Fréttablaðið - 08.03.2002, Side 22

Fréttablaðið - 08.03.2002, Side 22
HRÓSIÐ Hrósið fær hringjarinn í Hallgrímskirkju fyr- ir að minna okkur á með klukknahljómi hvað tímanum líður. Víst er að mörgum finnst hljómurinn viðkunnalegur og ekki síst heimilislegur í dagsins önn. 22 FRETTABLAÐIÐ 8. mars 2002 FÖSTUDACUR Jón er hardur húsbóndi Persónan Eg er nú ekki vanur að gera mik- ið úr svona afmælisdögum ég hélt hins vegar upp á afmælið mitt þegar ég var fimmtugur með pomp og pragt,“ segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sem er 57 ára í dag þann 8. mars. Þrátt fyrir að Guðjón hugi ekki að deginum á hann allt eins von á að þeir allra nánustu láti sjá sig og þiggi kaffisopa í kvöld. „Ég er hins vegar lítið fyrir bakstur og játa að ég kann það hreint ekki,“ segir hann. Guðjón situr um þessar mundir við skriftir í Reykjavíkur- Akademíunni. „Ég vinn að ævisögu Jóns Sigurðssonar og er mættur til starfa fyrir níu og sit við til fimm. Þessi bók er harður húsbóndi og ég ber það ekki við að skrópa í vinn- unni. Eins merkilegt og það er þá Guðjón Friðriksson er ekki vanur að gera [ mikið úr afmælisdögum.; held ég að ég sinni þessu starfi mun betur en ef ég væri í vinnu hjá öðr- um. Ég fæ jafnan samviskubit ef ég verð veikur og dríf mig fljótt á fæt- ur.“ Guðjón var á síðasta ári í húsi Jóns í Kaupmannahöfn og hefur væntanlega náð góðum tengslum þar. „Ég geri það gjarnan þegar ég skrifa að heimsækja þá staði sem koma við sögu. Þannig fæ ég betri tilfinningu fyrir því sem ég er að koma frá mér. „ Guðjón hefur mikinn áhuga á þjóðmálum, segist vera mjög póli- tískur í eðli sínu. Aðspurður um hvort á honum sé vinstri slagsíða GUÐJÓN FRIÐRIKSSON Hann segist vilja skrifa bækur sínar á aðgengilegan hátt þannig að almenningur lesi þær. segist hann ekki getað neitað því. „Ég hef alltaf haft gaman af að fylgjast með og setja mig inn í þau mál sem eru brennidepli hverju sinni." Guðjón er kvæntur Hildi Kjartansdóttur ritstjóra og á hann tvær dætur frá því fyrir hjónaband og stjúpson ■ SAGA DAGSINS 1 TÍMAMÓT | 8. MARS ÚTFÖR Til byltingar kom í Rússlandi 8. mars 1917 þegar alþýðan reis upp til að mótmæla miklum skorti á matvælum og lélegum kjörum. Byltingaraldan reis fyrst upp í Petrograd og viku síðar lauk mar- gra alda keisaraveldi þegar Niku- lás II. hrökklaðist frá völdum. Talið er að með þessari byltingu hafi fyrsta skrefið verið tekið í átt- ina að kommúnismanum sem síðar réði ríkjum. Suez skurðurinn var opnaður á ný fyrir almenna umferð 8. mars 1957 eftir að ísraelar drógu sig til baka af yfirráðasvæði Eg- ypta. Vinsælasta lagið í Bandaríkjun- um árið 1956 var The Great Pretender í flutningi The Platters. Árið 1961 var Pony Time með Cubby Checker vinsælast og árið 1970 trónaði lag Simon og Gar- funkel, Bridge over 'IYoubled Wa- ter á toppnum. JARÐArFARIR 15.00 Einar Jón Blandon, Litlu-Hildisey, Austur-Landeyjum, verður jarð- sunginn frá Digraneskirkju í dag. 13.30 Guðrún Jónsdóttir, Hafnarstrætí 18b, Akureyri, verður jarðsungin í dag frá Akureyrarkirkju. 13.30 Úlfar Þórðarson, læknir, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag. 13.30 Örn Egilsson, símsmiður, Fróð- engi 6, Reykjavík, verður jarð- sunginn frá Bústaðakirkju í dag. 14.00 Matthías Hannesson og Snorri Norðfjörð Haraldsson verða jarðsungnir frá Keflavíkurkirkju í dag. 15.00 Hulda Einarsdóttir frá Hringsdal verður jarðsungin frá Frikirkjunni í Reykjavík i dag. 14.00 Asa Tryggvadóttir, Vesturgötu 22, lést 4. mars. Minningarathöfn verður í kapellu Fossvogskirkju í dag kl. 15.00. Jarðsett verður frá Staðarfelli á morgun. 13.30 Haukur Jörundarson, kennari, Aflagranda 40, Reykjavík, verður jarðsunginn í dag. 13.30 Gunnar Guðmundsson verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag. 13.30 Eyjólfur Hermannsson, Hjálm- holti 1, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. AFMÆLI______________________________ Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og rithöfundur, er 57 ára í dag. Sigurður Hlöðversson, sjónvarpsmaður, er 34 ára í dag. STÖÐUVEITINCAR_____________________ Áslaug Þórarinsdóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, hefur verið skip- uð af Dómsmálaráðherra að vera sýslu- maður í Hólmavík frá 15. mars. Magnús Bergsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kjarnasviðs Aco- Tæknivals. Jón Skjöldur Karlsson, rekstrarfræðing- ur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ferðalausna ehf. á Akureyri. Sigurður Ingólfsson hefur flutt sig um set innan Norræna fjárfestingabankan- um og hefur nú með höndum stjórn til- tekinna fjármögnunarverkefna á sviði umhverfisbóta í Rússlandi innan Al- þjóðalánadeildar. tmhusgogn.is sem sameina fegurð og þægindi vínrauður, grænn, rauðbrúnn, Ijósbrúnn, dökkblár og svartur 200x245 cm 86 cm Leður á slitflötum vínrauður, Ijósbrúnn og dökkblár -A 220x270 cm bak:91cm Alklæddur leðri Mán. - fös. 10.00 -18.00 • Laugard. 11.00 -16.00 • Sunnutí. 13.00 -10.00 TM - HÚSGÖGN Mannbætandi að vera nærri honum Ulfar Þórðarson læknir verður jarðsunginn í dag. Hann var liðlega níræður að aldri og lifði alla sína daga með gleði. Þannig minnist Unnur Ulfarsdóttir föður síns. Faðir minn var fyrst og fremst mannvinur og það var mann- bætandi að vera nálægt honum,“ segir Unnur Úlfarsdóttir um föð- ur sinn Úlfar Þórðarson. Hann lést í síðustu viku og verður jarð- sunginn í dag kl. 13. 30 frá Dóm- kirkjunni. Unnur segir að faðir hennar hafi hlotið í vöggugjöf óslökkvandi áhuga og ást á lífinu. „Ég held að forsjónin hafi ætlað honum að verða læknir og hann var það af Guðs náð. Hann græd- di ekki aðeins og læknaði. Stór hluti lækninga hans var að gefa af sjálfum sér og færa sjúklingum sjnum gleði og von,“ segir Unnur. Úlfar fæddist að Kleppi í ágúst árið 1911. Foreldrar hans voru Þórður Sveinsson yfirlæknir og kona hans Ellen Johanne Sveins- son. Úlfar var mikill áhugamaður um íþróttir og var í Olympíuliði íslands sem tók þátt í leikunum í Berlín 1936. Þar lék hann sund- knattleik með íslenska landslið- inu. Hann var Valsmaður af llfi og sál og sat í þeirri bygginganefnd félagsins sem byggði upp aðstöð- una á Hlíðarenda. Á árum áður dvaldi hann nær öllum stundum á Hlíðarenda og flestir Valsmenn sem eru ekki því yngri minnast hans. Úlfar Þórðarson rak augn- læknastofu í Lækjargötunni. Ekki væri ofsagt að segja að stór hluti íslendinga sem komnir eru af barnsaldri hafi komið á stofuna til hans. Þar þurfti ekki að panta tíma; aðeins að mæta. Hann hafði mörg járn í eldinum og var lengi borgarfulltrúi sjálfstæðismann í Reykjavík auk fjölmargra ann- arra trúnaðarstarfa sem hann gegndi. „Faðir minn átti langt og gæfu- ÚLFAR ÞÓRÐARSON Hann var mikill Valsmaður og eyddi ó fáum stundum i þeirra þágu. ríkt líf. Hann varð fyrir sínum sorgum en bar gæfu til að vinna úr því pg halda áfram að njóta lífsins. Ég held að hann hafi notið hvers dags og aldrei leiðst. Fram að því síðasta sótti hann sund- laugarnar og var léttur og kátur. “ Unnur segir að eiga Úlfar Þórðar- son að föður hafi verið ein sam- felld skemmtun og óseigjanlegt lán. „Ég gerði mér það betur ljóst þegar ég vitkaðist hve lánsöm við systkinin vorum að eiga slíkan föður." Úlfar var kvæntur Unni Jóns- dóttur kennara sem lést 1994. Auk Unnar áttu þau Þórð Jón sem lést í flugslysi 1963, Ellen Elísa- betu og Svein Egil. ■ FÓLK í FRÉTTUM SíSumúla 30 -Sími 568 6822 - œvintýri líkust Þeim sem þekkja til kom alls ekki á óvart að Tómas Ingi 01- rich hafi orðið fyrir valinu þegar Davíð Oddsson valdi nýjan menntamálaráðherra. Hann var sigurvegari í samanburði milli þeirra þi'iggja sem komu til greina. Sigríður Anna Þórðardótt- ir er þriðjiu maður á lista flokks- ins í sínu kjördæmi - kjördæmi sem hefur einn ráðherra. Einar K. Guðfinnsson er í það litlu kjör- dæmi og reyndar er farið að telja hann til nýs norðvesturkjördæm- is. Þar er fyrir einn ráðherra; Sturla Böðvarsson. Tómas Ingi er á sama hátt í norðausturkjör- dæmi. Þar á Sjálfstæðisflokkur- inn engann ráðherra. Halldór Blöndal er á undan Tómasi á list- anum. Talið er að búið sé með skipan Tómasar í ráðherrastól að ákveða hann sem næsta foringja í kjördæminu. Hið fyrra bréf Össurar Skarp- héðinssonar til Baugsmanna vakti eðilega athygli. Blaðinu hefur borist vísa sem sögð er eft- ir Kristján Hreinsson. Vísan er svona: „Össurflaug í æstum brag, engu laug hann hvatur. Alltfrá Baugi er í dag öskuhaugamatur." Þá eiga hagyrðingarnir eftir að semja um hið síðara bréf Össurar. Arne Aarhus, base stökkvari kemur til landsins fyrir frumsýningu myndarinnar Arne í Ameríku. Arne er nú í Suður Afr- íku þar sem hann er fyrirliði í extreme maraþoni. Hann ætlaði á Kilmanjaro eftir keppnina, en aðstendendum myndarinnar tókst að telja honum hughvarf. Arne kemur um viku fyrir frumsýn- ingu sem verður 27. mars.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.