Fréttablaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTABLAÐIÐ 8. mars 2002 FÓSTUDACUR Friðrik Pálsson: Engin greiðsla eftir starfslokin landssíminn Engin starfsloka- samningur verður gerður við Frið- rik Pálsson, fráfarandi stjórnarfor- mann í Landssímanum. Eins og kunnugt er samdi Frið- rik um sérstakar aukagreiðslur til sín í gegn um einkafyrirtæki sitt Góðráð vegna starfa sinna sem stjórnarformaður Landssímans. Að sögn Friðriks stöðvast þessar greiðslur þegar hann hættir sem stjórnarformaður á aðalfundi Landssímans næsta mánudag. „Að sjálfsögðu. Þetta er einfaldlega sama dæmið og þegar þú færð þér smið til að vinna fyrir þig: Hann rukkar bara tímana sem hann vinn- ur og búið,“ segir Friðrik. ■ Gjaldþrotaskipti Nasco: Niðurstöðu beðið í máli sjómanna þrotabú Alls bárust kröfur upp á um 770 milljónir króna í þrotabú Nasco sem varð gjaldþrota árið 2000. Að- eins forgangskröfur hafa verið greiddar. Jóhann H. Níelsson hrl. skiptastjóri segir að enn sé verið að innheimta og ganga frá viðskipta- kröfum og því séu eignirnar ekki ljósar. Eignirnar velti auk þess að nokkru leyti á niðurstöðu Héraðs- dóms Reykjavíkur í málum sjó- manna sem störfuðu hjá Nasco. Annars vegar gera nokkrir sjó- menn kröfu á búið um greiðslu upp- sagnarfrests í kjölfar gjaldþrotsins. Um álitamál er að ræða þar sem sjó- mennirnir gerðu ekki ráðningar- samninga beint við Nasco, heldur við útgerðarfélög tengd Nasco sem skráð eru á eyjunni Isle of Man; svo- nefnd hentifánafélög. Hins vegar er um að ræða ágreining milli sjó- manna, sem sannanlega unnu hjá Nasco, og þrotabúsins um túlkun ákvæða um fjárhæðir vegna upp- sagnarfrests. Málin voru flutt síð- asta haust og er niðurstöðu að vænta á næstu dögum. Byggða- stofnun er stærsti kröfuhafinn í SKIP NASCO Styttist í niðurstöðu úrskurðarmála fyrrum sjómanna Nasco gegn þrotabúinu um greiðslu uppsagnarfrests. búið með 145 milljónir króna ábyrgðarkröfu vegna skuldar rækjuvinnslu Nasco í Bolungarvík. Á meðal annarra helstu kröfuhafa eru Eimskip með 75 milljónir króna, Búnaðarbankinn 64 milljónir, Olís 43, Esso 35, Skagstrendingur 35. ■ Ahrif Noralverkefnisins rædd á þingi: Kallað efitir mótvægisað- gerðum VEXTIR „Verði þetta niðurstaðan getur þetta haft veruleg áhrif á skuldir fyrirtækja og heimila", sagði Jóhanna Sigurðardóttir í umræðu á Al- þingi í gær um efnahagsleg áhrif Kára- hnjúkavirkjunar og álvers í Reyð- arfirði. í svari forsætisráð- herra við fyrir- spurn hennar um mótvægisað- gerðir kemur fram að Seðla- bankinn telur sig kunna að þurfa að hækka stýrivexti um allt að 2,5 % verði ekki gripið til annarra mót- Jóhanna sagði JÓHANNA SIC- URÐARDÓTTIR Ótækt að þing fær ekki upplýsingar um mótvægisaðgerðir éður en ákvörðun er tekin um virkjun. vægisaðgerða. áhrifin ekki síst geta orðið mikil á íbúðakaupendur vegna affalla á húsbréfum. Davíð Oddsson sagði ekki hægt að fullyrða um að vextir myndu hækka. Hann lagði áherslu á að tími gæfist til að ákveða mótvæg- isaðgerðir þegar tekin hefði verið ákvörðun um framkvæmdir. Stuðla mætti að jafnvægi með því að haga öðrum framkvæmdum stjórnvalda með hliðsjón af þeim. „Bæði atvinnulífið og heimilin kalla á miklu meiri vaxtalækkun", sagði Ögmundur Jónasson og hafði áhyggjur af áhrifum vaxta- hækkunar á skuldsett heimili. Tveggja prósenta vaxtahækkun sagði hann vera 200.000 króna aukaskattur á fjölskyldur sem skulda tíu milljónir í íbúðarlán. „Til hvaða mótvægisaðgerða ætl- ar ríkisstjórnin að grípa til fyrir hönd heimilanna ef þessi yrði raunin?“ ■ Æ fleiri arabaríki styðja friðartilboð Sádi-Arabíu Ekkert lát á ofbeldisverkum ísraelsmanna og Palestínumanna. Utanrík- isrádherra Bandaríkjanna gagnrýnir hörku Sharons. íran styður friðar- tilboð Sádi-Araba. Utanríkisráðherrar arabaríkjanna ræða tilboðið nán- ar um helgina. RAMALLA. WASHINCTON. KAÍRÓ. AP Israelski herinn herti enn hernað sinn gegn Palestínumönnum í gær. Ráðist var á tvær flótta- mannabúðir á Vesturbakkanum, sprengjum varpað á palestínskar lögreglustöðvar og flugskeytum skotið á höfuðstöðvar Jassers Arafats í Ramalla. Þá gerði Palestínumaður sjálfsmorðsárás við innganginn að landnemabyggð Gyðinga á Vesturbakkanum. Bæði Colin Powell, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, og Kofin Annan, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, gagnrýndu á miðvikudaginn harðlínustefnu Aríels Sharons, forsætisráðherra ísraels. Bandarísk stjórnvöld hafa und- anfarið einkum gagnrýnt Arafat fyrir að gera ekki meira til þess að koma í veg fyrir hryðjuverk Palestínumanna. I gær beindi Col- in Powell gagnrýni sinni einnig að Ariel Sharon, sem hefur boðað linnulaust stríð gegn Palestínu- mönnum þangað til sigur vinnst á þeim. „Ef þú lýsir yfir stríði á hendur Palestínumönnum og heldur að þú getir leyst vandann með því að sjá hve marga Palestínumenn er hægt að drepa - ég veit ekki hvort það kemur þér neitt áleiðis," sagði Powell. Hann sagði að bæði Shar- on og Arafat verði að huga vand- lega að afleiðingum stefnu sinnar, sem leiði aðeins af sér meira of- beldi. í gær lýsti Iran yfir stuðningi við friðartilboð Sádi-Araba. Bash- ar Assad Sýrlandsforseti lýsti yfir stuðningi sínum fyrr í vikunni, með nokkrum semingi þó. Jórdan- UNGIR FLÓTTAMENN KREFJAST HEFNDA Þúsundir Palestínumanna í flóttamannabúðum í Damaskus í Sýrlandi sýndu í gær stuðn- ing sinn við uppreisn Palestínumanna og kröfðust hefnda fyrir fallna Palestínumenn. Nærri fjórar milljónir Palestínumanna hafa stöðu flóttamanna á yfirráðasvæðum palest- ínsku heimastjórnarinnar og í nágrannaríkjunum. ía og Egyptaland styðja einnig til- boðið, auk þess sem reikna má með stuðningi Líbanons. Tilboðið frá Abdúlla, krónprins í Sádi-Arabíu, felst í því að ísra- elsríki afhendi öll hernumdu svæðin í skiptum fyrir viðurkenn- ingu arabaríkja. Um útfærsluna verði ísraelsmenn hins vegar að semja við Palestínumenn, Sýr- lendinga og Líbanon. Embættismaður í Sádi-Arabíu sagði frönsku fréttastofunni AFP að tilboð Abdúllas sé í aðalatrið- um byggt á ályktunum Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal ályktun nr. 194 sem kveður á um að Palest- ínskir flóttamenn eigi rétt á því að snúa aftur til ísraels. Tillögur Sádi-Araba verða ræddar á fundi utanríkisráðherra arabaríkjanna í Kaíró um helgina. Úrslitum gæti þó ráðið hvort Arafat fái að yfirgefa Ramalla til þess að fara á leiðtogafund Arababandalagsins í Beirút í lok þessa mánaðar. Palestínumenn segjast hafa fengið fullvissu fyrir því frá Abdúlla að hann muni ekki leggja tilboð sitt formlega fram á leiðtogafundinum í Beirút nema Arafat verði viðstaddur. ■ Utsala! Pelsgarn 15% afsláttur í mars, allir litir. Páskaútsaumur í úrvali GPl Skólavörubúðin - Arvaf^. / / rteimíj, ícfÁ dg starft - Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími 564 3988 Hafrannsóknastofnun: Togararallið kostar tæpar 100 milljónir sjávarútvecur Togararall Haf- rannsóknastofnunar hófst sl. mánudag. Það stendur í hálfan mánuð. Fyrir utan rannsóknar- skipið Árna Friðriksson hafa fjór- ir togarar verið teknir á leigu í þetta verkefni eftir útboð meðal útgerða. Það eru Páll Pálsson, Ljósfell, Brettingur og Bjartur. Þrír fyrst nefndu togararnir verða í þessu verkefni í fimm ár en Bjartur í þrjú ár. Jóhann Sigur- jónsson forstjóri Hafró segir markmiðið með þessum langtíma- samningum sé að ná fram stöðug- leika í stað þess að skipta árlega um skip. Heildarkostnaður Hafró vegna rallsins, úrvinnslu gagna og fleira nemur um 100 milljónum króna. í þessum leiðangri munu skipin taka alls um 600 tog á veiðislóðum umhverfis allt landið. Fimm starfsmenn Hafró eru í hverjum togara auk átta vísinda- manna um borð í Árna auk áhafna. Jóhann segir togararallið mjög mikilvæg þátt í vöktun botnfisk- tegunda. Það eru þorskur, ýsa, ufsi, karfi auk flatfiskstofna eins og t.d. kola og grálúðu. Hann bend- ir á að þarna sé um að ræða staðl- aðar mælingar með sömu aðferð- um ár eftir ár á sömu veiðislóðum. Fyrir vikið verður samanburðar- hæfnin á milli ára mjög sterk út frá vísindalegu gildi þessara mæl- inga. Hann segir að stofnunin sé að skoða með hvaða hætti sé hægt að koma til móts við þá gagnrýni að í þessu ralli sé ekki tekið nægj- anlega mikið tillit til útbreiðslu nytjastofna á grunnslóð. ■ Minnkandi viðskiptahalli: Nálægt 20 milljarðar efnahacsmÁl Fjármálaráðuneytið telur ekki óraunhæft að gera ráð fyrir að viðskiptahallinn geti orðið um eða innan við 20 milljarða króna á þessu ári. Seðlabankinn spáði því í ársfjórðungsskýrslu sinni í síðasta mánuði að viðskipta- halli á árinu yrði 33 milljarðar.í vefriti fjármálaráðuneytisins í gær kemur fram að síðustu þrjá mánuði hafi innflutningur dregist saman um 20% á einu ári, sem þýði minni halla en gert var ráð fyrir. Tölur Hagstofu um vöruskipta- jöfnuð að undanförnu séu mun hagstæðari en gert hafi verið ráð fyrir í spá Seðlabankans. ■ Vaxtahækkanir vegna Noralverkefnisins: Otímabært að tjá sig um þetta vextir „Það er alveg ótímabært að tjá sig nokkuð um þetta", sagði Birgir ísleifur Gunnarsson, seðla- bankastjóri, um svar forsætisráð- herra við fyrirspurn Jóhönnu Sig- urðardóttur um efnahagsleg áhrif framkvæmda við Kárahnjúka- virkjun og álver í Reyðarfirði. í svarinu kemur fram að stýrivext- ir kynnu að þurfa að hækka um allt að 2,5 prósentustig til að koma í veg fyrir verðbólgu umfram verðbólgumarkmið. Er þar vísað í mat Seðlabankans en tekið fram að ekki fengust upplýsingar um til hvaða mótvægisaðgerða stjórn- völd kynnu að grípa. „Þetta er bara fræðileg niður- staða hjá okkur," segir Birgir ís- leifur. „Við vitum ekki hvort af þessum framkvæmdum verður eða hvenær. Við getum ekki sagt um hvenær eða til hvernig mót- vægisaðgerða þurfi að grípa. Það fer alveg eftir stöðunni í efna- hagslífinu." Hann segir umrædd- ar vaxtahækkanir ekki miðaðar við vexti eins og þeir eru í dag heldur vexti eins og þeir verði á viðkomandi tímabili. „Það er ekki hægt að álykta að vextir verði tveimur prósentustigum hærri en þeir eru í dag.“ ■ —♦— Lögreglurannsókn á Skerj afj arðarslysinu: Ovissa um framhald löcreclumál Óvissa er nú um framhald rannsóknar lögreglunn- ar í Reykjavík á Skerjafjarðar- slysinu. Að sögn Egils Stephensen sak- sóknara hjá lögreglustjóraemb- ættinu þarf ef til vill að fara fram frekari rannsókn áður en afstaða er tekin um það hvort ákært verð- ur. „Þetta tekur bara því miður svona langan tíma. Málið er flókn- ara og seinunnara heldur en menn gerðu ráð fyrir. Eitt af því sem verið er að ákveða er hvort rann- sókn er endanlega lokið. Og ef svo er hvert rannsóknin þá leiðir. Nægir það sem fyrir liggur til ákæru? Ef svo ekki verður málið fellt niður,“ segir Egill. Skerjafjarðarslysið er því enn til meðferðar hjá lögfræðideild lögreglunnar. Að sögn Egils mundi frekari lögreglurannsókn á málinu felast í viðbótarskýrslu- tökum. Þess má geta að kæra Félags flugumferðarstjóra vegna þeirrar ákvörðunar Flugmálastjórnar að veita aðgang að hljóðritunum úr fiugturninum í Reykjavík kvöldið sem Skei-jafjarðarslysið varð er einnig til áframhaldandi meðferð- ar hjá embætti Lögreglustjórans í Reykjavík. ■ .1

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.