnarráð. Þá
hafa 7,5% prófað amfetamín eða
kókaín og 2,3% e-töflu. Könnunin
náði til tilviljanakennds úrtaks
fólks á aldrinum 18 til 75 ára.
í gögnum könnunarinnar sem
send voru út í gær kemur jafn-
framt fram að 42% þekkja ein-
hvern sem hefur prófað eða notað
ólögleg vímuefni á síðustu 12
mánuðum. Þessar tölur eru þó
ekki aldursgreindar frekar, en
reikna má með að hlutfallið geti
verið heldur hærra í einum ald-
ursflokki en öðrum.
Meira um könnunina á bls. 6
Reykj avíkurlistinn:
Dagur
í 7. sætið
uppstillinc. Dagur B. Eggertsson,
læknir, mun skipa 7. sætið á
Reykjavíkurlistanum við borgar-
stjórnarkosningarnar í maí sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Sjálfur vildi Dagur ekkert tjá
sig um málið þegar Fréttablaðið
ræddi við hann í gær. Þá var hann
á leiðinni til íslands frá Svíþjóð,
þar sem hann er nú búsettur, en
vildi ekki staðfesta að hann væri
að fara að funda með uppstilling-
arnefnd Reykjavíkurlistans. Upp-
stillingarnefnd hefur fundað stíft
síðustu daga. Gert er ráð fyrir að
uppstilling listans verði kynnt á
næstu dögum. ■
I ÞETTA HELST I
Náttúruvernd ríkisins leggur
til að farið verði út í mat á
umhverfisáhrifum við Eiðs-
granda. 3-400 manns skrifuðu
undir lista til að mótmæla fyrir-
huguðum framkvæmdum. bls. 2.
Mjátt var á mununum þegar
talið var upp úr kjörkössun-
um á írlandi í gær. í ljós kom að
rétt um 51 prósent kjósenda
hafnaði því að herða fóstureyð-
ingalöggjöfina. bls. 4.
Æfleiri arabaríki styðja friðar-
tilboð Sádi-Arabíu en utan-
ríkisráðherrar arabaríkjanna
ræða tilboðið nánar um helgina.
bls. 8.
TÓNLIST
Andi skáldsins
svífur yfir
bls 16
BORÐTENNIS
Stefnir
á Þýskaland
bls 12
AFMÆLI
fón harður
húsbóndi
bls 22
Nýr útvarpsþáttur
útvarp Háðfuglinn Sigurjón Kjart-
anssonar fer í loftið í dag með nýj-
an útvarpsþátt.
Tveir leikir
í handboltanum
handbolti Tveir leikir fara fram í
Esso-deildinni í handboltanum í
kvöld. ÍR tekur á móti Stjörnunni í
Austurbergi. ÍR gengur vel, er í
þriðja sæti deildarinnar með 24
stig en Stjarnan í 12. sæti með 13
stig. Fram fer í heimsókn til HK í
Digranes. Fram er í tíunda sæti
deildarinnar með 18 stig. HK er í
næstneðsta sæti, 13. með 12 stig.
Leikirnir hef jast kl. 20.
IKVÖLDIÐ í KVÖLDi
Tónlist 16 Bíó 14
Leikhús 16 íþróttir 12
Myndlist 16 Sjónvarp 20
Skemmtanir 16 Útvarp 21
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURÐUR JÖKULL VIÐ REYKJAVÍKURHÖFN Netavertíðin stendu nú yfir. Þessir kappar voru að gera klárt
fyrir næstu ferð þegar Ijósmyndari Fréttablaðsins festi þá á filmu.
Atvinnumál
útlendinga
fundur Ungir jafn-
aðarmenn standa
fyrir hádegisfundi í
dag um um atvinnu-
mál útlendinga.
Frummælendur
verða Bjarney Frið-
riksdóttir, forstöðu-
kona Alþjóðahússins og Guðrún
Ögmundsdóttir alþingiskona. Fund-
urinn hefst klukkan 12:00 í Húsi
málarans og eru allir velkomnir.
Astrid Lindgren
jarðsungin
jarðaför í dag kl. 15 að staðartíma
verður Astrid Lindgren jarðsungin
í Stokkhólmi. Astrid Lindgren
skrifaði sig inn í hug og hjörtu
barna um heim allan með bókum
sínum um Línu langsokk, Emil f
Kattholti og fleiri ærslabelgi. Hún
lést 28. janúar síðastliðinn, 94 ára
að aldri.
VEÐRIÐ I DAG
REYKJAVÍK Vaxandi austanátt
5-8 m/s og léttskýjað.
Frost 0-4 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
isafjörður Q 15-20 Snjókoma 03
Akureyri 0 10-18 Snjókoma 06
Egilsstaðir 9 8-15 Snjókoma £7
Vestmannaeyjar 9 5-8 tl 04
Engin svör um
brunavarnir
Sjálfstæðismenn í Reykjavík segja brunavarnir
nægjandi. 1998 var einn skóli í lagi. Beðið svara
crunnskólar. Sjálfstæðismenn í
Reykjavík gagnrýna hvernig
brunavörnum í grunnskólum borg-
arinnar er háttað og segja þær gjör-
a, samlega ófullnægj-
andi. Guðrún Pét-
ursdóttir, lífeðlis-
fræðingur, sem sæti
á fræðsluráði fyrir
Sjálfstæðisflokkinn,
tók málið upp á
fundi ráðsins í síð-
asta mánuði. Hún
benti á að árið 1998
hafi einungis einn
—♦— skóli verið með full-
nægjandi brunavarnir og kallaði
eftir skýrum svörum um stöðu
mála í dag. „Ég vonast til að fá þau
svör á næsta fundi fræðsluráðs sem
haldinn verður á mánudaginn,"
sagði Guðrún í samtali við Frétta-
blaðið. „Ef það kviknaði í og að barn
„Ég held að
við stöndum
alveg hrika-
lega illa að
vígi ef eitt-
hvað kemur
fyrir," sagði
Guðrún Pét-
ursdóttir.
slasaðist eða jafnvel færist í bruna
í skóla og að það hefði legið fyrir í
áraraðir að brunavarnir væru ekki
viðunandi, hvar stæðu þá fræðslu-
yfirvöld í Reykjavík sem bera
ábyrgð á þessu máli? Ég held að við
stöndum alveg hrikalega illa að vígi
ef eitthvað kemur fyrir. Ég efa líka
að foreldrar hafi hugmynd um
hvernig ástand brunavarna er í
skólunum sem barnið þeirra er í.
Mér finnst þetta vera hlutur sem
þarf að taka á í samræmi við alvar-
leika málsins,“ sagði Guðrún.
Sigrún Magnúsdóttir, formaður
fræðsluráðs, sagði að í gagnrýni
sjálfstæðismanna hafi verið rifjuð
upp skýrsla eldvarnaeftirlitsins
sem var skrifuð í upphafi síðasta
kjörtímabils. „Síðan er búið að gera
feikilega margt. Við höfum haldið
okkar striki í að byggja við skólana
varðandi einsetningu. Sú vinna
í grunnskólum ófull-
um aðgerðir síðan þá.
tengist auðvitað brunavörnum
líka,“ sagði hún. „Auk þess er á
hverju ári haldinn fundur þar sem
Fasteignastofa Reykjavíkurborgar
fer yfir viðhaldsverkefni með
skólastjórum. Ég gef mér ekki ann-
að en báðir þessir aðilar hafi örygg-
isatriðin í forgangi," bætti hún við.
Grunnskólarnir þurfa að upp-
fylla ákveðna eldvarnarstaðla og
þurfa því hinar ýmsu brunavarnir
að vera í lagi, s.s. rýmingarleiðir út
úr skólum, brunaslöngur, eldvarn-
artæki og brunahurðir. Einar Jóns-
son, starfsmaður Fasteignastofu,
sagði töluverða peninga hafa verið
setta í þau mál undanfarin ár. „Fyr-
irspurn sjálfstæðismanna verður
svarað þó að það sé ekki búið. Það
tekur tíma að fara í gegnum þetta.
Þetta eru um 30 byggingar og þær
eru stórar."
freyr@frettabladid.ís
FÓLK
Þroskaheftur
Sean Penn
■V',
SIÐA 14
y.
'L
I
TTþróttir
íslendingar
aukaatriði
SÍÐA 12