Fréttablaðið - 20.03.2002, Side 14

Fréttablaðið - 20.03.2002, Side 14
14 FRÉTTABLAÐIÐ 20. mars 2002 MIÐVIKUDAGUR SHIHRíA^ Biú HASKOLABÍÓ Vk'yHtotf'ti ' í K: ;:3s I •> > V • ST/tft-.fA b LAMfn>M#. *áw? .3öBr,«:> GjsfwiíHj I iSL. 4ytj >j\>£Í4 4«k WáiaihW AÍ«Srot>jTo<MFkW I N TH E gEDRODM Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 BLACK HAWK DOWN kl. 4, 7 og 9 |NOT ANOTHER TEEN- kl.4,6ogs( Sýnd kl. 6 og 9 jVANILLA SKY kL9.15( lAMELIE kl. 71 llNTIMACY kl. 5.30 Og 10.30 [ ÍELDBORG jELLING kl. 6, 8 og 10 IMONSTER ÍSL TAL slivir S64 nnon ■ www smarahin.is jBEHIND ENEMY LINES kl. 8 og 10.501 IDON'T SAY A WORD Sýnd kl. 6, 8 og 10 vit 353 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.40 vrr 335 gg jSNOW DOGS 550 og 5.55 fra IMONSTER m/isl tali 130 jCOLLATERAL DAMAGE 8 og 10.30 ImONSTER m/ens tali ÍdTislKIt |SPY GAME kt 5.35, 8 og 10.30 O IhARRY POTTER m/ isL tali Péturs Pan æði í Hollywood: Johnny Pan? FRÉTTIR AF FÓLKI NABBlj &£&TTjíí^k Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 kvikmyndir Svo virðist sem áhuginn í Hollywood á Pétri Pan sé mikill þessa dagana. Nýverið var frum- sýnd framhaldsmynd upphaflegu Disney-teiknimyndarinnar, 49 árum eftir að sú fyrri kom út. Nú hefur Johnny Depp tekið að sér aðalhlutverk kvikmyndarinnar „Neverland". En óttist ekki, Depp mun hvorki setja upp græna hattinn né troða sér í sokkabux- urnar því mynd- in er byggð á leikritinu „The man who was Peter Pan“ sem fjallar um höf- und sögunnar, JM Barrie, og aðdragandann að því að hann skrifaði hana. Hugmyndina fékk hann eftir að hann vingaðist við fjögur föðurlaus börn sem voru nágrannar hans í London á 19.öldinni. Myndinni verð- ur leikstýrt af Marc Forster (Mon- ster’s Ball). Einnig er leikstjórinn PJ Hogan (Muriels Wedding) að vinna að mynd eftir upphaflegu sögunni. Þar mun hinn breski Jason Isaacs fara með hlutverk Hook og Mr. Darling. ■ JOHNNY DEPP Hefur tekið að sér aðalhlutverkið í kvik- myndinni „Never- land". Það hefur aldrei verið jafn mikið fjör í George Michael eins og eftir að hann kom út úr glerskápn- um, sem allir voru löngu búnir að sjá í gegnum. í opinskáu viðtali við BBC 1 sagðist hann trúa því í dag að hann hefði vilj- að láta handtaka sig. Hann greindi frá því að hann hefði verið í sár- um á þéssum tíma eftir dauða móður sinnar og fyrrum elskhuga síns. Hann segir að honum hafi nauðsyn- lega vantað eitthvað til þess að endurforgangsraða lífi sínu. Hann segir að hann hafi náð að gleyma sorgum sínum um stund í allri ringulreiðinni sem myndaðist vegna handtökunnar, en svo þegar hlutir róuðust niður aftur hafi hann dottið í lægð á ný. Hann segist þó hress sem aldrei fyrr í dag, eins og ætti að sjást á nýjasta myndband- inu hans. Nú styttist í nýja breiðskífu rokkhljómsveitarinnar Korn. Aðdáendur þeirra geta nú fengið að heyra fyrsta smáskífulagið á net- slóðinni www.korntv.com/single. Lagið heitir „Here to Stay“ og verður gefið út fljótlega. Breiðskífan heitir „Untouchables" og er væntanleg í búðir ll.júní. Nú er verið að gera myndband við „Here to Stay“ og eru það engir aðrir en Hughs bræðurnir (From Hejl) sem sjá um það. Igær átti sér stað fyrsta símtalið á milli geimfara og geimveru. Þetta gerðist þegar geimfarar í al- þjóðlegu geim- stöðinni svöruðu símtali frá E.T. Allt var þetta gert í auglýsingaskyni því nú á að fara að sýna nýja útgáfu myndarinnar E.T. í bandarískum kvikmyndahúsum vegna 20 ára af- mælis hennar. Myndin verður frumsýnd vestra þann 29.mars. í nýju útgáfunni er eitthvað um at- riði sem voru klippt út úr uppruna- legu útgáfunni auk þess sem búið er að endurbæta tæknibrellur. Þroskasaga á gistiheimili A skírdag verður frumsýnd í Háskólabíói ný íslensk kvikmynd er heit- ir „Reykjavík Guesthouse". Myndin verður einnig sýnd í Smárabíói. kvikmyndir „Þessi mynd fjallar um gistihúsaeiganda í Reykjavík," segir Unnur Ösp Stefánsdóttir um kvikmyndina Reykjavík Guest- house. Unnur er annar tveggja leikstjóra myndarinnar. „Jóhann Jóhannsson er svolítið á skjön á samfélagið sem hann lifir í. Ilann hefur einangrað sig frá umhverf- inu og lokað sig af á þessu gisti- heimili vegna þess að hann er ný- búinn að missa pabba sinn. Við fylgjumst með 4 dögum í lífi hans og á þeim verður hann fyrir ýms- um áhrifum og árekstrum.“ Unnur segir myndina vera á al- varlegri nótunum þó svo að slegið sé á létta strengi í henni. Jóhann er víst afar undarlegur maður og unun að sjá hvernig hann tekst á við umhverfi sitt. „Þetta er eins konar þroskasaga hans. Á hans vegi verða mjög skrautlegar per- sónur, m.a. 9 ára gamall strákur sem kemur til með að hafa mjög mikil áhrif á allt hans líf. Þar sem hvorugur þeirra virðist falla inn í umhverfið, geta þeir speglað sig hvor í öðrum, þrátt fyrir að þrjátíu ár skilji á milli þeirra." Það er Hilmir Snær Guðnason sem leikur Jóhann, en með önnur stór hlutverk fara Kristbjörg Keld, Margrét Vilhjálmsdóttir og Stefán Eiríksson sem leikur litla snáðann. Kvikmyndin er hugarfóstur Unnar, Björns Thors kærasta hennar og Barkar Sigþórssonar. Björn og Unnur eru bæði í Leik- listardeild Listaháskóla íslands og skiptu þau leikstjórninni á milli sín, með afar diplómatískum hætti. Börkur sá svo um kvik- myndatöku en handritið unnu þau í sameiningu. Þetta er frumraun þeirra í kvikmyndagerð en Unnur segir að hópurinn hafi gengið með hugmyndina að vinna að stóru verkefni saman frá menntaskóla- árum þeirra. „Börkur er náttúru- lega búinn að vera ljósmyndari í mörg ár. Ég og Björn höfum verið að leíka lengi. Þannig að ég myndi segja að við hefðum mikla reynslu í framkvæmdum en ekki beinlínis hvað snertir þetta form. Við vild- um bara kýla á þetta. Þetta byrjaði ekki sem stór hugmynd, en endaði eins og sönnum íslendingum er einum lagið, svona.“ Að sögn Unn- ar fengu leikararnir að fylgjast með handritavinnunni og höfðu þannig áhrif á fæðingu persóna sinna. Daníel Bjarnason, nemi í tón- listarskóla Reykjavíkur, sér um tónlistina. Hann samdi og útsetti fyrir strengjakvartett og þver- flautu. Lokalag myndarinnar samdi hann svo með Gyðu Valtýs- dóttur úr múm. „Hann vann tónlistina þannig að hljóðfærin endurspegla persón- urnar. Þetta er mjög falleg tónlist. Við erum mjög ánægð með hana.“ Myndin verður frumsýnd á skírdag, 28.mars, á óskadagsetn- ingu hópsins. „Myndin gerist um sumar, og nú er sólin að rísa á lofti og því kjörið að frumsýna núna,“ segir Unnur að lokum. Og þar höf- um við það. Biggi@frettabladid.is unnur, bjorn oc borkur Tóku upp myndina sumarið 2000, og hafa eytt öllum frítíma sínum síðastliðin tvö ár við gerð hennar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.