Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.03.2002, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 20.03.2002, Qupperneq 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 20. mars 2002 MIÐVIKUDAGUR FRETTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík. Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Til vesalinga- framboða Snorri Ásmundsson, formaður Vinstri hægri snú, skrifar: Stjórnmálaflokkurinn Vinstri hægri snú skorar á önnur fram- boð að draga framboð sín í sveita- stjórnarkosningunum til baka og hætta afskiptum af sveitastjórnar- málum. Formaður Vinstri hægri snú, Snorri Ásmundsson, telur hinn nýstofnaða flokk vera eina aflið í stjórnmálum í dag sem getur gert farsælar og jákvæðar breytingar á rekstrarformi borgarinnar og að auka jákvæðni í borginni og land- inu öllu. Nýtt góðæri er í startholunum ef Vinstri hægri snú nær völdum, og þjóðarsálin mun eflast og sjálfs- virðingin mun gera ísland og ís- lendinga ósigrandi á erlendum vett- vangi. Snorri skorar því á R-listann, Sjálfstæðisflokkinn og önnur vesal- ingaframboð að víkja fyrir hinu nýja afli og spara þannig fé til að byggja upp fleiri leikskóla og fjölga leikskólaplássum í höfuðborginni svo um munar. Vinstri hægri snú mun flytja flugvöllinn hið snarasta og hefja uppbyggingu án tafar á skemmtigörðum og þjónustuhverfi auk íbúðahverfis í Vatnsmýrinni. ■ Islensk könnun skekur Norðmenn „Miklar breytingar hafa orðið í af- stöðu íslendinga til Evrópusam- bandsins,“ ségir leiðarahöfundur Dagsavisen í Noregi. „Ný skoð- anakönnun sýnir að 91 prósent að- spurðra vilja að aðildarviðræður hefjist. 52% eru hlynnt aðild og aðeins 25% eru henni andvíg." Blaðið segir að Norðmenn verði að vera viðbúnir því að umsókn um Evrópusambandsaðild komi frá íslandi. „Það þýðir að hræðsla ríkisstjórnar Bondeviks við norska Evrópusambandsumræðu getur ekki lengur talist verjandi pólitísk afstaða." Ufri’iuiofíen Leiðarahöfundur Aftenposten segir niðurstöður íslensku skoðanakönn- unarinnar fela í sér skýra áminn- ingu til norskra stjórnvalda að þau verði að halda vöku sinni gagnvart inngöngu. Gangi íslendingar í Evr- ópusambandið muni það hafa veru- leg áhrif á norska fiskimenn. Það muni svo aftur hafa veruleg áhrif á afstöðu íbúa við strendur landsins sem hafi verið áberandi í hópi and- stæðinga aðildar í kosningum árið 1972 og 1994. Blaðið gerir að um- talsefni afstöðu norskra stjórn- málaleiðtoga sem telja að nokkur tími muni líða áður en ísland sæki um aðild. „Þeir kunna að hafa rétt fyrir sér, en málflutningur ís- JÓNAS SKRIFAR: Úr leiðurum heimsblaða Skoðanakönnun um afstöðu íslendinga til Evrópusambandsins hefur vakið viðbrögð í Noregi. Niðurstaðan kom Norðmönnum á óvart. Margir þar í landi telja fulla ástæðu fyrir Norðmenn að halda vöku sinni. lenskra stjórnmálaleiðtoga með ut- anríkisráðherrann Halldór Ás- grímsson í fararbroddi og afger- andi skoðanakönnun, bendir til þess að engin ástæða sé fyrir stuðnings- menn aðildar að halda sig til hlés.“ í Verdens gang segir að niðurstöð- ur skoðanakönnunarinnar hafi komið verulega á óvart. „Tíma- Þú þarft ekki að vera síhress Þáttastjórnendur í sjónvarpi æsa sig upp í að vera hressir á skjánum í hálftíma eða klukkutíma á viku, en geta verið hinir önugustu þess á milli. Þá hlið sjá sjónvarpsnotendur ekki. Þeir fá þá brengl- uðu mynd af raunveruleikanum, að fræga og fína fólkið í sjónvarpinu sé alltaf bráðhresst. Þrýstingurinn kemur úr mörgum áttum. Aug- lýsingar og slúðurtímarit koma því óvart inn hjá venjulegu og eðlilegu fólki, að eitthvað hljóti að vera að því, ef það getur ekki uppfyllt kröfuna um að vera síhresst. Því leitar fólk í auknum mæli á náðir geðbreytilyfja til að bæta stöðuna. Hefðbundna geðbreytilyfið er áfengi, sem sætir vaxandi samkeppni af hálfu ólöglegra og löglegra fíkniefna. Mest hefur neyzla aukizt á svokölluðu læknadópi. Daglega verða tugþúsundir íslendinga að taka inn prózak eða annað læknadóp til að treysta sér til að horfast í augu við daginn. Geðið sveiflast meira hjá sumum en öðrum. Ef sveiflurnar fara út í öfgar, er eðlilegt að menn leiti sér læknis. En skilgreiningin á því, hvað séu öfgar, hefur breytzt. Nú halda margir, að eitthvað sé að þeim, ef þeir eru ekki hressir út í eitt eins og fyrir- myndirnar á skjánum virðast vera. íslenzk notkun geðbreytilyfja úr apótekum þrefaldaðist rúmlega á síðasta áratug tuttugustu aldar. Samt harðnaði lífsbaráttan ekki tiltakanlega á þessum tíma. Þvert á móti batnaði hagur fólks. Aukin neyzla hlýtur því að stafa af breyttu mati fólks á því, hvað sé eðlilegt sálarástand. Hagsmunir framleiðenda eru líka að baki kröf- unnar um síhressu. Lyfjafyrirtæki stunda linnu- lausan áróður meðal lækna og hafa smám saman breytt mati þeirra á því, hvað sé eðlilegt sálar- ástand fólks. Þau verja meiri fjármunum til áróð- urs en til rannsókna og lyfjaþróunar. Þetta minnir á, hvernig þau komu því inn, að fólk þyrfti átta tíma svefn og yrði ella að taka svefnlyf. Rannsóknir sýna hins vegar að hollara er og líklegra til langlífis að sofa sex-sjö tíma á dag. „Mest hefur neyzla aukizt á svokölluðu læknadópi. Daglega verða tugþúsundir Islendinga að taka inn prózak eða annað læknadóp til að treysta sér til að horfast í augu við daginn. “ Með svefnlyfjum reynir heilbrigt fólk að auka svefntíma sinn upp í átta tíma kröfuna. Ofnotkun svefnlyfja og geðbreytilyfja er dæmi um aukinn þrýsting, sem kemur frá umhverfinu, sumpart að undirlagi lyfjafyrirtækja og sumpart vegna ranghugmynda um eðlilegt sálarástand, sem flæða yfir okkur, einkum úr sjónvarpi, er keyrir linnulaust á uppsprengdri síhressu. Krafan um síhressu er ný af nálinni. Áður fyrr gerði fólk sér betur grein fyrir, að lífið var ekki og átti ekki að vera dans á rósum. Það vissi, að stund- um var tími gleði og stundum var tími sorgar. Fyrst og fremst vissi það, að líðan var oftast hlut- laus, að eðlilegt var að líða hvorki vel né illa. Ef við fylgjumst með, vitum við, að síhressan er tálsýn. Sjónvarpsfólkið, fína fólkið og fræga fólkið á erfitt í einkalífinu. Það fær taugaáföll og lendir á heilsuhælum og afvötnunarhælum í meira mæli en venjulegt fólk. Þetta stafar af, að það veldur ekki hlutverkinu, sem því er ætlað að leika. Sérhver ný kynslóð virðist vera dæmd til að ýkja mistök fyrri kynslóða. Sjónvarpsrásir unga fólksins eru enn þrungnari af kröfunni um sí- hressu en rásir eldra fólksins. Sífellt verður auð- velda að grípa til hættulegra lausna; áfengis, ólög- legra fíkniefna eða læknadóps. Stóri bróðir ríkisvaldið er hluti vandans en ekki lausnarinnar. Þess vegna verður fólk sem einstakl- ingar að rjúfa vítahring umhverfisins og afla sér sjálft frelsis frá kröfunni um síhressu. Jónas Kristjánsson '' ■ nda fyrir ráðstefnu nritudaginn 21.mars ÍSV«flr",m,áStjá'rndur bundið hafi íhaldssami stjórnar- flokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, og forsætisráðherrann, Davíð Oddsson, stöðvað alla Evrópuum- ræðu með skýrri andstöðu." Blaðið segir að burtséð frá því hver þróun- in verði í umræðunni á íslandi, sé skynsamlegt fyrir Norðmenn að undirbúa sig undir slíkt. Afleiðing- ar þess að gera það ekki gætu orðið miídar og dýrkeyptar. ■ ORÐRÉTT AFSTÆÐISHYGGJA UM VEISLUR En þótt boðið lúti þannig ákveðnum lögmálum geta menn þó aldrei gengið út frá neinu vísu um mat, drykk eða skemmtiatriði, öðru en því að afar vel er vandað til og gestrisn- in er upp á það allra besta. Davíð Oddsson, forsætisráðherra. Veisluræða fyrir erlenda sendifulltrúa á Bessastöðum 15. mars. GILDIR LÍKA í HJÓNABANDI Þjóðhollur maður, sem elskar og dáir það sem íslenskt er, hefur ekki leyfi til að neita sér um að elska og virða aðrar þjóðir og forðast víðtæk samskipti við þær og hann þarf ekki heldur að vera minni alþjóðasinni, þótt hann fargi aldrei heiðvirðum tilfinn- ingum sínum til föðurlandsins. Davíð Oddsson. Veisla á Bessastöðum. 15. mars. MÁL AÐ STALDRA VIÐ Það er aukinn hraði í samfélaginu, tengsl á milli fólks hafa rofnað og það hefur skapast aukin þörf fyrir geðlyf. Sigursteinn Másson. Fréttablaðið, 19. mars. EN OKKUR HIN Það er hörð sam- keppni á ferðamark- aðnum og hún hefur farið úr böndum. Það á ekki að gera og Flugleiðir hafa beðið Sam- keppnisstofnun afsökunar. Guðjón Arngrímsson, blaðafulltrúi Flugleiða. DV, 19. mars. GOTT ER AÐ BORÐA GULRÓT- INA... Ég vona að þessi að- gerð verði til þess að menn átti sig á því hvaða tími er upp runninn og mér hefur heyrst það á kaup- mönnum að þeim sé það mikið áhugamál að þetta gangi eftir. Cuðni Ágústsson, landbúnaðarráð- herra, kynnir grænmetislækkun. Morgunblaðið, 19. mars. SVO LÆRIR SEM LIFIR Auðvitað höfum við lært ýmis- legt í leiöinni, meðal annars skilið betur af hverju grænmeti og ávextir eru taldir svona hollir Sigmundur Guðbjarnarson, prófessor. Morgunblaðið, 19. mars. SÁ Á VÖLINA Þegar ég svo næ kjöri þá verð ég ann- að tveggja að sækja um launalaust leyfi eða segja upp. Glsli Marteinn Baldursson, frambjóð- andi. DV, 19. mars. ROSALEGT! Ég er rosalega frísk, rosalega glöð, ánægð í vinnunni og á ynd- islega fjölskyldu. Það er bara ekki annað hægt en að vera sæll. Vala Matthíasdóttir. Fréttablaðið, 19. mars.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.