Fréttablaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 4
4 FRÉTTABLAÐIÐ 20. mars 2002 MI0VIKUDAGUR I SVONA ERUM VID EHilífeyrisþegum fjölgar á Islandi Hagstofa íslands hefur birt nýjan fram- reikning á fjölda íslendinga fyrir tímabilið 2003-2042. Samkvæmt honum verða (s- lendingar 300.000 í lok árs 2007 og rúm- lega 360.000 árið 2040. Niðurstöðurnar benda til þess að fólki á ellilífeyrisaldri, þ.e. 67 ára og eldri, muni fjölga mest á næstu áratugum. Heimild: Hagsiofan NÚ MÁ AFTUR KEPPA ( BOXI Á þriðjudaginn kepptu þessir tveir boxarar í fyrstu keppninni sem haldin er í Kabúl. Breyttir tímar í Afganistan: Talibanar bönnuðu box kabúl. ap Meðan talibanar réðu ríkjum í Afganistan var bannað að stunda þar box. Það þótti ekki samræmast hinni ströngu túlkun íslams sem talibanarnir eru þekktir fyrir. Áhugamenn um boxíþróttina þurftu því að æfa sig með leynd. Eftir að talibana- stjórnin féll fékkst hins vegar frelsi til þess að leggja stund á þessa íþrótt á ný. Fyrsta keppnin í boxi í Afganistan hófst í Kabúl í gær. ■ [ FERÐALÖG I erðir til Prag, höfuðborgar Tékklands, verða æ vinsælli. Að sögn Andra Más Ingólfssonar, framkvæmdastjóra Heimsferða, stefnir í að 7.000 íslendingar fari á þeirra vegum til borgarinnar í ár. Það er 15% aukning frá því í fyrra sem var metár að sögn hans. Hann segir íslendinga þá hafa uppgötvað fyrir alvöru þessa „stórkostlegu borg“. 1lögreglufréttir| Hjólreiðamaður slasaðist á höfði rétt fyrir klukkan fimm í fyrradag þegar hann lenti á ljósastaur á Smiðjuvegi í Kópa- vogi. Að sögn lögreglunnar var hann fluttur á slysadeild. Heimildarmyndin í skóm drekans: Lögbannsbeiðni hafnaö deilur „Þau höfðu engar ástæður til að krefjast lögbanns," segir Hrönn Sveinsdóttir, höfundur heimildar- myndarinnar í skóm drekans. Að- standendur keppninnar Ungfrú ís- land.is vildu að lögbann yrði sett á sýningu myndarinnar. Sýslumaður- inn í Reykjavík hafnaði þeirri beiðni í gær. Myndin fjallar um þátttöku Hrannar í fegurðasamrkeppninni Ungfrú ísland.is. Forsvarsmenn keppninnar segja að Hrönn hafi kvikmyndað án leyfis og vitneskju þátttakenda. „Við munum skjóta þessari ákvörðun sýslumanns til Héraðs- HRÖNN SVEINSDÓTTIR ( SKÓM DREKANS Listamenn standa 100 prósent á bakvið okkur. dóms,“ segir Ásta Kristjánsdóttir, aðstandandi keppninnar. Hún seg- ist alltaf hafa verið viðbúin því. Niðurstaða fáist ekki í málið fyrr en dómur sé ljós. „Þetta er bara rétt að byrja.“ „Við erum búin að vinna fyrstu orustuna," segir Hrönn. Nú munu þau í kvikmyndafyrirtækinu Tútt- ugu geitum setjast niður og ákveða frumsýningardag. Forsvarsmenn Félags kvik- myndagerðarmanna, Bandalags ís- lenskra listamanna og fleiri fengu að sjá myndina í fyrradag. Hrönn segir þessi félög styðja við bakið á þeim. „Ég vona líka að f jölmiðlar og allir sem vinna með myndir, hljóð og ritað mál geri slíkt hið sama. Þetta er gróf atlaga að málfrelsi í þessu landi." ■ Hlutur Orca í íslands- banka: ■ Obreytt staða hluthafar Fjármálaeftirlitið hefur ekki endurskoðað ákvörðun sína frá því í síðustu viku þegar hluthaf- ar Orca-hópsins voru sviptir at- kvæðisrétti á aðalfundi Islands- banka. Að öðru leyti vildi forstjóri Fjármálaeftirlitsins ekki tjá sig um málið í gær. Nokkur óvissa hefur ríkt um ástæður aðgerðanna. Jón Ólafsson sagði í Fréttablaðinu í gær að þetta tengdist sér ekki. Hann hefði ekki fengið send nein bréf frá eftirlitinu. Páll sagði í Fréttablaðinu 12. mars að ástæðurnar væru rökstuddar í bréfi sem sent var FBA Holding. Jón Ólafsson hafði þá gegnt stjórn- arformennsku í félaginu. ■ Samkeppni hefst á agúrkumarkaði I dag verða tollfrjálsar hollenskar gúrkur í boði á grænmetisborðum Hagkaups ásamt íslenskum. 20% verðlækkun fyrsta daginn. Verð á ís- lenskum lækkaði ekki eftir 15. febrúar sl. þrátt fyrir að þá hæfist niður- greiðsla ríkis á rafmagni til grænmetisbænda. Þarf samkeppni til. GRÆNMETI Heildsalar og innflytjendur vonast til þess að ódýrara grænmeti auki neyslu. grænmeti Verð á íslenskum agúrk- um hefur lækkað undanfarna daga. Meginástæða þess er að í dag koma á markaðinn ódýrar agúrkur frá Hollandi. Verðið í Hagkaupum í gær var 189 kr./kg en er í dag 149 kr./kg sem er 20% lækkun. íslensk- ir garðyrkjubændur hafa svigrúm til að bregðast við þessum kröfum vegna beingreiðslna frá ríkinu. Þetta fá þeir í formi niðurgreidds rafmagns til framleiðslu sinnar. Það hefur verið gagnrýnt að verð á innlendri agúrku hækkaði um tæp 2% frá 15. febrúar til 1. mars og hafði lækkað óverulega þar til undanfarna daga. Alþýðu- sambandið benti á að niðurgreiðsla rafmagns til bændanna hafi hafist 15. febrúar og því hefði mátt vænta lækkunar. Beingreiðslurnar virðast þó ekki einar og sér stuðla að slíku. Undanfarin ár hafa verndartoll- ar, þ.e. verð- og magntollar, verið lagðir á gúrkur, tómata og paprikur 15. mars. Almar Örn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Banana, segir verð á íslenskri framleiðslu ávallt hafa hækkað í samræmi við verð á innfluttum tegundum. Nú var hins vegar enginn tollur lagður á þessar tegundir. Almar segir kílóverð á ís- lenskum agúrkum í heildsölu nú vera um 200 kr. en það var um 400 kr. fyrir viku. Vegna mikils framboðs á agúrk- um í Hollandi núna er verð á þeim lágt, segir Einar Þór Sverrisson, framkvæmdastjóri Ávaxtahússins, sem flytur inn grænmeti og ávexti fyrir Baug. Niðurfellingin hefur ekki skilað sér enn í sömu verð- lækkunum á tómötum vegna þess að lítið framboð er af þeim, bæði er- lendis og hér á landi. Einar telur þrjár til fjórar vikur í að áhrifa nið- urfellinga tolla gæti með sama hætti á tómötum. Það er lítið fram- boð af þeim í Hollandi núna og ís- lensk framleiðsla lítil ennþá. Hins vegar glæðist þau mál væntanlega eftir nokkrar vikur og þá munu ódýrir tómatar streyma á markað og íslenskir lækka í verði. Einar bendir á að þrátt fyrir að verðtollar hafi verið afnumdir á fleiri grænmetistegundum muni magntollar verða lagðir á þær þeg- ar íslensk framleiðsla kemur á markað. Tómatar, agúrkur og paprikur eru einu tegundirnar sem eru algerlega tollfrjálsar nú sem á að skila sér í verulegum verðlækk- unum. sigridur@frettabladid.is mbh@frettabladid.is Niðurskurður í rekstri Greiningarstöðvar: Dregið úr starfsemi í trássi við ráðuneyti GREINING Stjórnendur Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins drógu úr starfsemi stöðvarinnar í trássi við vilja félagsmálaráðu- Bneytisins segir Páll Pétursson fé- lagsmálaráð- herra. „Við báðum þá að halda sig innan rammans og fara eftir fjárveit- ingum. Þeir gripu . þá til þess ráðs að pétursson hætta að þjónusta Það kemur ekki ákveðna hópa. Við til greina að getum ekki fallist draga úr þjónust- á það. Við ætluð- unni- umst til að þeir sýndu sparsemi og aðgætni í rekstri en vildum halda þjónustu- stiginu uppi.“ Stefán J. Hreiðarsson, for- stöðumaður Greiningarstöðvar, hefur sagt að ekki væri hægt að spara í kostnaði nema með því að draga úr þjónustustigi. Því er fé- lagsmálaráðherra ósammála. „Við í ráðuneytinu teljum að hægt sé að laga reksturinn með öðru en að minnka þjónustuna." „Það fyrsta sem þarf að gera er að koma þjónustunni í eðlilegt horf,“ segir Páll. „Síðan þarf að gera faglega og fjárhagslega út- tekt á starfsemi stöðvarinnar. í framhaldi af því þarf að skipu- leggja framtíðarrekstur. Það verður að gerast og þá reynum við að útvega peninga til að reka stöð- ina með skikkanlegum hætti.“ ■ PAÐ ER ERFITT AÐ GRÍPA AÐ IVIJ11.J 6 í I! I í MANNA HAFIÐ DÁIÐ ÚR ALNÆMI Bifreiðastjórafélagið Sleipnir: Formanni sagt upp hjá Kynnisferðum atvinna Óskari Stefánssyni, for- manni Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, og sjö öðrum bílstjórum var sagt upp störfum hjá Kynnis- ferðum um sl. áraniót. Öskar staðhæfir að honum hafi verið sagt upp vegna formennsku sinn- ar í félaginu og baráttu þess fyrir betri kjörum fyrir félagsmenn. Þá gagnrýnir hann Kynnisferðir fyrir það að hafa ekki tekið tillit til starfsaldurs bílstjóra þegar ákveðið var hverjum ætti að segja upp störfum. Sem kunnugt er urðu hópferðafyrirtæki eins og Kynnisferðir fyrir töluverðum búsifjum vegna verkfallsaðgerða Sleipnis á sínum tíma. Kristján Jónsson, fram- kvæmdastjóri Kynnisferða, vísar því alfarið á bug að Óskari hafi verið sagt upp vegna starfa hans að kjarabaráttu Sleipnis. Hann segir að ástæðan hafi fyrst og fremst verið samdráttur sem varð í starfsemi fyrirtækisins eftir hryðjuverk- in í Bandaríkjun- um sl. haust. Þá hefði ekki verið hægt að fara eftir starfsaldri við uppsagnirnar af ýmsum ástæðum, og m.a. vegna sér- hæfingu bílstjóra við akstur mis- stórra bifreiða. Meðal annars hefði Óskar unnið við að keyra áhafnir Flugleiða. Mikill samdráttur hefði orðið í þeim akstri eftir þær aðhaldsaðgerðir sem Flugleiðir gripu til sl. vetur. Óskar hafði unnið hjá Kynnisferðum frá árinu 1997. Áður hafði hann starfað hjá Norðurleið í allmörg ár. Hann hefur gripið í leigubílaakstur eft- ir uppsögnina samfara for- mennsku í Sleipni. ■ ÓSKAR stefánsson Sakar Kynnísferðir um að segja sér upp vegna af- skipta af verka- lýðsmálum. Kynn- isferðir neita því.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.